Morgunblaðið - 25.02.2011, Síða 1
Starfsmenn Sorphirðu Reykjavíkur eru teknir til við að
mæla fjarlægð sorptunna frá götu, en frá og með 1.
apríl verður sorp ekki sótt lengra en 15 metra frá þeim
stað sem sorphirðubíllinn kemst næst, nema greitt sé
fyrir það aukalega. Þeir sem engar ráðstafanir gera
mega eiga von á því að sorpið standi óhreyft. »4
Mælingar hafnar vegna sorphirðugjalds
Morgunblaðið/Sigurgeir S
F Ö S T U D A G U R 2 5. F E B R Ú A R 2 0 1 1
Stofnað 1913 47. tölublað 99. árgangur
SKIPTINEMAR
NJÓTA LÍFSINS
Á ÍSLANDI
BARÁTTA MEÐ
WOLFSBURG Í
ÞÝSKALANDI
RÁÐHERRA Í KLÍPU
Í FARSANUM
NEI RÁÐHERRA
EYJÓLFUR ÍÞRÓTTIR MAGNÚS GEIR LEIKSTÝRIR 30MÖRGÆSIR 10
Morgunblaðið/Kristinn
Nýfædd Foreldrar af sama kyni þurfa að
breyta umsóknum Fæðingarorlofssjóðs.
Vinnumálastofnun telur sér ekki
unnt að verða við tilmælum velferð-
arráðuneytis um að stofnunin hlut-
ist til um að sérstök eyðublöð verði
aðgengileg á vefsvæði Fæðing-
arorlofssjóðs fyrir foreldra af sama
kyni. Stjórn Samtakanna 78 segir
að um óásættanlegt mannréttinda-
brot sé að ræða.
Stjórnsýslukæra var send ráðu-
neytinu á síðasta ári vegna þess að
Fæðingarorlofssjóður býður ekki
upp á umsóknareyðublöð fyrir sam-
kynhneigða foreldra. Lögmaður
samkynhneigðs pars segir að sú
framkvæmd að láta lesbíur fylla út
umsóknir sem karlmenn eða
homma fylla út umsóknir sem kon-
ur sé jafnt niðurlægjandi og sær-
andi. »4
Lesbíum gert að
fylla út umsóknir
sem karlmenn
Baldur Arnarson
Einar Örn Gíslason
Gestur Jónsson hæstaréttarlögmaður mælti
eindregið með því í minnisblaði til samráðs-
nefndar um stjórnlagaþing að kosið yrði að
nýju með sömu frambjóðendum. Morgunblað-
ið hefur þetta eftir traustum heimildum en
Gestur vildi ekki tjá sig um málið þegar það
var borið undir hann. Lagaprófessorarnir
Ragnhildur Helgadóttir og Róbert Spanó
gagnrýna þá hugmynd að þeim 25 sem mest
fylgi hlutu í stjórnlagaþingskosningunum
verði boðið að taka sæti í stjórnlagaráði, en
meirihluti samráðsnefndarinnar mun leggja
það til við Alþingi. Ætlunin er að stjórnlaga-
ráðið skili þinginu tillögum að stjórnarskrár-
breytingum að starfi sínu loknu. Þrír stjórn-
lagaþingsframbjóðenda sögðust í samtali við
Morgunblaðið vilja að efnt yrði til þjóðarat-
kvæðagreiðslu um tillögurnar.
Óeining á þingi og í ríkisstjórn
Ljóst er að ekki ríkir eining um málið á
þingi, en fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í nefnd-
inni skilaði séráliti. Gunnar Bragi Sveinsson,
þingflokksformaður Framsóknarflokksins,
segir niðurstöðu nefndarinnar ekki lýsa af-
stöðu flokksins, þó fulltrúi hans hafi stutt
hana. Þá herma heimildir að ríkisstjórnin sé
ekki á einu máli, og að lendingu sé langt í frá
náð.
Fram kemur í tilkynningu forsætisráðu-
neytisins að taki stjórnlagaráðið til starfa muni
úrskurður Hæstaréttar hafa óveruleg áhrif á
tímarammann. Stjórnlagaþingið hafði heimild
til að starfa í 2 til 4 mánuði og ætti stjórnlaga-
ráðið því að skila tillögum í sumar. Sá árstími
þykir óheppilegur til slíkrar kosningar og má
því reikna með að haustbyrjun sé nær lagi.
MFarið á svig við dóm Hæstaréttar »2
Uppkosning var talin eina leiðin
Kom fram í minnisblaði til samráðsnefndar um stjórnlagaþing Tillaga um stjórnlagaráð gagnrýnd
Morgunblaðið/Ómar
Ræðst í dag? Ríkisstjórnin ræðir umdeildar
tillögur samráðsnefndar um stjórnlagaráð.
Yfirlýsing Pálma Haraldssonar,
þess efnis að hægt verði að ganga
að eignum hans í Bandaríkjunum,
falli dómur á Íslandi slitastjórn
Glitnis í hag í skaðabótamáli á
hendur honum og sex öðrum ein-
staklingum áður tengdum Glitni,
barst dómstóli í New York í gær.
Dómarinn í málinu ákvað hins veg-
ar í fyrradag að taka málið aftur
upp, þar sem yfirlýsingar ofan-
greinds efnis höfðu ekki borist
dómstólnum innan tímamarka. Nýj-
asta yfirlýsing Hannesar Smára-
sonar í málinu er dagsett 23. febr-
úar, sama dag og ákveðið var að
taka málið upp að nýju. »14
Síðbúin yfirlýsing
barst dómstóli í gær
Búist er við áframhaldandi hækk-
unum á hrávöru á heimsmarkaði.
Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur
Samtaka iðnaðarins, segir að óttast
sé að hækkanirnar verði viðvarandi
en ekki tímabundið skot eins og
stundum hafi gerst.
Hrávöruverðshækkanir skila sér
fyrr eða síðar í vöruverði hér á landi.
Þeirra gætti lítið í vísitölu neyslu-
verðs sem Hagstofan birti í gær.
Bjarni Már telur að framleiðendur
haldi aftur af verðhækkunum þar
sem eftirspurn sé lítil vegna erf-
iðleika í efnahagslífinu. „Eftirspurn-
arhliðin er veik í öllu hagkerfinu og
menn treysta sér ekki til að velta
hækkunum út í verðlagið,“ segir
Bjarni en tekur fram að það gangi
ekki endalaust.
Hann segir þörf á að leysa úr
hnútum efnahagslífsins til að auka
almenna eftirspurn.
Bjarni Már segir að ákveðinn ótti
sé við að hátt matarverð verði við-
varandi en ekki tímabundið skot eins
og stundum hefur gerst. Það er með-
al annars rökstutt með aukinni eft-
irspurn eftir matvælum í heiminum,
umframframleiðslu, ekki síst vegna
fólksfjölgunar og lífskjarabreytinga.
MVerðbólguskot í upphafi árs »6
Óttast að
matarverð
haldist hátt
Framleiðendur
draga við sig að
hækka verð
Morgunblaðið/Kristinn
Brauð Hveitiverð hefur hækkað.