Morgunblaðið - 25.02.2011, Síða 17

Morgunblaðið - 25.02.2011, Síða 17
Grunnurinn að Icesave-málinu er tilskipun ESB um innistæðutrygg- ingar. Þegar Íslend- ingar innleiddu til- skipunina árið 1999 var ekki mikið rætt um hugsanlegar hættur sem væru því samfara. Jó- hanna Sigurð- ardóttir og Ög- mundur Jónasson sýndu hins vegar af sér fádæma dóm- greindarbrest. Tillaga þeirra var að ábyrgð á innistæðum yrði ótakmörkuð í stað þess að miða við hámark sem nam 20.887 evr- um. Sem betur fer var tillaga þeirra felld af miklum meiri- hluta þingmanna. Nú er verið að ganga frá hinu svokallað Ice- save-máli en lítið rætt um þá hlið málsins er snýr að innistæðu- tryggingakerfinu. Brotalöm í til- skipun ESB er þó órjúfanlegur hluti af Icesave-deilunni. Nýja innistæðu- tryggingakerfið Fyrir þinginu liggur frum- varp frá efnahags- og við- skiptaráðherra um innistæðu- tryggingakerfi. Það er byggt á nýrri tilskipun ESB sem ekki hefur verið samþykkt af EES- löndunum. Helstu breyting- arnar eru eftirfarandi 1. Orðalag ákvæðisins um tryggingar á innistæðum breyt- ist þannig að í stað shall stipu- late kemur shall ensure. Stjórn- armeirihlutinn hefur túlkað þetta með þeim hætti að rík- isvaldið verði að tryggja fjár- mögnun innistæðutrygg- ingasjóðsins ef og þegar hann þarf að taka lán til að geta staðið við skuldbindingar sínar. Það er erfitt að sjá muninn á því að þurfa að tryggja fjármögnun og ríkisábyrgð. 2. Innistæðutryggingin hækk- ar úr 20.887 evrum í 100.000 evr- ur. Eða úr 3.3 milljónum króna í 15,8 milljónir fyrir hvern inni- stæðueigenda í viðkomandi fjár- málastofnun. 3. Iðgjald fjár- málafyrirtækja hækkar og út- greiðsluskilmálar eru hertir. Hug- mynd stjórnarliða er að Tryggingasjóð- urinn verði deilda- skiptur þannig að gamla deildin haldi utan um „Icesave“- skuldbindingarnar og aðrar skuldbind- ingar sem tengjast hruninu. Ekki er vit- að hversu miklar skuldbinding- arnar verða þar sem eftir er að útkljá fjölmörg mál fyrir dóm- stólum. En innistæðueigendur í Evrópu eru að sækja á Trygg- ingasjóðinn. Forstöðumaður Tryggingasjóðsins benti á að það gæti reynst erfitt að fá deildarskiptinguna við- urkennda. Þannig væri vafa- samt að hægt væri að vísa þeim sem gerði kröfu á sjóðinn á gjaldþrota deild þegar um fleiri deildir væri að ræða hjá sama lögaðilanum, Tryggingasjóðn- um. Noregur gætir sinna hagsmuna – ekki Ísland Tilskipunin hefur ekki verið innleidd í EES-samninginn. Ástæðan er að Norðmenn hafa staðið á bremsunni og vilja fá leyfi til að hafa vernd á innistæð- um hærri. Þeir geta það sökum fjárhagslegrar stöðu sinnar. Enginn íslenskur ráðherra í rík- isstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur gætt hagsmuna Íslend- inga í þessu máli. Brussel- ferðirnar hafa verið nýttar í ann- að. Gengur ekki upp fyrir Ísland Tryggingar eru í eðli sínu dreifing á áhættu. Innistæðu- tryggingakerfið er þar engin undantekning en það á uppruna sinn í Bandaríkjunum þar sem allar fjármálastofnanir sem taka við innlánum eru í aðilar að kerf- inu með greiðslu iðgjalda. Í Evr- ópu er hverju ríki gert að setja upp sinn eigin tryggingasjóð. Það gengur ekkert sérstaklega vel upp í fjölmennum ríkjum Evrópu og það er fullkomlega vonlaust í minni ríkjunum og er Ísland gott dæmi um það. Innistæður á Íslandi eru 1.500 milljarðar! Innistæður á Íslandi eru 1.500 milljarðar eða þrisvar sinnum ís- lensku fjárlögin. Á Íslandi eru þrír bankar með 70-80% af þeirri upphæð og þeir eru svip- aðir að stærð. Það þýðir að dreif- ing áhættunnar er sáralítil. Mið- að við þá útreikninga sem viðskiptanefnd Alþingis fékk í hendurnar þá tekur það nær heila öld að safna í trygg- ingasjóð sem stæði undir inni- stæðum í einum banka ef svo illa færi að hann kæmist í þrot. Því hefur verið haldið fram að bank- ar muni ekki falla í framtíðinni. Reynslan kennir okkur annað og það er sömuleiðis nokkuð öruggt að ef fyrningaleið ríkisstjórn- arinnar verður farin muni rík- isbankinn – Landsbankinn – ekki standa eftir það! Gerum ekki sömu mistök aftur! Okkur er öllum ljóst að við hefðum betur vandað lagasetn- ingu fyrir hrun. Einnig væri bet- ur fyrir okkur komið ef við hefð- um metið áhættu betur en við gerðum. Við breytum ekki hinu liðna en það er engin ástæða til að endurtaka mistökin. Það eru stór mistök að samþykkja frum- varp ríkisstjórnarinnar óbreytt. Með því er verið að blekkja al- menning, búa til falskt traust og leggja allt þjóðarbúið undir. Eftir Guðlaug Þór Þórðarson » Það er sömuleiðis nokkuð öruggt að ef fyrningarleið ríkisstjórnarinnar verður farin muni ríkisbankinn – Landsbankinn – ekki standa eftir það. Guðlaugur Þór Þórðarson Höfundur er alþingismaður. Fljótum við aftur sofandi að feigðarósi? 17 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2011 Stuðningur Líbíumenn búsettir hérlendis héldu samstöðufund á Austurvelli í gær og vöktu athygli á voðaverkum sem verið er að vinna á almennum borgurum í Líbíu. Árni Sæberg Forseti Ís- lands ákvað að vísa Icesave til þjóðarinnar á nýjan leik. Byggist ákvörðunin á öryggisákvæði stjórnarskrár- innar sem er í 26. gr. hennar og er því þjóð- aratkvæðagreiðslan bind- andi. Þetta ákvæði ver Ís- lendinga fyrir ofríki ríkisstjórnarinnar og meirihluta Alþingis. Rík- isstjórnin er umboðslaus, þingið er búið að afgreiða málið og er það nú hjá þjóðinni. Við þingmenn Framsóknarflokksins gerðum allt sem við gát- um til að svipta hulunni af leynimakkinu sem umlyk- ur Icesave án árangurs þrátt fyrir ríka upplýs- ingaskyldu ráðherra. Nú er komið að þjóðinni að krefjast svara hjá fjár- málaráðherra og verk- lausu ríkisstjórninni. Fyrsta spurningin sem bera verður upp er: Hvar eru Icesave-peningarnir? Samkvæmt fréttum runnu tæplega 200 milljarðar til fyrrverandi eigenda Ice- land-keðjunnar en þeir voru Baugur, Fons o.fl. Félagið liggur nú inni í þrotabúi Landsbankans í London og er ein stærsta eign þrotabúsins. Skuldir Iceland eru himinháar og eru þær tilkomnar vegna arðgreiðslu til þessara fyrrum eigenda félagsins á árinu 2007. Árið 2008 seldu eigendurnir Iceland- félagið til Landsbankans með forkaupsrétti sem síðan var veðsettur hjá Glitni. Á einhvern óút- skýrðan hátt blandast Deutsche Bank inn í þessa fléttu og er sá banki allt um kring í íslensku við- skiptalífi í dag. Er talið að Ac- tavis skuldi þeim banka hátt í 1.000 milljarða – tær snilld í ljósi þess að nú er krafist að þjóð- in borgi reikn- inga eigandans vegna Lands- bankans. Gleymum ekki að Actavis – sem hefur heimilisfesti hér á landi – skuldar sem nemur 70% að landsframleiðslu Ís- lands en það er sambæri- leg upphæð og talið er að fallið hafi á hið opinbera í fjármálakreppunni. Skuld- ir Actavis eru reiknaðar inn í stöðu þjóðarbúsins og draga lánshæfismat Ís- lands niður. Áætlað er að undirliggjandi hrein staða þjóðarbúsins sé neikvæð á bilinu 57-82% af lands- framleiðslu í lok árs 2010, en ef eignum og skuldum Actavis er haldið til hliðar er hrein skuld aðeins á bilinu 18-38%. Sjá ekki allir hvað hér er í gangi? Síðan verður að svara því hverjir tóku arð eða eignir úr Landsbankanum sem liggur til grundvallar skuldabréfi því sem Stein- grímur J. lét nýja Lands- bankann taka fyrir 280 milljarða, með fullri rík- isábyrgð og í erlendri mynt. Nú hefur komið í ljós að bankinn er tæpast greiðslufær og hefur ekki gjaldeyri til að standa í skilum. Þessir 280 millj- arðar eru fyrirfram- greiðsla upp í Icesave. Það verður að spyrja hví ekki er beðið með Icesave þar til sakamálarannsókn á Landsbankanum er lok- ið. Ólöglegt er að byggja kröfu á atburði eða gjörn- ingi sem saknæmur er að lögum. Undanfarið hef ég spurt sjálfa mig hver það sé sem stjórni nýja Landsbankanum í raun og veru – getur verið að skuggastjórnendur séu í „ríkisbankanum“ sjálfum? Hvernig stóð á því að nýi Landsbankinn afskrifaði margra milljarða skuldir 365 miðla? – Jú, til að ráða þjóðfélagi þarftu að eiga fjölmiðlanet til að stjórna umræðunni. Hverjir hafa hag af því að „stjórna“ fjölmiðli og hverjir eru það sem „ekki“ er fjallað um í miðl- um 365? Eru það ekki 1.000 milljarða skulda- mennirnir tveir? Velferð- arríkisstjórnin verður að svar þessum spurningum því þetta er að gerast á hennar vakt og virðist með hennar vilja. Eins verður ríkisstjórnin að viðurkenna að Icesave og ESB eru nátengd og ann- að getur ekki án hins ver- ið – enda fullyrða hol- lenskir fjölmiðlar að svo sé. Þegar þessum spurn- ingum er svarað er hægt að taka afstöðu með eða á móti Icesave. Sú stað- reynd liggur samt alltaf fyrir og er grunnurinn í málinu að Íslendingum ber ekki að taka á sig ólögvarðar og ólöglegar skuldir einkabanka og óreiðumanna. Eftir Vigdísi Hauksdóttur »Nú á þjóðin að krefja fjár- málaráðherra og verklausu rík- isstjórnina svara. Fyrsta spurn- ingin sem bera verður upp er: Hvar eru Icesave- peningarnir? Vigdís Hauksdóttir Höfundur er lögfræðingur og þingmaður Framsókn- arflokksins í Reykjavík. Ríkisstjórnin og Icesave

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.