Morgunblaðið - 18.07.2011, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 18.07.2011, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 2011 20 09 JEEP GRAND CHEROKEE LAREDO 3,7L ÁRG. 2009, ek. 19 þús. km., 5 dyra, ssk., 17” krómfelgur, leðursæti, topplúga, loftkæling, filmur, rafm í sætum, cruise o.fl. Möguleg skipti á ódýrari. Verð 6.490 þús. Bílabúð Benna - Notaðir bílar Bíldshöfða 10 - 587 1000 - benni.is Sérfræðingar í bílum María Ólafsdóttir maria@mbl.is „Þetta eru æðisleg dýr og eru stærstu kettir sem fyrirfinnast en þeir verða alveg 10 til 12 kíló. Ætli næstu kettir fyrir ofan séu ekki bara fjallaljón,“ segir María Björk Sverrisdóttir söngkona um katta- tegundina Maine coon sem farið er að bera á hér á landi. Maine coon er sérstök tegund katta sem eru mun stærri en hefðbundnir heim- iliskettir. Á vefsíðu um Maine coon- ketti á Íslandi segir að fyrsti kött- urinn hafi komið hingað til lands ár- ið 2003. Síðan þá hefur eitthvað verið um slíka ræktun hérlendis en María Björk er ein þeirra sem nú hyggjast rækta Maine coon-ketti. Fluttir inn frá Svíþjóð „Þessir kettir eru dálítið ólíkir hinum hefðbundnu að því leyti að þeir hegða sér eiginlega meira eins og hundar. Þeir elta mann út um allt og það er alveg sama hvar mað- ur er heima, þeir liggja alltaf og horfa á mann. Þetta eru aðdáendur númer eitt, tvö og þrjú,“ segir María Björk í léttum dúr þegar blaðamaður slær á þráðinn til henn- ar til að forvitnast um þessa sér- stæðu kattategund. „Það á að vera hægt að þjálfa þá meira en auðvitað eru kettir alltaf kettir. Við erum t.d. búin að vera í miklum framkvæmdum í garðinum okkar núna til að loka honum svo þeir komist ekki út. Það þýðir nátt- úrlega ekki að segja þeim að þeir megi ekki eitthvað. Þessir kettir eru líka mjög gæfir og ef það kemur hundur í heimsókn þefa þeir bara af honum og eru ósköp rólegir. Þeir hvæsa ekki og kippa sér yfirleitt lít- ið upp við það sem gerist,“ segir María Björk sem á tvo Maine coon- ketti, Pjakk og Pílu. En slíkir kettir hérlendis eru sérvaldir frá Svíþjóð. Vilja taka þá með sér heim Pjakkur er geltur en hins vegar mun Píla fá að eignast kettlinga. Verðið á slíkum kettlingi er í kring- um 100 til 120.000 krónur. Kettling- arnir eru á stærð við fullvaxta hefð- bundna ketti. „Það er vandi að vera alltaf að koma með nýtt blóð til sögunnar þegar ræktað er í svona litlu sam- félagi. Þess vegna eru okkar sér- valdir til að geta ræktað þá hér og fylgst með því t.d. að hjartað sé sterkt og beinabyggingin góð. Það er mikið eftirlit með þessu. Ég var í raun ekki mikil kattamanneskja fyrr en ég fékk Pjakk og Pílu en nú tala ég um kettina mína eins og börnin mín. Það vilja líka allir bara taka þá með sér heim sem koma til okkar,“ segir María Björk. Stærstu kettir sem fyrirfinnast  Hyggst rækta kattategund sem verður allt að 10 til 12 kíló Stór María Björk Sverrisdóttir með annan Maine-coon köttinn sinn sem er engin smásmíði. Þessir kettir eru óvenju stórir en þeir verða allt að 10 til 12 kg. að þyngd og hafa verið ræktaðir hér á landi síðan árið 2003. spurði þá t.d. hvort við gætum feng- ið eitthvað að borða og þeir sögðust ekki geta gert neitt fyrr en þeir næðu í Express. Það sama er að segja um hótelstarfsmennina.“ Mattíhas segir þá hjá Iceland Ex- press skoða málið á næstu dögum og taka svo ákvörðun um það hvort far- þegum verði bætt ferðin. Samkvæmt ónákvæmum upplýs- ingum frá Astreus, sem leigir Ice- land Express vélar sínar, voru gerð- ar athugasemdir við viðhaldsmál og vantaði tvær skrúfur í eitt af mörg- um stjórnborðum; þéttikantur á hurð var skemmdur en virkaði þó, eðlilegt notkunarslit á hreyfli sem þurfti að lagfæra og sprunga í vél- arhlíf hreyfilsins. Athygli vekur að fjallað var um málið í frönskum fjöl- miðlum. Farþegum og Matthíasi ber ekki saman  Kyrrsetja þurfti vél Iceland Express Morgunblaðið/Ernir Kyrrsett Flugvélin var ekki talin flughæf af yfirvöldum í Frakklandi. Kyrrsett » Flugvélin var ekki talin flug- hæf af yfirvöldum í Frakklandi. » Ókunnugt fólk var látið hír- ast saman á litlum hótelher- bergjum. » Gerðar voru athugasemdir við viðhald á flugvél Astreus. » Fjallað var um málið í frönskum fjölmiðlum. FRÉTTASKÝRING Janus Arn Guðmundsson janus@mbl.is Við tilviljunarkennda athugun franskra flugmálayfirvalda á flugvél Iceland Express sem átti að fara frá Charles De Gaulle-flugvellinum í París til Íslands á föstudaginn var vélin kyrrsett. Flugvélin var ekki talin flughæf af yfirvöldum í Frakk- landi með þeim afleiðingum að far- þegum seinkaði um meira en einn sólarhring. Farþegunum var komið fyrir á hóteli, eftir langa bið á vell- inum, og að sögn þeirra var illa að hlutunum staðið þar, m.a. var ókunnugt fólk látið hírast saman á litlum hótelherbergjum. Farþegum var svo flogið heim aðfaranótt sunnudagsins með flugfélaginu Finn Air. Að sögn Matthíasar Imsland, framkvæmdastjóra Iceland Ex- press, var vélin kyrrsett vegna bil- unnar í París. Farþegar eru æva- reiðir og segist Matthías skilja það. „Ég kem til með hitta farþega í dag og fara yfir þetta mál,“ segir Matt- hías, en þegar það var borið undir Önnu Rakel Ólafsdóttur, einn far- þeganna sem lentu í atvikinu, hafði hún ekki fengið neitt fundarboð. Í kjölfarið á spurningu blaðamanns hafði hún samband við fólk sem var um borð í vélinni og hafði það sömu sögu að segja. Jafnframt talaði Matthías um að sms-skilaboð hefði verið sent á alla farþegana, en Anna segist ekki hafa heyrt um neinn sem fékk smáskila- boð eða tölvupóst þar sem látið var vita af stöðu mála. „Þetta var sent út úr kerfinu hjá okkur, við þurfum að kanna af hverju þau komust ekki til skila. Við höfum líka heyrt í farþeg- um sem fengu sms á föstudaginn,“ segir Matthías. Matthías segist harma það að ókunnnugt fólk hafi þurft að gista saman í herbergjum, en það væru mistök hjá fyrirtækinu sem þjón- ustar Iceland Express. Matthías segist nú íhuga að segja því þjón- ustufyrirtæki upp. Anna hefur hins vegar aðra sögu að segja. „Upplifun mín gagnvart flugvallarstarfsmönn- unum sem þjónusta Iceland Express var sú að þeir voru allir af vilja gerð- ir og ég veit til þess að þeir biðu eftir skipunum frá Iceland Express. Ég Söluferli bresku matvörukeðjunnar Iceland, sem er að mestu í eigu skila- nefndar Landsbankans, hefst af full- um þunga í september. Þetta kom fram í breska dagblaðinu Sunday Ex- press í gær. Jafnframt að væntan- legir bjóðendur séu byrjaðir að und- irbúa tilboð sín í keðjuna sem á og rekur 800 verslanir í Bretlandi. Ráðgjafarfyrirtækið Ernst & Yo- ung kemur að gerð útboðsins en Landsbankinn réð Bank of America og UBS bankann til að aðstoða við söluferlið. Verða útboðsgögnin vænt- anlega tilbúin á næstu átta vikum. Meðal þeirra sem nefndir eru sem hugsanlegir kaupendur Iceland eru keppinautarnir Morrisons, Sainsbu- ry’s og Asda, sem er í eigu Wal-Mart. Eins hefur verið rætt um að eignar- haldsfélögin Apax og Lion Capital blandi sér í baráttuna. Stofnandi og forstjóri Iceland, Malcolm Walker, er þó með forkaupsrétt á þeim 77% sem til sölu eru. Hann á ásamt fleiri stjórnendum Iceland 23% hlut. Landsbankinn á 67% hlut í Iceland. Söluferli Iceland hefst af fullum þunga í september Morgunblaðið/Eyþór  Útboðsgögnin tilbúin á næstu átta vikum Iceland » Á blaðamannafundi með fulltrúum slita- og skilastjórna gamla Landsbankans í maí kom fram að stefnt væri að því að selja hlutinn í nóvember. » Bank of America og UBS bankinn mátu aðstæður góðar til sölu um þessar mundir. „Kettir eru einstaklingar svo það er eiginlega ekki hægt að svara því að allir kettir bregðist á einhvern hátt við ákveðinni tegund,“ segir Helga Finnsdóttir dýralæknir um það hvernig hefð- bundnum húsköttum komi saman við hina risavöxnu Maine coon-ketti. „Þeir eru ekki hópdýr þó þeir hafi ákveðna félagslega þörf og maður þarf því að undirbúa það að annar köttur komi inn á heimilið. Annars geta þeir tekið upp ýmsa ósiði eins og að merkja sér staði eða láta sig hverfa,“ segir Helga. Hún segir stærð Maine coon-kattanna leiða af sér ýmsa sjúkdóma sem aðr- ir kettir hafa ekki. Til að mynda mjaðmalos og liggi því við að þeir fái frekar sjúkdóma sem minni á hundasjúkdóma. Ólík viðbrögð hvers kattar SAMNEYTI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.