Morgunblaðið - 28.02.2011, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 28.02.2011, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 28. FEBRÚAR 2011 Dæmi um að útlendingar séu látnir víkja fyrir Íslendingum BAKSVIÐ Una Sighvatsdóttir una@mbl.is „Margir sem missa vinnuna upplifa það þannig að þeir hafi gengisfallið í samfélaginu og ef þú ert útlend- ingur er hættan líka sú að þú missir öll tengsl og hættir að umgangast fólk. Því vinnan skiptir máli fyrir okkur öll, en jafnvel meira máli fyr- ir útlendinga sem oft eru á jaðri samfélagsins,“ segir Gerður Gests- dóttir, ráðgjafi hjá Vinnumálastofn- un. Atvinnuleysi er hlutfallslega hærra meðal erlendra ríkisborgara en íslenskra, og mældist 15,5% í þeim hópi í janúar 2011, samanborið við 8,5% atvinnuleysi á landsvísu, samkvæmt tölum Vinnumálastofn- unar. Ekki er hinsvegar mikill mun- ur á langtímaatvinnuleysi erlendra og íslenskra ríkisborgara. 33% at- vinnulausra Íslendinga hafa verið án vinnu í meira en 1 ár en 29% út- lendinga. Framan af bitnaði atvinnuleysið mest á körlum í byggingariðnaði, eins og sést á því að 455 erlendir karlar hafa verið atvinnulausir í meira en 1 ár á móti 221 erlendri konu. Eftir því sem líður á krepp- una hefur atvinnuleysið hinsvegar tekið að bíta bæði kynin. Útlendingar fyrst reknir? Joanna Ewa Dominiczak, formað- ur Félags kvenna af erlendum upp- runa, segist óttast að staða erlendra kvenna á vinnumarkaði fari versn- andi í ljósi niðurskurðar í velferð- arkerfinu, sem meðal annars sé framkvæmdur með því að fækka „kvennastörfum“ s.s. við ummönn- un eða ræstingar og skólaliðum. „Ég er hrædd um að sagan muni endurtaka sig og þeir sem missi vinnuna fyrst verði erlendir rík- isborgarar.“ Þeir innflytjendur sem blaðamað- ur ræddi við nefndu allir að mik- ilvægasti lykillinn að aðlögun í ís- lensku samfélagi væri að læra tungumálið. Það virðist sérstaklega veigamikið nú, því svo virðist sem kröfur um íslenskukunnáttu séu mun harðari nú en þær voru fyrir kreppu, sem gerir mörgum innflytj- endum mjög erfitt fyrir að fá vinnu. Joanna segist hafa heyrt þess dæmi að útlendingum hafi verið sagt upp störfum, sem þeir áður þóttu full- góðir til að sinna, og Íslendingar ráðnir í staðinn í sömu stöðu. Vinnumálastofnun hefur boðið upp á ýmis úrræði fyrir þá sem eru á atvinnuleysisskrá, jafnt íslenska sem erlenda ríkisborgara. Í janúar voru útlendingar 428 eða 14% þeirra sem tóku þátt í þessum úr- ræðum sem m.a. ganga út á aðstoð við starfsleit, nýsköpun, íslensku- nám og ýmis starfstengd námskeið. Gerður Gestsdóttir, ráðgjafi hjá Vinnumálastofnun, hefur umsjón með málefnum atvinnulausra á aldrinum 16-30 ára sem ekki tala ís- lensku. Hún segir að staða þessa hóps sé að mörgu leyti flóknari og erfiðari en staða atvinnulausra Ís- lendinga. Niðurlægjandi upplifun „Við það eitt að vera útlendingur virðistu standa aðeins verr að vígi á vinnumarkaði,“ segir Gerður. Lítil íslenskukunnátta takmarki t.a.m. möguleika þeirra mun meira nú en áður auk þess sem þau eigi sér minni von um að fá starf sem hæfi menntun þeirra. Sumir þekki illa réttindi sín og erfitt geti líka reynst að veita þeim fullnægjandi þjónustu sem tala enga íslensku og litla sem enga ensku. Margir upplifi það auk þess sem niðurlægjandi að ganga á milli stofnana og biðja um peninga. „Þetta er ömurleg staða fyrir hvern sem er og ennþá verri ef þú kannt ekki á kerfið og talar ekki tungu- málið,“ segir Gerður. Viðhorfin í hópnum eru einnig margvísleg að hennar sögn. Margir leggja sig alla fram við að læra ís- lensku og halda sér virkum þar til vinna fæst. Aðrir sjái hinsvegar lít- inn tilgang í því að eyða orku í ís- lenskunám þegar þá langar hvort eð er ekki til að búa á Íslandi, en eiga ekki kost á að fara. „Ég upplifi þeirra stöðu mjög slæma, vegna þess að margir virðast fastir milli steins og sleggju,“ segir Gerður.  Atvinnuleysi meira hjá útlendingum  Hættara við félagslegri einangrun  Minni von um að menntunin nýtist Mannvirkjagerð 540 Iðnaður 291 Verslun 266 Gisting/veitingastarfs. 244 Ýmis þjónusta 225 Flutningastarfsemi 134 Fiskvinnsla 162 Annað/óvíst 480 Samtals 2.342 Skipting atvinnulausra erlendra ríkisborgara eftir starfsgeira (í lok janúar 2011) 540 291 266 244 225 134 162 480 Fjöldi atvinnulausra erlendra ríkisborgara, eftir kyni og búsetu (í lok janúar 2011) Karlar Konur 1.415 927 1.686 656 Höfuð- borgar- svæðið Lands- byggðin Lengd atvinnuleysis meðal erlendra ríkisborgara eftir kyni (í lok janúar 2011) 0-12 vikur 13-25 vikur 26-38 vikur 39-51 vikur 52 vikur og meira 326 244 363 259 175 120 96 83 455 221 Heimild: Vinnumálastofnun Þriðjudagur  Nánar verður fjallað um stöðu innflytjenda í kreppunni í blaðinu á morgun. Erlendir ríkisborgarar sem hingað koma til vinnu greiða skatt frá fyrsta degi og eiga því sama rétt og Íslend- ingar til atvinnuleysisbóta. Hafi þeir unnið fullt starf í heilt ár ávinna þeir sér fullan bóta rétt til þriggja ára eins og aðrir. Staða útlendinga sem hingað koma frá löndum EES er þó talsvert flóknari en annarra og rétt- indi þeirra takmarkaðari. Eitt af því sem setur stein í götu sumra er þau skil- yrði sem sett eru í lögum um ríkisborgararétt að um- sækjandi hafi ekki þegið framfærslustyrk frá sveitarfé- lagi í tvö ár. Þeir sem ekki eiga rétt á fullum atvinnuleysisbótum geta leitaðð til félagsþjónustu sveitarfélaga eftir framfærslu. Geri útlendingar það fyrirgera þeir hinsvegar um leið rétti sínum til að sækja um ríkisborgararétt í tvö ár. Að sögn Gerðar hafa komið til Vinnumálastofnunar innflytjendur sem reyna að bíta á jaxlinn og framfleyta fjölskyldu sinni á litlum sem engum tekjum til að halda í þann möguleika að geta fengið íslenskt ríkisfang. Sumir sæki ekki einu sinni um atvinnuleysisbætur því þeir haldi að það sama eigi við og vilji ekki missa réttindi sín. Joanna segir sömu sögu og nefnir dæmi um fjöl- skyldur frá löndum utan EES-svæðisins þar sem fyr- irvinnan kom fyrst til landsins. Á eftir fylgdu maki og börn, sem sitja heima því makinn fái ekki atvinnuleyfi. Börnin taki ekki þátt í tómstunda- og félagsstörfum því það kostar og fara ekki á leikskóla því annað foreldrið er heima með þau. Þetta hafi mikil áhrif á heilu fjöl- skyldurnar, sem einangrist, læri enga íslensku og séu ekki þátttakendur í samfélaginu. una@mbl.is Neita sér um að þiggja félagslegar bætur ÓTTAST AÐ FYRIRGERA RÉTTINUM TIL ÍSLENSKS RÍKISFANGS Staða innflytjenda á Íslandi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.