Morgunblaðið - 25.02.2011, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2011
Dagana 26.-27. febrúar nk. mæta
818 hreinræktaðir hundar af 82
hundategundum í dóm á alþjóðlegri
hundasýningu Hundaræktarfélags
Íslands. Sýningin verður haldin í
Reiðhöllinni í Víðidal og hefjast
dómar kl. 9:00 árdegis báða dagana
og standa fram eftir degi. Sex dóm-
arar frá sex löndum dæma í sex
sýningarhringjum samtímis. Úrslit
báða dagana hefjast upp úr kl.
13:30 og þá kemur í ljós hvaða
hundar bera af að mati dómara.
Þá verða kynningar- og sölubás-
ar í anddyri reiðhallarinnar þar
sem ýmis tilboð verða í gangi og
gestum gefst tækifæri til þess að
kynnast hundum og ræða við
hundaeigendur.
Morgunblaðið/Ernir
Margir Hundar af 82 tegundum taka
þátt í sýningunni um helgina.
Hundar sýna sig
Femínistafélag Íslands skorar á
borgaryfirvöld að gaumgæfa ít-
arlega sameiningartillögur leik-
skólanna. Félagið minnir á mann-
réttindastefnu Reykjavíkurborgar
þar sem stendur að Reykjavík-
urborg hafi „jafnræði borgaranna
og mannréttindi að leiðarljósi í öllu
starfi og hefur einsett sér að vera í
fararbroddi í mannréttindamálum
með sérstakri áherslu á jafna stöðu
kvenna og karla“.
Félagið varar jafnframt við nið-
urskurðartillögum sem ekki eru
unnar í samræmi við kynjaða hag-
stjórn. Íslenskur vinnumarkaður er
mjög kynskiptur og niðurskurður,
jafnt og atvinnuuppbygging, þarf
að taka mið af ólíkum störfum
kvenna og karla.
Jafnræði borgar-
anna að leiðarljósi
Félag eldri borg-
ara í Reykjavík
og nágrenni sam-
þykkti ályktun á
fundi félagsins á
föstudag sl. Í
ályktuninni er
þess krafist að
lífeyrir eldri
borgara verði
strax leiðréttur um 16% til sam-
ræmis við þær kauphækkanir sem
láglaunafólk hefur fengið. Þær litlu
„verðbætur“ (2,3%) á lífeyri ellilíf-
eyrisþega, sem ákveðnar voru frá
sl. áramótum dugi hvergi nærri til
þess að brúa það bil, sem myndast
hefur í kjaramálum aldraðra og
launþega. Auk þess hafi aðeins lítill
hópur eldri borgara fengið þessar
„verðbætur“.
Lífeyrir verði strax
leiðréttur
STUTT
Karlmanni var í gær gert af Hér-
aðsdómi Reykjavíkur að sæta ör-
yggisgæslu á réttargeðdeild en var
á sama tíma sýknaður af refsikröfu
ákæruvaldsins vegna sérstaklega
hættulegra líkamsárása. Maðurinn
réðst á foreldra sína á meðan þau
sváfu, stakk móður sína í vinstra
augað og föður sinn neðan við
vinstra augað ásamt því að slá hann
í höfuðið – eða kasta í hann – tæp-
lega tveggja kílóa þungri pönnu.
Maðurinn var ákærður fyrir til-
raun til manndráps en dómari máls-
ins taldi ósannað að það hafi vakað
fyrir honum að ráða foreldrum sín-
um bana. Því var háttsemin talin
sérstaklega hættuleg líkamsárás.
„Þetta er fyrir Zyprexaárin“
Geðlæknar og sálfræðingur voru
fengnir til að meta hvort maðurinn
væri sakhæfur. Ótvíræð niðurstaða
þeirra var nægileg til að dómurinn
taldi hann ófæran um að stjórna
gerðum sínum á verknaðarstundu.
Í matsgerðum kom fram að mað-
urinn uppfylli skilmerki fyrir geð-
klofasjúkdóm, auk þess að hann
hafi vel dulin merki geðrofs og
sturlunar. Hann sæi heiminn því
ekki eins og venjulegur einstakling-
ur.
Fram kemur í dómnum að eftir
árásina hafi maðurinn sest niður í
eldhúsi íbúðarinnar og sagt „Þetta
er fyrir Zyprexaárin“. Þar vísar
maðurinn til geðlyfja sem honum
var gert að taka vegna sjúkdóms
síns. Kom og fram að maðurinn hafi
líklega ekki tekið lyf sín fyrir at-
burðinn.
Endanlegar afleiðingar
óljósar
Samkvæmt læknisvottorði sem
lagt var fram segir að slímhimna
auga móðurinnar hafi alveg losnað
frá að neðanverðu. Neðsti hluti
augnvöðva hafi virst vera alveg í
sundur og var vöðvinn saumaður.
Erfitt sé að segja til um endanlegar
afleiðingar fyrir augað.
Hjá föðurnum fór áhaldið ekki í
gegnum augnkúluna en hafi þó rifið
vöðva og brotið bein. Miklu afli hafi
verið beitt umrætt sinn miðað við
þá áverka er hafi af hlotist. Fað-
irinn er, samkvæmt dómnum,
óvinnufær í dag vegna höfuðverks.
Auk þess að sæta öryggisgæslu
var manninum gert að greiða for-
eldrum sínum 400 þúsund krónur í
miskabætur. Sakarkostnaður greið-
ist hins vegar úr ríkissjóði, tæpar
þrjár milljónir króna. andri@mbl.is
Stakk sofandi
foreldra í augu
Nýjar vorvörur
Mussur og bolir
munstrað og einlitt
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
str.
36-56
STÓRAFSLÁTTARHELGI
Verkfæralagerinn
Smáratorgi 1, 201 Kópavogi,
sími 588 6090, vl@simnet.isMán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-17, sun. kl. 13-17
Myndlista
vörur
í miklu ú
rvali
16 ára
Veltisög
68.970
-20%
50.176
20% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM
*ekki sértilboð
25. feb. – 2. mars
25. feb. – 2. mars
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Síðasta útsöluvika
Verðhrun
laxdal.is
Ellefu þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins hafa lagt fram frumvarp á Al-
þingi um að iðnaðarráðherra skuli
veita Landsvirkjun virkjunarleyfi
fyrir virkjanir í neðri hluta Þjórsár
og að Landsvirkjun skuli hefja fram-
kvæmdir hið fyrsta.
Virkjanirnar eru Hvammsvirkjun,
82 MW að afli, Holtavirkjun, 53 MW
að afli og Urriðafossvirkjun, 130
MW að afli. Í greinargerð segir að
þessar virkjanir hafi þegar uppfyllt
öll skilyrði umhverfissjónarmiða og
hagkvæmnissjónarmiða. Virkj-
anirnar hafi þegar farið í gegnum
mat á umhverfisáhrifum án at-
hugasemda, verið í tvígang settar í
rammaáætlun og komið vel út í bæði
skiptin.
Vilja að virkj-
að verði sem
fyrst í Þjórsá
Einar Örn Gíslason
einarorn@mbl.is
„Við Íslendingar höfum löngum
hampað ýmsum persónum frá land-
námstíð en ég hugsa að við höfum
ekki gert okkur nægilega grein fyr-
ir því að Guðríður Þorbjarnardóttir
skipar einstakan sess í þessari
sögu,“ sagði Ólafur Ragnar Gríms-
son, forseti Íslands, á blaðamanna-
fundi á Bessastöðum í gær.
Forsetinn sækir Páfagarð heim í
næstu viku, og mun við það tilefni
færa Benedikt XVI páfa afsteypu af
styttu Ásmundar Sveinssonar af
Guðríði og Snorra Þorfinnssyni, syni
hennar. Styttan heitir „Fyrsta hvíta
móðirin í Ameríku“ og var upp-
haflega gerð fyrir Heimssýninguna í
New York 1938.
500 árum á undan Kólumbusi
Fyrir afhendingu styttunnar mun
forsetinn eiga einkafund með páfa,
og kynna fyrir honum sögu Guð-
ríðar. „Hún er kannski umfram Leif
heppna sú eina af íbúum Íslands á
fyrstu öldum frá landsnámstíð sem
hefur merkan sess í veraldarsög-
unni. Hún varð á sinni ævi fyrsta
persónan til þess að sækja heim bæði
Róm og Ameríku og það fimm
hundruð árum áður en Kristófer
Kólumbus kom á vettvang,“ sagði
Ólafur Ragnar á fundinum í gær. Af-
hendingu styttunnar sagði hann
lokakaflann í því að tryggja Guðríði
þennan sess í veraldarsögunni og
móttaka páfa á gjöfinni væri við-
urkenning á því.
Með forsetanum í för verður hluti
stjórnar Guðríðar- og Laug-
arbrekkuhópsins frá Snæfellsnesi,
en hópurinn hefur staðið straum af
kostnaði við endurgerð styttunnar.
Málþing í tengslum við förina
Auk páfa mun forsetinn funda
með Bertoni kardinála, forsætisráð-
herra Páfagarðs. Þá mun hann
heimsækja höfuðstöðvar Matvæla-
og landbúnaðarstofnunar Samein-
uðu þjóðanna og ræða um sjálf-
bærar fiskveiðar og nýtingu jarðhita
í landbúnaði og matvælaframleiðslu.
Íslandsstofa efnir til viðskipta-
málþings í tengslum við heimsókn-
ina til Rómar, en þar mun Ginacarlo
Giorgetti, þingmaður á ítalska
þinginu, halda ræðu meðal annarra.
Gefur páfa styttu af
Guðríði Þorbjarnardóttur
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Gjöfin Forseti Íslands sýnir afsteypuna af styttu Ásmundar Sveinssonar
sem hann hyggst færa Páfagarði að gjöf í heimsókn sinni í næstu viku.
„Í ljós er komið, andstætt því sem í
upphafi var talið, að á herðum Íslend-
inga hvílir engin lagaleg né siðferði-
leg skylda til að axla þær klyfjar sem
fyrirliggjandi Icesave-samningur fel-
ur í sér,“ segir í ályktun um Icesave-
málið, sem samþykkt var með mikl-
um meirihluta á aðalfundi Sjálfstæð-
isfélags Seltirninga um Icesave.
Fundurinn fór fram í fyrrakvöld. Eru
allir kjósendur hvattir til að taka þátt
í þjóðaratkvæðagreiðslunni „og hafna
ríkisábyrgð á skuldum einkafyrir-
tækis“, eins og segir þar. Minnt er á
að í fyrra höfnuðu Íslendingar með
afgerandi hætti að gangast í opna
ábyrgð vegna skulda sem urðu til
vegna starfsemi Landsbankans í Hol-
landi og Bretlandi. „Ákvörðun forseta
Íslands að vísa nýjum samningi um
ríkisábyrgð á skuldum einkafyrir-
tækis til þjóðaratkvæðis var því ekki
aðeins eðlileg heldur siðferðilega rétt.
Ef gengið hefði verið framhjá al-
menningi, líkt og ríkisstjórn Jóhönnu
Sigurðardóttur ætlaði sér, hefðu ver-
ið skilin eftir sár í þjóðarsálinni sem
seint hefðu gróið.“
Ekki skylt
að axla Ice-
save-klyfjar