Morgunblaðið - 14.06.2011, Side 32
ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 165. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Eru Kardashian-systurnar búnar?
2. Katrín mætti í gamalli kápu …
3. Sakfelldur fyrir að níðast á kind
4. Andersson: Veit ekki hvað gerðist
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Áttunda Vitraun Kormáks og
Skjaldar verður haldin á Ölstofunni í
kvöld. Sem fyrr eru einn til sex í liði
og spurningar í fimm flokkum, en lið-
ið sem lendir í öðru sæti fær þátt-
tökugjaldið endurgreitt.
Morgunblaðið/Eyþór
Áttunda Vitraun
Kormáks og Skjaldar
Skúli mennski
og hljómsveitin
Grjót, ásamt
söngkonunni Þór-
unni Örnu Krist-
jánsdóttur, blása
til brakandi búgí-
veislu á Rósen-
berg í kvöld og
hefst hátíðin
klukkan 21:00. Aðstandendur plöt-
unnar BÚGÍ!, sem er væntanleg til
landsins 20. júní, kynna efnið.
Skúli mennski með
brakandi búgíveislu
Heimildarmyndin Jón og séra Jón
eftir Steinþór Birgisson fékk Ein-
arinn, áhorfendaverðlaun Skjaldborg-
arhátíðarinnar, sem fór fram á Pat-
reksfirði um helgina.
Hátíðin fór nú fram í fimmta sinn
og hefur fest sig í sessi á
meðal kvikmyndagerð-
armanna. Um 300 gestir
sóttu hátíðina og
yfir 20
heimild-
armyndir
voru frum-
sýndar. »
28
Myndin Jón og séra
Jón verðlaunuð
Á miðvikudag
Norðaustan 8-13 m/s. Bjartviðri að mestu sv-lands, annars víða
skýjað og rigning eða súld á köflum. Hiti 5 til 15 stig, hlýjast sv-til.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Úrkomulítið víðast hvar, en skýjað að mestu. Hiti 5 til 13 stig, hlýj-
ast sv-lands.
VEÐUR
Ekki er ljóst hver mun stýra
kvennalandsliðinu í hand-
knattleik þegar það spilar í
fyrsta skipti í úrslitakeppni
heimsmeistaramótsins í
Brasilíu í desember. Samn-
ingar við Ágúst Jóhannsson
og Einar Jónsson runnu út
eftir seinni leikinn við Úkra-
ínu á sunnudag. „Það hafa
ekki átt sér stað neinar al-
varlegar viðræður,“ sagði
Ágúst við Morgunblaðið í
gær. »2
Óvíst hver stýrir
liðinu í Brasilíu
Sunnudagurinn var stór fyrir íslensk-
an handknattleik því bæði A-lands-
liðin tryggðu sér sæti í lokakeppni
næstu stórmóta. Karlalandsliðið
burstaði Austurríki og verður í 3.
styrkleikaflokki á morgun þegar
dregið verður í riðla á EM í Serbíu og
kvennalandsliðið fór létt með að
verja 19 marka forskot í Úkraínu og
leikur í fyrsta skipti í lokakeppni
heimsmeistaramótsins. Það fer fram
í Brasilíu í desember. »1, 2, 4, 5
Stór sunnudagur í
íslenskum handbolta
Ragna Ingólfsdóttir lagði fram kvört-
un eftir úrslitaleik alþjóðlega bad-
mintonmótsins í Litháen á sunnudag-
inn. Þar fékk hún silfurverðlaun eftir
tap gegn Chloe Magee í úrslita-
leiknum en gult spjald sem hún fékk
hafði mikil áhrif á þróun mála hjá
Rögnu. „Yfirdómarinn var sammála
mér og sagði dómarann óreyndan,“
sagði Ragna við Morgunblaðið. »6
Kvörtun frá Rögnu eftir
úrslitaleik í Litháen
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Andri Karl
andri@mbl.is
Hjartaskurðlækningar hafa verið
stundaðar á Íslandi í 25 ár. Ná-
kvæmlega 25 ár því 14. júní 1986
var fyrsta aðgerðin framkvæmd.
Þar var um að ræða kransæða-
skurðaðgerð á 62 ára gömlum
manni. Hún tókst svo vel að Val-
geir G. Vilhjálmsson – við hátíðleg
tilefni nefndur Valgeir fyrsti – er
sprelllifandi, 87 ára að aldri.
Sá sem stýrði aðgerðinni var
Þórarinn Arnórsson, sérfræðingur
á Landspítala. Hann fluttist árið
áður aftur heim til Íslands frá Sví-
þjóð þar sem hann gerði fjölmarg-
ar hjartaskurðaðgerðir á Akadem-
iska sjúkrahúsinu í Uppsala.
Þórarinn var því reyndasti hjarta-
skurðlæknir á Íslandi og af þeim
sökum fenginn til verksins. En
þótt aðgerðirnar hafi verið margar
áður er dagurinn Þórarni enn
mjög eftirminnilegur.
Þórarinn segir að ekki hafi þurft
langan tíma til að telja Valgeir á
að gangast undir hnífinn hér á
landi. „Nei, það þurfti eiginlega
alls ekki. Jafnvel má segja að hann
hafi mjög gjarna viljað láta fram-
kvæma aðgerðina hérlendis. Hann
hafði einnig á orði að hann hefði
litlar áhyggjur þar sem við mynd-
um ábyggilega vanda okkur með
fyrsta manninn.“
Aðgerðin gekk afar vel og Val-
geir var fljótur að ná sér. Síðan þá
hafa um tvö hundruð opnar hjarta-
aðgerðir verið gerðar árlega að
meðaltali hér á landi; og eru í dag
orðnar um fimm þúsund tals-
ins. Þórarinn segir Ísland
liggja frekar hátt í al-
þjóðlegum samanburði
þegar kemur að fjölda
aðgerða miðað við
höfðatölu, og mest hafi
um 270 opnar hjartaað-
gerðir verið gerðar
á ári.
Vart þarf að fjölyrða um hvaða
þýðingu það hafði að hefja aðgerð-
ir af þessum toga hér á landi en
áður fóru menn til útlanda til að
leita sér lækninga. „Þetta var
verulegt mál fyrir sjúklinga, að
ferðast langa vegu og koma svo
hingað heim viku, kannski tíu dög-
um eftir aðgerð með flugi. Í stað
þess eru þeir hér með fjölskylduna
sér við hlið og allan stuðning, auk
þess auðvitað að tala málið. Þannig
að þetta breytti geysilega miklu.“
Gríðarlegar framfarir hafa orðið
í læknisfræðinni frá því fyrsta að-
gerðin fór fram og skurðtæknilega
séð ráða skurðlæknar við mun
flóknari aðgerðir en áður. Og ekki
er vanþörf á, því breytingar urðu
einnig á sjúklingahópnum. „Breyt-
ingarnar á Íslandi eru þær sömu
og um allan hinn vestræna heim;
fólk sem fer í aðgerðir er að eldast
og hefur meðalaldurinn hækkað
um tíu ár,“ segir Þórarinn og bæt-
ir við að með eldri sjúklingum
aukist vandamálin. „Þannig að
þetta eru að jafnaði verulega
þyngri aðgerðir sem verið er að
gera í dag.“
„Breytti geysilega miklu“
Hjartaaðgerð fyrst
framkvæmd hér á
landi fyrir 25 árum
Morgunblaðið/Golli
Sérfræðingur Þórarinn Arnórsson var valinn til að framkvæma fyrsta hjartauppskurðinn á Íslandi, fyrir 25 árum.
Þórarinn Arnórsson fær að sjálf-
sögðu heiðurinn af að hafa stýrt
fyrstu hjartaskurðaðgerðinni hér á
landi, en þá eins og nú kemur fjöldi
fólks að slíkum aðgerðum. Viktor
Magnússon stjórnaði hjarta- og
lungnavélinni en aðrir í teyminu
voru Hörður Alfreðsson, Hans Erik
Hansson, Grétar Ólafsson, Kristinn
B. Jóhannsson, Hjörtur Sigurðsson,
Magnús Guðmundsson, Eiríkur
Benjamínsson, Herdís Alfreðs-
dóttir, Rut Sigurðardóttir, Helga
Þóra Kjartansdóttir, Halldóra Jóns-
dóttir, Valgerður Jónsdóttir og Mar-
grét Jónasar.
Í fyrstu eftir aðgerðina 14. júní
1986 voru aðeins gerðar krans-
æðaskurðaðgerðir en mjög fljót-
lega var einnig farið að gera
hjartalokuaðgerðir. Síðar komu inn
flóknari aðgerðir og þá bæði á
ungbörnum, börnum og full-
orðnum. Meðal þeirra aðgerða sem
teknar voru upp hér á landi eru
ígræðslur á grindarlausum líf-
rænum ósæðarlokum, krans-
æðaskurðaðgerðir á sláandi hjarta
án hjarta- og lungnavélar, viðgerðir
í völdum tilvikum á ósæðarlokum,
viðgerðir frekar en skipti á mít-
urloku hjartans, lokusparandi að-
gerðir við ósæðargúl, viðgerðir á
þriggjablöðkuloku hjartans, hjálp-
arhjartaígræðslur til skamms tíma
og til lengri tíma við hjartabilun,
brennslur með útvarpsbylgjum og
örbylgjum auk frystingar við gátta-
tifi og lagfæring á holubrjósti með
brjóstholsspeglun.
Aðeins þarf að senda örfáa sjúk-
linga úr landi til meðferðar og er þá
aðeins um að ræða þá sem haldnir
eru mjög sjaldgæfum sjúkdómum
sem eingöngu eru meðhöndlaðir á
fáum stöðum í heiminum.
Fleiri og flóknari teknar upp
FJÖLDI FÓLKS KOM AÐ FYRSTU AÐGERÐINNI
Valgeir G.
Vilhjálmsson