Morgunblaðið - 28.02.2011, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 28.02.2011, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2011 ✝ ViggóTryggvason fæddist á Seyð- isfirði 2. október 1917. Hann lést á Hjúkrunarheim- ilinu Skjóli 15. febrúar 2011. For- eldrar hans voru hjónin Tryggvi Guðmundsson, kaupmaður á Seyð- isfirði, síðast gjald- keri hjá Áfengis- og lyfjaversl- un ríkisins í Reykjavík, f. 8.9. 1871, d. 18.9. 1942, og Gunn- dóra Benjamínsdóttir, hús- freyja í Reykjavík (seinni kona Tryggva), f. 15.7. 1881, d. 7.1. 1964. Alsystkini Viggós voru Ólafur Tryggvason úrsmiður, f. 24.11. 1910, d. 16.11. 2004, og Nína Tryggvadóttir listmálari, f. 16.3. 1913, d. 18.6. 1968. Hálf- systkini hans af fyrra hjóna- bandi föður voru: Guðný Valdís, f. 12.4. 1899, d. 15.3. 1985, Laufey, f. 16.12. 1900, d. 30.12. 1990, Jóhanna Guðríður, f. 17.1. 1902, d. 22.5. 1968, Jón Þórir, f. 26.3. 1903, d. 6.7. 1954, og Þor- 1947, eiginmaður Leifur Teits- son, f. 3.12. 1945, (skildu), þau eignuðust fjögur börn, Kristínu, f. 1966, Hrafn, f. 1968, Hauk, f. 1974 (látinn) og Skúla, f. 1980. 4) Gunndóra, f. 25.6. 1950, hár- greiðslumeistari, maki Ásgeir Arnoldsson, f. 2.5. 1949, þau eiga þrjú börn: Viggó, f. 1972, Ásgeir Örn, f. 1973, og Hrefnu Lind, f. 1982. Hrafnhildur kona Viggós eignaðist dóttur, Ástu Björt Thoroddsen, f. 15.5. 1942, sem var ættleidd af móðurafa sínum og seinni konu hans, Siglín Guðmundsdóttur Thor- oddsen, f. 17.6. 1901, d. 22.5. 1966. Ásta Björt eignaðist fimm börn. Viggó fluttist til Reykjavíkur 2ja ára gamall, bjó fyrst við Óð- insgötu og síðar Bárugötu 7 og að lokum við Rauðalæk 35. Viggó er stúdent frá MR 1937 og cand. jur. frá HÍ 1945. Hann starfaði lengst af við embætti Borgarfógetans í Reykjavík en lét af störfum 1988 sökum ald- urs. Viggó var alla tíð ákafur áhugamaður um listir, einkum tónlist og lék mikið á píanó. Útför Viggós verður gerð frá Bústaðakirkju í dag, 28. febr- úar 2011, og hefst athöfnin kl. 15. steinn, f. 6.1. 1905, d. 13.3. 1970. Hinn 28.8. 1943 kvæntist Viggó Hrafnhildi Grímu Thoroddsen, f. 27.2. 1923. For- eldrar hennar voru: Guðmundur Thoroddsen, pró- fessor, f. 1.2. 1887, d. 6.7. 1968, og Regína Magdalena Benediksdóttir, f. 23.6. 1887, d. 28.4. 1929. Börn Viggós og Hrafnhildar eru: 1) Tryggvi, lögmaður, f. 7.1. 1945, maki Snjólaug Anna Sigurjónsdóttir, f. 23.3. 1942, börn: Hrafnhildur, f. 1974, Þórður, f. 1978, og Sig- urjón Þorvaldur, f. 1966, stjúp- sonur af fyrra hjónabandi konu. 2) Guðmundur, augnlæknir, f. 22.4. 1946, fyrri maki Sigríður Kristín Ragnarsdóttir, f. 12.12. 1943 (látin), börn þeirra Ragnar Bjartur, f. 1973, og Hrafnhildur Björt, f. 1975. Seinni maki Lí- ney Þórðardóttir, f. 30.1. 1952, barn þeirra Margrét, f. 1992. 3) Regína, leikskólastjóri, f. 1.5. Við andlát tengdaföður míns Viggós Tryggvasonar leita marg- ar ljúfar minningar á hugann. Viggó var skemmtilegur og gáfaður maður sem hafði mjög gaman af því að fá fólk í heimsókn til þess að ræða öll heimsins mál og leið best þegar sem flestir tóku þátt í umræðunni. Þegar gesti bar að garði var hann boðinn og búinn að stjana við þá og bera fram veitingar sem honum fannst aldrei vera nóg af. Hann var mik- ill heimspekingur að eðlisfari og hafði oft sérstaka sýn á hlutina sem leiddu til langra umræðna en hann var óþreytandi að koma skoðunum sínum á framfæri. Viggó var fróður um flesta hluti og fylgdist vel með öllu sem gerðist í fjölskyldunni og í þjóð- félaginu fram á síðasta dag. Hann var mjög listhneigður og var mús- íkin stór þáttur í lífi hans. Hann var góður píanóleikari og mikill unnandi klassískrar tónlistar enda tíður gestur á tónleikum og vildi helst alltaf bjóða einhverjum ættingjum með sér til að aðrir fengju að njóta tónlistarinnar með honum. Einnig hafði hann gaman af lestri góðra bóka og eyddi drjúg- um tíma á fornbókasölum eftir að hann hætti að vinna. Ósjaldan kom hann klyfjaður í strætis- vagni af bókamörkuðum og hélt því áfram á meðan kraftar hans leyfðu, þrátt fyrir að geta ekki lesið lengur vegna sjóndepru enda vildi hann að aðrir nytu bók- menntanna með sér. Viggó var mikill myndlistar- unnandi og það var skemmtilegt að fara með honum á myndlist- arsýningar og heyra hans túlkun á myndverkinu. Hann var óþreyt- andi að uppfræða aðra um það sem hann hafði lært á langri ævi sinni um lífið og tilveruna. Ef far- ið var með hann í bíltúra var hann stöðugt að ræða um landslagið og fegurðina í íslenskri náttúru sem honum fannst vera ótrúleg. Fallinn er frá mikill öðlings maður sem ekkert aumt mátti sjá og hafði húmor fyrir lífinu og til- verunni allt fram á síðustu stundu. Ég er þakklátur fyrir að hafa kynnst Viggó og átt hann sem tengdaföður. Ég votta Hrafnhildi tengdamóður minni, börnum og barnabörnum innilega samúð. Ásgeir Arnoldsson. Elsku afi okkar. Við kveðjum þig með söknuði en ekki síður þakklæti. Þú varst einstakur maður á margan hátt – hógvær, nægjusamur, gjafmildur, spaug- samur, gáfaður og listrænn. Það var notalegt að heimsækja ykkur ömmu á Rauðalæk, fá sér kaffi og ristað brauð og spjalla við þig um heima og geima. Þú varst einstaklega gestrisinn og þegar okkur bar að garði brástu þér í hlutverk þjónsins, tíndir til það besta úr búrinu og gættir þess að vel færi um okkur. Sjálfur settist þú svo í óþægilegasta stólinn milli þess sem þú stóðst upp til að bæta í glös eða á diska. Umræðan við eldhúsborðið var oft mjög lífleg hvort sem skólaskylduna eða skaparann bar á góma og þú kenndir okkur strax frá unga aldri að rökræða og standa fyrir máli okkar. Þá varstu gríðarlega vel lesinn og fram á síðasta dag vel inni í umræðu líðandi stundar. Alltaf náðir þú að nálgast um- ræðuefnin út frá heimspekilegu sjónarmiði og koma með nýja og óvænta sýn á hlutina. Þú hafðir áhyggjur af böli heimsins og sagðir oft í því samhengi að ef all- ir myndu bjarga einum manni þá yrði heiminum bjargað. Þetta er lýsandi dæmi um hvaða mann þú hafðir að geyma. En þótt alvarleg málefni væru mikið rædd var grínið sjaldnast langt undan. Þú áttir mjög auðvelt með koma auga á spaugilegu hliðar mann- lífsins en þegar spaug þitt fór yfir strikið kenndir þú gjarnan púk- anum sem sæti á öxlinni á þér um. Þú varst mikill listunnandi og kenndir okkur að meta sígilda tónlist, myndlist og bókmenntir. Við munum alltaf búa að því. Oft sátum við í stofunni á Rauða- læknum og nutum þess að hlusta á þig spila á flygilinn eða fara með ljóð eftir Jónas Hallgrímsson og aðra snillinga. Stofan var líka sannkallað listasafn og þar fræddir þú okkur um meistara ís- lenskrar myndlistar. Einnig hvattir þú okkur til að fara með þér á tónleika og myndlistarsýn- ingar sem þú varst mjög dugleg- ur að sækja. Fram undir það síðasta varst þú alveg ótrúlega sprækur og oft sást til þín hlaupandi á eftir strætó með bækur í annarri hendi og harðfisk úr Kolaportinu í hinni. Hreysti þína og langlífi má eflaust bæði þakka reglusemi þinni og því að þú fórst allra þinna ferða annað hvort fótgangandi eða með strætisvagni. Líkams- ræktaráhugi réð þó ekki mestu um ferðamáta þinn heldur nægju- semi. Þú lagðir lítið upp úr ver- aldlegum gæðum og naust þess best að deila þeim með öðrum. Elsku afi, þú varst litríkur per- sónuleiki. Við munum minnast þín, segja af þér sögur, hafa eftir þér spakmæli og brandara svo lengi sem við lifum. Minning um skemmtilegan, vitran og ekki síst góðan mann lifir. Þín barnabörn, Viggó, Ásgeir Örn og Hrefna Lind. Afi á Rauðó. Hann var stór- brotinn maður, hann afi. Bæði listamaður og heimspekingur, næmur og tilfinningaríkur og sóttist eftir fullkomnun í því hversdagslega. Við þekkjum eng- an annan sem bakaði vöfflur og hengdi þær upp á snúru með klemmum til að þær myndu verða fullkomlega stökkar og góðar. Hann sá betur en flestir aðrir fegurðina í því sem fyrir augu bar, enda listamaður fram í fing- urgóma. Jafnvel eftir að hann var búinn að missa sjónina nær alveg gat hann samt alltaf séð það fal- lega. Hann var líka sá örlátasti maður sem við höfum kynnst og mátti ekkert aumt sjá. Í hvert skipti sem við komum í heimsókn tæmdi hann úr ísskápnum á borð- ið og máttu hverskyns mótbárur sín lítils. Hann var skemmtilegur og aldrei nein lognmolla í kring- um hann. Það er okkur ógleymanlegt þegar við fengum að gista á Viggó Tryggvason ✝ Elfar Berg Sig-urðsson fæddist á Patreksfirði 21. mars 1939. Hann lést á Landspít- alanum við Hring- braut 18. febrúar 2011. Foreldrar hans voru Sigurður G. Jóhannsson, f. 22.10. 1909, d. 13.10. 1970, og Bergljót Sturludótt- ir, f. 2.10. 1919, d. 2.10. 1992. Systkini, andvana drengur, f. 29.4. 1940, Sigurrós Berg, f. 1.4. 1943, Kristín Holmberg Martino, f. 10.4. 1943, Sturla Berg, f. 16.5. 1946, d. 2.12. 2003. Lilja Berg, f. 12.11. 1952, hálfsystir sam- mæðra Hera Garðarsdóttir, f. 15.1. 1958, hálfsystkini samfeðra Hafdís Berg, f. 17.6. 1960, Jó- hann Berg, f. 12.11. 1962, og Sig- urbjörn Berg, f. 22.4. 1967. Elfar kvæntist 3. september 1965 Guðfinnu Sigurbjörns- dóttur, f. 14.2. 1945, foreldrar hennar voru Sigurbjörn Mey- vantsson, f. 26.6. 1919, d. 31.1. 1951, og Unnur Guðnadóttir, f. Eyjafjöllum er hann var 15 ára. Elfar lærði prentverk hjá Fé- lagsprentsmiðjunni og lauk sveinsprófi 1960. Hann var sölu- stjóri hjá Bifreiðum og landbún- aðarvélum 1965-1972 og starfaði hjá Landsvirkjun 1972-1974. Elf- ar stundaði verslunarrekstur í Hafnarfirði í 27 ár, frá 1974- 2000, en þá hóf hann störf hjá Ol- ís og starfaði þar fram að andláti sínu. Um tíma var Elfar í stjórn Sjálfstæðisfélagsins Fram, Fé- lags íslenskra hljómlistarmanna, formaður Kaupmannafélags Hafnarfjarðar og forseti Kiw- anisklúbbsins Eldborgar í Hafn- arfirði auk þess sem hann var virkur í starfi Á-listans á Álfta- nesi. Elfar var einn af stofn- endum hljómsveitarinnar Lúdó og Stefán og hljómsveitarstjóri. Hann spilaði með Lúdó frá árinu 1959 til dánardags, eða í rúm- lega hálfa öld. Hann spilaði einn- ig með flestum ástsælustu hljóm- listarmönnum þjóðarinnar sem voru honum samtíða. Fyrir stofnun Lúdó rak hann eigin hljómsveit, Hljómsveit Elfars Berg. Elfar og Guðfinna störf- uðu saman alla tíð í rekstri sínum til ársins 2000 en þá hóf Elfar störf hjá Olís. Elfar verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í dag, 28. febr- úar 2011, og hefst athöfnin kl. 13. 1.8. 1917, d. 15.11. 1990. Börn Elfars og Guðfinnu eru Unnur Berg, f. 30.3. 1966, gift Guðgeiri Magnússyni, f. 21.9. 1964, dætur þeirra Guðfinna Margrét Berg, f. 11.2. 1998, d. 12.2. 1998, og Rakel Berg, f. 3.4. 2002, d. 5.4. 2002, Bjarni Berg, f. 20.7. 1969, kvæntur Berglindi Lib- ungan, f. 26.3. 1974, dætur þeirra Ylfa Berg, f. 8.3. 1998, og Birna Berg, f. 26.3. 2003. Elfar og Guðfinna hófu bú- skap á Baldursgötu í Reykjavík en fluttu þaðan til Hafnarfjarðar árið 1966 og bjuggu þar til ársins 1996 er þau fluttu á Álftanes og er heimili þeirra þar í dag. Elfar er fæddur á Bergstöðum á Pat- reksfirði. Hann flutti til Reykja- víkur 1948 þá í Mávahlíð 1.Vorið 1955 flutti fjölskyldan í Hátröð 6, Kópavogi. Sem ungur drengur var hann í sveit í Tungumúla á Barðaströnd. Einnig var hann eitt sumar í sveit austur undir Elsku hjartans pabbi minn, mér þykir skrýtið að vera að skrifa um þig minningarorð. Hlutirnir hafa gengið afar hratt fyrir sig í veikindum þínum og ég átta mig eiginlega ekki alveg á öllu saman. Þú varst yndislegur faðir og vinur minn, alltaf tilbú- inn að dekra og vera til staðar fyrir mig. Við erum samhent fjöl- skylda í einu og öllu og þú verður áfram alltaf með okkur. Ég veit að þegar Bjarni fer að syngja og ég spila á píanóið með honum verður þú áfram við hliðina á mér þegar við spilum okkar frægu fjórhentu slagara. Við höfum verið dugleg að búa okkur til fallegar minningar og haldið vel saman og er það ómet- anlegt. Dugnaður þinn og metn- aður í að búa okkur fallegt heim- ili, og í öllu sem við fjölskyldan höfum tekið okkur fyrir hendur í lífinu hefur þú aðstoðað okkur í einu og öllu og ég þakka þér fyrir það, elsku pabbi. Við Guðgeir er- um þeirrar gæfu aðnjótandi að búa skammt frá ykkur mömmu og við höfum verið dugleg að bralla ýmislegt saman og hittast um helgar og elda góðan mat og eiga góðar stundir, það er ómet- anlegt þegar vina- og kærleiks- böndin eru svona sterk. Fallegu bláu augun þín þegar þú horfðir yfir litlu stórfjölskylduna þína eru góð minning, eins og við sögð- um stundum í gríni, það er ekki magnið heldur gæðin. Það eru orð manna sem verða á vegi mínum að þú varst góður maður, duglegur og aldrei átti nokkur maður illt orð frá þér og það eru orð að sönnu. Við höfum nú gengið í gegnum ýmislegt saman hvort sem er gleði eða sorg og allar góðu minningarnar ætla ég að geyma eins og gull í hjarta mínu. Tvær litlar dömur hafa nú tekið vel á móti þér, Guð- finna Margrét og Rakel ætla núna að passa afa sinn. Þú og mamma hafið alltaf verið bestu félagar og vinir og ég lofa þér, elsku pabbi, að við Guðgeir ætl- um að umvefja hana ást og hlýju. Elsku hjartans pabbi minn, minningu um föður, góðan vin og félaga ber ég með stolti í hjarta mínu og ég bið Guð og englana að vaka yfir þér. Þín elsku dóttir, Unnur. Maður fæðist, lifir og deyr. Þetta er einföld lífsspeki frum- byggja Kanada. Það er einmitt þessi millikafli sem við viljum þakka fyrir. Sem faðir, tengda- faðir og afi, verðum við að segja að þú varst afskaplega vel heppn- aður. Við gerðum okkur grein fyrir því þegar þú lást bana- leguna að aldrei hafði hrokkið styggðaryrði af vörum þínum til okkar. Heiðarlegur og grandvar varstu þú í öllum þínum gjörðum. Við erum þakklát fyrir þetta sein- asta ár, sem við kjósum að líta á sem einkennalaust ár með lífs- hættulegan sjúkdóm. Siglt var á seglbátnum Heklu í sænska skerjagarðinum þar sem þú naust þín. Nú er höggvið skarð í áhöfnina og hefur Birna ákveðið að taka að sér skyldur afa síns um borð. Þú leiddir einkadóttur þína að altarinu og endaðir árið 2010 á mánaðarferð til Taílands sem verður öllum ógleymanleg í fjöl- skyldunni. Þar naust þú lífsins með okkur, fórst í fyrsta skipti á fílsbak og borðaðir hrísgrjón á hverjum degi sem þú hélst að þú gætir aldrei vanist. Einnig sigld- um við að fallegustu eyjum og fló- um sem finnast í Taílandi og kom- um heim endurnærð og full af ánægju. Þegar við sitjum og hripum niður þessi orð á blað og spyrjum yngsta barnabarnið Birnu hvað hún vilji segja um afa sinn, þá kom bara eitt orð í huga hennar: „Góður“. Við spurðum Ylfu einnig sömu spurningar. Þá flóðu út þessi gullkorn: „Yndislegi afi minn kenndi mér að labba þegar ég var lítil, kenndi mér að spila á píanó þegar ég náði upp. Var svo ein- staklega jákvæður, hann var sá eini sem hlustaði á mig þegar ég bað um Louis Vuitton-tösku á Taílandi. Svarið var: „Ekkert mál, dúllan mín“. Alltaf þegar ég fór að sofa og kyssti afa góða nótt sagði afi: “„Góða nótt, prinessan mín.“ Hvíl í friði, takk fyrir sam- veruna. Bjarni Berg, Berglind, Ylfa og Birna. Fallinn er frá mikill heiðurs- maður, tengdafaðir minn og vin- ur Elfar Berg. Við Unnur dóttir þín hófum okkar búskap á heimili ykkar hjóna árið 1990 þar sem við bjuggum fyrsta árið. Það tók ekki langan tíma fyrir mig að sjá hversu mikið var í þennan smá- vaxna mann spunnið, hæglátur, yfirvegaður og með mikið jafnað- argeð auk þess að vera mikill húmoristi. Þú varst einn þeirra manna sem eru ekki orðmargir en er þú talaðir hlustaðir á fólk af athygli og til marks um hæglæti þitt heyrði ég þig aldrei hallmæla eða tala illa um nokkurn mann á þeim tæpu 22 árum er við áttum sam- leið. Þú varst ráðagóður maður og bónfús, þar var öruggt ef þú varst beðinn að gera greiða að það þurfti ekki að biðja tvisvar. Ég hef einnig orðið þeirra forrétt- inda aðnjótandi að vera tekinn inn í samheldna fjölskyldu sem kann að skemmta sér á góðum stundum og ófáar eru þær minn- ingarnar um þig spilandi á píanó- ið og restina af fjölskyldunni syngjandi með lögin hans Magga Eiríks, „We’ll meet again, it’s a wonderful World“ og fleiri perlur tónlistarsögunnar. Hversu ánægjulegt er það líka að þú skyldir ná því að smita Ylfu af tónlistaráhuganum og geta kennt henni fyrstu skrefin á pí- anóinu. Þú varst mikill fjölskyldumað- ur og þínar stærstu stundir voru er börnin og barnabörnin voru öll samankomin og var yndislegt að sjá er þú horfðir yfir litla hópinn þinn og augun fylltust stolti. Er mér bárust fregnir af veik- indum þínum kom upp í huga mér setning sem ég tel lýsa þínu lífs- hlaupi vel „Að elska og vera elsk- aður eru forréttindi en ekki sjálf- sagður hlutur.“ Þarna var Elfari Berg rétt lýst, þú gekkst aldrei að því vísu að ástin kæmi af sjálfu sér heldur hlúðir að ástinni til Guðfinnu þinnar, sem sést best á því að þið voruð í verslunar- rekstri saman í um 30 ár, fóruð saman í vinnuna á morgnana og komuð saman heim á kvöldin og alltaf jafn stolt og ánægð með hvort annað. Árið 2010 var ár mikilla at- hafna hjá ykkur Guðfinnu, sigling með Bjarna, Beggu, Birnu og Ylfu í hálfan mánuð um sænska skerjagarðinn og upp til Noregs, þar sem leyndir siglingahæfileik- ar ættföðurins komu í ljós, Unnur dóttir þín gifti sig (loksins), auk jóla- og áramótaferðar með Bjarna, Beggu og stelpunum til Taílands, ferð sem var ykkur hjónum ógleymanleg. Að þeirri ferð lokinni beið þín því miður annað ferðalag. Guð veri með þér á þinni hinstu ferð. Það var með stolti sem ég kallaði þig tengdapabba minn og mundu að láta Rakel ekki svindla á þér í ólsen ólsen. Sagt er að þeir deyi ungir sem guðirnir elska en sumir deyja ekki fyrr en 72 ára gamlir og munum að fallegri sál fylgja fal- legar minningar. Þinn tengdasonur, Guðgeir Magnússon. Kveðja. Við komum hér á kveðjustund að kistu þinni, bróðir að hafa við þig hinsta fund og horfa á gengnar slóðir. Og ógn oss vekja örlög hörð, en ennþá koma í hópinn skörð, og barn sitt faðmi byrgir jörð, vor bleika, trygga móðir. En minning þín er mjúk og hlý og mun oss standa nærri. Með hverju vori hún vex á ný og verður ávallt kærri. Ef lífsins gáta á lausnir til, þær ljóma bak við dauðans þil. Og því er gröfin þeim í vil, sem þráðu útsýn stærri. (Úr kvæðas. Magnúsar Ásgeirss.) Minning um kæran bróður lif- ir, ljúf og björt. Elsku Guðfinna, Unnur, Guð- geir, Bjarni, Berglind og dætur. Megi guð gefa ykkur styrk til að takast á við þessa þungu raun. Lilja Ruth og fjölskylda. Gef mér, faðir, ævi alla æðrulaust að dvelja hér Uns þú lætur á mig kalla í öllu mun ég treysta þér. (G.J.) Kær vinur okkar og samstarfs- maður yfir hálfa öld Elfar Berg Elfar Berg Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.