Morgunblaðið - 17.05.2011, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 17.05.2011, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 2011 „Forsalan hefur farið fram úr okk- ar björtustu vonum,“ segir Har- aldur Örn Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Landsmóts hesta- manna. Forsölu aðgöngumiða vegna landsmótsins í Skagafirði í sumar lauk í gær. Haraldur segir að búið sé að selja fleiri miða en í fyrrasumar en þess ber að geta að lítill hluti miða er seldur fyrirfram. Landsmót hestamanna átti að vera á Vindheimamelum í Skaga- firði í fyrrasumar en var frestað vegna pestar sem grasseraði í ís- lenska hrossastofninum. Það verð- ur haldið dagana 26. júní til 3. júlí. Þeim gestum sem búnir voru að kaupa miða í forsölu í fyrrasumar gafst kostur á að halda miðunum og nýttu um 1000 gestir það. Frestur til að kaupa miða með afslætti í for- sölu sem átti að vera til 1. maí var framlengdur til dagsins í gær. Frestun mótsins leiðir til að það lendir á sama sumri og Heimsmeist- aramót íslenska hestsins sem haldið verður í Austurríki í ágúst. Har- aldur segir að 20-25% miðanna hafi farið til erlendra viðskiptavina, og þeir séu fyrr á ferðinni en oft áður. Hann segir ekki hægt að segja til um það enn hversu margir útlend- ingar komi á mótið, en búast megi við að þeir verði eitthvað færri en venjulega. „Ég held þó að menn hafi áttað sig á því hvaða staða er hér í hesta- mennskunni, hún þarf nauðsynlega að fá innspýtingu. Það er skylda okkar að reyna að koma greininni af stað á ný og til þess eigum við ekkert öflugra tæki en lands- mótin,“ segir Haraldur. Annar undirbúningur fyrir mótið gengur samkvæmt áætlun. helgi@mbl.is Forsala miða á landsmót gekk framar vonum  Undirbúningur fyrir Landsmót hestamanna í Skagafirði gengur vel Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Landsmót Unnið að undirbúningi á mótssvæðinu á Vindheimamelum. „Hún hefur eitt- hvað látið sjá sig, hef séð hana sitja á flugvellinum, en eftir að það kólnaði hefur hún lítið látið sjá sig,“ segir Bjarni Magnússon um kríuna í Grímsey þetta vorið. Eins og fram kom í Morgunblaðinu sl. laugardag hefur krían lítið sést suðvestan- og vest- anlands en aðallega verið á Norður- og Austurlandi. Bjarni segir mikið hafa verið af kríu í eynni síðustu tvö sumur og varpið tekist vel, enda mikið og gott æti. Hann á því von á að hún fari að koma í stórum hóp- um, um leið og fer að hlýna. Í gær var aðeins tveggja stigi hiti í Gríms- ey og norðvestankaldi. Krían lætur á sér standa í Grímsey vegna kuldans Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Það er óhemjumikið af lang- víueggjum, það mesta sem ég man eftir,“ segir Bjarni Magnússon, hreppstjóri í Grímsey, sem þetta vorið er búinn að síga tvisvar í björg í eynni og tína egg, ásamt syni sín- um. Bjarni ætti að hafa samanburð- inn, bráðum 81 árs, og búinn að síga eftir eggjum allt frá árinu 1943, þá 13 ára gamall og hefur farið á hverju einasta ári síðan. Bjarni segir svartfugli hafa fjölg- að gríðarlega í Grímsey undanfarin ár. Átan hafi verið mjög góð. „Hér fylltist allt af loðnu kringum eyjuna og á sundinu. Fuglinn kom óvana- lega snemma,“ segir hann. Bjarni er sannarlega ekki elsti sigmaðurinn í Grímsey. Er Morg- unblaðið ræddi við hann í gær var bróðir hans, Sigmundur, mættur í árlega heimsókn frá Akureyri til að fara með honum í bjargsig. Nú er sko gaman að lifa! Sigmundur er 86 ára og seig fyrst í björg kringum 1940. Þeim bræðr- um finnst fátt annað skemmtilegra en bjargsigið, að tína egg og veiða lunda, enda segist Bjarni hafa sagt við bróður sinn er hann tók á móti honum í gær og sauð handa honum egg: „Nú er sko gaman að lifa!“ Aldrei séð meira af eggjum  Sígur enn í björg við Grímsey, 81 árs, ásamt 86 ára bróður sínum Morgunblaðið/Helga Mattína Sigmaður Bjarni Magnússon hreppstjóri hefur langa reynslu af bjargsigi. Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Níu ára drengur stakk sig á sprautu- nál þegar hann var við leik ásamt tveimur vinum sínum í Árbænum seinni part sunnudags. Móðurbróðir drengsins, Eyjólfur Páll Víðisson, segir þetta ekki í fyrsta sinn sem sprautunálar finnist á sama stað og hvetur foreldra til að vera vakandi fyrir því umhverfi sem börnin þeirra leika sér í. „Hann var úti að leika sér og kem- ur síðan heim með nálarbox með nál- um í og segir mömmu sinni að hann hafi stungið sig á þessu,“ segir Eyj- ólfur. „Hún fékk bara sjokk og fór með hann beint upp á spítala þar sem hann fór í viðtal og var skoð- aður.“ Í gærmorgun hafi þau síðan farið aftur á spítalann þar sem tekin var blóðprufa og drengnum gefin mótefni gegn lifrarbólgu b og c og HIV-veirunni en hann mun þurfa að mæta í áframhaldandi lyfja- gjöf; næst eftir mánuð, síðan þrjá mánuði, sex og loks eftir ár. Eyjólfur segir að rann- sókn standi yfir á nálunum en rúm vika muni líða þar til niðurstöður fást. Biðin sé þegar orðin móðurinni afar erfið. „Hann gerir sér enga grein fyrir því hversu al- varlegt þetta er,“ segir Eyjólfur um drenginn. „Hann er bara níu ára og skilur ekki viðbrögðin hjá mömmu sinni.“ Setji nálarnar í ruslið Nálarboxið fann drengurinn á túni fyrir framan blokk í Hraunbænum en sjálfur býr Eyjólfur í nágrenninu og segir að vitað sé að í blokkinni búi fólk í neyslu. „Ég á sjálfur tvö börn sem ég hef hjá mér aðra hverja helgi og ég veit ekki hvernig ég hefði brugðist við ef þetta hefði komið fyr- ir þau,“ segir hann. Mikilvægt sé að foreldrar geri sér grein fyrir að í ná- grenninu búi fólk sem er í neyslu og nálar á víðavangi séu fylgifiskar þess. „Það hafa áður fundist nálar á þessu svæði og maður vill nátt- úrulega líka reyna að fá þá sem eru að henda þessu þarna frá sér til að henda þessu í ruslið í staðinn. Þeir gera sér kannski ekki grein fyrir því að það eru börn þarna fyrir utan sem geta stungið sig á þessu og fengið al- varlega sjúkdóma,“ segir Eyjólfur. Ekki eru liðnar fleiri en tvær vik- ur síðan fimm ára drengur stakk sig á nál í Öskjuhlíð þegar hann var að leik með félögum sínum. Níu ára stakk sig á nál við Hraunbæ  Foreldrar í nágrenninu hvattir til að vera á varðbergi Karl Steinar Valsson, yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar á höf- uðborgarsvæðinu, segist sannfærður um það að algjör minnihluti þeirra tilfella þegar fólk finnur sprautur á víðavangi sé tilkynntur til lögreglu. Fólk taki sprauturnar og hendi þeim tilkynni ekkert endilega fundinn. Hins vegar séu aðrar leiðir til þess að áætla fjölda þeirra sprautna sem hent er á víðavangi. „Nærtækast er að skoða og fylgjast með fjölda sprautu- sjúklinga,“ segir Karl. „Þá erum við að tala um fólk sem er í vímu og er í neyslu og er ekkert að spá í það, þegar áhrifin byrja að segja til sín, að taka draslið saman og henda því í ruslatunnuna.“ Tilfellin fleiri en tilkynningarnar NÁLAR Á VÍÐAVANGI Karl Steinar Valsson Morgunblaðið/Ómar Nálar Lögreglan telur mun fleiri sprautunálar finnast en tilkynnt er um til lögreglu. Morgunverðarfundur um verðtryggingu miðvikudaginn 18. maí kl. 8.30-10.00 í Háskólanum í Reykjavík, stofu M1.01 - Bellatrix Dagskrá: • Eygló Harðardóttir, alþingismaður og formaður nefndar um verðtryggingu, kynnir stuttlega niðurstöður nefndarinnar • Marinó G. Njálsson, framkvæmdastjóri Betri ákvarðana • Vilhjálmur Þorsteinsson, fjárfestir og fulltrúi Samfylkingar í nefnd um verðtryggingu • Pétur H. Blöndal, alþingismaður og fulltrúi Sjálfstæðisflokks í nefnd um verðtryggingu Að framsögum loknum verða pallborðsumræður. Friðrik Már Baldursson, forseti viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík, stýrir fundi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.