Morgunblaðið - 04.02.2011, Síða 8

Morgunblaðið - 04.02.2011, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2011 Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Listmunauppboð í Galleríi Fold Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu fer fram mánudaginn og þriðjudaginn 7. og 8. febrúar, kl. 18 báða dagana í Galleríi Fold, á Rauðarárstíg Jóhannes S.Kjarval Á uppboðinu er úrval góðra verka, meðal annars fjölmörg verk gömlu meistaranna Verkin verða sýnd: í dag föstud. 10–18, laugard. 11–17, sunnud. 12–17, mánud. 10–17 (öll verk) þriðjud. kl. 10–17 (verkin sem ekki eru boðin upp á mánudag) Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Það kom mörgum sjálfstæðis-mönnum á óvart að forysta þess flokks skyldi fremur flaðra upp um Steingrím J. Sigfússon en virða vilja eigin flokksmanna. Vildi heldur leita fanga hjá 2% í þjóðar- atkvæðagreiðslunni um Icesave en hjá 98%.    Jón Baldur Lor-ange skrifar: „Ætli dagurinn í dag verði ekki ,,dagur reiðinnar“ hjá sjálfstæðismönnum eftir tíma- mótaákvörðun þingflokks Sjálf- stæðisflokksins í Icesave.    Stjórnmálamenn verða að hafakjark til að standa með fólkinu í landinu, standa á réttindum lands og þjóðar og berjast gegn ranglát- um kröfum annarra ríkja. Icesave snýst um frelsi fyrst og síðast.    Frelsi einstaklinga og frelsi þjóð-arinnar í bráð og lengd. Sjálf- stæðisflokkurinn hefur staðið upp úr í baráttunni gegn núverandi ríkisstjórn, sem ætlaði sér allt en gerði ekkert.    Orðið undanhald kemur ósjálf-rátt upp í hugann.    Og nú hefur forysta Sjálfstæðis-flokksins gengið í lið með rík- isstjórninni gegn fólkinu í landinu.    Verður þetta svona líka í ESB-málinu þegar á hólminn er komið? En látum hverjum degi nægja sína þjáningu.    Vonandi ná sjálfstæðismennvopnum sínum aftur.    Í gær voru þeir afvopnaðir af for-ystunni.“ Jón Baldur Lorange Vaklandi í Valhöll STAKSTEINAR Veður víða um heim 3.2., kl. 18.00 Reykjavík -3 skýjað Bolungarvík -1 snjókoma Akureyri -2 léttskýjað Egilsstaðir -5 heiðskírt Kirkjubæjarkl. -6 skýjað Nuuk -11 léttskýjað Þórshöfn 2 skýjað Ósló 1 heiðskírt Kaupmannahöfn 3 skýjað Stokkhólmur 3 léttskýjað Helsinki 1 slydda Lúxemborg 2 skýjað Brussel 7 léttskýjað Dublin 8 skýjað Glasgow 7 skúrir London 10 léttskýjað París 7 skýjað Amsterdam 6 heiðskírt Hamborg 6 léttskýjað Berlín 3 léttskýjað Vín 2 skýjað Moskva 1 skýjað Algarve 13 heiðskírt Madríd 13 heiðskírt Barcelona 13 léttskýjað Mallorca 13 léttskýjað Róm 13 heiðskírt Aþena 8 skúrir Winnipeg -3 alskýjað Montreal -12 heiðskírt New York -2 léttskýjað Chicago -14 heiðskírt Orlando 19 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 4. febrúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 9:59 17:25 ÍSAFJÖRÐUR 10:20 17:14 SIGLUFJÖRÐUR 10:03 16:57 DJÚPIVOGUR 9:33 16:50 Andri Karl andri@mbl.is Lúxusjeppinn Land Cruiser 200 verður ófáanlegur nýr í ár, eflaust einhverjum til armæðu. Um er að kenna reglum Evrópusambandsins um mengunarvarnir en hert var á þeim um áramót. Vél jeppans upp- fyllir ekki kröfur þeirrar reglu- gerðar. Framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Toyota á Íslandi hefur þó ekki miklar áhyggjur, enda sala á Land Cruiser 200 ekki mikil miðað við sölu á Land Crui- ser 150 en biðlisti er eftir honum. Mengunarstaðaðallinn sem um ræðir nefnist Euro 5 og vélar bif- reiða verða að uppfylla hann til að selja megi þá nýja í Evrópu. Stað- allinn tekur við af Euro 4 sem Land Cruiser 200 uppfyllir. Aðrir bílar sem Toyota á Íslandi selur uppfylla Euro 5-staðalinn. Alkunna er að bílamarkaðurinn hefur verið nokkuð hægur undan- farin misseri en til gamans má geta að í ársbyrjun 2008 seldi Toyota á Íslandi hátt í tvö hundruð Land Cruiser 200-lúxusjeppa. Bíllinn hafði þá verið ófáanlegur nýr árið áður. „Þá var náttúrlega búin að vera ársbið og mikil eftirvænting eftir nýja útlitinu,“ segir Kristinn G. Bjarnason, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Toyota á Ís- landi. Hann á ekki von á annarri eins sölu í byrjun næsta árs þegar Land Cruiser 200 kemur aftur í sölu, með nýrri vél sem uppfyllir Euro 5. Sautján seldir á síðasta ári Reglugerðarbreytingin hefur engin áhrif á þá sem þegar hafa keypt sér Land Cruiser 200, nema þá til hins betra. „Þeir sem eiga slíkan bíl eru þá komnir í betri stöðu þegar kemur að endursölu. Þar sem ekki er til nýr bíll á mark- aðnum mun Land Cruiser 200 að- eins ganga kaupum og sölum á not- aða markaðnum,“ segir Kristinn. Á síðasta ári seldust 17 nýir Land Cruiser 200 en þeir kosta á átjándu milljón króna. Sala á dýrari bílum hefur verið með ágætum að undanförnu, að sögn Kristins, og tekur fram að ekki hafi orðið sú sprenging í sölu ódýrari bíla sem búist var við í kjöl- far vörugjaldabreytinga. „En við vonum að markaðurinn fari að taka við sér og gerum raunar ráð fyrir að það verði á síðari hluta þessa árs.“ Enginn nýr Land Cruiser 200 seldur í ár  Uppfyllir ekki mengunarstaðla Evrópusambandsins  Ný vél verður ekki tilbúin fyrr en í ársbyrjun 2012 Morgunblaðið/Árni Sæberg Lúxus Nýr Land Cruiser 200 kostar á bilinu 17.5-17,8 milljónir króna. Í tilefni alþjóðlega krabbameins- dagsins sem er í dag, boðar Krabbameinsfélagið til örráðstefn- unnar Stattu með mér. Á ráðstefn- unni verður fjallað um stuðning og samskipti og reynslu þeirra sem hafa greinst með krabbamein og aðstandendur þeirra. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin bendir á að krabbamein eru ein al- gengustu dánarmein í veröldinni en um 84 milljónir munu látast af völd- um krabbameina á árabilinu 2005- 2015, ef ekkert er að gert. Ragnheiður Haraldsdóttir for- stjóri Krabbameinsfélags Íslands mun setja ráðstefnuna. Síðan munu nokkrir einstaklinga sem glíma eða hafa glímt við krabbamein segja frá reynslu sinni. Ráðstefnan hefst klukkan 15:30 og stendur til 17:30 og verður hald- in í Skógarhlíð 8. Allir eru vel- komnir og aðgangur að sjálfsögðu ókeypis. Alþjóðlegi krabba- meinsdagurinn

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.