Morgunblaðið - 17.05.2011, Qupperneq 10
Morgunblaðið/ÞÖK
Útivist Það er gott að ganga.
Gönguverkefnið Af stað á Reykjanesið
stendur nú yfir. Um er að ræða menningar-
og sögutengdar gönguferðir með leiðsögn
um hluta af gömlum þjóðleiðunum á
Reykjanesskaga. Næsta ferð verður sunnu-
daginn 22. maí og hefst kl. 13. Þá verður
Skipsstígur genginn. Lagt verður af stað
frá bílastæðinu við Bláa lónið og gengið um
Sjónarhól og Rauðmela. Leiðin er 12 km
löng.
Síðasta gönguferðin í maí verður hinn 29
en þá verður Almenningsvegur genginn,
mæting er við Kálfatjarnarkirkju kl. 13.
Ferðirnar taka yfirleitt um 3-4 tíma með
fræðslustoppum. Gott er að vera með nesti
og í góðum skóm. Þáttökugjald í ferð er
1.000 kr. og frítt fyrir börn. Nánari upplýs-
ingar um ferðirnar má finna á
www.sjfmenningarmidlun.is.
Endilega …
… gangið um
Reykjanesið
10 DAGLEGT LÍFHreyfing og útivist
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 2011
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Fyrir mér eru ferðalögin ognáttúruupplifunin ekkisíður það sem heillar ensjálf siglingin á straum-
kajak. Það sem er gott við þessa
íþrótt er að maður þarf að ferðast til
að stunda hana og ég er alltaf að
upplifa nýja staði, bæði hér heima og
erlendis, uppi í fjöllum, inni í dölum
og giljum,“ segir Reynir Þorsteins-
son verkfræðingur sem er nýkominn
heim eftir fimm mánaða flakk og
kajaksiglingar í Suður-Ameríku.
„Ég fór til Kostaríka í nóvember og
vann þar sem flúðasiglingaleið-
sögumaður í einn mánuð en eftir það
fór ég til Panama og þaðan til Kól-
umbíu og var þá að sigla á kajak öðru
hvoru. Ég hafði uppi á „rafting“--
fyrirtækjum og fékk lánaða kajaka
en þegar ég kom svo til Ekvador
keypti ég kajak af Ameríkana sem
ég hitti og fór að róa þar.“
Slóst í för með öðrum
Reynir vinnur sem flúðasigl-
ingaleiðsögumaður á Íslandi á sumr-
in en hefur einnig unnið sem slíkur
víða um heim og hafði áður unnið í
Suður-Ameríku. „Það er mjög mikið
af góðum ám í Kólumbíu og Ekvador
sem henta vel til að sigla á straum-
kajak. Í Ekvador er lítið kajak-
samfélag og þangað koma Amerík-
anar mikið til að róa. Ég hitti nokkra
slíka og slóst í för með þeim, því það
er ekki æskilegt að róa einn. Ég reri
í tvo mánuði í Ekvador með fólki sem
var frá suðurríkjunum og frá Kan-
ada. Ég fékk öðru hvoru smáverk-
efni til að vinna en var samt mest-
allan tímann í fríi en það er mjög
ódýrt að halda sér uppi í Suður-
Ameríku. Þegar ég fór heim seldi ég
bátinn á svipuðu verði og ég hafði
keypt hann á.“
Reynir segir alla staðina sem
hann kom á og sigldi um í Suður-
Ameríku hafa verið frábæra en eftir-
minnilegast fannst honum að vera í
Á straumkajak í
Suður-Ameríku
Hann hefur velst á kajak í straumhörðum ám alveg frá því hann var tíu ára
strákur. Í haust skellti hann sér í ævintýraferð þar sem hann flakkaði um á kajak
í Kostaríka, Panama, Ekvador og Kólumbíu og upplifði margt nýtt.
Klárir í slaginn Reynir með félaga sínum í Argentínu í fyrravetur.
Fjör Reynir með vinum sínum á gúmbát í Ekvador fyrir skemmstu.
Nú er golfvertíðin að byrja á fullu og
fyrir þá sem langar að gera golf að
sínu áhugamáli eða að rifja upp
gamla takta er tilvalið að fara inn á
vefsíðuna Golfkennsla.is.
Meginmarkmið vefsins er að skapa
íslenskum kylfingum auðvelt aðgengi
að fræðsluefni sem mun hjálpa þeim
að ná betri tökum á golfinu. Á síðunni
er að finna margvíslegan fróðleik
varðandi golfið en eigendur og hug-
myndasmiðir vefsins eru Kristinn G.
Bjarnason og Úlfar Jónsson.
Þarna er hægt að lesa hvað er pútt
og vipp og hvernig á að æfa sveifl-
una. Það er einnig mikið efni um hug-
arþjálfun en mikilvægi jákvæðs hug-
arfars, sjálfstrausts og góðrar
einbeitingar verður aldrei ofmetið í
golfíþróttinni. Þá er fróðleikur um
kylfur, en þær eru margar og mis-
munandi, um þjálfun og mataræði og
margt fleira sem tengist golfi.
Vefsíðan www.golfkennsla.is
Morgunblaðið/Ómar
Golf Það er margt sem þarf að hafa í huga í golfi.
Fyrir áhugafólk um golf
Ingveldur Geirsdótttir
ingveldur@mbl.is
Í kvöld hefst alþjóðlegafjalla- og útivistarkvikmyn-dahátíðin BANFF Mountain
Film Festival í Bíó Paradís. Það
er Íslenski alpaklúbburinn í sam-
starfi við 66°Norður og Íslenska
fjallaleiðsögumenn sem stendur
fyrir hátíðinni sem er árlegur
viðburður og nær nú yfir tvö
kvöld.
„Þessi hátíð hefur verið hald-
in með hléum í gegnum árin.
Undanfarin tvö ár hefur hún ver-
ið hálfgerð kúbbahátíð í einkasal.
En nú erum við komin með
BANFF aftur í bíó, stærri en hún
hefur verið og opna fyrir allan
almenning,“ segir Atli Pálsson
formaður Íslenska alpakúbbsins.
Hann segir að myndirnar á
hátíðinni ættu að höfða til
margra. „Það er rosalegt sjón-
arspil að horfa á þessar myndir
og eru þær frábær skemmtun
fyrir alla sem unna útivist en
ekki síður fyrir þá sem vilja
fylgjast með úr fjarska og kjósa
örugg og þægileg sæti,“ segir
Atli og hlær.
BANFF er alþjóðleg kvik-
myndahátíð sem er haldin í Kan-
ada ár hvert. Þar eru verðlauna-
myndirnar valdar og þær eru svo
sýndar úti um allan heim. Það
sem verður sýnt á hátíðinni hér
heima er úrval af bestu mynd-
unum af stóru hátíðinni að sögn
Atla, en fimmtán myndir verða
sýndar á þessum tveimur kvöld-
um.
„Alpaklúbburinn er félag
áhugamanna um fjallamennsku
og jaðaríþróttir sem tengjast
fjallamennsku og það er nákvæm-
lega það sem myndirnar fjalla
um. Það eru skíða- og snjó-
brettamyndir, myndir sem fjalla
um fjallahjól, klifur, kajak, base
jump og fleira. Það eru líka yf-
irleitt ein til tvær grínmyndir þar
sem er verið að gera grín að
sportinu og svo eru líka djúp-
stæðar, listrænar myndir þar sem
er verið að pæla í tilgangi lífsins
og öðru léttmeti,“ segir Atli.
Engar íslenskar myndir eru sýnd-
ar í ár. „Við stefnum frekar að
því að hafa íslenska fjallamyn-
dahátíð í framtíðinni en það er
aðeins verið að gera svona mynd-
ir hér heima.“
Fjalla- og útivistarmyndir
Rosalegt
sjónarspil
Hraði Teton Gravity við tökur á Light the Wick.Úti Atli Pálsson, formaður Íslenska alpaklúbbsins.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.