Morgunblaðið - 31.05.2011, Síða 8

Morgunblaðið - 31.05.2011, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2011 Sólskálar Smi›sbú› 10 | 210 Gar›abær Sími: 554 4300 | www.solskalar.is hf -sælureitur innan seilingar! Krókhálsi 11 · 110 Reykjavík Sími 590 2100 · askja.is Eigum nokkur eintök af vel með förnum Sorento, frá kr. 1.850.000 - 3.690.000 - bensín eða dísil. Verð frá kr. 1.850.000 3.500 kg dráttargeta Opið virka daga frá kl. 9-18 Eigum nokkra sérlega sparneytna Kia cee’d dísilbíla, árg. 2008, ekna í kringum 50-60.000 km. Verð: kr. 2.190.000 notaðra bíla ÚRVAL Allt að 70% fjármögnun Olli Rehn var háttskrifaður hér álandi fyrir nokkrum miss- erum, ekki síst í Umsóknar og að- lögunarráðuneytinu við Rauðarár- stíg.    Enda var Olli„stækkunar- stjóri“ ESB, en það er sá maður sem ráðuneytið og Sam- fylkingin eiga mest undir á hverjum tíma.    Nú hefur Olli gjaldmiðilssam-starfið í ESB á sínum snærum og þar er enn þá meira fjör en í stækkunarstjórastarfinu.    Lengi vel neitaði Olli Rehn einsog allir aðrir hjá ESB að nokk- ur maður hefði orðað það að Grikk- ir köstuðu evrunni og tækju á ný upp drökmuna sem var nógu góð fyrir Alexander mikla og næstu 2500 árin þar á eftir.    En eftir að gríski kommissarinnviðurkenndi að úrsögn úr evru kæmi vissulega til greina gat meira að segja fyrrverandi stækk- unarstjóri ekki lengur neitað stað- reyndum og er þá langt gengið.    En Olli Rehn hélt sig í vörninni.Hann svaraði Der Spiegel þannig: „Ég lít ekki á brotthvarf úr myntsamstarfinu sem alvarlegan kost. Það mundi skaða grískan efnahag og verða bakslag fyrir evr- ópska samrunaþróun. Evran er meira en mynt; hún er mikilvæg- asta pólitíska áætlun bandalags okkar (central political project of our community). Það er einnig af þeim ástæðum sem við myndum ekki samþykkja gríska úrsögn.“    Var einhver að tala um fullveldi? Olli Rehn Olli ræður STAKSTEINAR Veður víða um heim 30.5., kl. 18.00 Reykjavík 9 léttskýjað Bolungarvík 3 alskýjað Akureyri 4 skýjað Kirkjubæjarkl. 5 rigning Vestmannaeyjar 9 léttskýjað Nuuk 2 léttskýjað Þórshöfn 8 skýjað Ósló 15 skýjað Kaupmannahöfn 18 heiðskírt Stokkhólmur 20 heiðskírt Helsinki 15 léttskýjað Lúxemborg 27 heiðskírt Brussel 27 heiðskírt Dublin 12 léttskýjað Glasgow 13 léttskýjað London 17 skýjað París 26 heiðskírt Amsterdam 27 heiðskírt Hamborg 27 heiðskírt Berlín 30 heiðskírt Vín 25 léttskýjað Moskva 22 heiðskírt Algarve 18 skýjað Madríd 22 léttskýjað Barcelona 22 léttskýjað Mallorca 22 léttskýjað Róm 23 léttskýjað Aþena 23 léttskýjað Winnipeg 12 skýjað Montreal 23 léttskýjað New York 26 heiðskírt Chicago 28 heiðskírt Orlando 30 léttskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 31. maí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:26 23:26 ÍSAFJÖRÐUR 2:46 24:15 SIGLUFJÖRÐUR 2:27 24:00 DJÚPIVOGUR 2:45 23:05 Haldið var upp á 150 ára afmæli kirkjunnar sem nú stendur í Lög- mannshlíð á Akureyri í hátíðarmessu á sunnudaginn. Vígðir þjónar Glerár- kirkju þjónuðu en Jón A. Baldvins- son, vígslubiskup á Hólum, predik- aði. Talið er að frá upphafi byggðar, jafnvel frá því snemma eftir kristni- töku, hafi staðið kirkja syðst í Kræk- lingahlíð þar sem Lögmannshlíðar- kirkja er nú. Í pistli á heimasíðu Glerárkirkju segir Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni að þar hafi aldrei verið prests- setur heldur hafi jörðin, og þar með kirkjan, verið eign bænda. „Það var svo á fyrri hluta 16. aldar að jörðin ásamt nærliggjandi jörðum [sem saman voru kallaðar Lög- mannshlíðartorfan] komst í eigu Jóns Arasonar biskups. Helga dóttir hans eignaðist svo jörðina og hélst Lögmannshlíð í eigu afkomenda hennar fram á 17. öld. Þegar núver- andi kirkja var byggð árið 1860 var jörðin í eigu Þorsteins Daníelssonar á Skipalóni,“ segir Pétur Björgvin. Frá árinu 1981 hefur Lögmanns- hlíðarkirkju verið þjónað af prestum í Glerárprestakalli. Hún er reyndar lítið notuð, en þó messað þar ein- staka sinnum og prestar nota kirkj- una undir athafnir sé þess óskað. Haldið upp á að núverandi kirkja í Lögmannshlíð hefur staðið þar í 150 ár Hátíðar- stund í kirkjunni Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Hátíð Séra Arna Ýrr Sigurðardótti upp við altarið, sitjandi til vinstri Jón Aðalsteinn Baldvinsson vígslubiskup á Hólum og séra Gunnlaugur Garðarsson sóknarprestur og hægra megin Pétur Björgvin Þorsteinsson djákni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.