Morgunblaðið - 04.02.2011, Page 2

Morgunblaðið - 04.02.2011, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2011 Sterkar tennur, fallegt bros – það er Flux! Hefur þú skolað í dag? Fyrir börn og fullorðna Að skola daglega með flúorlausn er áhrifarík leið til að verjast tannskemmdum og góð viðbót við tannburstun með flúortannkremi. Flux fjölskyldan fæst í apótekum HVÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Útlendingastofnun vísaði 45 út- lendingum úr landi árið 2010 en þeir höfðu þá afplánað refsidóma í íslenskum fangelsum. Þetta kemur fram í tölfræði Útlend- ingastofnunar fyrir síðasta ár. Aukningin er mikil ef miðað er við árið 2009 en þá var 34 ein- staklingum vísað úr landi eftir af- plánun refsidóma. Árið 2008 var hins vegar 48 einstaklingum vísað úr landi. Árin þar áður voru það á milli 17 og 22. Í 20. grein laga um útlendinga segir að heimilt sé að vísa útlend- ingi úr landi ef „hann hefur verið dæmdur hér á landi til refsingar eða til að sæta öryggisráðstöf- unum fyrir háttsemi sem getur varðað fangelsi lengur en þrjá mánuði eða oftar en einu sinni verið dæmdur á síðustu þremur árum til fangelsisrefsingar.“ Fjórir dvöldu ólöglega Brottvísun felur í sér bann við komu til landsins síðar og getur endurkomubannið gilt fyrir fullt og allt eða um tiltekinn tíma. Þó að jafnaði ekki skemur en þrjú ár. Flestir þeirra sem vísað er úr landi vegna refsidóma koma hing- að á leið sinni til Kanada á föls- uðu vegabréfi. Þeir eru dæmdir til þrjátíu daga fangelsisvistar og í kjölfarið vísað úr landi. Einnig eru þó inni í tölunum menn sem hafa afplánað lengri dóma, hvort sem er að hluta eða öllu leyti. Og jafnframt þeir sem klára afplánun í heimalandinu. Á fimmta tug var vísað frá vegna refsidóma  Árin 2010 og 2008 skera sig úr  Flestir komu hingað á leið til Kanada Ákvarðanir um brottvísun 2010 50 45 40 35 30 25 20 15 10 5 0 Ólögmæt dvöl Refsidómur Synjun á hæli 4 4 45 Frumvarp um að fjölga bæði hér- aðsdómurum og hæstaréttardóm- urum var samþykkt á Alþingi í gær- dag með 39 samhljóða atkvæðum. Samkvæmt frumvarpinu verður héraðsdómurum fjölgað tímabund- ið um fimm og í Hæstarétti um þrjá frá og með 1. mars næstkomandi. Dómurum verður fjölgað Kennslustundum við Fossvogsskóla fækkar á næsta skólaári um 38 stund- ir vegna hagræðingar. Þetta jafngild- ir rúmlega einni kennarastöðu. Þetta er á meðal þess sem kom fram á fundi foreldrafélags skólans með skóla- stjórnendum á miðvikudag. Þá verður verk- og listgreinum fækkað í 44 stundir á næsta skólaári en þær hafa verið 95 stundir hingað til. Ekki stendur til að skerða sérkennslu. Foreldrafélag skólans sendi í gær öllum foreldrum barna við skólann bréf með upplýsingum um efni fund- arins og ályktun foreldrafélagsins þar sem þess er krafist að hugmyndir um kennsluskerðingu verði lagðar á hill- una. Brotið á börnunum Þar kemur einnig fram að ljóst sé að til uppsagna muni koma en þær muni reynast Fossvogsskóla mjög dýrar þar sem flestir kennarar þar séu með háan starfsaldur og eigi rétt á biðlaunum. Sá kostnaður lendi allur á skólanum sjálfum. „Skólastjórinn fór bara yfir með okkur hvar þessi sparnaður sem hon- um er gert að ná fram kemur fram í okkar skóla. Það er nokkuð ljóst að á haustönninni núna 2011 verður skerð- ing á kennslumagni sem kemur til með að bitna á list- og verkgreinunum fyrst og fremst. Það er eitthvað sem okkur finnst ekki viðunandi því að þær eru að sjálfsögðu hluti af aðal- námskrá. Með þessu er verið að brjóta á börnunum okkar,“ segir Helga Dögg Björgvinsdóttir, formað- ur Foreldrafélags Fossvogsskóla. kjartan@mbl.is Kennslustundum fækkað  Niðurskurður við Fossvogsskóla kynntur foreldrum á fundi með stjórnendum  Foreldrar vilja að fallið verði frá öllum hugmyndum um fækkun kennslustunda Niðurskurður » Kennslustundum fækkað um 38 á næsta skólaári. » Í verk- og listgreinum verður stundum fækkað úr 95 í 43. » Fjölgun í námshópum, fá- breyttara námsval og aukin samkennsla árganga er einnig hugsanleg. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Rannsókn á áður ókunnum skjölum um útileguhjúin Fjalla-Eyvind og Höllu hefur m.a. leitt í ljós að þau eignuðust barn í útilegubæli í Drangavíkurfjalli á Ströndum í mars árið 1763, skömmu áður en þau voru handtekin fyrir sauða- þjófnað og dæmd til ævilangrar refsivistar. Áður en til þess kom struku þau. Lík af ungbarninu fannst í bælinu eftir handtökuna, en barnið lifði aðeins í tvo daga. Björk Ingimundardóttir, skjala- vörður á Þjóðskjalasafninu, komst að þessu er hún fór að rýna í skjöl um yfirheyrslur yfir þeim hjúum, sem fram fóru í Árnesi í Trékyll- isvík og á Hrófbergi við Stein- grímsfjörð vorið 1763. Dómur var svo kveðinn upp í Broddanesi í Kollafirði 30. maí sama ár. Björk segir í samtali við Morg- unblaðið að til þessa hafi dvöl þeirra í Drangavíkurfjalli og lík- fundur á barninu ekki verið al- kunna. Það komi einnig ýmislegt fram í yfirheyrslunum sem stað- festir að þau hafi áður verið á Hveravöllum en þó ekki haft þar vetursetu. Nánar verður greint frá þessari rannsókn í grein sem Björk er að vinna fyrir tímarit Stranda- mannafélags Reykjavíkur, Strandapóstinn. Dóttirin Ólöf með í bælinu Áður en Eyvindur Jónsson, Fjalla-Eyvindur, kynntist ekkjunni Höllu Jónsdóttur á Ströndum hafði hann sem ungur maður eignast tvö börn á Suðurlandi, en Eyvindur fæddist í Hlíð í Hrunamannahreppi árið 1714 og gerðist síðar vinnu- maður í Traðarholti í Flóa, þaðan sem hann strauk. Að sögn Bjarkar benda skjölin frá yfirheyrslunum til þess að þau Eyvindur og Halla hafi átt a.m.k. eitt barn áður en þau voru hand- tekin, Ólöfu, sem líklegt er að hafi verið í bælinu með þeim í Dranga- víkurfjalli. Munnmælasögur hafa bent til þess að þau hafi eignast fleiri börn en um þau er lítið vitað. Eignuðust barn í bæli á Ströndum  Áður ókunn skjöl um Fjalla-Eyvind og Höllu leiða ýmislegt nýtt í ljós um veru þeirra til fjalla á Ströndum Erindi sem byggist á rannsókn Bjarkar Ingimundardóttur verður flutt á Hólmavík á morgun, laugardag, af Kjartani Ólafssyni, fv. þingmanni og ritstjóra. Fékk Kjartan aðgang að skjölunum í tilefni ferðar sem hann fór sl. sumar á slóðir Fjalla-Eyvindar og Höllu á Ströndum. Erindið verður flutt kl. 16 í Skelinni, lista- og fræðimannadvöl Þjóðfræðistofu á Hólma- vík. Heitt verður á könnunni og allir velkomnir en yfirskrift erindis Kjart- ans er „Nýjar fréttir af Fjalla-Eyvindi á Ströndum“. Þess ber að geta að Björk hefur einnig flutt erindi um rannsókn sína, m.a. hjá Sögufélagi Ár- nesinga. Nýjar fréttir af Fjalla-Eyvindi ERINDI FLUTT Á HÓLMAVÍK Á MORGUN Ljósmynd/Leikfélag Reykjavíkur Útilegumenn Saga Eyvindar og Höllu hefur orðið mörgum yrkisefni í gegnum tíðina, ritaðar bækur, greinar og leikrit. Hér eru Helgi Helgason og Guðrún Indriðadóttir í vinsælli uppfærslu LR fyrir um 100 árum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.