Morgunblaðið - 31.05.2011, Page 36

Morgunblaðið - 31.05.2011, Page 36
ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 151. DAGUR ÁRSINS 2011 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550 1. Börðu stúlku þar til hún missti … 2. Skar undan nauðgara 3. Glæsibifreið í björtu báli 4. Í g-streng í vegarkanti »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Arabíski hesturinn, nýjasta hljóð- versplata teknósveitarinnar GusGus, fær fimm stjörnur í dómi Arnars Egg- erts Thoroddsen um gripinn. Hann lofar þessa „einstöku sveit“ og má vart mæla af hrifningu. »33 Ný plata GusGus fær fullt hús hjá rýni  Íslenska tattú- festivalið eða The Icelandic Tattoo Convention verð- ur haldið hátíð- legt næstu helgi. Þetta er í sjötta sinn sem festi- valið fer fram hér á landi. Svakaleg- ir listamenn koma til landsins til að flúra landann og hægt er að panta tíma á Sódómu Reykjavík. Meira um þetta á facebook-síðu Reykjavik Ink. Það fá sér allir húðflúr um helgina  Hljómsveitin Thin Jim and the Castaways fer í fyrstu heimsókn sína í Salthúsið í Grindavík en þar mun sveitin troða upp. Hljómsveitin er í úrslitum Bob Dylan-tökulagakeppn- innar á Rás 2 með lagið Just like a woman og er við það að leggja lokahönd á fyrstu plötu sína. Tónleikarnir verða haldnir 1. júní kl. 21:00. Spila í Salthúsinu í allra fyrsta sinn Á miðvikudag Austan og norðaustan 8-13 m/s og víða rigning. Hægari síðdegis og úrkomulítið sunnantil. Hiti 5 til 12 stig. Á fimmtudag (uppstigningardagur) Breytileg átt og úrkomulít- ið, en suðlæg átt og vætusamt seinni partinn, einkum sunnantil. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan og suðaustan 5-13, hvassast og rign- ing sunnanlands en annars úrkomulítið. Hiti kringum frostmark í innsveitum norðanlands í nótt en annars 2 til 12 stig. VEÐUR FH-ingar nálgast efstu liðin í Pepsi-deild karla eftir sigur á Stjörnunni, 3:0, í Kaplakrika í gærkvöld, þar sem ýmislegt gekk á. Ingimundur Níels Óskars- son lyfti Fylki upp í fjórða sætið þegar hann skoraði sigurmarkið gegn Keflavík, 2:1, rétt fyrir leikslok. Grindvíkingar fundu skot- skóna, skutu Þórsara í kaf í fyrri hálfleik og sigruðu 4:1. »2-4 FH nálgast efstu liðin í deildinni Sænska knattspyrnufélagið IFK Gautaborg seldi í gær landsliðs- manninn Ragnar Sigurðsson til dönsku meistaranna FC Köbenhavn fyrir 130 millj- ónir króna. „Þetta er klár- lega skref fram á við hjá mér,“ sagði Ragnar Sigurðsson við Morg- unblaðið en litlu munaði að hann færi til Club Brugge í Belg- íu. »1 Seldur til FC Köbenhavn fyrir 130 milljónir Leikmenn og þjálfarar íslenska lands- liðsins í handknattleik kvenna voru vonsviknir eftir eins marks tap fyrir silfurliði síðasta Evrópumeistara- móts, Svíum, í síðari vináttulandsleik þjóðanna í gærkvöldi. Ágúst Jó- hannsson landsliðsþjálfari segist vera ánægður með margt í leik ís- lenska liðsins þegar skammt er þar til það leikur í undankeppni HM. »2 Eins marks tap fyrir silfurliði Evrópumótsins ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Nýjasta íslenska varan í versl- unum Whole Foods Market í Bandaríkjunum er þurrkaður þari og söl frá fyrirtækinu Hafnotum í Grindavík, sem framleiðir vörur sínar undir vöruheitinu Seaweed Iceland. Fyrsta sending fer að öll- um líkindum utan í dag og til sölu í öllum verslunum keðjunnar í Bandaríkjunum, en Whole Foods Market selur eingöngu sjálfbært framleidda matvöru. Það var fyrir milligöngu Baldvins Jónssonar í Washington sem keðjan tók ís- lenska þarann til sín en fyrir er hún með í sölu ýmsa íslenska mat- vöru eins og skyr, osta, kjöt, fisk, vatn og súkkulaði. „Þetta er að sjálfsögðu gleðiefni fyrir mann og ákveðin meðmæli með vörunni,“ segir Grettir Hreinsson, stofnandi og eigandi Hafnota, en Whole Foods fékk fyrstu prufu af þaranum frá Ís- landi fyrir um ári. Stóðst varan all- ar gæðaprófanir verslunarinnar en um er að ræða hráefni í hvers kyns matargerð, t.d. gott út í súp- ur og salöt, einnig kjöt- og fisk- rétti og í bakstur. „Þetta skerpir bragðið af matn- um og er meinholl náttúruafurð,“ segir Grettir, sem stofnaði fyrir- tækið fyrir fjórum árum. Áður hafði hann lengi vel gengið með þá hugmynd í maganum að þurrka þara til manneldis. Kom hann sér upp viðeigandi búnaði en þarinn er þurrkaður í sérhönnuðum þurrk- klefa. Grettir hefur að mestu staðið einn í þessu og unnið vöruna allt frá söfnun á þara í fjöruborðinu til vinnslu, pakkningar og sölu. Vegna samningsins við Whole Foods þarf hann að bæta við fólki í sumar. „Neytendur hafa ekki þekkt þessa vöru mjög vel en það breytist hægt og bítandi,“ segir Grettir en hann hefur verið að selja þurrkaðan þara og söl hér á landi í rúmt ár og gefist ágætlega. Hafa sölin selst best. Ef vel gengur í verslunum Whole Foods vonast Grettir til að auðveldara verði að markaðssetja vöruna á öðrum mörkuðum. Hann ætlar sér þó að flýta sér hægt, ekki síst þegar um viðkvæma nátt- úruvöru er að ræða sem getur tek- ið breytingum eftir tímabilum. „Ég er ekkert að leita að fjárfestum með óraunhæfar arðsemiskröfur,“ segir Grettir og brosir. MAukinn áhugi á íslenskum … » 14 Íslenskur þari í Whole Foods  Fyrsta sending frá Gretti í Hafnotum utan í dag í 320 verslanir Whole Foods Ljósmynd/Kristinn Benediktsson Sprotafyrirtæki Grettir Hreinsson, eigandi Hafnota í Grindavík, með af- urðirnar í neytendapakkningum, á leiðinni vestur um haf til Whole Foods. Baldvin Jónsson hefur undanfarin ár unnið við það í Washington og víðar að markaðssetja íslenskar matvörur í Bandaríkjunum. Hann segir áhuga á þessum vörum sí- fellt aukast. Í heild geti kynning- arverkefnið Sjálfbært Ísland hafa skilað um sjö milljónum dollara í sölu á síðasta ári, eða rúmum 800 milljónum króna á núverandi gengi. Stefnt er að sölu á þessu ári upp á átta til níu milljónir dollara, eða fyrir um einn milljarð króna. Íslenska skyrið hefur slegið í gegn í verslunum Whole Foods og þar seljast nú um tuttugu þúsund dósir á viku. Ostar eru einnig til sölu, kjöt- og fiskafurðir frá Ís- landi, vatn frá Icelandic Glacial og súkkulaði frá Nóa-Síríus. Stefnt að sölu fyrir milljarð ÍSLENSKAR VÖRUR Í VERSLUNUM WHOLE FOODS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.