Morgunblaðið - 04.02.2011, Page 10

Morgunblaðið - 04.02.2011, Page 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2011 –– Meira fyrir lesendur Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um Tísku og förðun föstudaginn 18. febrúar 2011. Í Tísku og förðun verður fjallað um tískuna vorið 2011 í förðun, snyrtingu og fatnaði, fylgihlutir auk umhirðu húðarinnar, dekur og fleira. PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 14. febrúar. MEÐAL EFNIS: Förðunarvörur. Förðrun. Húðin,krem og meðferð. Snyrting. Neglur. Kventíska. Herratíska. Fylgihlutir. Skartgripir. Það heitasta í tísku fyrir árshátíðirnar. Hvað verður í tísku á vor- mánuðum. Tíska & Förðun sérblað Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Eldgosið í Eyjafjallajöklifærði okkur ýmislegt;ösku, athygli, hatur flug-farþega og hana Nicola Pittaway frá Birmingham í Eng- landi. Eldgosið varð til þess að hún ákvað að koma til Íslands í starfs- nám í einn mánuð nú í janúar nýliðn- um. Nicola leggur stund á masters- nám í almannatengslum við De Montfort háskólann í Leicester og er hluti af náminu að starfa hjá al- mannatengslafyrirtæki í einn mánuð á lokaárinu. Flestir fara til fyrir- tækja á Bretlandseyjum en Nicola ákvað að koma hingað og var að ljúka verknámi hjá KOM almanna- tengslum í Borgartúni. „Ég vissi ekki svo mikið um Ís- land og fékk ekki áhuga á því fyrr en á síðasta ári þegar það var svo mikið af fréttum af eldgosinu í breskum fjölmiðlum. Með eldgosinu kom önn- ur sýn á landið og þá kviknaði áhugi minn,“ segir Nicola sem kom í fyrsta skipti til Íslands á nýársdag þegar hún lenti í Keflavík. „Það er mikil áhersla lögð á Bretland og Bandaríkin í náminu og því langaði mig að fara eitthvað ann- að og kynnast annars konar starfs- aðferðum en þeim sem við þekkjum í Bretlandi og Bandaríkjunum. Þegar leiðbeinandi minn, Liz Bridgen, spurði hvort ég vildi fara til Íslands ákvað ég að slá til,“ segir Nicola en Liz Bridgen, lektor og leiðbeinandi hennar, er fyrrverandi starfsmaður KOM. Netið er áhugamálið Starf Nicola hjá KOM hefur verið margvíslegt en í lok starfs- námsins þarf hún að vinna skýrslu um það og skila af sér. „Ég hef verið að fylgjast með því hvernig fyrirtækið virkar með utanaðkomandi sjónarhorni. Ég hef skoðað það sem þau eru að gera, set- ið fundi með fólki í fyrirtækinu og með viðskiptavinum KOM til að gera mína eigin rannsókn til að hafa í rit- gerðinni. Ég eyddi nokkrum dögum hjá Sif snyrtivörum og skoðaði kynning- armálin hjá þeim. Svo var ég einn dag hjá Alþjóðlegu kvikmyndahátíð- inni í Reykjavík og aðra daga hjá Kvikmyndasafninu og Biskupsstofu að ræða vefhönnunina og fleira. Ég var að skoða hvernig þessi fyrirtæki nota netmiðla og hvernig þau gætu notað þá og fleira. Það er nokkuð ólíkt hvernig netið er notað í al- mannatengslum hér miðað við heima í Bretlandi, þar nota fyrirtæki alla Kynnt fyrir forsetanum og handbolta „Íslendingar eru vinalegasta fólk sem ég hef hitt svo ég sé hreinskilin,“ segir Nicola Pittaway, 23 ára Breti sem dvaldi hér á landi í starfsnámi í janúar í tengslum við mastersnám sitt í almannatengslum. Nicola hitti Ólaf Ragnar Grímsson forseta og sá handboltaleik í fyrsta skipti en hún hafði ekki heyrt um þá íþrótt fyrr en hún kom hingað til lands. Stundum þarf maður bara eitthvað fallegt til að horfa á. Það er ekki verra að fá að vita af því nýjasta í tískuheiminum í leiðinni eða jafnvel fá inn- blástur í fatavali. Þrjár vinkonur frá Danmörku láta þetta gerast á degi hverjum í gegnum síðu sína anywho.dk. Stelpurnar heita Ing- rid, Elise og Stephanie og hafa þær deilt tískuáhuga sínum með heiminum frá árinu 2008. Í dag er bloggið þeirra ein flott- asta tískusíða Danmerk- ur og á degi hverjum kemur fjöldinn allur af áhugasömum lesendum inn á síðuna. Á síðuna setja stelp- urnar inn texta og myndir af því sem þeim þykir flott hverju sinni. Blandan er skemmtileg, stundum má sjá götutísku, myndir af þeim sjálfum, myndir af tískusýningum eða bara því sem þeim þykir fallegt. Einnig eru þær duglegar að hlaða inn myndum af við- burðum og því sérstaklega skemmtilegt að kíkja á þær þessa dagana þegar tískuvikan í Kaupmannahöfn er í fullum gangi. Skemmtileg síða fyrir tískuáhugafólk sem og aðra sem vilja eitthvað fallegt til að horfa á. Vefsíðan www.anywho.dk Pæjur Ingrid, Elise og Stephanie, eiga síðuna. Fallegt fyrir augað Með frumsýningu myndarinnar Black Swan hafa snúðar í hárið öðlast enn meiri vinsældir. Það er fagnaðarefni, því snúðar eru bæði einfaldir og fara vel, bæði sem dag- og kvöldgreiðsla. Klassískur ballerínusnúður er ofar- lega á höfðinu en snúðar geta verið í fjölbreyttum útfærslum. Til dæmis er hægt að færa hann neðar á höfuðið eða hafa hann á hlið. Einnig getur verið flott að gera hann örlítið úfinn. Byrjið á því að setja tagl í hárið. Passið lausa enda og snúið svo hárinu í hring og setjið teygju utan um. Festið niður með spennum svo að snúðurinn sitji fastur. Fyrir þær sem eru með þunnt hár er til lítið leyndarmál. Í mörgum fylgi- hlutabúðum og í apótekum má finna fyllingu sem hægt er að setja yfir taglið og vefja hárinu utan um. Slík fylling getur gert kraftaverk og oft er hægt að fá þær í mismunandi stærð- um. Snúðar eru líka einstaklega hent- ugir þegar hitnar í veðri eða á dans- gólfinu, því þá festist svitinn ekki í síðu hárinu. Hár Snúðar í anda Black Swan Snúður Kate Bosworth er þekkt fyrir flottan hárstíl. MMeira á mbl.is/Rokk og rúllur Að vaxa upp úr því að gera snjókarl er ekki hægt. Hvort sem maður er sex ára, tuttugu og sex ára eða sextíu ára er ótrúlega gaman að reyna að hnoða saman snjókarl með öllu tilheyrandi. Það er auðvelt og hressandi að skreppa út í frímínútunum með vin- unum, hvort sem er í grunnskóla, framhaldsskóla eða háskóla, og gera eina snjókarlafjölskyldu eða bara fara í eitt gamalt og gott snjókast. Endilega … … gerið snjókarl Morgunblaðið/Golli Snjókarl Skemmtilega uppáklæddur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.