Morgunblaðið - 17.05.2011, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 17.05.2011, Qupperneq 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. MAÍ 2011 Félagsmiðstöðvarnar á Vest- urgötu 7 og Vitatorgi halda sameiginlega fjölbreytta hand- verkssýningu og skemmtun dagana 19.-21. maí. Opið verð- ur frá 13-16:30 alla dagana. Veislukaffi verður framreitt kl. 14:30-16:30 og sérstakir við- burðir hefjast kl. 15. Á fimmtudeginum syngur kór félagsstarfs aldraðra undir stjórn Gróu Hreinsdóttur, á föstudeginum sýnir starfsfólk heildverslunar- innar Logy dömutísku sumarsins og á laugardeg- inum leikur Vitatorgsbandið fyrir dansi. Sigurgeir Björgvinsson verður við flygilinn. Handverksfólk verður með söluborð. Handverk Handverkssýning á Vitatorgi Teppi Ýmis verk verða til sýnis. Nú stendur í Suðsuðvestur sýn- ing á teikningum Margrétar H. Blöndal. Á sýningunni, sem ber yfirskriftina Slíður (The Heart is a Lonely Hunter) eru teikn- ingar frá því í vinnustofudvöl Margrétar í Laurenz Haus Stiftung í Basel í Sviss veturinn 2010-2011. Margrét hefur útbú- ið sérstaka umgjörð um teikn- ingarnar sem eru allar í sömu stærð, eins konar hulstur, og er hverri teikningu rennt inn um rifu á kantinum á gegnsæjum kassa. Suðsuðvestur er á Hafnargötu 22, Keflavík. Opið er um helgar frá kl. 14 til 17 og eftir samkomulagi í síma 662 8785. Sýningunni lýkur 5. júní. Myndlist Slíður Margrétar í Suðusuðvestur Margrét H. Blöndal ADHD kemur fram á fjórðu tónleikum tónleikaraðar Jazz- klúbbsins Múlans í Norræna húsinu annað kvöld kl. 21:00. ADHD skipa þeir Óskar og Ómar Guðjónssynir, Óskar leikur á saxófón en Ómar á gít- ar, Davíð Þór Jónsson píanó- leikari og Magnús Trygvason Elíassen trommuleikari. Hljómsveitin fór í hljóðver í febrúar sl. og tók upp sína aðra breiðskífu og hyggst spila efni af væntanlegum diski í bland við eldra efni. Múlinn er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistarmanna (FÍH) og Jazzvakningar í sam- starfi við Norræna húsið. Tónlist ADHD leikur í tónleikaröð Múlans Óskar Guðjónsson Alþjóðabarnabókaráðið, IBBY, veitti á sunnudag svonefndar Vor- vindaviðurkenningar við athöfn sem haldin var í Gunnarshúsi. Við- urkenningarnar hlutu Agnieszka Nowak og Vala Þórsdóttir fyrir pólsk-íslensku bókina Þankaganga – Myslobieg sem kom út á síðasta ári, Margrét Örnólfsdóttir fyrir margþætt menningarstarf í þágu barna, sérstaklega skáldsögurnar tvær um Aþenu sem komu út árin 2009 og 2010, Norræna húsið fyrir barnadagskrá árið um kring og hljómsveitin Pollapönk fyrir barna- tónlist. Vorvindaviðurkenningar IBBY hafa verið afhentar árlega frá árinu 1987. Elías Snær Einarsson og Freydís Balbina tóku við viðurkenningunni fyrir hönd Agnieszku Nowak og Pia Viinikka var fulltrúi Norræna hússins. Viðurkenning Margrét Örnólfs- dóttir, Haraldur F. Gíslason, Heiðar Örn Kristjánsson, Elías Snær Ein- arsson, Arnar Þór Gíslason, Freydís Balbina Aradóttir og Pia Viinikka. Vorvinda- viður- kenningar  Alþjóðabarna- bókaráðið veitir viðurkenningar Árni Matthíasson arnim@mbl.is Mikil gróska hefur verið í dans- listum hér á landi undanfarin ár sem skrifast eflaust að miklu leyti á þá uppbyggingu sem verið hefur í Listaháskóla Íslands frá því þar hófst kennsla í samtímadansi. Nú í vor útskrifast níu nemendur sem dansarar af samtímadansbraut Listaháskólans og sl. föstudag frum- sýndu þeir tvö ný dansverk sem þeir unnu í samstarfi við danshöfundana Tony Vezich og Sveinbjörgu Þór- hallsdóttur. Verkin eru The Genius of the Crowd og How did you know Frankie? Sýning Vezich, The Genius of the Crowd, byggist á tækni sem dans- ararnir stunda öll námsár sín við skólann og kallast „Release the Beast“ og þróuð af Vezich. Verk Sveinbjargar, How did you know Frankie? er leikhússkotið dansverk sem er unnið út frá dauðasyndunum sjö. Dansarar í báðum sýningunum eru Austeja Vilkaityte, Ásrún Magn- úsdóttir, Kara Hergils, Marie Bergby Handeland, María Þórdís Ólafsdóttir, Lea Vendelbo Petersen, Lotta Suomi og Þyri Huld Árnadótt- ir. Eins og fram kemur voru verkin frumsýnd sl. föstudag, en tvær sýn- ingar eru eftir á þeim, á mið- vikudagskvöld kl. 20.00 og á fimmtu- dagskvöld á sama tíma. Verkin eru sýnd í Gaflaraleikhúsinu, Strand- götu 50, Hafnarfirði. Ásrún Magnúsdóttir er ein flytj- enda og hún segir að það sé spenn- andi að vera komin út í raunveru- leikann eftir að hafa stundað námið undanfarin ár. „Þetta hefur gengið mjög vel hjá okkur og við höfum fengið góðar undirtektir. Raunveru- leikinn er spennandi og hann er líka skemmtilegur og ekkert svo hræði- legur,“ segir hún og hlær við. „Mað- ur verður að hafa trú á því sem mað- ur er að gera og þá fer allt vel.“ Hún segir að verkin tvö séu mjög ólík og því bæði skemmtileg fyrir flytjendur og áhorfendur. „Í fyrra verkinu fáum við að spreyta okkur á leiktexta, enda er leikriti blandað saman við dansinn, og það er góð áskorun þar sem við erum ekki leik- konur og verðum því að vera vel með á nótunum. Seinna verkið er svo lík- amlegt, kraftmikið dansverk, mjög erfitt og mjög gefandi. Við höfum verið að vinna í „Release the Beast“ eftir Tony síðastliðin þrjú ár og af- raksturinn er í fjörutíu mínútna verki sem er mjög erfitt líkamlega, maður verður að sleppa sér alger- lega, en samt vita nákvæmlega hvað maður er að gera. Eftir á erum við líka algerlega búnar.“ Ljósmynd/Jón Þorgeir Kristjánsson Skemmtilegt Frá sýningu útskriftarnemenda af samtímadansbraut Listaháskóla Íslands í Gaflaraleikhúsinu í Hafnarfirði. Leikhússkotin kraftmikil líkamstjáning Leikur og dans » Níu danskonur útskrifuðust frá samtímadansbraut Listaháskólans um daginn. » Auk þeirra koma fjórtán manns að sýningunni í Hafn- arfirði.  Útskrift frá samtímadansbraut Á miðvikudagskvöldið kl. 21 flytur kórinn ný verk eftir Hörð Bragason og Sigtrygg Berg Sigmarsson auk eldri verka eftir Magnús Pálsson í Nýlistasafninu. Á efnisskránni eru „Angelmonky“ eftir Hörð Bragason, „Talningarvél“ eftir Hörð Bragason og Magnús Pálsson, „Jarðarniður“ eftir Hörð Bragason, „Stjórnand- inn“ eftir Sigtrygg Berg Sigmarsson og „3 þættir úr Freyskötlu“ eftir Magnús Pálsson. Nýlókórinn eða Íslenski hljóðljóð- akórinn (The Icelandic Sound Po- etry Choir) var stofnaður 2003 og fæst við flutning hljóðljóða. Kórinn er ekki raddkór í hefðbundnum skilningi, en kórfélagar eru að stofni til starfandi myndlistarmenn, en einnig hafa lagt honum lið leikarar, dansarar og fleiri lista- og áhuga- menn. Stjórnendur kórsins hafa frá upphafi verið Snorri Sigfús Birg- isson og Hörður Bragason, en Hörð- ur er nú aðalstjórnandi kórsins. Nýlókórinn var stofnaður 16. júní 2003 að undirlagi Magnúsar Páls- sonar, en hann var með sýningu í Nýlistasafninu í tengslum við Listahátíð 2002 og á opnun sýning- arinnar var flutt fyrsta verkefni kórsins, gjörningurinn „Bílatal“ eft- ir Magnús. Í kjölfarið flutti kórinn verk eftir danska listamanninn Erik Andersen. Verkið var flutt af Nýló- kórnum og kór Grafarvogskirkju og hófst í Nýló, síðan fram haldið í Hólavallakirkjugarði og lauk í Nes- kirkju, en áheyrendur voru fluttir á milli staða í rútu. Kórinn hefur komið fram á Fjöl- ljóðahátíðinni í Reykjavík 2006 (PPF Polipoetryfestival), tvisvar á Listahátíð í Reykjavík og tvisvar á listahátíðinni Sequences. Hann hef- ur flutt margvísleg verk eftir inn- lenda og erlenda höfunda; Magnús Pálsson, Philip Corner, Eric And- ersen, Kristin G. Harðarson, Rúrí, Hörpu Björnsdóttur, Ástu Ólafs- dóttur, Eiríksínu Ásgrímsdóttur og Áka Ásgeirsson. Nýlókórinn í Nýlistasafni Hljóðljóð Nýlókórinn eða Íslenski hljóðljóðakórinn er ekki raddkór í hefð- bundnum skilningi. Kórfélagar eru að stofni til starfandi myndlistarmenn.  Kórinn flytur ný verk eftir Hörð Bragason og Sigtrygg Berg Sigmarsson auk eldri verka eftir Magnús Pálsson Á morgun halda Baldur J. Bald- ursson og Kristján Guðjónsson út- skriftartónleika sína í Sölvhóli, tón- listarsal Listaháskólans, en þeir útskrifast með MA-gráðu í tón- smíðum frá tónlistardeild Listahá- skólans í vor. Tónleikarnir hefjast kl. 20.00. Á tónleiknum verða frumflutt verkin Four Themes eftir Baldur Jó- hann og Kvika fyrir hljómsveit eftir Kristján Guðjónsson. Einnig verður flutt verk Kristjáns Leysingar fyrir hörpu og píanó. Four Themes byggist að stórum hluta á rannsóknum tengdum loka- verkefni Baldurs sem fjallar um að hámarka þá upplifun sem tónlist getur veitt við spilun fjölspilunar tölvuleikja. Flutningur er bæði lif- andi sem og leikin af diski. Forritið Calmus sér um að semja hluta verksins eftir fyrirfram gefnum for- sendum. Kvika fyrir hljómsveit var samið haustið 2010. Verkið er einþátt- ungur sem skiptist í meginatriðum í tvo efnishluta og Coda þar sem fyrri hlutinn stendur fyrir náttúruna eða landið en hinn síðari, þar sem und- irliggjandi er þjóðlagið Ísland far- sælda frón, fyrir einstakling og þjóð. Sölvhóll, tónleikasalur Listahá- skólans, er á horni Klapparstígs og Skúlagötu. Útskriftartón- leikar í Sölvhóli  Frumflutt verk eftir Baldur J. Baldursson og Kristján Guðjónsson Baldur J. Baldursson Kristján Guðjónsson Þetta er hátíð kvik- mynda en líka hátíð mannlegs eðlis 32 »

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.