Morgunblaðið - 25.02.2011, Qupperneq 27
DAGBÓK 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2011
Sudoku
Frumstig
2 8 7
3 1 5
9 5
9 4 3
1 5 8 2
7 5
8 3
1 2 3
4 8 1
6 9 1
5 2 7
2
5 8 1
3 6 7 5
1 3
8 7 6
2 9 8
6 7 9
7 5 8
2
8 4
7 9 1
1 3 6 7
3 6 2
3
2 3 5 1 4
6 8 7 5
5 4 9 7 8 1 2 3 6
6 1 2 4 3 5 9 8 7
7 3 8 6 9 2 5 1 4
8 5 1 2 6 9 4 7 3
4 9 6 5 7 3 8 2 1
3 2 7 1 4 8 6 5 9
2 6 4 8 1 7 3 9 5
9 7 5 3 2 6 1 4 8
1 8 3 9 5 4 7 6 2
2 9 1 8 5 7 6 4 3
7 6 3 9 1 4 5 2 8
4 5 8 2 3 6 1 9 7
3 1 7 5 2 8 9 6 4
9 2 4 6 7 3 8 1 5
6 8 5 4 9 1 3 7 2
5 4 9 1 8 2 7 3 6
1 3 2 7 6 5 4 8 9
8 7 6 3 4 9 2 5 1
4 9 3 8 1 7 5 2 6
7 6 8 3 2 5 9 4 1
2 5 1 4 9 6 7 3 8
3 8 6 2 7 9 4 1 5
1 7 4 5 6 8 3 9 2
5 2 9 1 3 4 8 6 7
8 1 2 9 5 3 6 7 4
9 4 7 6 8 1 2 5 3
6 3 5 7 4 2 1 8 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er föstudagur 25. febrúar, 56. dag-
ur ársins 2011
Orð dagsins: Því að ekkert er hulið,
sem eigi verður opinbert, né leynt, að
eigi verði það kunnugt og komi í ljós.
(Lk. 8, 17.)
Víkverji hefur tekið skátana sértil fyrirmyndar þessa vikuna og
látið góðverkin tala en á sama tíma
hefur hann undrast hegðun sumra
ráðamanna.
x x x
Eftir því sem fleiri kjósendur ósk-uðu skriflega eftir því að þjóð-
aratkvæðagreiðsla færi fram um
lögin um Icesave reyndu sumir að
gera undirskriftalistana tor-
tryggilega og gott ef þeir hörðustu
sögðu ekki að ekkert væri að marka
þessa lista þrátt fyrir meira en 40
þúsund undirskriftir, því á þeim
væri fólk skráð án eigin vitundar.
Enn setur fólk, sem sættir sig ekki
við ákvörðun forsetans um að fram
fari þjóðaratkvæðagreiðsla um lög-
in, út á vinnubrögðin, þó fram hafi
komið að listarnir væru 93% eða
99% öruggir. Víkverji minnist þess
ekki að þetta fólk, sem treystir ekki
þjóðinni til að taka sjálfstæða
ákvörðun, hafi mótmælt öðrum und-
irskriftarlistum þó framkvæmd
þeirra hafi verið á sömu nótum.
x x x
Á mánudag kom í ljós hversvegna stjórnendur höfuðborg-
arinnar og þjóðarinnar virðast hafa
allt á hornum sér. Aðeins 12% lands-
manna treysta Alþingi og 16% borg-
arstjórn Reykjavíkur en bankakerf-
ið nýtur trausts 6% landsmanna,
samkvæmt nýlegri könnun. Eftir því
sem Víkverji veit best hefur ekki
enn verið véfengt að rétt hafi verið
staðið að könnuninni.
x x x
Víkverji veltir því fyrir sér hvorttraust þjóðarinnar á Alþingi
hafi eitthvað að gera með viðbrögð
umhverfisráðherra, sem kaus á móti
því að Icesave færi í þjóðaratkvæða-
greiðslu. Sagðist auk þess hafa fund-
ið fyrir miklum stuðningi eftir að
Hæstiréttur staðfesti niðurstöðu
Héraðsdóms Suðurlands um að
ógilda bæri ákvörðun ráðherrans
sem neitaði í janúar í fyrra að stað-
festa hluta aðalskipulags Flóa-
hrepps varðandi Urriðafossvirkjun.
Kannski vill þjóðin bara að lögin nái
yfir alla. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 dynk, 4 svínakjöt, 7
heift, 8 námstímabilið, 9 þeg-
ar, 11 peninga, 13 bylur, 14
kveif, 15 þyrnir, 17 tauga-
áfall, 20 blóm, 22 hæfileikinn,
23 greftrun, 24 deila, 25
skyldmennisins.
Lóðrétt | 1 ræskja sig, 2
grefur, 3 ögn, 4 líf, 5 stak-
ir, 6 ættin, 10 kindurnar,
12 beita, 13 mann, 15 hlýð-
inn, 16 rándýrum, 18
fórna, 19 nauts, 20 elska,
21 munn.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kóngafólk, 8 svart, 9 nefna, 10 ann, 11 aftan, 13 apann,
15 hjall, 18 stefs, 21 íla, 22 óvirt, 23 terta, 24 kiðlingur.
Lóðrétt: 2 ósatt, 3 gátan, 4 finna, 5 lyfta, 6 Esja, 7 hann, 12 afl,
14 pat, 15 hrós, 16 aðili, 17 lítil, 18 satan, 19 eirðu, 20 skap.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. c3 Rf6 4. e5 Rd5 5.
d4 cxd4 6. cxd4 d6 7. Bc4 e6 8. O-O Be7
9. Bxd5 exd5 10. Bf4 O-O 11. Rc3 Be6
12. Hc1 dxe5 13. Rxe5 Rxe5 14. Bxe5
Dd7 15. Re2 Hac8 16. Db3 f6 17. Bg3
Hc4 18. Hxc4 dxc4 19. De3 He8 20. d5
Bxd5 21. Dxa7 Dc6 22. Rf4 Bf7 23. Da5
b5 24. a3 Bc5 25. He1 g5 26. Rh3
Staðan kom upp í Skákþingi Reykja-
víkur, Kornax-mótinu, sem lauk fyrir
skömmu í húsakynnum Taflfélags
Reykjavíkur. Sævar Bjarnason (2151)
hafði svart gegn Guðmundi K. Lee
(1585). 26… b4! 27. Hxe8+ hvítur hefði
einnig tapað eftir 27. Ha1 g4 28. Rf4
Ha8. 27… Dxe8 28. Kh1 bxa3 29. bxa3
De7 30. a4 Bb4 31. Db5 c3 hvítur ræð-
ur nú illa við frípeð svarts. 32. Dd3 Bg6
33. Dc4+ Kg7 34. f4 c2 35. fxg5 fxg5
36. Rxg5 Dxg5 37. Dc7+ De7 38. Be5+
Kg8 39. Dc4+ Df7 40. Dc8+ Bf8 og
hvítur gafst upp.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Samhæfing og traust. A-NS.
Norður
♠1095
♥D
♦ÁKG3
♣Á8543
Vestur Austur
♠32 ♠DG8764
♥965 ♥2
♦1087542 ♦D
♣G6 ♣KD1092
Suður
♠ÁK
♥ÁKG108742
♦96
♣7
Suður spilar 7♥.
Það ber vott um traust og góða sam-
hæfinu að segja alslemmu án þess að
koma við í ásaspurningu. Hollending-
arnir Ricco van Prooijen og Louk Ver-
hees melduðu þannig í úrslitaleik
NEC-bikarsins.
Kínverjinn Peng Jianfeng vakti í
austur á veikum 2♠. Van Prooijen var
með hjartaslönguna í suður og doblaði.
Verhees sýndi sterk spil með 3♠ og
Van Prooijen krafði á móti með 4♠. Þá
stökk Verhees í 5G til að biðja makker
að velja hálfslemmu. En Van Prooijen
hafði meiri metnað og sagði 7♥ í þeirri
trú og vissu að norður ætti láglitaás-
ana. Það kom á daginn og ♥D reyndist
góður bónus.
Sagnir fóru eins af stað hinum meg-
in: 2♠ í austur, dobl í suður og 3♠ í
norður. En nú missti suður þolinmæð-
ina og stökk í 6♥.
25. febrúar 1930
Tíu alþingisþingmenn voru
dæmdir í þingvíti, eða í launa-
missi í einn dag, fyrir að mæta
ekki á þingfund. Í þessum hópi
voru nefndarmenn í fjárveit-
inganefnd sem höfðu tafist
uppi á Hellisheiði þegar þeir
voru að skoða nýjan snjóbíl og
reyna kosti hans.
25. febrúar 1964
Teikning eftir Sigmund Jó-
hannsson birtist í fyrsta sinn í
Morgunblaðinu, en hún var af
landgöngu í Surtsey. Stuttu
síðar fóru teikningar hans að
birtast daglega og gerðu það í
rúm 44 ár.
25. febrúar 1980
Aftakaveður gerði, einkum
vestanlands. Þetta var eitt hið
versta veður um árabil og
verulegt tjón varð á mann-
virkjum. Þrír rækjubátar fór-
ust við Vestfirði og með þeim
sex menn.
25. febrúar 2000
Þrír létust og sjö slösuðust al-
varlega í árekstri jeppa og
rútu við Grundarhverfi á Kjal-
arnesi. Tugir annarra voru
fluttir á sjúkrahús.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
„Draumurinn er að bjóða gestum í siglingu og
jöklagöngu í júní en þá hefjast siglingar yfir Hvít-
árvatn,“ segir Ingvar Ágúst Þórisson kvikmynda-
gerðarmaður. Hann fagnar í dag 50 ára afmælinu
en hann og eiginkonan, Signý Gísladóttir, stefna á
að halda upp á 100 ára samtalsafmæli í sumar. Í bili
verður bökuð súkkulaðikaka að hætti mömmu
handa vinnufélögunum í Ízlenska kvikmyndasetr-
inu og svo grunar Ingvar að konan bjóði honum
e.t.v. út að borða í tilefni dagsins. Ingvar hélt síðast
stórafmælisveislu þegar hann varð 25 ára en man
þó bæði þrítugs- og fertugsafmælisdagana. „Þegar ég varð þrítugur þá
var ég að vinna á RÚV og man að stimpilklukkan spilaði fyrir mig af-
mælissönginn. Á fertugsafmælinu var ég svo í stúdíói með léttklæddu
pari, að taka upp myndskreytingar fyrir Tantraþættina,“ segir hann og
hlær. Ingvar segir nóg að gera en hann vinnur um þessar mundir að
nokkrum heimildamyndum auk þess sem hann undirbýr dvd-útgáfu
myndarinnar Roðlaust og beinlaust um áhöfnina/hljómsveitina á frysti-
togaranum Kleifarbergi ÓF-2. Næst á dagskrá er þó skreppa til Nor-
egs. „Ég er að fara viku til Lofoten að gera mynd um Lofoten og fjalla-
klifur sem þar er stundað. Eru ekki allir að flýja til Noregs?“
Ingvar Ágúst Þórisson er fimmtugur í dag
Hvítárvatn er draumurinn
Hlutavelta
Eyrún Tanja Karls-
dóttir og Heiðbjört
Ragna Axelsdóttir
héldu tombólu við
verslun Samkaupa í
Hrísalundi á Ak-
ureyri. Þær söfnuðu
9.127 krónum sem
þær styrktu Rauða
krossinn með.
Flóðogfjara
25. febrúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 5.41 1,1 11.51 3,0 17.59 1,2 8.50 18.33
Ísafjörður 1.26 1,8 7.52 0,5 13.49 1,6 20.04 0,6 9.02 18.31
Siglufjörður 3.56 1,1 10.04 0,3 16.43 1,0 22.33 0,5 8.45 18.13
Djúpivogur 2.41 0,5 8.31 1,5 14.47 0,5 21.25 1,6 8.21 18.00
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú skalt grafast fyrir um skatta-
málin, sameiginlegt eignarhald, tryggingar
og skuldir. Haltu áfram á sömu braut og
hlustaðu ekki á öfundarraddir annarra.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Alvaran á sinn stað og sína stund –
en ekki núna. Spurðu þig: Líður mér vel
með þetta? og ígrundaðu svo viðbrögðin.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Verkefni sem þú vinnur að fær
meiriháttar undirtektir. Reyndu að halda ró
þinni og bregðast ekki of harkalega við
hlutunum. Leyfðu öllu að hafa sinn gang.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Nú er rétti tíminn til að kynnast
fólki og komast í sambönd við rétta aðila.
Vertu tilbúin/n að aðstoða vin þurfi hann á
stuðningi þínum að halda.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þér leggst eitt og annað til í peninga-
málum. Reyndu að læra af hlutunum og
verða betri maður.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þegar þú leyfir andagiftinni að ráða
för lendirðu á óvæntum stað. Spurðu
sjálfa/n þig að því hvort þú þurfir raun-
verulega á öllum þessum tækjum að halda.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú ættir að íhuga alvarlega innkaup,
sem þú ráðgerir. Láttu það eftir þér að fá
þér kökusneið. Betra væri að bíða með að
ákveða framhald á ástarsambandi.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þótt það sé mikið um að vera
og mikið að gera í vinnunni þarftu að gefa
þér meiri tíma til hvíldar. Reyndu að sýna
þolinmæði gagnvart þér eldra fólki.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Nú verður þú að láta til skarar
skríða á grundvelli þeirrar vitneskju sem þú
býrð yfir. Láttu ekki traðka á nafni þínu né
gera lítið úr starfi þínu.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Maður fær orku af því að vera
nærri atburðarásinni. Það getur borgað sig
að gefa eftir strax. Þú lærir af mistök-
unum.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Sýndu samstarfsmönnum þol-
inmæði, það skiptir máli. Ekki taka stórar
ákvarðanir. Slakaðu á og vertu þú sjálf(ur).
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það leysir engin mál að stinga höfð-
inu í sandinn. Fagnaðu einverunni sem
tækifæri til að sinna eigin hagsmunum.
Stjörnuspá