Morgunblaðið - 31.05.2011, Page 30

Morgunblaðið - 31.05.2011, Page 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2011 Morgunblaðið/Sigurgeir S Gaman Antonía Hevesi og Jóhann Friðgeir Valdimarsson búa sig undir tón- leika í Hafnarborg þar sem fluttar verða íslenskar söngperlur. Árni Matthíasson arnim@mbl.is Á morgun verða haldnir í Hafnar- borg í Hafnarfirði síðustu hádegis- tónleikarnir að sinni, en þá syngur Jóhann Friðgeir Valdimarsson ís- lenskar söngperlur við undirleik Antoníu Hevesi undir yfirskriftinni Síðasta lag fyrir fréttir. Tónleikarn- ir, sem eru ókeypis að vanda, eru öll- um opnir og hefjast kl. 12:00. Antonía Hevesi segir að á dagskrá tónleikanna séu uppáhaldslög Jó- hanns og hennar, „eintóm íslensk sönglög og perlur sem flestir kann- ast við, lög sem hæfa röddinni hans Jóa, hans stóru og hljómfögru rödd“. Antonía er ungversk, útskrifuð úr F. Liszt-tónlistarakademíunni í Búdapest með mastersgráðu í kór- stjórn og sem framhaldsskólakenn- ari í söng- og hljómfræði. Hún stundaði síðan orgelnám í Austurríki við Tónlistarháskólann í Graz, en hefur búið hér á landi undanfarin ár og starfar sem orgel- og píanó- meðleikari og æfingarpíanisti við Ís- lensku óperuna. Frábær vettvangur Antonía hefur haldið hádegistón- leika í Hafnarborg í níu ár og þá allt- af með einsöngvurum sem sungið hafa helst óperu- og óperettutónlist, en líka stöku sinnum íslenska ljóða- tónlist. Tónleikarnir, sem haldnir eru einu sinni í mánuði yfir veturinn, eru alltaf í boði Hafnarborgar og Hafnarfjarðarbæjar og ókeypis inn. „Þetta verða síðustu tónleikarnir í vor, en við byrjum svo aftur í sept- ember. Þetta er frábær vettvangur fyrir fólk sem vill hlusta á stórsöngv- ara landsins, hvort sem þeir búa hér eða í útlöndum. Ég fylgist vel með þeim sem starfa í útlöndum og gríp þá þegar þeir koma í heimsókn. Ég er í raun með miklu fleiri kandídata í huga en komast fyrir, enda er rosa- lega mikið úrval, Íslendingar eiga svo mikið af frábærum söngvurum.“ Það er í nógu að snúast fyrir Ant- oníu, enda leikur hún á fimm tón- leikum í vikunni, lék undir á kórtón- leikum í Dómkirkjunni í gærkvöldi, leikur á tónleikunum með ÓP- hópnum í Salnum í kvöld og annað kvöld í Keflavík, í Hafnarborg í há- deginu á morgun og svo á tónleikum með Tenórunum 3 og einum í útrás í Hörpu á föstudagskvöld. „Það er því nóg að gera og mjög gaman,“ segir hún og hlær. Síðasta lag fyrir fréttir  Síðustu hádegistónleikar vorsins í Hafnarborg  Jóhann Friðgeir syngur íslenskar einsöngsperlur Vortónleikar Tónlistarfélags Borgarfjarðar verða haldnir í Borgarneskirkju á fimmtudag, uppstigningardag, og hefjast klukkan 16:00. Á tónleikunum flytja Selma Guðmundsdóttir píanóleikari og Sigrún Eðvaldsdóttir fiðlu- leikari verk eftir Kreisler, Paganini, Schubert, Brahms, Webern, Sarasate og Atla Heimi Sveinsson. Selma og Sigrún hafa leikið reglulega saman frá árinu 1986 og gefið út tvær geislaplötur, Cantabile (1991) og Ljúflingslög (1992). Í sumar halda þær í tónleikaferð til Kína. Tónlist Vortónleikar Tón- listarfélagsins Atli Heimir Sveinsson Skáldsaga Óttars M. Norð- fjörðs, Sólkross, er komin út á spænsku undir heitinu La cruz solar. Óttar M. Norðfjörð fór utan til að kynna bókina á bókakaupstefnunni Fería del Libro í Madríd um síðustu helgi, en hátíðin er stærsta bókahátíð sinnar tegundar á Spáni. Óttar var í viðtölum hjá mörgum helstu fréttaveitum landsins um helgina, þar á meðal El Mundo, næst- stærsta dagblaði landsins, og Radio Nacional, stærstu útvarpsstöð landsins. Röð myndaðist jafnframt við bás hans á hátíðinni þar sem hann áritaði bókina. Bækur Sólkross gefinn út á spænsku Kápa La cruz solar. Óp-hópurinn heldur tónleika í Salnum í dag kl. 18:00. Á efnis- skránni eru atriði úr Sour Ange- lica eftir Puccini, Carmen eftir Bi- zet, Aida eftir Verdi, Spaðadrottningunni eftir Tsjæ- kovskíj og atriði úr íslenskum verkum eftir meðal annars Þór- unni Guðmundsdóttur og Jón Ás- geirsson. Tónlistin er flutt með léttum sviðsetningum og sam- söngsleik. Óp-hópinn skipa þau Bragi Jónsson bassi, Bylgja Dís Gunnars- dóttir sópran, Erla Björg Kára- dóttir sópran, Hörn Hrafnsdóttir messósópran, Jóhanna Héðins- dóttir messósópran, Magnús Guð- mundsson barítón og Rósalind Gísladóttir messósópran. Antonía Hevesí leikur á píanó og Gunnar Kristmannsson leikur á klarínett í einu íslensku verkanna. Leikstjóri er Jóhann Smári Sævarsson. Síðdegistón- leikar Óp- hópsins Samsöngur ÓP-hópurinn heldur síðdegistónleika í Salnum. C-sveit Skólahljómsveitar Austur- bæjar heldur tónleika í Háteigs- kirkju í kvöld kl. 20:00. Á efnisskránni er blanda af ís- lenskum verkum og popp og rokk- lögum, s.s. Sprengisandur, íslensk rímnadanslög, syrpa af lögum Þursaflokksins, Led Zeppelin, Sir Duke og Espana Cani. C-sveitin heldur í tónleikaferð til Frankfurt í næstu viku og heldur þar fimm tón- leika. C-sveit Skólahljómsveitar Aust- urbæjar vann til verðlauna á Nót- unni, uppskeruhátíð tónlistarskól- anna. Stjórnandi sveitarinnar er Vilborg Jónsdóttir. Tónleikar C- sveitarinnar Út er komin bókin Á af- skekktum stað sem byggð er á samtölum Arnþórs Gunnars- sonar sagnfræðings við sex Austur-Skaftfellinga. Bókinni er ætlað að gefa lesendum til- finningu fyrir sögu og þróun mannlífs í Austur-Skaftafells- sýslu frá því á árunum milli stríða fram til dagsins í dag. Viðmælendur eru hjónin Álf- heiður Magnúsdóttir og Gísli Arason, Ingibjörg Zophoníasdóttir á Hala í Suðursveit, Þorvaldur Þorgeirsson og feðgarnir Sigurður Bjarnason og Einar Rúnar Sigurðsson á Hofsnesi í Öræfum. Hólar gefa bókina út. Bækur Mannlíf í Austur- Skaftafellssýslu Á afskekktum stað. Þorsteinn er gefinn fyrir hroll- vekjur, en hann skrifar þó alls- kyns sögur og segist reyna við allt. „Það er ágætis æfing fyrir alla rithöfunda, hvort sem þeir eru að taka fyrstu skref eða lengra komnir, maður lærir ekk- ert nema maður ögri sér dálítið.“ arnim@mbl.is Fyrir stuttu kom út hrollvekju- safnið Myrkfælni, smásagnasafn með ellefu sögum eftir Þorstein Mar. Þessari fyrstu bók höfundar, sem Rúnatýr gefur út, er lýst svo að í henni rekist lesendur á ýms- ar furður og fólk, jafnt úr fortíð sem nútíð. Sumt má útskýra, ann- að ekki. Draugar og hvers kyns óvættir birtast mönnum, leiða þá á villigötur og vekja óhug.“ Þó að þetta sé fyrsta bók Þor- steins Mars hefur hann fengist við ritsmíðar alllengi, skrifað smásögur sem birst hafa í Vik- unni og Mannlífi og tekið þátt í smásagnakeppnum eftir því sem færi hefur gefist og þá með góð- um árangri. Hann var þannig í þriðja sæti í hrollvekjusamkeppni Hins íslenska glæpafélags, öðru sæti í samkeppni rithrings.is og sigraði svo í ástarsagnakeppni Vikunnar síðasta sumar. Að sýna en ekki segja Það kemur því ekki á óvart að Þorsteinn hefur dálæti á smá- sagnaforminu, en það er þó ekki það eina sem hann fæst við. „Ég dúlla mér líka við lengri sögur, nóvellur og skáldsögur en smá- sagan hentar mjög vel í hroll- vekjur og margir forvígismenn hrollvekjunnar skrifuðu smásög- ur fyrst og fremst. Það er þessi leikur með að sýna en ekki segja, það er ekkert vandamál að skrifa endalaust um það að fólk fái hroll og upplifi hitt og þetta en kúnstin að láta lesandann upplifa það sem er hryllilegt. H.P. Lovecraft sagði að óttinn við hið ókunna væri öflugasti ótt- inn og ég hef verið að leika mér með að skoða hið ókunna, það þegar við vitum ekki hvað er að gerast, kunnum ekki skil á því og getum ekki útskýrt það.“ Myrkfælni er ekki bara fyrsta bók Þorsteins Mars heldur er hún líka fyrsta bók útgáfunnar, Rúna- týs, sem Þorsteinn stofnaði ásamt fjölskyldu sinni, meðal annars til að gefa þessa bók hans út. „Ég hef reynt að fá útgáfu hjá öðrum, en þó ég hafi fengið mjög góð svör, þá er eins og útgáfurnar forðist að gefa út bækur sem eru stimplaðar hrollvekjur. Ég held þó að hrollvekjan lifi góðu lífi, fullt af fólki les hrollvekjur og þannig var metsölubókin hennar Yrsu hrollvekja þó hún hafi ekki verið markaðssett sem slík.“ Af ofangreindu má ráða að Hrollvekjan lifir góðu lífi Morgunblaðið/Sigurgeir S Ótti Rithöfundurinn Þorsteinn Mar, höfundur hrollvekjusafnsins Myrkfælni: „Maður lærir ekkert nema maður ögri sér dálítið.“  Þorstein Mar sendir frá sér sína fyrstu bók  Smásagnasafn með ellefu hrollvekjum Djass, sálartónlist, blús og ljóð eru á meðal þess sem Scott-Heron fékkst við 31 »

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.