Morgunblaðið - 28.02.2011, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 59. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318
1. Jarðskjálfti í Reykjavík
2. Líkur á fleiri skjálftum
3. Annar stór skjálfti
4. Vúdúkynlíf fór úr böndunum
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Leiklistarhátíðin Þjóðleikur verður
haldin í fyrsta sinn 1.-3. apríl nk. í
Listagilinu á Akureyri. Ellefu leik-
hópar ungmenna af Norðurlandi
munu sýna á hátíðinni þrjú ný leik-
verk eftir íslensk leikskáld, þau Jón
Atla Jónasson, Kristínu Ómarsdóttur,
Brynhildi Guðjónsdóttur og Ólaf Egil
Egilsson.
Morgunblaðið/Kristinn
Hátíðin Þjóðleikur
með ungu fólki
Stórsveit
Reykjavíkur held-
ur tónleika í
Slippsalnum, Mýr-
argötu 2, kl. 21 í
kvöld. Á dag-
skránni verður
tónlist eftir eitt af
áhrifamestu stór-
sveitatónskáldum síðari ára; banda-
ríska básúnuleikarann Bob Brook-
meyer. Stjórnandi á tónleikunum
verður Sigurður Flosason.
Stórsveitin leikur
Bob Brookmeyer
Einstaklingskeppni í
klassískum list-
dansi, SOLO,
verður haldin
annað kvöld kl.
20 í Íslensku óperunni.
Keppnin er undankeppni
fyrir Stora Daldansen,
norrænu einstaklings-
keppnina í klassískum
listdansi sem haldin verð-
ur í Falun í Svíþjóð í vor.
Minningarsjóður Svan-
dísar Þulu Ásgeirsdóttur
mun veita vinningshöfum
styrk til utanfarar.
Einstaklingskeppni í
klassískum listdansi
Á þriðjudag Suðvestan 10-18 með éljagangi sunnan- og vestantil. Hiti nálægt frost-
marki.
Á miðvikudag Vestlæg átt, víða 5-10 með slyddu eða snjókomu í flestum landshlutum
en dregur úr ofankomu með morgninum, fyrst vestantil. Hiti breytist lítið.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Snýst í suðvestan 10-18 með skúrum og síðar éljum, en sunnan
hvassviðri og rigning austast á landinu fram eftir morgni. Hlýnandi, hiti víða 2 til 7 stig.
VEÐUR
Birmingham vann lang-
þráðan titil í ensku knatt-
spyrnunni í gær þegar lið-
ið gerði sér lítið fyrir og
lagði Arsenal, 2:1, í úrslita-
leik ensku deildabik-
arkeppninnar á Wembley í
gær. Þetta var fyrsti titill
Birmingham-liðsins frá
árinu 1963 eða í 48 ár og
var mikill fögnuður hjá
leikmönnum og stuðn-
ingsmönnum félagsins í
gær. »7
Fyrsti titill Birm-
ingham í 48 ár
Jón Arnór Stefánsson, lands-
liðsmaður í körfuknattleik, er
kominn á fulla ferð á
ný með liði sínu Gra-
nada í spænsku úr-
valsdeildinni sem er
almennt talin sú
sterkasta í Evr-
ópu. Jón lét
til sín taka
um
helgina
og skor-
aði þá 12
stig í sigurleik
liðsins gegn
Fuenlabrada.
»1
Jón Arnór kominn á
fulla ferð með Granada
Guðríður Guðjónsdóttir vann um
helgina sinn 14. bikarmeistaratitil á
ferlinum þegar Fram bar sigurorð af
Val í úrslitaleik bikarkepppninnar. Í
tólf skipti var Guðríður leikmaður
Fram en tvö síðustu árin aðstoðar-
þjálfari liðsins. Í karlaflokki hömpuðu
Valsmenn bikarmeistaratitlinum eftir
sigur á Akureyringum í æsispennandi
leik. »4-5
Guðríður vann sinn 14.
bikarmeistaratitil
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Einn frægasti ævintýramaður Afr-
íku, Riann Manser, hyggst ásamt
Dan Skinstad róa tveggja manna
kajak í kringum Ísland í vetur og
vor. Ferðin á að hefjast um miðjan
mars, þegar veður eru válynd og
sjórinn jökulkaldur. Aldrei áður
hefur verið gerð tilraun til hring-
róðurs um Ísland á þessum árstíma.
Manser öðlaðist töluverða frægð
þegar hann varð fyrstur til að hjóla
hringinn í kringum Afríku en þetta
36.500 km ferðalag tók hann tvö ár.
Manser varð einnig fyrstur til að
róa einsamall á kajak í kringum
Madagaskar, fjórðu stærstu eyju
heims, og tók róðurinn um 11 mán-
uði.
Í frystigámi í rúmlega viku
Manser og samstarfsfólk hans
luku í gær við umfangsmikla kynn-
ingarherferð fyrir Íslandsferðina.
Herferðin hét Upphitun fyrir Ísland
og fólst m.a. í því að Manser hélt til
í frystigámi í átta daga og var gám-
urinn fluttur um Suður-Afríku á
flutningabíl.
Þegar Morgunblaðið náði tali af
Manser á föstudag var hann hress
þótt rúmlega sex daga dvöl í 20°
frosti hefði dregið nokkuð af hon-
um. „Ég er svolítið lasinn. Ég
kemst ekkert til að hlýja mér og
mér hefur gengið illa að borða,“
sagði hann en hljómaði samt sem
áður eins og þetta væri nú eiginlega
ekkert mál. „Þetta hefur verið erfitt
og einmanalegt en þetta er fyrir
góðan málstað.“ Dvölinni í frysti-
gámnum var ekki ætlað að undirbúa
Manser fyrir komuna til Íslands,
eins og sumir kynnu að halda, held-
ur til að vekja athygli á ferðinni en
þó fyrst og fremst til að safna fé
fyrir góðgerðarsjóð Mansers, „No
food for lazy man“, sem safnar fé
svo hægt sé að kaupa búnað til
íþróttaiðukunar fyrir börn, en þetta
málefni er Manser afar hugleikið.
Hugmyndina að hringferðinni fékk
Manser eftir að hafa dvalið hér í
tvær vikur í fyrrasumar. Hann kol-
féll fyrir landinu og vill kynnast því
betur en besta leiðin til þess er auð-
vitað að róa í kringum það á kajak.
Manser og
Skinstad
verða með
fylgdarbát eða
-báta og verður gerð
heimildarmynd um ferð-
ina. Fylgdarliðið hefur
hins vegar fengið ströng
fyrirmæli um
að aðstoða þá
ekki á nokkurn
hátt – nema kannski ef
þeim er bráður bani bú-
inn.
Úr frystigámi í Íslandshring
Á leið frá S-Afríku
til að róa hringinn
um Ísland á kajak
Kalt „Við vitum að það verður kalt og að það er von á hvassviðri og haugasjó,“ sagði Riann Manser. Myndin er tekin
þegar hann lauk við hringróður sinn um Madagaskar. Von er á honum 17. mars og hefst róðurinn á Húsavík.
Ferðafélagi Riann Mansers, Dan Skinstad, er með milda hreyfilömum
og er hreyfigeta hans skert.
Manser hrósaði Skinstad í hástert í samtalinu við Morgunblaðið.
„Hann er með ljónshjarta, hann er harður af sér, klár og frábær
náungi.“ Hann hefði staðið í skugga bróður síns, Bobby
Skinstad, sem er frægur ruðningsleikmaður og lengi viljað af-
reka hluti sjálfur. Í ferðinni ætti ekki að setja nein hraðamet
og þeir ætluðu sér raunar fjóra mánuði til ferðarinnar. „Heim-
urinn einblínir á þá sem komast á Ólympíuleikana, þá sem
vinna til verðlauna en það er fullt af fólki sem nýtur ekki
þeirrar blessunar að hafa fulla líkamlega burði,“ sagði
hann. Ferðinni væri m.a. ætlað að vekja athygli
á því sem fólk með skerta líkamlega
burði gæti áorkað.
Með skerta hreyfigetu
DAN SKINSTAD ER MEÐ LJÓNSHJARTA
Manser og
Skinstad
æfa róð-
urinn.