Morgunblaðið - 17.05.2011, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 2011
VW Touareg R5
Árgerð 2005, ekinn 100.000 km
sjálfskiptur, dísel, ásett verð 4.390.00,-
Tilboð 3.990.000,-
HEKLA
NOTAÐIR
BÍLAR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Hátt í tvö þúsund umsóknir eru óaf-
greiddar hjá umboðsmanni skuldara.
Fleiri umsóknir hafa borist en hægt
hefur verið að afgreiða fram undir
þetta en samkvæmt upplýsingum
embættisins hefur nokkurt jafnvægi
verið á umsóknum og afgreiðslum
síðustu vikur.
Frá því að nýjar reglur um heimild
til greiðsluaðlögunar tóku gildi 1.
ágúst á síðasta ári hefur embætti
umboðsmanns skuldara afgreitt um
700 umsóknir. Þar af voru samtals á
annað hundrað afturkallaðar eða
synjað. Enn fleiri umsóknir eru óaf-
greiddar, því hinn 1. maí biðu 1963
umsóknir afgreiðslu, samkvæmt
upplýsingum Svanborgar Sigmars-
dóttur, sviðsstjóra kynningarsviðs.
Fyrstu þrjá mánuði ársins bárust
tæplega 300 umsóknir á mánuði en
færri í apríl, eða rúmlega 200, og
gætu frídagar um páskana skýrt það
að hluta.
Á annað hundrað umsóknir hafa
hlotið afgreiðslu á mánuði á þessu ári
nema hvað betur gekk í mars þegar
227 umsækjendur fengu heimild eða
synjun til að leita samninga um
greiðsluaðlögun. Afgreiðslum fækk-
aði aftur í apríl og segir Svanborg að
þá hafi hægt á vegna þess að starfs-
fólkið hafi þá verið að athuga hvort
umsóknir hentuðu frekar í úrræði
fjármálastofnana um niðurfærslu
veðskulda í 110% af verðmæti eignar.
Staðan er núna sú að verið er að
vinna úr umsóknum sem bárust emb-
ættinu í nóvember. Þá sóttu 372 ein-
staklingar um greiðsluaðlögun, fleiri
en aðra mánuði.
Sjá heildarmyndina
Markmið með greiðsluaðlögun er
að gera einstaklingum í verulegum
greiðsluerfiðleikum kleift að endur-
skipuleggja fjármál sín og koma á
jafnvægi milli skulda og greiðslugetu
þannig að raunhæft sé að skuldari
geti staðið við skuldbindingar sínar
um fyrirsjáanlega framtíð.
Eftir að sótt er um til umboðs-
manns skuldara er kallað eftir upp-
lýsingum um skuldastöðu viðkom-
andi hjá fjármálastofnunum og hann
beðinn um að gera grein fyrir henni.
Tilgangurinn er að átta sig á heild-
armyndinni. Allt tekur þetta tíma og
stundum skila upplýsingarnar sér
seint.
Ef umsækjandi er talinn fullnægja
skilyrðum um að fá heimild til að leita
greiðsluaðlögunar fer mál hans til
lögmanns sem hefur umsjón með
samningunum. Hann reynir að ná
samkomulagi við kröfuhafa um
greiðslu skulda á einu til þremur ár-
um.
Hingað til hafa aðeins liðlega tutt-
ugu slíkir samningar náðst. Í þremur
tilvikum þar sem samningar hafa
ekki náðst hefur verið óskað eftir
nauðasamningum um greiðsluaðlög-
un. Þær óskir fara fyrir dómstóla.
Nærri tvö þúsund mál bíða
Jafnvægi virðist vera að nást milli umsókna um greiðsluaðlögun og afgreiðslu hjá
umboðsmanni skuldara Um 700 umsóknir hafa verið afgreiddar frá embættinu
Tuttugu skuldsett-
ir einstaklingar
hafa náð samn-
ingum.
Svanborg Sigmarsdóttir
Það var kalsalegt á bryggjunni í Hafnarfirði
þegar karlarnir voru að landa úr Díu HF 14 eftir
hádegi í gær. Fram kemur á vef Fiskistofu að
líklega verður dagurinn í dag síðasti dagur
strandveiða á suðursvæðinu í maí, þ.e. frá
Hornafirði í Borgarbyggð. Veiðar á svæðinu frá
Arnarstapa í Súðavík voru stöðvaðar í síðustu
viku. Alls hafa 414 bátar hafið strandveiðar á
landinu, en veiðarnar standa fram í ágúst.
Kalsalegt hjá trillukörlum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Björn Jóhann Björnsson
Kristján Jónsson
Samninganefnd Félags íslenskra flugumferðarstjóra
hitti viðsemjendur sína á fundi hjá ríkissáttasemjara í
gær en lítill árangur varð af fundinum, að sögn Ottós Ei-
ríkssonar, formanns félagsins. Annar fundur var þó boð-
aður í dag.
Í gærdag voru undirritaðir samningar sem Samtök
starfsmanna fjármálafyrirtækja gerðu við Samtök at-
vinnulífsins.
Nefndir BHM hittu viðsemjendur
Í stórum dráttum er verið að semja við félög opinberra
starfsmanna um sambærileg kjör og samið var um 5. maí
sl. á almennum vinnumarkaði.
Aðildarfélög BHM, 25 að tölu, eru í samfloti í við-
ræðum við ríkið um sameiginleg mál en síðar verða tekin
fyrir ýmis sérmál. Samninganefndir BHM áttu fundi með
viðsemjendum sínum í gær. „Okkur fannst þetta lítið
mjakast en við gerum ráð fyrir að hittast aftur á föstu-
dag,“ sagði Guðlaug Kristjánsdóttir, formaður BHM.
Lítill árangur á fundi um
deilu flugumferðarstjóra
Morgunblaðið/Eggert
Stundarhlé Nokkrir flugumferðarstjórar í húsakynn-
um ríkissáttasemjara í Reykjavík í gær.
Aðilar munu hittast aftur
í dag hjá ríkissáttasemjara
Lækkun íslensku krónunnar gagn-
vart bandaríkjadal er ástæða þess
að útsöluverð á bensíni hefur ekki
lækkað hér, þrátt fyrir lækkun
heimsmarkaðsverðs. Bensínlítrinn
væri nokkrum krónum lægri ef
gengi krónunnar hefði haldist.
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur
lækkað um 100 dollara á stuttum
tíma eða um 8,5%. Á sama tíma hef-
ur útsöluverð á bensíni lækkað hlut-
fallslega mun minna, eða um 1,70 kr.
lítrinn. Magnús Ásgeirsson, inn-
kaupastjóri hjá N1, segir að gengi
krónunnar hafi veikst gagnvart doll-
ara um fimm krónur í mánuðinum.
Það sé skýringin á því að útsöluverð
hafi ekki lækkað meira. „Þetta er
þekkt stærð á alþjóðamörkuðum.
Þegar verð á olíu lækkar styrkist
dollarinn gjarnan.“
Óróleiki í Líbíu hefur áhrif
Hann er ekki bjartsýnn á að ís-
lenskir neytendur muni njóta um-
talsverðrar verðlækkunar á bensíni
á árinu. Bendir á að ekki sé séð fyrir
endann á þeim óróleika sem upp-
reisnir og styrjaldir í löndum við
Miðjarðarhaf hafi valdið. Óróleikinn
í Líbíu hafi þar mest áhrif.
helgi@mbl.is
Gengið
viðheldur
olíuverði
Ekki útlit fyrir að
bensínverð lækki
Kona á fimmtugsaldri liggur enn
þungt haldin á gjörgæsludeild
Landspítala eftir að sambýlis-
maður hennar réðst á hana að-
faranótt sunnudags. Maðurinn
hringdi sjálfur eftir aðstoð lög-
reglu eftir árásina. Hann verður í
gæsluvarðhaldi til 30. maí nk.
Rannsókn málsins er á frum-
stigi en að sögn lögreglunnar virð-
ast atvik hafa verið með þeim
hætti að fólkinu sinnaðist með
þeim afleiðingum að maðurinn,
sem er á sjötugsaldri, réðst á kon-
una. Þrengdi hann að hálsi hennar
þar til hún missti meðvitund. Kon-
an var ekki með lífsmarki þegar
lögregla og sjúkraliðar komu á
vettvang. Hún var endurlífguð á
staðnum.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu var maðurinn í annarlegu
ástandi.
Konan enn
þungt haldin