Morgunblaðið - 25.02.2011, Side 14

Morgunblaðið - 25.02.2011, Side 14
14 FRÉTTIRViðskipti | atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2011 Þórður Gunnarsson thg@mbl.is Yfirlýsing Pálma Haraldssonar um að hægt væri að ganga að eignum hans í Bandaríkjunum ef á Íslandi félli dómur slitastjórn Glitnis í hag, barst dómstóli í New York í gær. Dómarinn Charles E. Ramos hafði hins vegar áður ákveðið að máli sem slitastjórn Glitnis höfðaði á hendur þeim Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Ingibjörgu Pálmadóttur, Jóni Sig- urðssyni, Þorsteini Jónssyni, Lárusi Welding, Hannesi Smárasyni og Pálma, vegna ráðstöfunar fjár sem Glitnir aflaði sér í skuldabréfaútboði í New York haustið 2007, skyldi vís- að frá og það flutt á Íslandi. En með þeim skilyrðum sem eru nefnd að of- an. Frá því var greint í Morgun- blaðinu í gær að mál slitastjórnar, sem áður hafði verið vísað til föður- húsanna, yrði endurupptekið í New York. Yfirlýsingar á lokametrunum Fram kemur í gögnum sem liggja fyrir á vefsvæði dómstólsins, að starfsmaður hans hafi sent lögmönn- um allra aðila málsins tölvupóst á þriðjudagskvöld að íslenskum tíma, þar sem fram kemur að Ramos dóm- ari hafi ákveðið að taka málið fyrir aftur, þar sem tveir hinna stefndu, Hannes og Pálmi, hafi ekki skilað inn yfirlýsingum um aðfararhæfni í sam- ræmi við óskir dómarans. Þessum fullyrðingum svarar lögmaður Hannesar snarlega, og bendir á að yfirlýsingu í nafni Hannesar hafi sannarlega verið skilað inn til dóm- stólsins. Meðfylgjandi í tölvupósti lögmanns Hannesar er yfirlýsingin sem um ræðir, en er dagsett 23. febr- úar, eða samdægurs og starfsmaður dómstólsins tilkynnti aðilum málsins um endurupptöku þess. Í gögnum málsins má einnig sjá yfirlýsingu frá Pálma, dagsetta 24. febrúar, þar sem hann fellst á að hægt verði að ganga að eigum hans í Bandaríkjunum, fari svo að dómur á Íslandi falli slitastjórn Glitnis í hag. Yfirlýsing Pálma er að sögn Sigurð- ar Guðjónssonar, lögmanns Pálma, sú þriðja sem hann skilar inn til dóm- stólsins vestanhafs. Pálmi skilaði yfirlýsingunni til New York-dómstóls í gær  Dómarinn ákvað að taka málið upp aftur í fyrradag vegna skorts á yfirlýsingum Reuters New York Málssókn slitastjórnar Glitnis á hendur sjömenningum áður tengdum Glitni hefur staðið yfir síðan 11. maí á síðasta ári. Yfirlýsingar » Jón Ásgeir, Ingibjörg, Jón, Lárus og Þorsteinn skiluðu síð- ast inn sameiginlegri yfirlýs- ingu þann 7. febrúar síðastlið- inn, samkvæmt gögnum á vef dómstólsins í New York. » Hannes skilaði síðast inn yf- irlýsingu í fyrra, en Pálmi gerði slíkt hið sama í gær. Örn Arnarson ornarnar@mbl.is Kathrin Muehlbronner, sérfræðing- ur hjá Moody’s í lánshæfi íslenska ríkisins, segir skoðun matsfyrirtæk- isins vera þá að staðfesting Icesave- samningsins ein og sér dugi ekki til þess að hægt sé að losa um gjaldeyr- ishöft hér á landi. Hinsvegar sé það mat Moody’s að höfnun samningsins muni leiða til þess að íslenska hag- kerfið muni verða lengur í viðjum hafta en ella. Moody’s sendi frá sér á miðviku- dag skýrslu um stöðu mála hér á landi. Í henni kom fram að líklega myndi lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins fara í ruslflokk ef Icesave yrði ekki staðfest í komandi þjóðar- atkvæðagreiðslu. Ástæðan er sú að slík niðurstaða er sögð líkleg til þess að tefja greiðslur af lánum Norður- landanna og hindra framgang efna- hagsáætlunar stjórnvalda. Margir sérfræðingar hafa bent á að endanlegur kostnaður íslenska ríkisins vegna Icesave sé svo háður gengisþróun á samningstímanum að erfitt verði að afnema gjaldeyrishöft meðan á greiðslum stendur. Spurð um þetta segir Kathrin að staðfest- ing Icesave sé aðeins skref í átt að af- námi hafta og skapi ekki ein og sér svigrúm til þess. Hún segir að höftin gagnist stjórnvöldum nú þar sem þau haldi innlendum fjármagns- kostnaði ríkisins niðri en gerir þó ekki lítið úr kostnaðinum sem þeim fylgir. Sökum hans er brýnt að losa um höftin en að sama skapi verður tímasetning afnámsins og fram- kvæmd að vera vandlega ígrunduð. Spurð um gengisáhættuna á bak- við Icesave-samninginn og áhrif hennar á skuldsetningu ríkissjóðs – miðað við útreikninga GAM Ma- nagement gæti munurinn verið yfir 100 milljarðar miðað við mismunandi gengisforsendur – vísar Kathrin til skýrslu Moody’s á miðvikudag en þar kemur fram að forsendur út- reikninga á skuldastöðunni vegna Icesave kunni að reynast vera of bjartsýnar. Icesave losar ekki um höftin  Moody’s segir að staðfesting Icesave dugi ekki ein og sér til afnáms hafta Morgunblaðið/Ómar Icesave Ávallt umdeilt. Hræringar í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku hafa sett mark sitt á heimsmarkaðsverð á olíu. Verð á framvirkum samningum um afhend- ingu Norðursjávarolíu í apríl náði 120 dollurum í viðskiptum gærdags- ins í kauphöllinni í London. Fyrir opnun markaða í Bandaríkjunum snertu sambærilegir samningar 100 dollara markið. Átök í Líbíu hafa meiri áhrif á verð olíu heldur en í Egyptalandi, enda fyrrnefnda ríkið stærri framleiðandi. Haft hefur verið eftir forstjóra ítalska olíurisans ENI, Pablo Scaroni, að olíufram- leiðsla í Líbíu hefði dregist saman um 75% frá því að átökin þar í landi hófust fyrir skömmu. Nemur fram- leiðslan í dag um 300 milljónum tunna, en í friðsamara árferði hefur framleiðslan numið um 1,5 milljón tunnum á dag. Líbía er þó ekki með- al 15 stærstu olíuframleiðenda í heimi. Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, telur að olíuverðhækkanirnar séu komnar til að vera. „Það er ekk- ert á sjóndeildarhringnum sem bendir til þess að þetta verð sé farið að falla aftur. Hagkerfi heimsins er að rétta úr kútnum víðast hvar, sem eykur vitanlega eftirspurn.“ Verð á blýlausu 95 oktana bensíni á Íslandi kostar um 220 krónur í smásölu í dag. Hermann bendir á að ríflega helmingur þess fari til ríkis- ins. „Heimsmarkaðsverð á olíu þyrfti að fara í 160-170 dollara til verðið hér heima nálgaðist 300 krónurnar á lítr- ann. Mig grunar að olían fari ekki niður fyrir 80-90 dollara, að minnsta kosti fram á haust.“ thg@mbl.is Olíuverð hækkar hratt og lækkun á ný talin ólíkleg  Framleiðsla í Líbíu hefur minnkað um allt að þrjá fjórðu Morgunblaðið/Jim Smart Bensín Heimsmarkaðsverð þyrfti að fara í 160-70 dollara til að bensínverð hér heima nálgaðist 300 krónurnar, segir Hermann Guðmundsson hjá N1. ● Hagnaður Tryggingamiðstöðv- arinnar af reglulegri starfsemi á árinu 2010 var 765 milljónir króna, samanborið við 237 milljóna kr. hagnað árið 2009. Fram kemur í tilkynningu frá TM að heildartekjur fyrirtækisins í fyrra hafi verið 11,6 milljarðar króna, en hafi verið 12,8 milljarðar árið 2009. Heildargjöld 2010 hafi verið 10,8 milljarðar en 12,5 milljarðar 2009. Þá segir að eigin iðgjöld hafi auk- ist um 8%; hafi verið 10,2 milljarðar króna í fyrra, miðað við 9,4 milljarða árið á undan. Haft er eftir Sigurði Viðarssyni, forstjóra TM, í tilkynningu, að af- koma TM á árinu sé mjög góð í ljósi efnahags- og samkeppnisaðstæðna. Iðgjaldatekjur hafi aukist á sama tíma og tjónakostnaður hafi lækkað umtalsvert. Afkoma af vátrygginga- starfsemi sé ein sú besta í sögu fé- lagsins. TM hagnaðist um 765 milljónir króna 2010 ● Íslandsbanki og DataMarket hafa í samvinnu þróað og hannað upplýs- ingaveitu um al- þjóðlegan jarð- hitamarkað. Upplýsingarnar birtast á jarð- hitamælaborði á vefsíðu Íslandsbanka. Þar er hægt að fylgjast með jarðhitamarkaðnum víðs- vegar um heiminn en þó er lögð sérstök áhersla á Bandaríkin og Ísland. Á mæla- borðinu má meðal annars finna upplýs- ingar um framleiðslugetu rafmagns úr jarðhita og áætlaða framleiðslugetu jarðhita eftir löndum. Ný upplýsingaveita ● Tiltölulega lítil velta var á skulda- bréfamarkaðnum í gær en hún nam tæpum 5,4 milljörðum króna. Skulda- bréfavísitala Gamma hækkaði lítillega í viðskiptunum eða um 0,1%. Vísitalan hefur hækkað um 0,5% frá áramót- um. Vísitalan fyrir verðtryggð bréf hækkaði um 0,2% í viðskiptum gær- dagsins og nam veltan með þau 2,7 milljörðum. Óverðtryggt hækkaði um 0,1% og nam velta viðskiptanna 2,6 milljörðum. Lítil velta á markaðnum Stuttar fréttir…                                            !"# $% " &'( )* '$* ++,-., +/0-01 ++0-/. 2+-310 24-503 +/-+,2 +2,-++ +-3+0+ +/2-4, +,.-/1 ++5-21 +//-+. ++/-23 2+-, 24-01, +/-24, +2,-35 +-32+2 +/2-,. +54-2/ 2+5-1+33 ++5-,+ +//-5, ++/-,. 2+-,51 24-0.5 +/-2,/ +2,-/+ +-32,1 +/1-+1 +54-01

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.