Morgunblaðið - 25.02.2011, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 25.02.2011, Qupperneq 36
FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 56. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318 1. Facebook-mynd sannaði svindl 2. Clooney sofið hjá of mörgum 3. Dóttir Gaddafis reyndi að flýja 4. Stakk á bólgin kynfæri »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Herranótt, leikfélag MR, frumsýnir Draum á Jónsmessunótt eftir William Shakespeare í kvöld. Sýningar verða í Norðurpólnum á Seltjarnarnesi. Leikstjóri er Gunnar Helgason og tónlist er í höndum nemenda. Herranótt sýnir Draum Shakespeares  Hljómsveitin Mystic Dragon heldur tónleika á Sódóma Reykja- vík í kvöld og hefj- ast þeir kl. 23. Mystic Dragon leikur fjörugt glysrokk frá ní- unda áratugnum. Hljómsveitin leikur lög þekktra hljómsveita með sínu nefi og má þar nefna Kiss, Bon Jovi, Mötley Crue, Skid Row, Journey og Billy Idol. Fjörugt glysrokk Mystic Dragon  Færeyska tónlistarkonan Eivör Pálsdóttir heldur kirkjutónleika í Landakirkju í Vestmannaeyjum 3. mars nk. kl. 20 og er það í fyrsta sinn sem hún heldur tónleika þar. Söngkonan Sísi Ást- þórsdóttir hitar upp fyrir Eivöru. 6. mars kl. 20 mun Eivör svo halda tón- leika í Aust- urbæ í Reykja- vík. Eivör með kirkju- tónleika í Eyjum Á laugardag Suðvestan 8-15 m/s og él, en þurrt A-lands. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost í innsveitum. Á sunnudag Ákveðin vestanátt. Bjartviðri A-til, annars él, en úrkomulítið síðdegis. Hiti um eða undir frostmarki. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Snýst í suðvestan og vestan 10-20, hvassast SA-lands og við V- ströndina síðdegis. Rigning eða slydda, síðan skúrir eða él. Kólnandi veður. VEÐUR Halldór Ingólfsson var í gær rekinn úr starfi þjálfara karlaliðs Hauka í hand- knattleik. Halldór segir tímasetninguna undarlega enda liðið ekki búið að tapa nema einum leik af síðustu níu. Hann er ósáttur við þessi vinnubrögð stjórnar Hauka. Valdimar Ósk- arsson, formaður hand- knattleiksdeildar Hauka, segir að uppsögnin snúist ekki um stigin á töflunni. »1 Halldór rekinn frá Haukum Brynjar Björn Gunnarsson, landsliðs- maður í knattspyrnu og leikmaður Reading á Englandi, vill komast á lán það sem eftir lifir tíma- bilsins. Brynjar Björn hefur verið á mála hjá Reading frá árinu 2005 en samn- ingur hans við enska félagið rennur út í sumar. »1 Brynjar Björn er á förum frá enska liðinu Reading Ingvar Ágúst Jochumsson, fim- leikamaður úr Gerplu í Kópavogi, er að gera það gott í Pennsylvaníuríki. Ingvar vann sig inn í fimleikalið Penn State-háskólans, sem er eitt sterk- asta liðið í Bandaríkjunum, á sínu fyrsta ári í skólanum. Auk þess að æfa sex sinnum í viku og keppa um helgar leggur Ingvar stund á iðn- aðarverkfræði. »3 Fimleikakappi gerir það gott vestanhafs ÍÞRÓTTIR Morgunblaðið/Ómar Hlýindi Þessi kylfingur naut veð- urblíðunnar á Hvaleyrarvelli. Meðalhitinn í Reykjavík það sem af er þessum mánuði er 1,7 stigum yfir meðallagi og 1,2 stigum yfir á Ak- ureyri. Hefur ekki verið hlýrra í febrúarmánuði í fimm ár, eða frá 2006. Að sögn Trausta Jónssonar veðurfræðings á hið sama við ef jan- úar síðastliðinn er tekinn með í reikninginn. Reiknar Trausti ekki með miklum breytingum á meðalhit- anum þó að einhverjir dagar séu eftir af mánuðinum. Hann segir hitatöl- urnar vera svipaðar af öðrum veð- urmælingastöðum á landinu. Hlýindin hafa ekki aðeins verið mikil hér á landi heldur einnig á Grænlandi. Trausti segir hitatölur fyrir síðasta ár með miklum ólík- indum, sér í lagi fyrir vesturströnd Grænlands. Þannig var meðalhiti síðasta árs 2,6 stig í Nuuk, sem er 4,2 stigum yfir meðallagi áranna 1961-1990. Í Narsarssuaq var með- alhitinn 5,4 stig í fyrra og síðasta ár var hið næsthlýjasta í sögu mælinga í Ammassalik á austurströndinni. Trausti segir hitastökkið á Græn- landi langt umfram það sem búist sé við af hnattrænni hlýnun næstu ára- tugina. Spennandi verði að fylgjast áfram með þróun mála. Guðmundur Thorsteinsson hefur búið lengi í Nuuk. Hann segir við Morgunblaðið að tíðarfarið í fyrra hafi verið óvenjulegt, til dæmis allt að 20 stiga hiti í október sl. Breyt- ingar verði á lifnaðarháttum fólks og hærri hita sé ekki alls staðar vel tekið, t.d. hafi veiðimenn með hundasleða átt erfitt með að veiða á ísnum sökum bráðnunar. Á móti dafni landbúnaður víða. »12 Hlýjasti febrúar í fimm ár  Hitinn í Reykjavík í febrúar 1,7 stigum yfir meðallagi Hinn ástsæli söngvari og trommu- leikari Engilbert Jensen átti sjötugs- afmæli í gær og fékk vini sína Gunn- ar Þórðarson, Óttar Felix Hauksson, Erling Björnsson og Jón Ólafsson í afmæliskaffi. Þeir færðu honum köku og dugði ekkert minna en kaka árs- ins, sköpunarverk Sigurðar M. Guð- jónssonar hjá Bernhöftsbakaríi. Engilbert sagði að Óttar Felix hefði viljað færa honum köku og koma í kaffi með nokkrum félögum. „Ég ætlaði ekki að vera með neitt, sagði að ef hann vildi koma með eitt- hvert fólk þá yrði hann að sjá um það. Ég sagði að það væri nýkomin kaka ársins, úr Bernhöftsbakaríi, hann skyldi bara koma með hana,“ sagði Engilbert, eldhress á sjötugsafmæl- inu. Hann sagði afmælisdaginn eins og hvern annan dag: „Þetta er bara sami dagurinn í dag og í gær, það kemur bara einn í einu.“ Og Engilbert var harður á því að boðið ætti ekki að standa lengur en hálftíma. Það ætti að hefjast klukkan hálffjögur og gestirnir yrðu reknir út hálftíma síðar. helgisnaer@mbl.is Kaka ársins á afmælinu  Eins og hver annar dagur, segir Engilbert sjötugur Morgunblaðið/Sigurgeir S Veisla Jón Ólafsson, Erlingur Björnsson, Engilbert Jensen, Gunnar Þórðarson og Óttar Felix Hauksson. Vinirnir héldu upp á daginn með því að færa afmælisbarninu köku ársins og kunni Engilbert vel að meta kræsingarnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.