Morgunblaðið - 18.07.2011, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.07.2011, Blaðsíða 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 2011 Ársalir fasteignamiðlun og fyrirtækjasala Ef þú vilt selja, leigja eða kaupa fasteign eða selja eða kaupa fyrirtæki í rekstri, hafðu samband. Ársalir FASTEIGNAMIÐLUN Engjateigi 5, 105 Rvk 533 4200 Ársalir ehf fasteignamiðlun 533 4200 og 892 0667 arsalir@arsalir.is Engjateigi 5, 105 Rvk Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali Ófeigur hét maður Ófeigsson ættaður af Suðurnesjum. Hann var læknir að mennt og vann sér sess í sögunni þegar rannsóknir hans á kælimeðferð bruna- sára voru kynntar í við- urkenndum erlendum læknatímaritum. Góðar hugmyndir eru gjarnan einfaldar í eðli sínu og kveikjan að vinnu Ófeigs var húsráð sem móðir hans trúði á. Á þeim tíma voru húsráð ekki hátt met- in í læknisfræði enda af flestum álitin kerlingabækur. Húsráð húsfreyj- unnar af Vatnsleysuströnd dugir þó vel og er enn, hálfri öld frá kynningu, helsta ráð við húðbruna hér á landi. Kælingu hefur síðan einnig verið beitt sem úrræði vegna ýmissa ann- arra áverka. Telst það eðlileg þróun í heimi sem sífellt leitar betri lausna. Ófeigur er dæmi um mann sem hefur áhrif á gang sögunnar. Franski mannfræðingurinn Claude Lévi- Strauss taldi verkfræðilegt hugvit ráða sögulegri þróun. Í kenn- ingasmiðju Lévi-Strauss er Ófeigur verkfræðingur, þ.e. ingénieur. And- stæða sögulegrar þróunar sam- kvæmt Lévi-Strauss er goðsögnin. Hún lifir innan sögunnar í hóphegðun manna sem Lévi-Strauss kallar bricoleur eða reddara, þ.e. þeir sem nýta það sem til fellur en bæta engu við. Flúr og fettur í stað nýsköpunar verða þá heimkynni reddarans. Lévi- Strauss gerir ekki upp á milli þessara tveggja manngerða. Báðar þjóna til- gangi í samfélagi manna þar sem að- eins önnur skapar hreyfingu í annars stöðnuðu umhverfi. Þegar viðhorf reddaranna eru alls ráðandi stöðvast framrás sögunnar og samfélagið leit- ar sér skjóls í goðsögninni. Þessi stöðnun var á yfirgripsmikinn hátt dregin fram í umfjöllun Morg- unblaðsins fyrir skömmu þar sem reddarinn fékk að baða sig í sviðsljós- inu. Á heilli opnu í blaðinu var redd- arinn hafinn til vegs og virðingar þar sem bruna-„Sárið í hjarta Reykjavík- ur [var sagt] gróið“. Myndasmiðir blaðsins lögðu sig fram um að gera frásögnina sem glæsilegasta og unga blaðakonan sem vann greinina var svo stálheppin að ná tali af „hæst- ánægðum“ vertum og vinnukonum sem dásömuðu framkvæmdirnar. Þakklátar eflaust örlátum borg- arfulltrúum fyrir að skaffa húsnæði á niðurgreiddu verði til að stunda sína starfsemi. Því verður ekki neitað að umhverfið við suðurenda Lækj- artorgs er snöggt um snyrtilegra en meðan framkvæmdirnar stóðu yfir, en telji menn að þarna sé verið að varðveita minjar vaða þeir í villu og reyk. Verður ekki séð að munur sé á þessari „varðveislu“ og því sem dreg- ur túrista í flokkum til Hafnarfjarðar í leit að vöskum víkingum á Fjöru- kránni. Íslenskri menningarelítu til mikillar armæðu. Engu að síður stendur þessi sama elíta í fylking- arbrjósti reddaranna sem tjasla nú saman fortíð sem aldrei var, svo koma megi í veg fyrir að Reykjavík fái nokkurn tímann risið undir nafni sem höfuðborg. Gaman væri að sjá framan í þann arkitekt sem gangast vill við þessum ósköp- um. Grunar mig að hver muni þá vísa á annan og miklu púðri eytt í að dásama fagmennsku ís- lenskra iðnaðarmanna (sem er jú óumdeild). En orðskrúð fær ekki réttlætt þetta bygging- arsögulega stórslys þar sem hvert stílformið treðst um annað; tittir og turnar, flísar og fuln- ingar, bíslög og bindingsverk hvert ofan á öðru. Aðeins eitt þessara húsa á rétt á sér í nútímaborg, en það er hið endurreista Nýja bíó. Þetta hús er hins vegar vandlega falið á bak við bindingsverkið sem tekur upp allt það rými sem nýta hefði mátt fyrir torg. Borgarbúum til gleðiauka. Þetta sérstaka staðarval síðmiðalda í miðbæ Reykjavíkur útheimtir nú stálgrindarhlið og ramma lása svo koma megi í veg fyrir næturlangar nauðganir í húsagarði „lands- yfirréttar“. Allt þetta og meira til leiddi frá- sögnin í blaðinu fram. Hins vegar var engin tilraun gerð til að grafast fyrir um orsök slysins. Hvergi minnst á óttann við pólitíska framtíð sem fékk reddarana til að hjúfra sig upp að for- tíðarþrá Ólafs F. og veita honum völd langt umfram fylgi. Þessi ótti náði fullum hæðum eftir bankahrunið þeg- ar reddararnir kusu yfir sig rík- isstjórn afdankaðrar hugmyndafræði sem nú er jafnvel að takast að draga máttinn úr sprekasöfnurum sínum. Í tilraun til að hrista af sér óværuna kusu svo Reykvíkingar að fullkomna goðsögn Lévi-Strauss og ganga tót- emismanum meðvitað á hönd. Redd- ararnir stilltu upp andstæðunum „náttúru“ (hið villta, góða) gegn „borg“ (hið skipulagða, illa) og fengu út synthesuna Besta flokkinn. Fyr- irbæri sem reynst hefur hvorki flokk- ur né bestur; aðeins hræddar sálir sem fela getuleysi sitt í trúðslátum og trumbuslætti. Arfur heybrókanna er nú öllum sýnilegur. Frá „brunasárinu“ við suð- urenda Lækjartorgs má virða fyrir sér stórhug horfinna kynlóða; húsin sem réttlæta staðsetningu höf- uðborgar í landnámi Ingólfs. Gamla Þjóðskjalasafnið og Þjóðleikhúsið voru stórvirki sem risu meðan þjóðin átti ekki bót á brók sína. Hæstiréttur, Arnarhváll og Seðlabankinn mynda svo tengingu við Hörpu sem rís eins og Venus úr froðu hafsins. And- spænis þessu er svo framlag redd- aranna til byggingarsögunnar; gervi- veröld gengins tíma. Lokun gatna er nú stórviðburður og opnun þeirra aft- ur enn stærri. En ófeigir finnast eng- ir í ríki reddaranna. Sagan og goðsögnin Eftir Ragnhildi Kolka Ragnhildur Kolka »Uppbygging bruna- reitsins er ekki varðveisla minja heldur gerviveröld gengins tíma. Grindverk getu- leysis byrgir reddur- unum sýn til framtíðar- innar. Höfundur er lífeindafræðingur. Þegar skoðaðar eru tölur frá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófasts- dæma má sjá að bálför- um hefur stórlega fjölgað á síðustu árum. Það er því eðlilegt að huga að umbúnaði okk- ar hinstu jarðnesku leifa, um leið og þessi nýja jarðsetningarleið færist í vöxt. Þau duft- ker sem fást hér á landi eru innflutt og af nokkrum gerðum. Fyrir um áratug keypti ég eitt slíkt og fannst liggja beinast við að hafa það úr vistvænu efni. Mig undraði að ekki skyldu fást duftker úr íslensk- um viði þar sem þá þegar var að skapast þörf fyrir úrvinnslu á timbri úr íslenskum skógum.Á und- anförnum áratug hefur sú hugmynd lifað með mér, að fátt væri betur við- eigandi en að jarða sína nánustu í umbúnaði úr íslenskum skógum og að duftker væru tilvalin í þeim efn- um. Til þeirra þarf ekki sama við- armagn og í líkkistu og þau þurfa mun minna rými í kirkjugarði. Þegar svo er komið að margir af elstu kirkjugörðum okkar eru fullgrafnir, er því einnig tímabært að huga að landnýtingarsjónarmiðum og sjálf- sagt að huga að þeirri hagkvæmni að hafa marga í minni reit. Hér geta því hæglega farið saman þau góðu gildi; hófsemi og nýtni, að vitbættri þeirri vistvænu sýn að nota forgengilegt efni af okkar eigin landi. Nú stendur yfir Alþjóðlegt ár skóga. Af því tilefni þykir tilvalið að hvetja til smíði duft- kera úr íslenskum viði. Það er verðugt að rækta tré sem eiga eft- ir að breytast í umbún- að um ástvini fólks – og viðeigandi að halda á lofti þeim góðu gildum sem við rifjuðum upp eftir „hrunið“. Á vef ársins www.ar- skoga2011.is stendur nú yfir kynning á sam- keppni um gerð duft- kera úr íslenskum skógviði. Skógræktendur um land allt hvetja hagleiksmenn og -konur til að kynna sér keppnina og taka þátt. Vinningar eru ekki af verri end- anum. Ef vel tekst til munum við geta notið afrakstursins, bæði lífs og liðin. Með íslenskum duftkerum sparast gjaldeyrir og landrými, um leið og nýting íslenskra skóga verður betri en hingað til. Þá gætu sem best einhver störf orðið til í kjölfarið, ef vel tekst til. Kerin má gera úr grönn- um eða sverum trjástofnum. Allt eft- ir efniviðnum. Þau geta verið gróf- gerð eða fíngerð, með trjáberki eða án og mismunandi unnin á allan hátt. Frelsi til sköpunar er því leið- arljós keppninnar – og allir eiga möguleika á að láta ljós sitt skína. „að jörðu skaltu aftur verða…“ Eftir K. Huldu Guðmundsdóttur » Það er eðlilegt að huga að umbúnaði okkar hinstu jarðnesku leifa, um leið og fjöldi bálfara færist í vöxt. Karólína Hulda Guðmundsdóttir Höfundur er skógar- og kirkjubóndi, Fitjum Skorradal. Mannskepnan kom seint fram og er ekki búin að vera ýkja lengi á jörðinni sé horft til ýmissa forvera hennar í þróuninni. Hins vegar hefur hún erft ýmislegt frá þeim eins og hend- urnar frá öpunum, hár- ið frá köttunum og út- limina frá skjaldbökunum. Ein- hver skilgreindi hana síðan sem þrasgefna og árásargjarna dýrateg- und. Á steinöld og mörgum árþús- undum fyrr er talið að með- alævilengd mannsins hafi ekki verið lengri en 15-17 ár. Á tímum Róm- verja og Grikkja er meðalævilengdin orðinn 22 ár. Fyrir 2.000 árum er áætlað að ríflega 320 milljónir manna hafi verið á jörðinni en eru nú um 7.000 milljónir og fjölgar ógn- vænlega hratt. Nokkru eftir mið- aldir er meðalævilengd kominn í 30 ár í nokkrum löndum Evrópu. Er svartidauði geisaði á 14. öld er talið að um helmigur íbúa Evrópu hafi látist, en þá dó einkum fólk með veiklað ónæmiskerfi. Sama skeði með bóluna og berklana á 18. og 19. öld. Þeir sem lifðu af þessar skæðu plágur voru því einkum ein- staklingar með sterkt ónæmiskerfi og tók þá meðalævin að lengjast hratt eftir það, fyrst í þróunar- og iðnaðarlöndunum. Sýklalyfin hafa bara rúmlega hálfrar aldar sögu og áttu því lítinn þátt í að lengja með- alævina fyrst í stað. Það sem í dag, eftir að barnadauða er að mestu út- rýmt, hefur mest áhrif á með- alævilengdina eru slys, smit- sjúkdómar og aðrir krónískir sjúkdómar. Inflúensa smitar 10-20% heimsbyggðarinnar ár hvert og dregur til dauða allt að hálfa milljón manna árlega. Skæðari inflúensur sýkja 30-50% á heimsvísu og er spænska veikin frá 1918 dæmi um slíka skæða flensu, en um 50 milljónir dóu úr henni að talið er. Við, sem náum háum aldri í dag, eigum flest fullt í fangi með að halda í heils- una. Engin töfraform- úla virðist til! Ein aðalfrumþörf okkar er næring til að viðhalda líkams- starfseminni. Hér er maðurinn verr settur en ýmis önnur lífsform sem hafa náð velgengni í fjölgun og útbreiðslu með því að melta næringuna utan við líkama sinn og taka bara þau réttu og nauðsynlegu efni til sín. Við neyð- umst til að neyta fæðunnar með ýmsum aðskotaefnum, eiturefnum og sýklum til að fá þau efni sem við þurfum. Þetta gerir okkur erfitt fyr- ir við að halda fullri heilsu og sífellt meira þarf heilsugæslan að koma okkur til hjálpar, sér í lagi eftir því sem ævin lengist. Mannkynið sér þegar fram á vandamál með að brauðfæða sig vegna offjölgunar og vaxandi fátæktar sem er oft vegna skorts á tækifærum til að sjá sér far- borða. Sé litið 100 ár til baka hér á landi má sjá að matarkostnaður sem er í dag um einn sjöundi útgjalda með- alheimilis var margfalt meiri fyrr- um, en húsnæðiskostnaður hefur meira en tvöfaldast og kostnaður við bílinn bæst við. Sem sé efnisgæðin hafa í dag margfaldan forgang pen- ingalega fyrir fæðunni og stjórna ferðinni. Fyrir 100 árum var maturinn að mestu óunninn og rotvarinn á ein- faldan hátt, loftþurrkun, söltun og niðurlagður í mjólkursýru og oft neytt ferskari en í dag enda engir ís- skápar sem hafa orðið almennings- eign síðustu 50 árin. Nú er maturinn að miklu leyti unninn í fjöldafram- leiðslu, sviptur snefilefnum og víta- mínum, rotvarinn með efnum og stundum bragðbættur með vara- sömum aðskotaefnum, oft innfluttur og langgeymdur, frystur eða kæld- ur, niðursoðinn eða niðurlagður, stundum bæði efna- og sýklameng- aður. Það sem gerir hann þó ódýran er magnframleiðslan. Þessi bylting í matvælaframleiðslu og framboði gerir hverjum og einum erfitt að sjá líkama sínum fyrir þeim 90-100 nauðsynlegu efnum í réttum hlut- föllum. En það er einmitt ein albesta tryggingin til að halda í heilsuna og um leið ónæmiskerfinu vel starfandi er að komast hjá vannæringu nauð- synlegra fæðuefna. Þeir svartsýn- ustu eru þeirrar skoðunar að haldi matarþróunin áfram á þessari braut sem er næsta einsýnt vegna örrar fjölgunar mannkynsins eigi það eftir að koma mannkyninu í koll og muni hreinlega tortíma því að lokum. Þótt meðalævi sé aldrei lengri en í dag víðast hvar, hefur þessi þróun einkum orðið sýnileg síðustu 100-150 árin. Ekki er gefið að mataræðið sé forsenda langrar meðalævi en það getur átt stóran þátt í góðri heilsu. Vannæring veldur hins vegar stytt- ingu ævinnar. Það bendir því flest til þess að um tvo kosti kunni að vera að velja í framtíðinni til að halda í heilsuna: Velja hollt en dýrt mat- aræði eða ódýrara verksmiðjuunnið mataræði með vaxandi aukakostnaði við heilsugæsluna vegna afleiðinga þess. Okkar er því víst valið! Að halda í heilsuna, það dýrmætasta sem við eigum Eftir Pálma Stef- ánsson » Að halda í heilsuna er erfitt vegna þró- unar matvælafram- leiðslu. Unninn matur er ódýr en við þurfum þá hjálp frá heilsugæsl- unni sem tekur sinn toll. Pálmi Stefánsson Höfundur er efnaverkfræðingur. Morgunblaðið birtir alla útgáfudaga aðsendar umræðugreinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni eða í bréfum til blaðsins. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra stofnana, fyrirtækja eða samtaka eða til að kynna við- burði, svo sem fundi og ráðstefnur. Innsendikerfið Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein“, valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Ekki er lengur tekið við greinum sem sendar eru í tölvupósti og greinar sem sendar eru á aðra miðla eru ekki birtar. Í fyrsta skipti sem formið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerf- ið, en næst þegar kerfið er notað er nóg að slá inn netfang og lykilorð og er þá notandasvæðið virkt. Móttaka aðsendra greina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.