Morgunblaðið - 04.02.2011, Síða 17

Morgunblaðið - 04.02.2011, Síða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2011 Í þingsal Létt var yfir Össuri Skarphéðinssyni á Alþingi í gær og brá hann á leik á meðan verið var að greiða atkvæði um hina umdeildu Icesave-samninga. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra, og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra virtust vera í þungum þönkum og með hugann við annað en grín utanríkisráðherrans. Golli Tekjur einstaklings eru hvers konar gæði, arður, laun og hagn- aður sem honum hlotnast og metin verða til peningaverðs. Ekki skiptir máli hvaðan tekjurnar koma eða í hvaða formi þær eru. Launa- tekjur einstaklings eru endurgjald hans fyrir hvers konar vinnu, starf eða þjónustu sem hann hefur innt af hendi fyrir annan aðila. Í stað- greiðslu fyrir árið 2010 voru þær skattlagðar þrepaskipt frá 37,22% til 46,12% eftir upphæð launanna en staðgreiðslan er bráðabirgðagreiðsla tekjuskatts og útsvars á tekjuári (t.d. 2010) sem síðan er gerð upp við álagningu á skattári (þá 2011). Tíma- bundinn auðlegðarskattur, 1,25% af skattstofni umfram 90 mkr (120 mkr hjá hjónum), verður lagður á vegna eigna í árslok 2009 – 2011. Frádráttur frá launatekjum ein- staklings er takmarkaður þ.e. hann greiðir nánast skatt af brúttótekjum sínum. Þó eru nokkrir liðir sem sem geta lækkað skattstofninn. Fyrst skal nefna persónuafsláttinn (530.466 kr árið 2010). Hann tilheyrir hlut- aðeigandi einstaklingi en mökum og sambúðaraðilum er heimilt að sam- nýta persónuafslátt hvort annars að fullu. Þessi regla gildir ekki um börn, t.d. einstæð móðir með barn á menntaskólaaldri (16 ára og eldri) getur ekki nýtt sér ónýttan persónu- afslátt þess. Iðgjöld einstaklinga í lifeyrissjóði til öflunar lífeyrisréttinda eru frá- dráttarbær. Frádrátturinn er 4% af heildarlaunum og að auki vegna við- bótarlífeyrissparnaðar, 6% fyrir tímabilið janúar – september 2010 og 4% frá október 2010. Einstaklingar sem fjárfesta í nýsköpunarfyrir- tækjum geta dregið kaupverð að há- marki 300.000 kr frá skattskyldum tekjum ársins 2010. Þeir sem tóku þátt í átakinu Allir vinna árið 2010, geta sótt um frádrátt af tekjuskatts- stofni vegna vinnu vegna viðhalds og endurbóta á íbúðarhúsnæði, að há- marki 200.000 kr hjá einstaklingi og 300.000 kr hjá hjónum og samskött- uðum. Frestur til að skila inn um- sóknum vegna vinnu á árinu 2010 rann út 31. jan. n.k. Til frádráttar af bifreiðahlunn- indum koma greiðslur einstaklings- ins til launagreiðanda fyrir afnot af bílnum. Greiði einstaklingur t.d. sjálfur rekstrarkostnað bifreiðar, sem hann hefur full og ótakmörkuð afnot af, lækkar hlutfall hlunnind- anna um 6%. Frá ökutækjastyrk má draga kostnað vegna aksturs í þágu vinnuveitanda, þ.m.t. árleg afskrift bifreiðar að hámarki 675.000 kr. Skil- yrði fyrir frádrætti er að færð hafi verið akstursdagbók. Á móti fengn- um dagpeningum má draga frá kostnað vegna ferða á vegum launa- greiðanda. Hafi einstaklingur á framfæri sínu ungmenni á framhaldsskólaaldri, 16- 21 árs, sem er í námi eða hefur af öðrum ástæðum lágar tekjur er hægt að sækja um ívilnun til lækkunar á tekjuskattstofni. Heimildin er í 3. og 4. tl. 65. gr. skattalaganna. Fái einstaklingur greidd fargjöld með strætó frá vinnuveitanda sínum skal hann ekki telja þær greiðslur til skattskyldra tekna. Þetta á einnig við um styrk til heilsuræktar svo og styrk vegna leigu á orlofshúsnæði. Viðmið greiðslna er 3.000 kr/mán fyr- ir strætófargjöld, 25.000 kr fyrir heilsurækt og 40.000 kr vegna orlofs- húsnæðis. Einnig er skilyrt að ein- staklingur geti lagt fram reikning vegna orlofsdvalarinnar. Fjármagnstekjur einstaklings eru tilkomnar vegna eigna hans og voru þær skattlagðar um 18% á síðasta tekjuári (2010). Fjármagnstekjur eru m.a. leigutekjur, vextir, gengishagn- aður, arður af hlutbréfum og hagn- aður af sölu eigna. Af fyrstu 100.000 krónunum (svo kallað frítekjumark) sem einstaklingi hlotnast í fjár- magnstekjur er ekki reiknaður skatt- ur og „aðeins“ 70% af tekjum hans af útleigu íbúðarhúsnæðis er skattlagt. Frítekjumarkið kemur til sögunnar við álagningu 2011 og þá fæst oftekin staðgreiðsla af vaxtatekjum endur- greidd. Barnabætur eru aðstoð við fjöl- skyldur sem eiga börn. Með öllum börnum yngri en sjö ára eru greiddar barnbætur að upphæð 61.191 án til- lits til tekna. Að auki geta komið til tekjutengdar barnabætur með börn- um yngri en átján ára. Vaxtabætur eru aðstoð við þá sem eru að byggja eða kaupa sér íbúðarhúsnæði til eigin nota. Þær eru reiknaðar út frá tekjum og eignum einstaklings. Hvorki barnabætur né vaxtabætur hafa nokkuð með tekjuskattslagn- inguna að gera. Eftir Rúnar Stein Ragnarsson og Atla Þór Þorvaldsson » Tekjur einstaklings eru hvers konar gæði, arður, laun og hagnaður sem honum hlotnast og metin verða til peningaverðs. Rúnar Steinn Ragnarsson Atli Þór er viðskiptafræðingur, meist- aranemi við HÍ í reikningsskilum og endurskoðun. atli@hofudbok.is Rúnar Steinn er viðskiptafræðingur, meistaranemi við HÍ í skattarétti og reikningsskilum. runar@hofudbok.is Skattskil einstaklinga, tekjur og hugsanlegir frádráttarliðir Atli Þór Þorvaldsson Frá sjónarhóli sjálfstæðismanna eru aðalatriði deilnanna um Icesave-kröfur ríkisstjórna Bret- lands, Hollands og Íslands á hendur ís- lensku þjóðinni ein- föld og auðskilin. Þau eru þessi: 1. Engin ríkis- ábyrgð var nokkurn tíma á þeim netreikn- ingum sem áhættusæknir breskir og hollenskir fjármagnseigendur lögðu sparifé sitt á, í von um hæstu ávöxtun. Bresk og síðar hollensk yfirvöld ákváðu hins veg- ar að bæta þeim tapið, upp að því sem tryggingasjóður innstæðueig- enda hafði ábyrgst. Þetta gerðu þau ekki vegna þess að nokkur lagaskylda væri til slíks, heldur vegna þess að þau óttuðust áhlaup á aðra banka. Bresk og hollensk stjórnvöld ákváðu síðan að sjá hvort þau gætu ekki fengið íslensk stjórnvöld, skelfingu lostin eftir bankahrunið hér, til þess að borga þennan herkostnað fyrir sig. Þar mátu þau staðfestu og úthald ís- lenskra stjórnmálamanna rétt. 2. Icesave-frumvarp vinstri- stjórnarinnar, sem hún reynir allt hvað hún getur að fá stjórnarand- stöðuna til að ábekja, svona eins og svindlari vill fá sómakæran ein- feldning aftan á falsaðan víxil, er einfaldlega frumvarp um að stór- felldar skuldir einkabanka skuli teknar, án dóms og laga, og lagðar á íslenska skattgreiðendur næstu ára og áratuga. Það er í raun það sem þeir berjast fyrir, þessir sem ólmir segjast vilja „klára málið“. Í hugum þeirra er þetta grundvall- aratriði ekki annað en eitthvert reikningsdæmi. 3. Landsfundur Sjálfstæðis- flokksins, æðsta vald í málefnum flokksins, tók mjög eindregna af- stöðu til málsins síð- asta sumar. Fyrir fundinum lágu drög að ályktun þar sem kröf- um Breta og Hollend- inga var eindregið mótmælt og þær sagð- ar ósanngjarnar. Fundurinn breytti þeim drögum með af- gerandi hætti og mót- mælti kröfunum, í nafni Sjálfstæð- isflokksins, alfarið og endanlega, sem „lög- lausum“. Landsfundur Sjálfstæð- isflokksins hefur þannig hafnað nýjum og gömlum Icesave- frumvörpum vinstristjórnarinnar og verður sú eindregna stefna flokksins ekki endurskoðuð af öðr- um stofnunum hans. 4. Nýjasta Icesave-samkomu- lagið er skárra en það síðasta. Fyrr mætti líka vera. En hversu skárra það er veit enginn. Ekki einu sinni fulltrúar Sjálfstæð- isflokksins í fjárlaganefnd sem nú hafa sent frá sér yfirlýsingu um að það sé viðunandi. Fyrir liggur að áhætta Íslands af samþykkt frumvarpsins er vel yfir tvö hundruð milljarðar króna – í er- lendum gjaldeyri. Ef einhver held- ur að á milli síðasta Icesave- samkomulags og þess nýjasta sé himinn og haf, þá er sá maður sennilega svo djúpt á kafi að hann er hættur að sjá til himins. Icesave er einfalt mál Eftir Sigríði Ást- hildi Andersen Sigríður Ásthildur Andersen »Nýjasta Icesave- samkomulagið er skárra en það síðasta. Fyrr mætti líka vera. En hversu skárra það er veit enginn. Áhættan er vel yfir 200 milljarðar. Höfundur er héraðsdómslögmaður og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.