Morgunblaðið - 25.01.2011, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 25.01.2011, Qupperneq 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 2011 AF KÚGUN Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Á dögunum fór ég út til Nor-egs vegna dómnefndar-starfa fyrir hin nýstofnuðu Norrænu tónlistarverðlaun, Nordic Music Prize. Verðlaununum er ætl- að að hefja dægurtónlist Norður- landanna, þ.e. poppið, rokkið og allt það, til meiri vegs og virðingar á al- þjóðavettvangi með því að stilla fram tólf platna lista, en af honum er svo valinn einn sigurvegari. Allt gott með það, þess er vandlega gætt að listræn vigt fremur en nafntog í gulu pressunni stýri því hvaða plöt- ur fara á lista en fyrirmynd verð- launanna er hin bresku Mercury- verðlaun.    Dómnefndarstörfin voru frem-ur hefðbundin, fulltrúar Norð- urlandaþjóðanna fimm báru saman bækur sínar og suðu saman tólf platna listann. Um var að ræða blaðamenn, gagnrýnendur og fólk sem er vel innviklað í tónlistarlands- lag heimalandsins og hefur getu til að meta hvað það er sem skiptir máli og hvað ekki. Umræður gátu orðið skemmtilegar og fjörugar og ekki vantaði upp á tónlistarástríðu þeirra sem þarna voru saman- komnir, en því miður er slíku ekki alltaf fyrir að fara í þessum efnum. Eitt vakti hins vegar athygli mína og það var er ég spurði danska dómefndarfulltrúann hvernig þeir hefðu snúið sér í sambandi við tón- list frá Grænlandi og Færeyjum, sem eru jú hluti af Danmörku. Ég vissi vel hvað ég var að gera og sam- talið sem á eftir fór var einkar fróð- legt. Jú, hann hafði tékkað á plötu Teits (sem er NB þekktasti tónlist- armaður Færeyja, en verðlaun- unum er beinlínis ætlað að skera á slíkt og veiða upp plötur sem eru góðar þótt þær séu ekki á allra vit- orði). Hún var ekkert sérstök að hans mati. Ég spurði síðan út í grænlensku rokksveitina Nanook sem heimsótti Ísland í ágúst síðast- liðnum. Sveitin er sú vinsælasta í Grænlandi um þessar mundir og fyrsta plata hennar, sem út kom í febrúar á síðasta ári, hefur selst í 5.000 eintökum, sem er alger met- sala. Ég get þá vitnað um að tónlist- arlegt innihald er ekkert slor, list- ræna vigtin svo sannarlega til staðar. Daninn hafði aldrei heyrt sveitarinnar getið.    Svona virkar kúgun,“ sagðieiginkona mín sem var með mér í þessari för. „Með því að veita hlutum ekki athygli, líta algerlega fram hjá þeim.“ Mér finnst heilmikið til í þessu verð ég að segja. Nú er ég nokkuð vel inni í tónlist frænda vorra Fær- eyinga og þessi staða landanna, að vera ekki sjálfstæð, getur að sönnu verið heftandi. En þarna var þetta eitthvað svo skýrt. Maðurinn sem bar skylda til að hafa þessa hluti á hreinu, maðurinn sem var valinn til starfa vegna yfirsýnar sinnar yfir danska tónlist hafði aldrei heyrt sveitarinnar getið sem er auðvitað „dönsk“ í þessu samhengi. Þetta er líkt og ég hefði mætt þarna og aldr- ei heyrt Mugisons getið af því að hann væri frá Vestfjörðum. Ímyndið ykkur, tónlist Mugisons hefði þann- ig aldrei átt möguleika á að komast á vitorð hins stóra heims í gegnum þessa leið. Það sem var verst var að ég fann að Daninn sá ekkert athuga- vert við þetta. Hann var reyndar á svipinn eins og hann hefði í raun ekki leitt hugann að þessu, sem er líkast til það rétta. Þessi tiltekni ein- staklingur hefur mögulega ekkert við grænlenska tónlist að athuga en í þetta far er dönsk hugsun, hvað þessi mál varðar, einfaldlega komin. En svo væru Danirnir ekki lengi að stilla Nanook fram sem danskri sveit sæju þeir sér einhvern hag í því. Svona er þetta nú einu sinni rangsnúið allt saman. Hvernig virkar menningarleg kúgun? »Ég get þá vitnaðum að tónlistarlegt innihald er ekkert slor, listræna vigtin svo sannarlega til staðar. Daninn hafði aldrei heyrt sveitarinnar getið. Morgunblaðið/Ernir Ástríða Frederik K. Elsner syngur úr sér hjartað í Norræna húsinu. Það var mikið stuð á kepp- endum og kynnum í Söngva- keppni Sjónvarpsins laug- ardagskvöldið sl. þegar annað undanúrslitakvöld keppn- innar fór fram. Fimm lög voru flutt og komust tvö áfram, „Nótt“ og „Eldfjall“, og fögnuðu lagahöfundar og flytjendur ákaft þegar úrslit símakosningar lágu fyrir. Á ská Rakel Mjöll Leifsdóttir söng lag Orra Harðarsonar, Beint á ská. Þráin Kristjáns Gíslason og Íslenzka sveitin sungu Þessa þrá. Evróvisjón-díva Jóhanna Guðrún flutti lagið Nótt og sýndi mikil tilþrif að vanda. Kynnar Ragnhildur Steinunn og ábúðarfullur Guðmundur. Sáttur Matthías ánægður að Eldfjallið komst áfram. Eldfjall! Allt á fullu hjá Erlu Björgu Káradóttur í laginu Eldfjall. Segðu mér Bryndís Ásmundsdóttir þenur raddbönd. Morgunblaðið/Eggert Gleði Jóhanna Guðrún fagnar úrslitum með lagahöfundum. Nótt og Eldfjall þóttu best

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.