Morgunblaðið - 25.02.2011, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 25.02.2011, Blaðsíða 31
AF STAÐALÍMYNDUM Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Það er alltaf verið að segjaokkur hvernig við eigum aðvera, fyrst eru það foreldrar okkar, síðan menntastofnanir og samfélagið. Vissulega þurfa allir að lúta ákveðnum samskipta- og siða- reglum en fyrir utan þær ættu allir að fá að vera eins og þeir eru, óheftir af áliti annarra. Í hinum vin- sæla kvennablaðakúltúr hefur það löngum tíðkast að segja okkur kon- um hvernig við eigum að vera og þá sérstaklega hvernig við eigum að haga okkur og hugsa um okkur svo karlmenn laðist að okkur en að ganga í augun á karlmönnum er auðvitað eina markmið kvenna. Á nýju íslensku drottninga- vefsíðunni Bleikt.is er mjög vinsælt að birta greinar og blogg um hvernig konur eiga að vera til að ganga í augun á karlmönnum, jafn- framt eru líka birtar greinar um það hvernig karlmenn eiga að vera til að ganga í augun á kvenfólki. Allt virðist þetta byggt á vísinda- legum rannsóknum.    Flestar konur eru með þaðsterka sjálfsmynd að svona greinar eru aðeins lesnar til gam- ans, ef þær eru þá lesnar, og hafa ekki áhrif á hegðun þeirra en fyrir óöruggar konur og sérstaklega unglingsstúlkur sem eru leitandi og að vinna í eigin sjálfsmynd getur þessu verið tekið sem heilögum sannleika. Að lesa það að strákar vilji ekki innskeifar stelpur með lít- il brjóst getur sett líf þeirra margra úr skorðum, sérstaklega ef brjóstin eru lítil eða fæturnir innskeifir. Því er það mér alltaf áhyggjuefni þegar ég sé að frænkur mína á unglings- aldri „like-a“ við greinar þar sem fjallað er um hvernig konur eiga að vera. Þó að yfirlýstur tilgangur greinanna sé að hjálpa konum, leið- beina þeim í lífsins frumskógi, stuðla þær að engu öðru en nið- urrifi, flokkadráttum og fábreytni. Í þeim eru líka sett fram fáránleg og oft á tíðum gamaldags kynja- viðhorf sem stangast algjörlega á við það sem kynin alast upp við í dag, jafnrétti.    Ég hef oft velt fyrir mérhversu mikil áhrif slíkar greinar hafa, t.d. ef það er sagt að karlmönnum finnist flottara að konur hafi ljóst naglalakk en skær- litað, eins og ég las eitt sinn, hversu margar konur taka af sér skæra naglalakkið og setja á sig ljóst, meðvitað eða ómeðvitað? Hversu margar konur fá karl- mann til að bora í vegg eða skipta um dekk fyrir sig út af því að þær lesa að karlmönnum finnist aðlað- andi þegar þeir fái að sinna „karl- mennskuhlutverki“ sínu … geisp!    Ég á bágt með að trúa því aðkynsystur mínar gleypi þenn- an tilbúna „sannleika“ . Ég trúi því eiginlega alls ekki upp á þær, allir vita jú að manneskja sem er hún sjálf og ánægð með sjálfa sig eins og hún er, er mest aðlaðandi í aug- um annarra. Hverjum dettur líka í hug að það séu til algild fræði um það hvernig maður þarf að vera til að hitt kynið laðist að manni? Það er ekki hægt að setja saman lista yfir það eins og innkaupalista, flest- ir vita bara hvað þeir vilja þegar þeir sjá það eða kynnast því. Ég held að það sé kominn tími til að við hættum að segja hvert öðru hvernig við eigum að vera og séum bara eins og við erum. Tíu leiðir að fábreytni Reuters Konan Kim Kardashian þykir vera ímynd kvenleikans nú um stundir. REUTERS Karlinn Jon Hamm leikur í Mad Men, hann þykir mikið karlmenni. »Hverjum detturlíka í hug að það séu til algild fræði um það hvernig maður þarf að vera til að hitt kynið lað- ist að manni? MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 2011 Bandaríska raunveru- leikaþátta- stjarnan Kim Kardashian mun hugsanlega leika á móti John Tra- volta í vænt- anlegri kvik- mynd um mafíuforingjann John Gotti. Kardashian mun fara með hlutverk tengdadóttur Gotti, ef hún verður fyrir valinu, að því er fram kemur á vefnum TMZ. Tra- volta verður í hlutverki Gotti. John Gotti var einn helsti og al- ræmdasti mafíuforingi New York- borgar á níunda áratug síðustu ald- ar en var dæmdur til lífstíðarfang- elsis árið 1992 fyrir margar sakir, m.a. 13 morð, ólöglega veðmála- starfsemi og skattsvik. Hann lést árið 2002. Auk Travolta og Kardashian hef- ur leikarinn James Franco verið orðaður við kvikmyndina, hlutverk sonar Gotti, Junior, sem talið er að tekið hafi við keflinu af föður sínum sem foringi Gambino-fjölskyld- unnar alræmdu. Travolta og Kar- dashian í kvik- mynd um Gotti John Travolta Söngkonan Jennifer Lopez brynnti músum í hæfileikaþætt- inum American Idol sl. mið- vikudagskvöld en Lopez gegnir dómarastöðu í þeim þætti. Lopez og hin- ir dómararnir, Steven Tyler og Randy Jackson, komust að þeirri niðurstöðu að einn keppenda, Chris Medina, hefði ekki staðið sig nógu vel til að halda áfram keppni en Medina hafði í söng- prufum tileinkað fatlaðri unnustu sinni flutninginn og uppskorið mikla aðdáun dómaranna þriggja sem og áhorfenda. En popp- stjörnudraumar Medina urðu að engu, Medina þurfti að taka pok- ann sinn miðvikudaginn sl. og fékk það mjög á Lopez. Tyler og Jackson þurftu að hugga söng- konuna og þerra tárin. Lopez brast í grát þegar senda þurfti keppanda heim Jennifer Lopez MÖGNUÐ HASARSPENNUMYND SEM ENGINN MÁ MISSA AF! THE MECHANIC KL. 5.50 - 8 - 10.10 16 THE MECHANIC LÚXUS KL. 8 - 10.10 16 HOW DO YOU KNOW KL. 5.20 - 8 - 10.35 L BIG MOMMA´S HOUSE KL. 3.30 - 5.40 - 8 L THE EAGLE KL. 10.30 16 JUST GO WITH IT KL. 5.30 - 8 - 10.30 L BLACK SWAN LÚXUS KL. 5.30 16 GULLIVER´S TRAVEL 3D KL. 3.30 L ALFA OG OMEGA 3D KL. 3.30 L SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ BORGARBÍÓ 5% 5%NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS T.V. - KVIKMYNDIR.IS -H.S.S.,MBL HOW DO YOU KNOW KL. 8 - 10.10 L BIG MOMMA´S HOUSE KL. 5.50 - 8 L JUST GO WITH IT KL. 10.10 L SÚÐBYRÐINGUR, SAGA BÁTS KL. 6 L T.V. - KVIKMYNDIR.IS-H.H., MBL -H.V.A., FBL HOW DO YOU KNOW KL. 5.25 - 8 - 10.35 L BIG MOMMA´S HOUSE KL. 5.30 - 8 L 127 HOURS KL. 5.50 - 8 - 10.10 12 BLACK SWAN KL. 5.30 - 8 - 10.30 16 THE FIGHTER KL. 10.30 14 TRUE GRIT Sýnd kl. 5:50, 8 og 10:25 BIG MOMMA’S HOUSE 3 Sýnd kl. 3:40 og 5:50 THE MECHANIC Sýnd kl. 6, 8 og 10:10 JUST GO WITH IT Sýnd kl. 8 og 10:25 ALFA OG ÓMEGA Sýnd kl. 4 ísl. tal MÚMÍNÁLFARNIR - 3D Sýnd kl. 4 ísl. tal Stundum þarf maður stelpu, til að ná stelpunni SPRENGHLÆGILEG GAMANMYND SEM ENGIN MÁ MISSA AF HHH „Myndin hin besta skemmtun sem hentar öllum aldurshópum“ -H.H. - MBL LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar -bara lúxus sími 553 2075 Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.