Morgunblaðið - 04.02.2011, Page 9

Morgunblaðið - 04.02.2011, Page 9
Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Óánægjuólgunni innan Sjálfstæðis- flokksins vegna Icesave-málsins og þeirrar afstöðu forystu flokksins á Alþingi að styðja Icesave-frumvarp- ið, skaut einnig upp á yfirborðið á Al- þingi í gær við atkvæðagreiðslu eftir 2. umræðu um málið. Fimm þingmenn Sjálfstæðis- flokksins, eða tæpur þriðjungur þingflokksins, studdu ekki frum- varpið. Níu þingmenn Sjálfstæðis- flokksins studdu frumvarpið en tveir voru fjarverandi. Unnur Brá Konráðsdóttir, þing- maður Sjálfstæðisflokksins, greiddi atkvæði á móti en þingmennirnir Birgir Ármannsson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Pétur H. Blöndal og Sig- urður Kári Kristjánsson sátu hjá við atkvæðagreiðsluna. Aðrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins sögðu já í nafnakalli við atkvæðagreiðsluna en þá voru greidd atkvæði um 1. grein Icesave-frumvarpsins, sem heimilar fjármálaráðherra að staðfesta samn- ingsdrögin við Breta og Hollendinga sem árituð voru í London 8. desem- ber. Lærum af mistökunum „Ég deili ekki skoðunum með þeim sem eru tilbúnir að samþykkja þetta frumvarp á þessu stigi máls- ins,“ sagði Birgir Ármannsson, er hann gerði grein fyrir atkvæði sínu. „Ennþá er mat manna mismunandi á því hvort sá kostur sem nú er á borð- inu sé góður eða ekki, sé tækur eða ekki og við þessar aðstæður þá sit ég hjá,“ sagði hann. „Við skulum læra af mistökunum,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson og benti m.a. á að enn væru órædd og óútkljáð mál sem vörðuðu trygg- ingasjóð innstæðueigenda sem byggja þyrfti upp. Hann sat hjá eins og áður segir og sagðist eins og flokksfélagar hans sem ekki greiddu atkvæði, ætla að gera grein fyrir endanlegri afstöðu við lokaafgreiðslu málsins. 2 framsóknarmenn sátu hjá Allir stjórnarþingmenn Samfylk- ingarinnar og Vinstri grænna sem voru viðstaddir atkvæðagreiðsluna, samþykktu frumvarpið. Framsóknarmenn greiddu hinsvegar atkvæði á móti að und- anskildum þingmönnunum Siv Friðleifsdóttur og Guðmundi Steingrímssyni, sem sátu hjá. All- ir þingmenn Hreyfingarinnar sögðu nei við atkvæðagreiðsluna. Úrslit atkvæðagreiðslunnar urðu þau að 40 sögðu já, 11 þing- menn sögðu nei og sex þingmenn sátu hjá. Morgunblaðið/Golli Alþingi 2. umræðu um Icesave frumvarpið lauk í gær. Atkvæðagreiðsla fór fram að viðhöfðu nafnakalli og gerðu margir þingmenn grein fyrir atkvæði sínu. 9 sjálfstæðismenn sögðu já  Icesave-frumvarpið afgreitt til þriðju umræðu með 40 atkvæðum gegn 11  Sex sátu hjá  Fimm þingmenn Sjálfstæðisflokksins studdu ekki frumvarpið Ályktun landsfundar Sjálfstæðisflokksins gegn Icesave-kröfunum í júní á seinasta ári er afdráttarlaus. Í stjórnmálaályktuninni segja sjálfstæð- ismenn ,,nei við löglausum kröfum Breta og Hollendinga í Icesave- málinu“. Á landsfundinum var hert á orðalagi í ályktunardrögunum um Ice- save-málið og gengið skrefi lengra í andstöðu sjálfstæðismanna við Ice- save. Í tillögudrögum sem lágu fyrir fundinum er hafnað „ósanngjörnum kröfum“ Breta og Hollendinga á hendur Íslendingum. Sigurður Kári Kristjánsson alþingismaður kvaddi sér hljóðs við um- ræður um stjórnmálaályktunina á landsfundinum og sagðist vera sam- mála því að kröfur Hollendinga og Breta á hendur Íslendingum í Icesave- málinu væru ósanngjarnar, „en ég tel að í þessari stjórnmálaályktun sé ekki gengið nægilega langt í því að andmæla þeirra kröfum. Við, sem höfum fylgst með þessu máli og lesið til að mynda skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis, sem fjallar mjög vandlega um Ice- save-málið og grundvöll þeirra krafna sem Bretar og Hollend- ingar gera á hendur okkur, á hendur íslenskum skattgreið- endum, vitum að ekkert í löggjöf Evrópusambandsins mælir fyrir um það að íslenskir skattgreiðendur eigi lögum sam- kvæmt að standa undir skuldum einkafyrirtækja og greiða þær kröfur sem Bretar og Hollendingar eru með og hafa komið fram með á okkar hendur. Þess vegna legg ég til að í stað þess að við segjum nei við ósanngjörnum kröfum Breta og Hollendinga í Icesave-málinu, þá höfnum við lög- lausum kröfum Breta og Hollendinga í Icesave- málinu,“ sagði Sigurður Kári. Var breytingartillagan samþykkt í endanlegri stjórnmálaályktun landsfundarins. Hafna löglausum kröfum AFDRÁTTARLAUS ÁLYKTUN LANDSFUNDAR GEGN ICESAVE FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2011 Útsala Opið 11-18 virka daga, 11-15 laugard. Hæðasmára 4 – Í sama húsi og Bílaapótek fyrir ofan Smáralind Símar 555 7355 og 553 7355 15% aukaafsl. af allri útsöluvöru „Okkur ber ekki lagaleg skylda til þess og ef maður íhugar það eigi að síður verða rökin að vera mjög góð,“ segir Unn- ur Brá Konráðs- dóttir, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins í Suður- kjördæmi, sem greiddi atkvæði á móti Icesave- málinu í gær, einn þingmanna flokksins. Hún var spurð hvað réði afstöðu hennar. „Það verður að meta hagsmuni þess að ganga að þessum samn- ingum og að gera það ekki. Við erum búin að liggja yfir málinu í margar vikur. Það er mitt mat að óvissan í þessum samningum sé svo mikil að ég tel ekki réttlætanlegt að sam- þykkja þá. Auðvitað hefði verið hægt að láta þá skoðun koma fram seinna en mér fannst heiðarlegra að gefa afstöðuna upp á þessum tímapunkti, af því að hún liggur fyrir,“ segir Unnur Brá. helgi@mbl.is Ekki rétt- lætanlegt vegna óvissu Unnur Brá greiddi at- kvæði á móti Icesave Unnur Brá Konráðsdóttir Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, segir í pistli á vefsíðu Evrópuvaktarinnar að þjóðin eigi að hafa síðasta orðið um Icesave. Alþingismenn verði að horfast í augu við „að þegar einu sinni er búið að vísa málinu til þjóð- arinnar er það lýðræðisleg krafa al- mennings í þessu landi að hann fái að hafa síðasta orðið,“ skrifar hann. Bylgja andstöðu að rísa innan Sjálfstæðisflokksins „Það eru meiriháttar pólitísk mis- tök hjá meirihluta þingflokks Sjálf- stæðisflokksins og forystu þess flokks að gera sér ekki grein fyrir þessu. Þess vegna er nú að rísa bylgja andstöðu innan flokksins vegna þessarar afstöðu meiri- hluta þingflokks- ins,“ skrifar Styrmir. Þingflokkurinn geti enn bætt fyr- ir þessi mistök með því að flytja tillögu á Alþingi um að þjóðin taki þessa ákvörðun sjálf. „Á hvorn veg sem sú ákvörðun færi yrði ekki um hana deilt eftir það,“ segir Styrmir. Hann rifjar upp að í upphafi um- ræðna um Icesave-málið í kjölfar hrunsins voru margir á báðum átt- um um það hvað gera skyldi. „Smátt og smátt kom í ljós, að Ís- land hafði aldrei undirskrifað neina samninga, sem gerði það að verkum, að þjóðin hefði tekið á sig alþjóð- legar skuldbindingar um að skatt- greiðendur á Íslandi tækju að sér að greiða skuldir einkafyrirtækis við fólk í öðrum löndum. Sterkasta lög- fræðilega röksemdafærslan fyrir þeirri skoðun kemur fram í gagn- merkum kafla í skýrslu rannsókn- arnefndar Alþingis um þetta mál. Það lögfræðilega mat sem þar kem- ur fram hefur hlotið stuðning víða um lönd,“ segir Styrmir í pistlinum. Meiriháttar pólitísk mistök Styrmir Gunn- arsson Lagafrumvarpið um heimild til handa fjármálaráðherra til að stað- festa Icesave-samningana var af- greitt til 3. og síðustu umræðu á Al- þingi í gær. Frumvarpið fer aftur til fjárlaganefndar á milli umræðna og líklegt má telja að einhverjir þættir þess komi einnig til kasta efnahags- og viðskiptanefndar. Eftir því sem næst verður komist er ekki vitað hversu langur tími mun líða þar til frumvarpið verður af- greitt úr fjárlaganefnd og kemur til lokaumræðu á Alþingi. Ætla má að einhverjar vikur líði þar til Alþingi tekur endanlega afstöðu til frum- varpsins þegar lokaatkvæða- greiðslan fer fram. Enn og aftur í fjárlaganefnd Björn Bjarnason, fyrrverandi þing- maður Sjálfstæð- isflokksins og ráðherra, telur að það sé sjálfsögð og eðlileg krafa að Alþingi ákveði að bera Icesave að nýju undir þjóðina. Þessari skoðun lýsir Björn í pistli á vef Evrópuvaktarinnar. „Sporin hræða í Icesave-málinu og sagan sýnir að breið samstaða þingmanna um lausn á alþjóðlegu ágreinings- máli þar sem þeir eru beittir miklum þrýstingi af öðrum þjóðum eða hags- munaaðilum samræmist ekki endi- lega þjóðarhagsmunum. Úr því að Icesave-málið var lagt í dóm þjóðar- innar og niðurstaða þess dóms leiddi til gjörbreyttrar samningsstöðu og síðan mun skynsamlegri niðurstöðu að mati þorra þingmanna er sjálf- sögð og eðlileg krafa að Alþingi ákveði að bera Icesave að nýju undir þjóðina,“ segir Björn meðal annars. Icesave verði borið undir þjóðina Björn Bjarnason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.