Morgunblaðið - 18.07.2011, Blaðsíða 24
24 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
„JÓLIN SEM ÞAU GLEYMDU AÐ
OPNA FYRIR STROMPINN”
MIG
VANTAR
HJÁLP!
ÞETTA ER NÚ
ORÐIÐ FREKAR
ÞUNNT
ÞETTA
KALLA ÉG
„RENNI
ÆFINGU”
ÉG VIL AÐ ÞIÐ RENNIÐ YKKUR
Í HÖFN EINS HRATT
OG ÞIÐ GETIÐ
ÞAÐ ER ALLTAF
EINN BRANDARAKARL
ÞAÐ ER SKÍTKALLT
ÚTI, ÉG VIL AÐ ÞÚ FARIR
Í FÖÐURLANDIÐ, SETJIR Á
ÞIG TREFIL, FARIR Í
ULLARSOKKA OG KLÆÐIR
ÞIG Í ÞYKKASTA STAKKINN
SEM ÞÚ ÁTT
EITT-
HVAÐ
FLEYRA?
JÁ, ÉG MÆLI MEÐ
ÞVÍ AÐ ÞÚ NÁIR ÞÉR Í
STIGA OG FARIR ÚT UM
STROMPINN
HVERNIG
ÆTLI VEÐRIÐ
SÉ ÚTI? ÉG
ÆTLA AÐ
ATHUGA ÞAÐ Í
SÍMANUM
MÍNUM
SVONA
LEYFÐU MÉR
AÐ ATHUGA
ÞAÐ FYRIR
ÞIG
ÞAÐ
ER
RIGNING
VIÐ KOMUM
KÖKUNNI EKKI ÚT UM
DYRNAR, MEIRA AÐ SEGJA
ÞÓ VIÐ TÖKUM HURÐINA
AF HJÖRUNUM
ÆI
NEI!
ÞÁ
VERÐUM
VIÐ BARA AÐ
HALDA
VEISLUNA
HEIMA HJÁ
OKKUR
EIGUM
VIÐ AÐ BIÐJA
UM AÐ VEISLAN
VERÐI HALDIN
HÉR ÚT AF
EINNI KÖKU?
ÞAÐ ER ÚT Í
HÖTT
EN
ÞETTA ER
STÆRSTA AFREK
LÍFS MÍNS
ÞÁ
ÞAÐ, ÉG
SKAL
HRING-
JA
FRÁBÆR
MYND,
PARKER!
JÁ, ÉG
VIÐURKENNI
ÞAÐ
ÞÚ
BAÐST UM
MYND AF
TVEIMUR
OFURKÖPPUM
KÓNGU-
LÓARMAÐURINN OG
SANDMAN, ÞETTA ER
FRÁBÆRT!
SVO EIN AUKA MYND AF
SKÚRKI AÐ NAFNI BIGSHOT
Forræðishyggjan
allsráðandi
Nú hefur fjármála-
ráðherra ákveðið að
Íslendingar sem
ferðast til útlanda
mega ekki taka með
sér meira en 350 þús-
und kr. ísl. í gjaldeyri.
Þarna er vinstri
grænum rétt lýst.
Forræðishyggjan er
allsráðandi og hönd
stóra bróður aldrei
langt undan. Þessi
forræðishyggja gegn-
sýrir allt þjóðlífið. Það
er sama hvar borið er
niður, hvort sem það varðar ýmis
boð og bönn sem atvinnulífið þarf að
búa við eða hinn almenni borgari.
Sjálfir glotta vinstri grænir við tönn
og láta sér fátt um finnast þó að
ýmsir búi við kröpp kjör og hafi
varla í sig og á. Er það þetta sem við
viljum? Er það þetta sem kjósendur
vinstri grænna vildu kjósa yfir sig?
Sigurður Guðjón Haraldsson.
Júní-samkomulagið
Sóknarstúlkan kom inn í bankann
sinn og spurði þjónustufulltrúann
hve mikla peninga hún þyrfti að eiga
til að kaupa sér tveggja herb. íbúð?
Henni var sagt að hún yrði að eiga
átta milljónir. Ég veit ekki hve lang-
an tíma það tekur fyrir fólk á lægstu
launum að safna fyrir þessari upp-
hæð. Merkilegustu
kjarasamningar sem
gerðir hafa verið voru
júní-samkomulagið
sem þeir gerðu doktor
Bjarni Benediktsson,
þá forsætisráðherra,
og forystumenn
Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar, þeir Eð-
varð Sigurðsson og
Guðmundur J. Guð-
mundsson sem stjórn-
aði verkafallsvörðum
og rússneskir komm-
únistar buðu til
Moskvu. En hver eyði-
lagði þetta merkilega
samkomulag? Nú
þurfum við nýtt júní-samkomulag og
við þurfum nýtt Breiðholt svo Sókn-
arstúlkur þurfi ekki að reiða fram
átta milljónir upp á grín til að hafa
þak yfir höfuðið. Hannes kallaði
Breiðholtið ljóta steinkumbalda, sbr.
Ný saga 1988, en svipað hefur nú
verið sagt um verkamannahverfin
austan múrs og vestan.
Jóhann Már Guðmundsson.
Myndafél fannst
Myndavél fannst 14. júlí síðastliðinn
við Grandaborg, vestur í bæ. Uppl. í
síma 867-6176.
Ást er…
… það sem fleytir ykkur
áfram í lífinu.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist FEBK er spiluð í Félagsheim-
ilinu í Gullsmára 13, mánudaga kl.
20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Skrif-
stofa félagsins verður lokuð frá 18. júlí
til 7. ágúst vegna sumarleyfa. Opnum
aftur 8. ágúst kl. 10.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postu-
línshópur kl. 9, ganga kl. 10, félagsvist
kl. 20.30, handavinnustofan opin frá kl.
9 til 16.
Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn-
arnesi | Kaffispjall í Króknum Skóla-
braut kl. 10.30, skemmtiganga frá Mýr-
arhúsaskóla kl. 13.30. Opin
handavinnustofa án leiðbeinanda.
Vatnsleikfimi kl. 18.30. Opinn púttvöllur.
Hraunbær 105 | Kaffi og blöð liggja
frammi, Púttvöllur er opinn alla daga.
Tímap. hjá Helgu fótafræðingi í síma
698-4938. Bónusbíll á þriðjud. kl. 12.15.
Hárgreiðslustofan opnuð eftir sum-
arleyfi 18. júlí, tímap. í síma 894-6856.
Hvassaleiti 56-58 | Opið kl. 8-16. Há-
degisverður kl. 11.30, brids kl. 13 og
kaffi kl. 14.30.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó á æf-
ingasvæðinu við Kópavogslæk kl. 13.
Uppl. í síma 554-2780 og á www.glod.is
Kerlingin á Skólavörðuholtinutjáir sig reglulega um lífið og
tilveruna á fésbókinni. Fyrir hálf-
um mánuði setti hún inn athuga-
semd eða tjásu, eins og það er kall-
að á mjólkurfernum, um að það
hefði verið leiðinlegt um helgina og
bætti við:
Öl- sat ég yfir krús á krá
með kengfullum drykkjusvínum
er Laugavegskarlinn, lúmskur hjá
lullaði í hægðum sínum.
Hjarta mitt óþörf sló þá slög.
Hann sléttur var, penn og þveginn,
sprækur og hávær, sperrtur mjög,
en spéhræddur engan veginn.
Ég sem var bæði kennd og kát,
kallaði á fjárans þrjótinn,
viðhafði hvorki gaum né gát
og gaf honum undir fótinn.
Bannsettur delinn bauð mér drykk
og blíðlega við mig kjáði,
og ég þessi bjálfi, kræf og klikk
kröftuga glundrið þáði.
Við barinn var fátt og engin ös
svo áfram var djammi haldið.
Minn kavaler nokkur keypti glös
og kokgleypti innihaldið.
Ég tautaði innra „fokking fokk“.
Það fór af mér spenna og asi,
er biðillinn þyrsti, bráður nokk
bætt á sig öðru glasi.
Að liðinni stundu, leið ég sá
að lágt var hans risið orðið.
Já, sauðurinn þessi, svei mér þá,
sofnaði fram á borðið.
Ævintýr varð því ekki neitt
úr þessu að heitið getið.
Krossbölvandi ég klukkan eitt
klöngraðist ein í fletið.
Það lá betur á kerlu er hún skrif-
aði á fésbókina 11. júní að nú væri
gott á Skólavörðuholtinu:
Á rassi mínum sit ég soldið hreif,
sátt og róleg, eftir bestu vonum,
þar túristarnir tölta í kringum Leif
og taka myndir, bæði af mér og honum.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af karlinum
og kerlingunni
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is