Morgunblaðið - 25.01.2011, Síða 36

Morgunblaðið - 25.01.2011, Síða 36
ÞRIÐJUDAGUR 25. JANÚAR 25. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318 1. Hræðilegur fyrri hálfleikur 2. Óttast að Frakkar tapi viljandi … 3. Stripp í skíðaferð kostaði … 4. Kona sem rændi barni fyrir 23 … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Arnar Eggert Thoroddsen veltir fyr- ir sér stöðu færeyskra og græn- lenskra tónlistarmanna innan kon- ungsríkisins Danmerkur. Rokksveitin grænlenska Nanook kemur þar m.a. við sögu. »32 Morgunblaðið/Ernir Menningarleg kúgun í Danmörku?  Steingrímur Teague, hljóm- borðsleikari hinn- ar vinsælu Moses Hightower, aug- lýsir eftir kakt- usbúningi á Fés- bókinni. „Ég veit að ég er alltaf að spyrja, en á ein- hver kaktusbúning til að lána mér?“ segir hann. Ekki er vitað um tilgang- inn en tónleikar Moses Hightower á næstunni gætu orðið forvitnilegir. Moses Hightower og kaktusinn!?  Tökur á mynd Baltasars Kormáks, Contraband, munu færast til Púertó Ríkó í lok mars, en nú standa þær yfir í New Orleans. Þetta kemur m.a. fram á On Location Vacations, vefsíðu sem njósnar um tökustaði kvikmynda. „Lausa- penni“ þar leggur auk þess til mynd af sér og Mark Wahl- berg, stjörnu myndarinnar. Tökur á Contraband til Púertó Ríkó Á miðvikudag Suðvestan 5-10 m/s og dálítil rigning eða súld V-lands, en skýjað með köflum fyrir austan. Hiti 3 til 8 stig. Á fimmtudag Suðvestan 10-15, rigning og síðar él vestantil en hægari og úrkomulítið austanlands. Kólnandi veður. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg vestlæg átt og úrkomulítið. Hiti 0 til 8 stig, svalast inn til landsins. VEÐUR Jafnvel þótt Ísland tapi fyrir Frökkum í kvöld gæti liðið samt jafnað sinn besta árangur frá upphafi á heimsmeistaramóti, og tryggt sér sæti í forkeppni Ólympíuleikanna. Margir möguleikar eru í stöðunni fyrir lokaumferð milli- riðilsins á HM í Sví- þjóð og Ísland getur endað hvar sem er frá fimmta til tíunda sæt- is. »1 Enn hægt að jafna besta árangurinn Mikil stemning var á meðal yngri þátttakendanna og aðstandenda þeirra á Stórmóti ÍR í frjálsíþróttum sem fór fram í Laugardalshöll um helgina. Fríða Rún Þórðardóttir hjá ÍR sagði að mótið hefði gengið vonum framar miðað við fjölda. Ljósmyndari Morgunblaðsins var á mótinu og myndaði krakkana í mörg- um greinum. »4 Mikil stemning á Stórmóti ÍR-inga „Ég veit eiginlega ekki hvað gerðist hjá okkur. Við töpuðum alla vega hverri einustu baráttu, bæði í vörn og sókn, og kannski hefur Þjóðverjaleik- urinn eitthvað setið í mönnum. Ég er samt ekki viss um það. Mér fannst við alls ekki vera yfirspenntir og við komum vel undirbúnir til leiks,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson eftir tapið gegn Spánverjum á HM í gær. » 2 Veit eiginlega ekki hvað gerðist hjá okkur ÍÞRÓTTIR Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Þetta byrjaði allt í Hólminum þegar Lella átti sjö ára afmæli,“ segir Ásbjörg Ingólfsdóttir, eða Ása, um nokkrar konur á besta aldri sem hittast reglulega á veit- ingastað í höfuðborginni, oftast í Perlunni, og hafa gert það í rúm- lega 70 ár. „Mamma hennar Lellu var óskaplega fín og góð kona og hún tók á móti okkur eins og við vær- um gestir,“ heldur Ása áfram. „Að því höfum við búið síðan, en við er- um náttúrlega orðnar gamlar og skrýtnar.“ Elizabeth Taylor í Hólminum Vinkonurnar kynntust í Barna- skólanum í Stykkishólmi og hafa haldið hópinn síðan. Skömmu eftir fyrrnefnt afmæli stofnuðu þær saumaklúbb og hafa prjónað síðan þótt þær taki ekki prjónana með á veitingahúsin. Í gær voru þær hins vegar með gamla bekkjarmynd í Perlunni og létu mikið með Ásu. „Ása er alltaf alveg eins og Eliza- beth Taylor,“ sagði Hrefna Lárus- dóttir þegar hún leit af myndinni á Ásu. Auður Lella Eiríksdóttir hefur annars orð fyrir vinkonunum. „Hún er svo góð í því að standa í svona,“ segir Ása og leggur áherslu á að böndin hafi ekki slitn- að þegar þær fluttu suður. Lella segir að tveir árgangar hafi verið í hverjum bekk og flestar stelp- urnar í þeirra hópi hafi haldið sam- an. „Við hittumst fyrsta mánudag í hverjum mánuði, en stundum höf- um við þurft að breyta út af van- anum,“ segir Lella. „En yfirleitt tökum við okkur frí á sumrin.“ Strákarnir óðir í stelpurnar Sjá má glampa í augum þeirra þegar minnst er á strákana í bekknum. „Strákarnir voru alveg vitlausir í okkur eða var það ekki,“ spyr Lella og hinar taka undir með dillandi hlátri. „Jón sagði það þeg- ar við hittumst á Loftleiðum og ég þekkti hann ekki. „Þekkirðu mig,“ spurði ég hann og hann svaraði að bragði: „Já heldurðu að ég þekki þig ekki. Ég var svo skotinn í þér að ég þorði ekki að tala við þig.““ Lella segir að strákarnir hafi tvístrast út um allt land en samt hafi einu sinni tekist að kalla báða árgangana, 1932 og 1933, saman í kvöldverð í Reykjavík. „Það er alltaf jafngaman að hittast. Það voru vissulega meiri ærsli hér áður fyrr en við erum orðnar prúðari núna.“ Verða prúðari með aldrinum  Hafa haldið hópinn í rúmlega 70 ár  Reyna að hittast einu sinni í mánuði Morgunblaðið/Ómar Prúðar Frá vinstri: Auður Lella Eiríksdóttir, Erla Sigurðardóttir, Hrefna Lárusdóttir, Ásbjörg Ingólfsdóttir, Erna Jónsdóttir og Ragnheiður Thorarensen. Lella segir að einu sinni hafi hún boðið öllum bekknum í afmælið sitt. Stelpurnar hafi beðið spenntar eftir strákun- um og þegar hafi verið bank- að hafi þær allar farið til dyra. „„Til ham- ingju með afmæl- ið,“ sagði einn þeirra og rétti mér gerviblóm- vönd. „En ég verð að taka blómin til baka því mamma á þau.““ Varð að skila blómunum AFMÆLI

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.