Morgunblaðið - 18.07.2011, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 18.07.2011, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 2011 Oddný G. Harðardóttir, formað-ur fjárlaganefndar, hitti nagl- ann á höfuðið þegar hún svaraði spurningu um það hvers vegna ekki væru veittar upplýsingar um verðið við einkavæðingu Byrs: „Það er sjálf- sagt einhver ástæða fyrir því.“ Þessi þingmaður Sam- fylkingarinnar vildi ekki ræða þetta nánar og það er sjálfsagt einhver ástæða fyrir því líka. Og auðvitað eru líka ýmsar ástæður fyrir öðru pukri og leyni- makki ríkisstjórnarinnar.    Það er ástæða fyrir því að for-sætisráðherra gat ekki með nokkru móti fengist til að upplýsa um launamál seðlabankastjóra. Og það er ástæða fyrir því að fjár- málaráðherra veitti þingi og þjóð rangar og villandi upplýsingar í Icesave-málinu.    Það ástæða fyrir því að forsætis-ráðherra neitar að segja frá því hvers vegna hún vildi ekki hitta kollega sinn frá Kína. Og það er ástæða fyrir því að fjármálaráð- herra hefur dælt gríðarlegu fé í fallin fjármálafyrirtæki.    Það er ástæða fyrir því að Jó-hanna og Steingrímur neita að gefa upp samningsmarkmið Íslands í aðlögunarviðræðunum við ESB. Og það er ástæða fyrir því að for- sætisáðherra veitir þinginu ófull- nægjandi upplýsingar svo að kalla þarf á aðstoð frá Ríkisendurskoðun við að afla svara.    Og það er sjálfsagt einhverástæða fyrir því líka að óbreyttir stjórnarþingmenn á borð við Oddnýju G. Harðardóttur kjósa að leggja nafn sitt við verk, laumu- spil og blekkingar ríkisstjórnar- innar. Oddný G. Harðardóttir Það er einhver ástæða fyrir því STAKSTEINAR Veður víða um heim 17.7., kl. 18.00 Reykjavík 17 skýjað Bolungarvík 9 skýjað Akureyri 12 skýjað Kirkjubæjarkl. 15 skýjað Vestmannaeyjar 12 skýjað Nuuk 12 skúrir Þórshöfn 11 alskýjað Ósló 13 skúrir Kaupmannahöfn 18 skýjað Stokkhólmur 21 heiðskírt Helsinki 21 léttskýjað Lúxemborg 17 skýjað Brussel 16 léttskýjað Dublin 15 skýjað Glasgow 17 skýjað London 16 þrumuveður París 17 léttskýjað Amsterdam 17 léttskýjað Hamborg 17 skúrir Berlín 22 heiðskírt Vín 30 léttskýjað Moskva 18 þrumuveður Algarve 23 heiðskírt Madríd 31 léttskýjað Barcelona 22 skýjað Mallorca 27 léttskýjað Róm 28 léttskýjað Aþena 31 heiðskírt Winnipeg 30 skýjað Montreal 27 léttskýjað New York 29 léttskýjað Chicago 30 léttskýjað Orlando 30 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 18. júlí Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 3:50 23:19 ÍSAFJÖRÐUR 3:20 23:59 SIGLUFJÖRÐUR 3:01 23:44 DJÚPIVOGUR 3:12 22:56 VIÐTAL María Ólafsdóttir maria@mbl.is Í nótt munu þrír íslenskir tónlistar- menn, þeir Egill B. Hreinsson, Kjartan Guðjónsson og Gunnar Hrafnsson, fara í víking. Þrímenn- ingarnir munu dvelja í fimm vikur um borð í skemmtiferðaskipinu The World og leika tónlist fyrir gesti skipsins. Eða öllu heldur íbúa, þar sem íbúðir skipsins eru allar í einka- eigu. „Mér bauðst þetta verkefni í gegnum Egil B. Hreinsson, píanista og prófessor í Háskóla Íslands í raf- magnsverkfræði. Hann er píanisti og er með umboðsmann í Flórdía sem kom þessu á. Núna aðfaranótt þriðjudags förum við til Finnlands og siglum þaðan til Pétursborgar. Svo heldur þetta áfram niður eftir strandlengjunni og ég held að okkur verði hent af í Bilbao,“ segir Gunnar Hrafnsson kontrabassaleikari. Leika af fingrum fram Gunnar segir skipið sigla undir hentifána Bahamaeyja þaðan sem það er gert út. Það sé síðan allra þjóða fólk sem eigi íbúðir á skipinu. „Á svona ferðum er algengt að tónlistarmenn séu beðnir að spila það sem kallað er The Great Am- erican Songbook. Sumsé djasslög eða sönglög sem eiga rætur sínar í amerísku söngleikjunum. Djassspil- arar opna oft svona Biblíu, sem kall- að er, með þessum lögum og svo er bara leikið af fingrum fram,“ segir Gunnar. Andlegt detox Gunnar segir ferðalagið leggjast vel í þá félaga og segist halda að þetta verði mjög skemmtileg reynsla. Gunnar kemur heim daginn fyrir kennslu en hann kennir í Fé- lagi íslenskra hljómlistarmanna (FÍH), Tónlistarskóla Garðabæjar og Listaháskóla Íslands. Munu þrí- menningarnir spila fjögur 45 mín- útna sett á hverju kvöldi en eiga frí á daginn og hefur Gunnar þá hugsað sér að nota tímann til að undirbúa kennslu næsta vetrar. „Ætli maður þurfi ekki að fara í andlegt detox til að geta þolað hversdagsleikannn eftir þetta,“ segir Gunnar í léttum dúr og bætir við: „Þetta verður örugglega tískuskóli Gunnars eftir þetta þar sem ekki verða eingöngu kenndar staðreyndir um tónlist heldur líka fáguð framkoma og að stíga ölduna.“ Þrír íslenskir tónlistar- menn fara í víking  Leika djasslög á glæsilegu skemmtiferðaskipi þar sem fólk kaupir sér íbúðir Morgunblaðið/Eggert Í víking Þeir Gunnar Hrafnsson (t.v.) og Egill B. Hreinsson munu sigla og spila um höfin blá. Skemmtiferðaskipinu The World er lýst sem fljótandi, vernduðu íbúða- hverfi, en þar er að finna 165 lúxusíbúðir með allri nútímatækni sem hugsast getur og hefur útlit íbúðanna verið hannað af frægum innan- hússarkitektum. Með hverri íbúð fylgja svalir sem á er nuddbaðkar. Þar er hægt að slappa af og horfa á það land sem fyrir augu ber í hvert skipti. Í ár siglir skipið um Skandinavíu í júní, Frakkland í september og Suður- Afríku í desember, svo fáeinir áfangastaðir séu nefndir. Lagt er upp úr því að vernda einkalíf fólksins um borð á skipinu. Þannig eru aldrei jafn margir á skipinu og verið gæti til að ör- tröð myndist ekki. Dæmi eru um að fólk búi í skipsí- búðum sínum allan ársins hring en aðrir íbúar koma og fara eftir því sem hentar þeim best. Fljótandi lúxusíbúðir SKEMMTIFERÐASKIP

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.