Morgunblaðið - 28.02.2011, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 28.02.2011, Blaðsíða 23
DAGBÓK 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2011 Sudoku Frumstig 2 2 5 3 3 1 9 8 7 5 6 7 3 7 3 5 1 2 1 7 8 8 2 1 7 9 3 6 3 9 1 8 5 7 2 3 1 3 9 5 5 4 2 3 9 4 7 3 4 2 8 9 6 1 7 7 4 6 2 8 2 6 3 4 6 9 7 3 4 1 3 9 5 8 8 1 7 1 3 5 9 2 8 6 4 2 5 6 8 1 4 9 7 3 4 8 9 6 7 3 5 2 1 5 2 4 9 3 1 6 8 7 3 9 1 7 6 8 2 4 5 8 6 7 4 2 5 1 3 9 1 7 8 2 4 9 3 5 6 6 3 5 1 8 7 4 9 2 9 4 2 3 5 6 7 1 8 3 9 2 6 4 7 1 8 5 1 8 6 2 5 3 7 9 4 5 4 7 8 1 9 2 6 3 8 2 9 4 6 1 5 3 7 6 7 1 3 2 5 9 4 8 4 5 3 9 7 8 6 2 1 2 1 8 5 3 6 4 7 9 7 3 4 1 9 2 8 5 6 9 6 5 7 8 4 3 1 2 8 3 7 2 1 9 5 6 4 6 2 5 3 8 4 1 7 9 4 1 9 6 7 5 8 2 3 9 5 3 8 2 6 7 4 1 2 7 4 1 5 3 9 8 6 1 8 6 9 4 7 3 5 2 5 6 8 4 3 1 2 9 7 7 9 1 5 6 2 4 3 8 3 4 2 7 9 8 6 1 5 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. Í dag er mánudagur 28. febrúar, 59. dagur ársins 2011 Orð dagsins: Varpið allri áhyggju yðar á hann, því að hann ber umhyggju fyr- ir yður. (1Pt. 5, 7.) Það er auðvelt að finna eitthvaðeða einhvern til að pirra sig á. Stjórnmálaástandið, veðrið, sam- starfs- og yfirmenn, fjölskyldu- meðlimi og vini. Allt getur þetta farið í taugarnar á manni við og við. x x x Sumir hlutir fara meira í taugarnará manni en aðrir, en niðurstaðan er sú sama. Varir herpast og blóts- yrðin stökkva fram, orðuð eða í hljóði. Stundum stendur maður sig að því að rífast við sjónvarpsskjáinn þegar einhver rugludallurinn er að tjá sig um málefni líðandi stundar. Pirringurinn er gríðarlegur streitu- valdur og tímaþjófur. Tími sem mað- ur eyðir í þráhyggjukennda hugsun um það sem pirrar mann er tími sem maður notar ekki á uppbyggilegri hátt. x x x Pirringurinn er líka svo innilegagagnslaus. Hlutirnir sem fara í taugarnar á manni eru iðulega hlutir sem maður hefur enga stjórn á og getur ekki breytt – kannski er það ástæðan fyrir pirringnum. Stjórnmál, efnahagsástand og matarvenjur fólks eru ekki nokkuð sem maður getur breytt. Það er því fátt tilgangslaus- ara en að eyða tíma og orku í að pirrast yfir hlutum sem maður getur ekkert gert við. x x x Það sem maður getur hins vegarhaft áhrif á og breytt er afstaða manns sjálfs. Maður getur lítið gert í því þótt kunningi manns bori helst til oft í nefið, en maður getur ráðið því hvernig maður bregst við. Það er hægt að láta undan freistingunni og verða pirraður, með öllum þeim göll- um sem því hugarástandi fylgja. En maður getur líka ákveðið að láta þetta ekki pirra sig. x x x Það er nefnilega mikill munur á þvíað segja að eitthvað sé pirrandi og að segja að maður láti það pirra sig. Seinna dæmið felur í sér að mað- ur hafi val og hafi ákveðið að pirrast, því í því felst að maður getur ákveðið að pirrast ekki. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 greftra, 4 marg- nugga, 7 fetill, 8 heilsufar, 9 tók, 11 sleit, 13 brum- hnappur, 14 rýma, 15 sögn, 17 eyja, 20 herbergi, 22 búa til, 23 raka, 24 sér eftir, 25 standa gegn. Lóðrétt | 1 hittir, 2 náði í, 3 lengdareining, 4 vers, 5 rugla, 6 hófdýr, 10 örlög, 12 hugsvölun, 13 hryggur, 15 skartgripur, 16 fugl, 18 rödd, 19 bik, 20 skítur, 21 lestarop. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 fjölmenni, 8 túlki, 9 mýkja, 10 tíu, 11 losti, 13 reiða, 15 stóll, 18 saggi, 21 auk, 22 flagg, 23 ósinn, 24 maurapúki. Lóðrétt: 2 jálks, 3 leiti, 4 eimur, 5 nakti, 6 stál, 7 fata, 12 tel, 14 efa, 15 sefa, 16 óraga, 17 lagar, 18 skólp, 19 grikk, 20 inni. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 d5 2. Rf3 c6 3. g3 Bf5 4. Bg2 Rf6 5. c4 e6 6. O-O Bd6 7. Rc3 Rbd7 8. Rh4 Bg6 9. Rxg6 hxg6 10. Db3 b6 11. e4 dxe4 12. Rxe4 Rxe4 13. Bxe4 Dc7 14. Bg5 O-O 15. Df3 Hac8 16. h4 f5 17. Bc2 c5 18. Hae1 Hce8 19. h5 Kf7 20. hxg6+ Kxg6 21. Dg4 Rf6 Staðan kom upp í Skákþingi Reykjavíkur, Kornax-mótinu, sem lauk fyrir skömmu í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur. Guðmundur Gíslason (2324) hafði hvítt gegn Tinnu Kristínu Finnbogadóttur (1855). 22. Hxe6! Hxe6 23. Bxf5+ Kf7 24. Bxe6+ Ke8 25. Df3 cxd4 26. He1 Kd8 27. Bh3 Db8 28. He6 Kc7 29. Hxd6! og svartur gafst upp enda drottningin að falla í valinn eftir 29…Kxd6 30. Bf4+. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Fjölhæfur maður. A-AV. Norður ♠865 ♥107 ♦Á3 ♣ÁKG853 Vestur Austur ♠DG7 ♠ÁK9432 ♥K52 ♥ÁG3 ♦D1094 ♦72 ♣D42 ♣96 Suður ♠10 ♥D9864 ♦KG865 ♣107 Suður spilar 3♣ dobluð. Pierre Ghestem (1922-2000) lengi lykilmaður í franska landsliðinu; varð heimsmeistari 1956, ólympíumeistari 1960 og þrisvar Evrópumeistari á þessu blómaskeiði. Ghestem vann líka HM- titil í dammtafli og þótti góður í skák. Fjölhæfur maður, en í bridsheiminum lifir minning hans fyrst og fremst í sam- nefndri sagnvenju sem hann smíðaði til að sýna allar gerðir af tvílita höndum yf- ir opnun mótherja. Ástralirnir Klinger og Mullamphy nota Ghestem-innákomur. Á NEC- mótinu í Yokahama fengu þeir óvæntan happdrættisvinning út á sagnvenjuna: Austur vakti á 1♠ og Mullamphy stökk í 3♣ til að sýna rauðu litina. Vestur lýsti yfir sektaráhuga með dobli og við því sögðu allir PASS! Út kom ♠D og tromp í öðrum slag. Sagnhafi svínaði, fór inn í borð á ♦Á og trompaði spaða: níu slagir. 28. febrúar 1920 Þilskipið Valtýr fórst fyrir sunnan land og með því þrjá- tíu menn. Valtýr var mikið aflaskip. 28. febrúar 1941 Belgíska flutningaskipið Per- sier strandaði á Dynskóga- fjöru suðaustur af Hjörleifs- höfða. Skipið, sem var 8.200 smálestir, náðist á flot um miðjan maí og var dregið til Reykjavíkur. Það var tekið upp í fjöru við Kleppsvík og brotnaði þar í tvennt. 28. febrúar 1950 Breska olíuskipið Clam fórst við Reykjanes. Björgunarsveit frá Grindavík bjargaði 23 skipverjum en 27 fórust. Flest- ir þeirra voru kínverskir. 28. febrúar 1983 Alþingi samþykkti lög um að „Ó, Guð vors lands!“ væri þjóðsöngur Íslendinga og að hann væri eign íslensku þjóð- arinnar. 28. febrúar 1998 Stórmarkaður með raftæki var opnaður í Kópavogi undir nafninu Elko. Biðraðir mynd- uðust áður en verslunin var opnuð. 28. febrúar 2003 Vöruhótelið í Sundahöfn var opnað. Húsið var stærra að rúmmáli en Kringlan og meira en fimm sinnum stærra en Laugardalshöll. Geymslurými var fyrir 21.000 vörubretti. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … „Ég hef oft verið með kaffi fyrir fjölskylduna. Það verður sæmilegt kaffiboð núna eða jafnvel partí. Ég á svo mikið af skemmtilegum vinkonum,“ segir Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari sem verður 35 ára í dag. Hrönn hefur ekki verið með veislu á stórafmæli frá því hún var tvítug. Hún var að leika á tónleikum í Þýskalandi á þrítugsafmælinu og hélt upp á það með þeim hætti. Hrönn var sjö ára þegar hún hóf tónlistarnám. Hún nam við Tónlistarskólann í Reykjavík og síð- ar tónlistarháskólann í Freiburg í Þýskalandi. Hún er kennari og meðleikari við Söngskólann í Reykjavík og Tónlistarskólann í Reykjavík og hefur komið fram á tónleikum hér á landi og víða í Evrópu. Hún hefur verið meðlimur kammersveitarinnar Ísafoldar frá 2004 sem hlaut Íslensku tónlist- arverðlaunin sem flytjandi ársins 2007. Eiginmaður Hrannar er Helgi Jónsson tónlistarfræðingur. Þau eiga tvö börn, Freydísi fjögurra ára og Daða Frey tveggja ára. Niðurskurður á fjárframlögum til tónlistarskólanna í Reykjavík er henni ofarlega í huga þessa stundina. „Það hlýtur að vera hægt að gera þetta á mildilegri hátt,“ segir hún. helgi@mbl.is Hrönn Þráinsdóttir 35 ára í dag Stefnir að kvennaboði Nýirborgarar  Ragnhildur Rún- arsdóttir og María Rán Högnadóttir voru með tombólu við Krónuna í Ár- bænum og söfnuðu 1.944 krónum sem þær færðu Rauða krossinum. Flóðogfjara 28. febrúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 3.38 3,1 10.06 1,2 16.08 2,9 22.20 1,2 8.40 18.42 Ísafjörður 5.43 1,7 12.12 0,6 18.12 1,4 8.50 18.41 Siglufjörður 1.27 0,6 7.38 1,1 14.07 0,3 20.49 1,0 8.34 18.24 Djúpivogur 0.19 1,6 6.58 0,7 12.50 1,3 19.06 0,5 8.11 18.10 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú ert á móti yfirborðsmennsku. Hættu að sitja með hendur í skauti og bíða eftir því að aðrir leysi vanda þinn. Það leysir engin mál að stinga höfðinu í sandinn. (20. apríl - 20. maí)  Naut Fróðleiksfýsnin hefur náð tökum á þér svo láttu einskis ófreistað til að svala henni. Einhver biður þig um greiða sem þú efast um að þú getir sinnt. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Allt virðist vaxa þér í augum og fara í taugarnar á þér og að sjálfsögðu nærðu ekki tökum á neinu. Mikið fjör er framundan í lífi þínu. Þú lærir af mistök- unum. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þjónusta þín við óþekktan en verð- ugan málstað er það besta sem þú gerir alla vikuna. Sumt er manni ekki gefið að skilja svo þú skalt ekki einu sinni reyna það. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Sambúð þín við aðra gengur svona upp og ofan þessa dagana. Nú er ekki rétti tím- inn til þess að fara fínt í hlutina. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Reyndu að láta heimilistækin létta þér lífið meira en þú hefur gert. Kannski að tekjur þínar séu að aukast? (23. sept. - 22. okt.)  Vog Nú þarftu að taka á honum stóra þínum í fjármálunum en þér leggst eitt og annað til í peningamálum. Taktu tillit til annarra. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Það hrjáir þig eitthvert agaleysi svo það er nauðsynlegt að þú spýtir í lófana og takir þér tak. Ekkert hik, ekkert fum. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Í hönd fer tímabil mannfagnaða. Gættu þess að öryggismálin séu í lagi heima. Vertu tilbúin/n að aðstoða vin þurfi hann á stuðningi þínum að halda. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þér líkar ekki að bíða og ert því eins og ískrandi hjól sem þarfnast smurn- ingar. Með sama áframhaldi getur þú keypt það sem þig langar mest í. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Reyndu að vera skipulagðari í vinnunni í dag. Gættu þess að sækja mál þín ekki of fast því þá getur jafnvel allt farið úr böndunum. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú hefur góðar hugmyndir um leiðir til þess að fegra hlutina. Þó það takist ekki þarftu ekki að hafa áhyggjur. Stjörnuspá

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.