Morgunblaðið - 04.02.2011, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2011
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Enn þokast lítt áfram í kjaraviðræð-
um Alþýðusambandsins og Samtaka
atvinnulífsins og strandar enn á
kröfu SA um að ríkisstjórnin geri
grein fyrir framtíðarleið í stjórnun
fiskveiða. Vilhjálmur Egilsson,
framkvæmdastjóri SA, segir sam-
tökin í samskiptum við stjórnvöld
um málið og reiknar með því að það
verði leyst.
Þeir Vilhjálmur og Gylfi Arn-
björnsson, forseti ASÍ, voru gestir
opins fundar Verkalýðsráðs Sjálf-
stæðisflokksins um kjaramál í gær-
kvöldi. „Ég held því fram að það hafi
ekki gerst að ASÍ hafi með þessum
hætti tekið samfélagslegt mál sem
atvinnurekendur geta ekki mætt og
sett það sem skilyrði fyrir gerð
kjarasamninga,“ sagði Gylfi sem
sagði ennfremur að viðræður kæm-
ust ekki áfram undir skilmálum SA
um lausn á fiskveiðistjórnunarmál-
um. Sagði hann þessa þvingunar-
kröfu SA alveg á jaðri laganna.
Benti Gylfi á að þeir sem lékju sér
óvarlega með flugelda ættu það á
hættu að þeir spryngju í andlitið á
þeim.
Skortur á trausti
Vilhjálmur sagði ástæðuna fyrir
þeirri stöðu sem væri uppi í sjávar-
útvegi þá að traust gagnvart stjórn-
völdum væri alveg horfið. Farið
hefði verið gegn öllu því sem sagt
hefði verið, til dæmis með skötusels-
frumvarpinu og frumvarpi sjávarút-
vegsráðherra um kvótaaukningu.
„Við erum ekkert að reyna í sjálfu
sér að halda neinum í gíslingu. Okk-
ur finnst það oft frekar þannig að
það sé ríkisstjórnin sem sé að halda
okkar framtíð í gíslingu og að við eig-
um að hjakkast hérna áfram í öllu
þessu atvinnuleysi. Fá yfir okkur
nýjar skattahækkanir og nýja nið-
urskurðarbylgju þegar við gætum
verið að sækja fram. Það er það sem
er það grátlegasta í þessu öllu sam-
an. Við ætlum okkur ekki að þola
þetta,“ sagði Vilhjálmur.
Lagði hann áherslu á atvinnuleið
SA út úr kreppunni. Nokkur verka-
lýðsfélög vildu þó fara verðbólguleið
og ná sínu fram með verkföllum en
það sagði Vilhjálmur að
Samtök atvinnulífsins ætluðu sér
ekki að láta yfir sig ganga. Þau ætl-
uðu sér hins vegar að ná fram sam-
ræmdri launastefnu, semja til
þriggja ára og koma einhverju viti í
samfélagið.
Býst við að lausn finnist
á sjávarútvegskröfu SA
Forseti Alþýðusambandsins segir kröfu SA á mörkum laga
Vilhjálmur
Egilsson
Gylfi
Arnbjörnsson
Gísli Baldur Gíslason
gislibaldur@mbl.is
Snákur, froskar og skjaldbökur eru meðal nýjustu
meðlima dýrafjölskyldunnar í Húsdýragarðinum. Í
kvöld hefst ný sýning í Húsdýragarðinum, sem ber
yfirskriftina „Forvitnilegt og framandi“. Fjallar sýn-
ingin helst um skriðdýr og froskdýr. Um tuttugu dýr
frá ýmsum heimsálfum hafa verið flutt sérstaklega
til landsins í tilefni hennar.
„Meginþemað er þróun dýra frá fiskum og yfir í
frosk- og skriðdýr og hvernig breytingarnar eru,“
segir Fannar Þeyr Guðmundsson, líffræðingur og
einn umsjónarmanna sýningarinnar.
Snákar og skjaldbökur
Meðal þeirra dýra sem verða til sýnis eru mjólkur-
snákur frá Mið-Ameríku og baulfroskur frá Afríku.
Þá verður svokallaður „pac-man“-froskur einnig til
sýnis, en sá hlaut viðurnefni sitt vegna sláandi lík-
inda við samnefnda tölvuleikjapersónu. Gestir sýn-
ingarinnar geta einnig séð „þriggja táa salamöndru“
og skjaldlbökur. „Þriggja táa salamandra getur orðið
allt að einn og hálfur metri á lengd. Lungnafiskur
verður á sýningunni, en hann þykir sýna þróunar-
ferli dýra ágætlega. Lungnafiskur þarf að koma upp
á yfirborðið til að anda, enda með lungu en ekki
tálkn.
Mjólkursnákurinn er ekki eitraður og segir Fann-
ar Þeyr að ekkert dýranna á sýningunni sé hættu-
legt. Þó verða þau geymd í lokuðum búrum vegna
salmonelluhættu sem fylgir oft skriðdýrum.
Falleg og skemmtileg dýr
„Við erum með eina snákinn á Íslandi sem er með
íslenska kennitölu,“ segir Fannar og hlær. „Þetta
ætti því að vera gott tækifæri fyrir fólk til að sjá lif-
andi skriðdýr hér á landi. Þetta eru gífurlega falleg
og skemmtileg dýr.“
Sýningin verður opnuð fyrir árskortshafa í Hús-
dýragarðinum í kvöld. Um helgina verður sýningin
opnuð almenningi og mun standa yfir í mánuð. Dýrin
fara þó hvergi eftir sýninguna og munu vera áfram í
Húsdýragarðinum.
Morgunblaðið/Ómar
Félagar Fannar Þeyr segir að skriðdýr og froskdýr séu „gífurlega falleg og skemmtileg“. Hér er hann ásamt
afríska baulfrosknum Legolas, en á bak við þá má sjá tvo spaka skeggdreka frá Ástralíu.
Skriðdýr í Húsdýragarði
Eini snákurinn á Íslandi sem er með íslenska kennitölu
Einnig framandi froskar, skjaldbökur og salamöndrur
Meinlaus Mjólkursnákurinn er ekki eitraður, en er
ansi svipaður hinum eitraða Kóralsnák.
Félagsdómur dæmdi í gær boðað
verkfall starfsmanna í loðnuverk-
smiðjum ólöglegt. Fyrsta verkfallið
átti að hefjast 7. febrúar. Dómur-
inn taldi að ekki hefðu verið haldn-
ir formlegir sáttafundir í deilunni
áður en verkfallið var boðað.
Samtök atvinnulífsins fóru með
málið fyrir félagsdóm þar sem
samtökin töldu að svokallaður
bræðslusamningur væri hluti af
aðalkjarasamningi og ekki væri
hægt að boða verkfall til að þrýsta
á um gerð samnings þegar ekki
væri búið að ljúka gerð aðal-
kjarasamnings. Félagsdómur
dæmdi verkfallið hins vegar ekki
ólöglegt á þessari forsendu heldur
þeirri að ekki hefðu verið haldnir
formlegir sáttafundir áður en
verkfallið var boðað.
Samninganefndir Afls á Austur-
landi og Drífanda í Vestmanna-
eyjum hafa ritað ríkissáttasemjara
bréf og óskað eftir því að strax
verði haldinn samningafundur í
kjaradeilu starfsfólks í fiskimjöls-
verksmiðjum. „Ef ekki verður ár-
angur af þessum viðræðum mun-
um við fara í atkvæðagreiðslu um
verkfall. Við munum afgreiða þá
atkvæðagreiðslu á einum degi, en
ekki viku eins og síðast. Ef til
kemur verður það ótímabundið
verkfall,“ segir Sverrir Mar Al-
bertsson, framkvæmdastjóri Afls.
Verkfall í loðnu-
bræðslum ólöglegt
Vilja viðræður strax og hóta verkfalli
Á miðri vertíð
» Verkfallið var boðað af Afli á
Austurlandi og Drífanda í Vest-
mannaeyjum.
» Það átti að ná til loðnu-
bræðslna á Vopnafirði, Seyðis-
firði, Norðfirði, Eskifirði, Fá-
skrúðsfirði, Hornafirði og í
Vestmannaeyjum.
Guðmundur Runólfs-
son, skipstjóri og út-
gerðarmaður í Grund-
arfirði, lést síðastliðinn
þriðjudag, níræður að
aldri. Hann var heið-
ursborgari Grundar-
fjarðarbæjar.
Guðmundur var
fæddur 9. október
1920 í Stekkjartröð í
Eyrarsveit, sonur
hjónanna Sesselju
Gísladóttur og Runólfs
Jónatanssonar.
Eiginkona hans var
Ingibjörg S. Kristjáns-
dóttir, fædd 3. mars 1922, en hún
lést 9. október 2008. Þau eignuðust
níu börn, þau Runólf, Kristján, Pál
Guðfinn, Inga Þór, Guðmund
Smára, Svan, Maríu Magðalenu og
Unnstein, auk drengs sem lést í
frumbernsku.
Eftir nokkur ár á sjó og fiski-
mannapróf frá Stýrimannaskóla Ís-
lands árið 1947 helgaði Guðmundur
sig sjómennsku og útgerð í Grund-
arfirði. Útgerðar-
félagið Runólfur hf.
var stofnað um rekst-
ur trébáts sem hann
og fleiri létu smíða.
Fékk hann nafnið
Runólfur og síðan hef-
ur hann gert út nokk-
ur skip með því nafni.
Það nafn bar fyrsti
togarinn sem Grund-
firðingar eignuðust.
Félagið Guðmundur
Runólfsson hf. var
stofnað um rekstur
togarans og er það í
hópi öflugustu fyrir-
tækja á Snæfellsnesi. Það er rekið
af fjölskyldu Guðmundar.
Guðmundur tók að sér ýmis trún-
aðarstörf fyrir sjávarútveginn og
sína heimabyggð. Hann var út-
nefndur heiðursborgari
Grundarfjarðarbæjar á níræð-
isafmæli sínu síðastliðið haust í
þakklætisskyni fyrir margvísleg
framfaramál sem hann hefur unnið
að.
Andlát
Guðmundur Runólfsson
Vinnumálastofnun stefnir að því
um næstu mánaðamót að flytja höf-
uðstöðvar sínar í ný húsakynni, þar
sem Morgunblaðið og síðar HR
voru til húsa í Kringlunni 1. Fyrir
er í húsinu Umboðsmaður skuldara,
Klak nýsköpunarmiðstöð og fleiri
aðilar. Verður Vinnumálastofnun á
1. hæðinni auk tengibyggingar á 1.
og 2. hæð yfir í hina gömlu prent-
smiðju Morgunblaðsins. Í tengi-
byggingunni verður m.a. starfsleit-
armiðstöð.
Að sögn Gissurar Péturssonar,
forstjóra Vinnumálastofnunar, flyst
starfsemin í Kringluna frá fjórum
stöðum; Hafnarhúsinu við
Tryggvagötu, Engjateigi, Suður-
landsbraut og Síðumúla. Hjá stofn-
uninni starfa nú um 80 manns.
bjb@mbl.is
Vinnumálastofnun
flytur í gamla
Morgunblaðshúsið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Umferðin í janúar dróst saman um
tæplega átta prósent borin saman
við umferðina í janúar 2010 á 16
völdum talningarstöðum á Hring-
vegi.
„Þetta er gífurlegur samdráttur
en í ljós verður að koma hvort hann
eigi einungis við um janúarmánuð
eða muni halda áfram eftir því sem
á árið líður,“ segir á heimasíðu
Vegagerðarinnar.
Þetta er í fyrsta sinn sem sam-
dráttur mælist á öllum landsvæðum
samtímis milli janúarmánaða. Að-
eins einu sinni áður, frá árinu 2005,
hefur orðið samdráttur í akstri
milli janúarmánaða en hann varð
1,2% á milli áranna 2009 og 2010.
8% samdráttur
í umferðinni
Fjórir bjóða sig fram til formanns
VR, en frestur til að tilkynna fram-
boð rann út á hádegi í gær. Kristinn
Örn Jóhannesson, formaður VR,
hefur ákveðið að sækjast eftir end-
urkjöri, en auk hans hafa þau Guð-
rún Jóhanna Ólafsdóttir, Stefán
Einar Stefánsson og Lúðvík Lúð-
víksson lýst því yfir opinberlega að
þau ætli að bjóða sig fram til for-
manns VR.
Fjórir í framboði
til formanns VR