Morgunblaðið - 18.07.2011, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 18.07.2011, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 2011 Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Í ár verður tónlistarhátíðin Inni- púkinn haldin í 10. skipti. Rekstrar- módelið hefur lítið breyst frá því hátíðin var fyrst haldin en fljótlega náði Innipúkinn að skapa sér sess sem merkileg tónlistarupplifun og algengast að heyra stemningunni lýst sem heimilislegri. Svavar Pétur Eysteinsson hefur verið viðriðinn hátíðina allt frá upp- hafi og er hluti af skipuleggj- endahópnum í ár. „Innipúkinn er ekki rekinn með gróðahugsjónina að leiðarljósi en við reynum að tryggja að allir sem að koma fái einhver laun fyrir vinnu sína. Ekki síst leggjum við áherslu á að bönd- in fái eitthvað fyrir sinn snúð en það er allt of algengt að íslenskar hljómsveitir séu að spila endur- gjaldslaust,“ segir Svavar og upp- ljóstrar að gróflega reiknað skipti listamennirnir á milli sín 70% af miðaverðinu á meðan afgangurinn fer í að greiða laun þeirra sem sjá um skipulagninguna. „Þetta hefur komið þannig út að hvert band fær yfirleitt á bilinu 50 til 100 þúsund krónur fyrir að troða upp. Við reynum að hafa yfirbygginguna sem allra minnsta og að láta lista- mennina fá sem mest.“ Lítið og notalegt Það er listræna hugsjónin sem hef- ur leitt Innipúkann á þá braut að vaxa ekki upp í risahátíð. Seldir miðar ár hvert hafa verið á bilinu 300 til 1.000 eftir því hvar hátíðin hefur verið haldin. Innipúkinn snýr nú aftur í Iðnó eftir nokkra fjar- veru sem aftur þýðir að miða- framboðið verður minna en síðasta ár þegar hátíðin fór fram á tveimur skemmtistöðum við Tryggvagötu. „Og við myndum ekki vilja hafa þetta mikið stærra því hluti af sjarma Innipúkans er þetta nána andrúmsloft sem skapast. Innipúk- inn hefur enga löngun til að vaxa,“ segir Svavar en í ár spannar hátíð- in þrjá daga. Að sama skapi er hátíðin ekki að keppa við aðrar hátíðir verslunar- mannahelgarinnar um listamenn því eins og Svavar lýsir þá er mest áhersla lögð á nýbylgjujaðarinn í poppinu. „Innipúkinn annars vegar og hátíðir eins og Þjóðhátíð í Eyj- um hins vegar eru jafn óskyldar og þær eru skyldar. Við höldum okkar verslunarmannahelgi hátíðlega á allt öðrum forsendum en flestir aðrir.“ Alltaf uppselt Rekstrarlega hefur Innipúkinn gengið nokkuð vel allt frá upphafi og miðasalan ekki verið erfið. „Sal- an hefst í fyrstu viku júlí og mjatl- ar yfirleitt allt fram að síðustu viku fyrir verslunarmannahelgi þegar salan tekur öfgakipp,“ segir Svavar og spáir því að margir bíði og sjái bæði hvert vinahópurinn stefnir og hvernig veðurspáin lítur út. „Ég held það sé mjög algengt að Íslend- ingar geri sín verslunarmannahelg- arplön á allra síðustu stundu.“ Á Innipúkanum þetta árið munu um 20 hljómsveitir troða upp. Tón- leikafyrirkomulagið er þannig að ný hljómsveit byrjar að spila á heila tímanum. „En þeim er í sjálfsvald sett hversu lengi er spil- að innan þess ramma. Sumir spila kannski bara í 20 mínútur eða hálf- tíma, á meðan aðrir eru að í 59 mínútur.“ Meðal vinsælla banda sem búið er að staðfesta í ár eru Apparat, Jónas Sigurðsson & ritvélar fram- tíðarinnar og Agent Fresco. „Við höfum það líka fyrir sið að egna saman ólíkum listamönnum af ólík- um kynslóðum og í ár eru það Eyj- ólfur Kristjánsson og hljómsveitin Valdimar sem ætla að leiða saman hesta sína. Síðan er gaman að nefna að Dúkkulísurnar ætla að spila hjá okkur, og verður örugg- lega „golden oldies“-stemning í kringum þær.“ Miðasalan tekur kipp síðustu vikuna  Segir Innipúkann ekki rekinn með gróðahugsjónina að leiðarljósi  Vilja ekki stækka til að missa ekki notalega andrúmsloftið  Veðurspá og vinahópurinn virðast ráða hvert fólk vill fara Morgunblaðið/Steinn Vignir Stjörnur Meðal margra framúrskarandi listamanna á Innipúkanum í ár má nefna organkvartettinn vinsæla Apparat. Morgunblaðið/Ernir Spes „Við höldum okkar verslunarmannahelgi hátíðlega á allt öðrum for- sendum en flestir aðrir,“ segir Svavar Pétur um andann á Innipúkanum. Ekki er mikið um aukatekjulindir í kringum Innipúkann og í ár er látið duga að rukka hátíðargesti um 4.500 kr. fyrir þriggja daga passa. „Veitingamenn á hverjum stað selja pulsur og gera það á eigin for- sendum. Sú sala sem við höfum ver- ið með á tónleikasvæðinu hefur helst verið á prentuðum bolum sem hafa þá alltaf selst upp og eru í dag oðrnir að nokkurs konar safn- gripum,“ segir Svavar. Bolirnir orðnir safngripir Teymið á bak við Innipúkann er ekki í fullu starfi við skipulagn- ingu hátíðarinnar heldur segir Svavar Innipúkann aðeins eitt af mörgum verkefnum sem ein- staklingar innan hópsins standa að og er þar margt í gangi í einu. „Við byrjum kannski fjór- um mánuðum fyrir sjálfa hátíð- ina að plotta og hittast. Inn í undirbúningstímann koma sum- arfríin og oft höldum við sam- bandi yfir netið og notum Skype til að funda á milli sumar- bústaða. Hver og einn tekur svo að sér ákveðið hlutverk; á með- an einn getur verið að safna styrktaraðilum fellur það í hlut annars að skipuleggja tónlistar- dagskrána.“ „Skæpa“ á milli sumarbústaða FJÖGURRA MÁNAÐA UNDIRBÚNINGSVINNA Stórar hjarðir jafnt ungra sem aldinna halda út á land í sumar til að skemmta sér á útihátíðum. Bjarni Guðjónsson, verslunarstjóri hjá Ellingsen, segir að salan á útileguvarningi fari yfirleitt vel af stað í byrjun júní. „Við fórum samt seinna í gang í ár en venjulega því sumarið kom seint. Um leið og sum- arblíðan kom um miðjan júní varð nóg að gera.“ Eldri viðskiptavinirnir segir Bjarni að leiti meira í þægindi húsvagnsins, fellihýsisins og tjaldvagnsins en þeir yngri velji að hafa tjaldið sína bæki- stöð á tónlistar- og bæjarhátíðunum. „Yngra fólkið er þá að leita að tjöldum sem eru bæði ódýr og rúmgóð. Vinsæl- asta tjaldið okkar er með svefnpláss fyrir 2-3 og kostar í kringum 20.000 kr. Raunar hefur salan á því tjaldi gengið svo vel að það er uppselt eins og stend- ur en við eigum von á nýrri sendingu strax eftir helgi.“ Sum nánast sjálf-tjaldandi Bjarni segir Ellingsen ekki selja „ein- nota tjöld“ eins og það er kallað og jafnvel þótt verðinu sé stillt í hóf ættu tjöldin, sem framleidd eru af banda- ríska fyrirtækinu Coleman, að geta enst lengi. Ef fólk er ekki of hrifið af fyrirhöfninni við að setja tjaldið upp og taka það svo niður aftur segir Bjarni hægt að skoða þann möguleika að fara frekar upp í verðflokki. „Dýrari tjöldin hjá okkur eru nánast sjálf-tjaldandi, og burðarstangirnar eru þræddar á sinn stað. Það tekur þá enga stund að tjalda eða pakka saman, og þarf varla nema að reka niður hælana.“ Salan er líka góð á ýmsum auka- hlutum til að gera ferðalagið þægi- legra. „Það þarf auðvitað góðan svefn- poka og dýnu. Síðan virðist okkur alltaf takast að klára lagerinn af tjald- hiturum, sama hvað við kaupum mikið inn,“ segir Bjarni en um er að ræða hitara sem tengdir eru við 2 kg gaskút, komið fyrir í fortjaldinu, og sjá þá til þess að engum þarf að vera of kalt ef hátíðarveðrið er ekki með allra besta móti. Engir blautir bakhlutar Í svefnpokunum er hægt að velja um allt frá ódýrum og einföldum pokum upp í dúnsvefnpoka sem kosta um og yfir 70.000 kr. Þó að ástin sé oft við völd á útihátíðunum segir Bjarni ekki mikið sótt í pokana sem geta haldið hlýju á tveimur í einu. Ein vara hefur þó rutt sér rækilega til rúms á síðustu árum og er nánast að verða skyldueign fyrir útihátíða- unnendur. „Sjóbuxurnar hafa verið að sækja mikið á og seldust í töluverðu magni í fyrra. Þetta eru sömu buxur og men nota um borð á fisk- veiðiskipum og með þeim getur fólk verið nokkuð öruggt um að haldast þurrt, og vera ekki með blautan bak- hluta í Brekkusöngnum.“ ai@mbl.is Sjóbuxurnar eru orðnar ómissandi  Mest sótt í ódýrari og rúmgóðu tjöldin fyrir útihátíðirnar  Tjaldhitarar vinsælir en minna selst af tveggja manna svefnpokum  Vel hægt að hafa þægindi eins og sjónvarp með dvd í útilegunni Morgunblaðið/ÞÖK Klárar Það er vissara að vera rétt búinn áður en haldið er af stað á útihútið. Þessum spræku stúlkum var ekkert að vanbúnaði þegar haldið var til Eyja. Útihátíðin þarf ekki að vera mikil þraut og þjáning ef rétti búnaður- inn er með í för. Liðin er sú tíð að útilega kalli á það að verða viðskila við lúxus borgarlífsins. Ellingsen er með mikið úrval af ríkulega útbún- um fellihýsum og húsvögnum þar sem allt er til alls. „Kælibox eru alltaf vinsæl, og sérstaklega þau sem hægt er að stinga í samband. Svo erum við að sjá góða sölu á sjónvörpum sem tengja má við 12 votta straum og eru með inn- byggðan dvd-spilara. Það er erfitt að vera ekki vinsælasti maðurinn á tjaldsvæðinu með eitt slíkt.“ Hægt að hafa allt til alls

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.