Morgunblaðið - 04.02.2011, Qupperneq 31
Harry Potter
kvikmyndaserían
mun hljóta heið-
ursverðlaun
bresku kvik-
myndaakademíunn-
ar fyrir framlag
sitt til listgrein-
arinnar á Bafta
verðlaunahátíð-
inni sem haldin
verður 13. febr-
úar.
Fyrsta myndin
um galdrastrák-
inn var sýnd árið
2001 en í sumar
verður áttunda
og síðasta myndin
frumsýnd. Daniel
Radcliffe sagði við
þetta tækifæri að
hann hefði notið
hverrar einustu
mínútu við gerð
myndanna.
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 4. FEBRÚAR 2011
VINSÆLA
STA
MYND VE
RALDAR
ÞRJÁR V
IKUR Í RÖ
Ð!
ÍSLENSKT TAL - 3-D
SMÁRABÍÓ Nánar á Miði.is
Nánar á Miði.isBORGARBÍÓ
THE DILEMMA kl. 8
MÚMÍNÁLFARNIR 3D KL. 6
THE GREEN HORNET 3D kl. 10.10
ALFA OG ÓMEGA 2D kl. 6
DEVIL kl. 8 - 10.10
L
L
12
L
16
Nánar á Miði.is
BLACK SWAN kl. 5.40 - 8 - 10.30
BLACK SWAN LÚXUS kl. 5.40 - 8 - 10.30
MÚMÍNÁLFARNIR 3D KL. 3.40
THE DILEMMA kl. 5.30 - 8 - 10.30
THE GREEN HORNET 3D kl. 3.30 - 5.25 - 8 - 10.35
ALFA OG ÓMEGA 3D kl. 3.30
THE TOURIST kl. 8 - 10.20
GULLIVER´S TRAVELS 3D kl. 3.30 - 5.50
16
16
L
L
12
L
12
L
BLACK SWAN kl. 5.30 - 8 - 10.30
LONDON BOULEVARD kl. 8 - 10.10
THE FIGHTER KL. 5.30 - 8 - 10.30
BURLESQUE KL. 8 - 10.30
GAURAGANGUR KL. 5.50
BARA HÚSMÓÐIR* kl. 6 Enskur texti
Sýnd áfram í nokkra daga
16
16
14
L
7
L
HÁSKÓLABÍÓGLERAUGU SELD SÉR 5%
/haskolabio/smarabio
-Þ.Þ., FRÉTTATÍMINN
B. I., KVIKMYNDIR.COM T.V. - KVIKMYNDIR.IS
-H.S.S., MBL
5%
LAUGARÁSBÍÓ
LONDON BOULEVARD Sýnd kl. 5:50, 8 og 10:10
THE FIGHTER Sýnd kl. 5:40, 8 og 10:20
MÚMMÍNÁLFARNIR 3D Sýnd kl. 3:50 ísl. tal
ALFA OG ÓMEGA Í 3D Sýnd kl. 4 ísl. tal
ALFA OG ÓMEGA Í 2D Sýnd kl. 4 ísl. tal
LITTLE FOCKERS Sýnd kl. 6, 8 og 10
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú
greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum
Sýningartímar
ÞRÆLMÖGNUÐ SPENNUMYND FRÁ ÓSKARS-
VERÐLAUNAHAFANUM WILLIAM MONAHAN,
LEIKSTJÓRA “THE DEPARTED”
-bara lúxus sími 553 2075
Miðasala og nánari upplýsingar
www.laugarasbio.is
Það er ekki oft sem maðuryfirgefur bíósal full-komlega sáttur og rúm-lega það, nánast í skýj-
unum. Sú var þó raunin með Black
Swan, nýjasta verk hins hæfileika-
ríka leikstjóra Darrens Aronofsky.
Myndin er hreint afbragð, hvar sem
á er litið. Margt kemur þar til og
allt smellur fullkomlega saman:
handrit, leikur, myndataka, leik-
myndir, tónlist og dans. Myndin er
allt í senn, hlaðin spennu, angist,
átökum og síðast en ekki síst feg-
urð. Aronofsky sagði síðast af þjáð-
um fjölbragðaglímukappa sem kom-
inn er á seinasta snúning, líkaminn
að gefa sig og andinn með, í öflugri
túlkun leikarans Mickey Rourke.
Hér bætir Aronofsky um betur,
ótrúlegt en satt, og dembir sér að
þessu sinni í heim ballettdansara. Í
Svarta svaninum, Black Swan, vefur
Aronofsky hið þekkta ballettverk
Svanavatnið með öllum sínum átök-
um milli góðs og ills við sögu af ball-
ettdansmey sem gengur ekki heil til
skógar og á auk þess við líkamlegar
þjáningar að glíma enda álagið gríð-
arlegt sem fylgir dansstarfinu.
Hryllingur
Í myndinni segir í stuttu máli af
ballettdansmeynni Ninu sem
túlkuð er frábærlega af Natalie
Portman. Nina er dansari hjá
virtum ballettdansflokki í New
York og á sér þann draum heit-
astan að fá að dansa aðalhlutverk
í næstu uppfærslu flokksins sem
jafnframt er sú fyrsta á starfs-
árinu, á Svanavatninu. Nina lifir
og hrærist í ballettlistinni og ekk-
ert annað virðist komast að, enda
alin upp af strangri móður sem
eitt sinn var ballerína. Móðirin
stýrir henni í einu og öllu og virð-
ist eiga stóran þátt í því að dótt-
irin er félagslega einangruð og á
erfitt með samskipti við stall-
systur sínar í dansflokknum. List-
rænn stjórnandi flokksins, Thom-
as (leikinn af hinum djöfullega
Vincent Cassel) tekur þá ákvörðun
að segja upp aðaldansaranum sín-
um, Beth, og við það verður laus
staða aðaldansara í verkinu. Dans-
meyjarnar hafa allar hug á því að
dansa hlutverk hvíta og svarta
svansins og hreppir Nina hnossið
sér til mikillar furðu. En önnur
dansmær heillar einnig Thomas,
Lily, og grípur Ninu mikill ótti um
að hún muni stela af henni hlutverk-
inu. Hlutverkið krefst þess að dans-
arinn sýni bæði sakleysi og þokka í
túlkun sinni sem hvíti svanurinn en
myrkari hliðar og kynferðislegri
sem svarti svanurinn. Nina getur
vissulega túlkað hvíta svaninn en
hefur hún það sem þarf til að dansa
hlutverk svarta svansins sem Lily
virðist sniðin í? Kynferðisleg áreitni
Thomas í garð Ninu og gríðarlegar
kröfur hans til hennar á æfingum
verða til þess að Nina missir tökin á
raunveruleikanum, hryllilegar sýnir
fara að sækja á hana sem og rang-
hugmyndir.
Ef setja þarf myndina í einhvern
sérstakan flokk þá væri líklega nær
lagi að kalla hana dramatískan sál-
artrylli, eitthvað í þá veru, en það
væri algjör einföldun. Í grunninn er
þetta harmleikur og það býsna
hrollvekjandi. Hið holdlega er áber-
andi út í gegn í myndinni, ýmist
kynferðislegt eða sársaukafullt.
Aronofsky beitir margoft brellum
hryllingsmynda og skipar mynda-
taka þar afar mikilvægt hlutverk,
áhorfandanum er brugðið hvað eftir
annað og hárin fá að rísa (og fjaðr-
irnar líka). Áferðin á myndinni er
kornótt á köflum og mikið um hand-
helda myndatöku sem magnar upp
þá tilfinningu að maður sé fluga á
vegg, hluti af atburðarásinni og
samspil ljóss, skugga og lita er oftar
en ekki undurfallegt.
Fórnin og fegurðin
Þá kemur sagan einnig inn á þær
þjáningar og fórnir sem atvinnu-
dansarar hafa þurft að færa, oftast
nær frá barnsaldri og í sumum til-
fellum eflaust píndir áfram af for-
eldrum sem vilja að þeir nái á topp-
inn, líkt og í Black Swan. Segja má
að hér sé komin ný og vissulega
hrollvekjandi sýn á hið undurfagra
og ævintýralega ballettverk Svana-
vatnið og tónlist Tsjækofskíj skipar
í myndinni veigamikið hlutverk, eða
öllu heldur meðhöndlun Clints Man-
sells á henni en hann sá um að
semja tónlist við myndina. Leikara-
valið er virkilega vel heppnað, Port-
man á hér stjörnuleik, Barbara
Hershey er verulega ógnvekjandi í
hlutverki móðurinnar. Mila Kunis
stendur sig einnig prýðilega sem
kynþokkafullur keppinautur Ninu
og Cassell allt að því dýrslegur í
hlutverki þess sem öllu ræður í
dansflokknum. Er rýnir að gleyma
einhverju? Eflaust. Aronofsky er
hér í fimmta gír, ekkert gefið eftir.
Svarti svanurinn er veisla fyrir
augu og eyru sem verður einfald-
lega ekki notið til fulls nema í bíó-
sal. Sjón er svo sannarlega sögu rík-
ari.
Veisla „Hið holdlega er áberandi út í gegn í myndinni, ýmist kynferðislegt eða sársaukafullt,“ segir m.a. í dómi Helga
Snæs Sigurðssonar um nýjustu mynd Darren Aronofsky, Black Swan. Hér má sjá Natalie Portman í burðarrullunni.
Smárabíó, Háskólabíó
Black Swan
bbbbb
Leikstjóri: Darren Aronofsky. Aðal-
hlutverk: Natalie Portman, Barbara
Hershey, Vincent Cassel og Mila Kunis.
Bandaríkin 2010. 108 mín.
HELGI SNÆR SIG-
URÐSSON
KVIKMYNDIR
Seiðandi, svartur svanur
Bandaríska rokktvíeykið í The
White Stripes hefur slökkt á magn-
aranum og stungið gítarnöglunum í
vasann. Jack og Meg White hafa
sent frá sér yfirlýsingu þar sem
fram kemur að hljómsveitin sé
hætt. Þau þakka aðdáendum sínum
fyrir stuðninginn í tilkynningu sem
er birt á vefsíðu Detroit-sveitar-
innar.
The White Stripes var stofnuð
fyrir 13 árum og hefur gefið út sex
hljóðversplötur. Hljómsveitin sótti
Ísland heim árið 2005 og lék fyrir
troðfullri Laugardalshöll.
Hætt Rokksveitin The White
Stripes hefur lagt upp laupana.
White Stripes
lætur staðar numið
Harry Potter
serían verðlaunuð