Morgunblaðið - 18.07.2011, Page 9
FRÉTTIR 9iNNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 2011
Stærðir 40-60www.belladonna.is
Skeifunni 8
108 Reykjavík
sími 517 6460
Útsala
30-50%
afsláttur
af útsöluvörum
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
• www.hjahrafnhildi.is
Meiri
verðlækkun
Útsala
BAKSVIÐ
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Árni Björn Pálsson og Aris frá Akur-
eyri sigruðu í fimmgangskeppni Ís-
landsmótsins í hestaíþróttum fullorð-
inna sem haldið var á Selfossi um
helgina. Hlaut Árni einkunnina 7,90.
Í öðru sæti urðu Viðar Ingólfsson og
Már frá Feti með 7,88 og Reynir Að-
alsteinsson og Sikill frá Sigmundar-
stöðum hlutu brons þriðja sætis og
einkunnina 7,55. Þórarinn Eymunds-
son og Þóra frá Prestsbæ, komu efst
inn í úrslit, en þurftu að sætta sig við
5. sæti þar sem skeiðsprettir skeik-
uðu. Þórarinn getur þó vel við unað
þar sem hann varð Íslandsmeistari í
samanlögðum fimmgangsgreinum.
Í A-úrslitum í fimmgangi sigruðu
Hinrik Bragason og Sigur frá Hóla-
baki með einkunnina 8,07. Olil Ambel
og Kraflar frá Ketilsstöðum urðu í
öðru sæti með 8,00 í einkunn.
Í keppni í 1. flokki í fjórgangi sigr-
aði Oil Ambel á áðurnefndum Krafl-
ar með 7,63 í einkunn. 2. og 3. sætinu
deilu með sér Eyjólfur Þorsteinsson
og Hlekkur frá Þinganesi Hulda
Gústafsdóttir á Kjuða frá Kirkju-
ferju með einkunnina 7,60.
Þá sigraði Haukur Baldvinsson á
Fal frá Þingeyrum í gæðingaskeiði
með 8,25 í einkunn. Í öðru sæti varð
Viðar Ingólfsson á Má frá Feti með
8,13 og Sigurbjörn Bárðarson á
Flosa frá Keldudal með 8,00 í ein-
kunn.
„Við erum ofsalega ánægð með
hvernig til tókst. Á mótinu voru eitt-
hvað í kringum 200 skráningar og
keppendur hafa verið í kringum 170
talsins. Til mótsins fóru margir af
hæst og best dæmdu hestum lands-
ins og ekki er ofsagt að þarna hafi
rjómi allra bestu hesta verið saman
kominn,“ segir Margrét Katrín Er-
lingsdóttir, fjölmiðlafulltrúi mótsins.
Hún segir alls um eitt þúsund gesti
hafa komið á mótssvæðið sem gestir
jafnt sem knapar lofuðu mjög – og
sögðu að óvíða væri jafn góður
keppnisvöllur hestaíþróttafólks sem
á Selfossi.
Rjómi bestu hesta
landsins var á mótinu
Þórarinn varð Íslandsmeistari í fimmgangsgreinunum
Þúsund manns þótti aðstaðan á Selfossi vera afar góð
Ljósmynd/aðsend
Góðir Haukur Baldvinsson á Fal frá Þingeyrum sigraði í gæðingaskeiði.
Ný áttatíu metra löng brú yfir Haf-
fjarðará á Snæfellsnesi verður tekin í
notkun á næstu vikum. Guðmundur
Sigurðsson og brúarvinnuflokkur
hans, sem gerður er út frá Hvamms-
tanga, lauk smíði brúarinnar sjálfrar í
þar síðustu viku og starfsmenn Borg-
arverks eru nú að leggja lokahönd á
gerð vegar og tenginga að brúnni.
Með þessari framkvæmd eru allar
brýr á sunnanverðu Snæfellsnesi á
leiðinni vestur í Ólafsvík orðnar tví-
breiðar en af því þykir mikil sam-
göngubót og slysagildrum hefur verið
útrýmt. sbs@mbl.is
Ný brú yfir Haffjarðar-
ána brátt í notkun
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Brú Ný brú yfir Haffjarðará er tví-
breið og þykir mikil bót að því.
BAKSVIÐ
Andri Karl
andri@mbl.is
„Það hefur gengið afskaplega vel og hann er í
meðferð í dag. Eftir því sem ég best veit líður
honum afskaplega vel þar sem hann er,“ segir
Stefán Karl Kristjánsson, lögmaður hjá
KRST-lögmönnum, en í febrúar sl. varði hann
karlmann sem dæmdur var til refsingar í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur en refsingin var bundin
skilorði með þeim fyrirvara að hann gengist
undir dvöl á „hæli“ í allt að eitt ár í því skyni
að komast yfir áfengis- og vímuefnafíkn. Fyrir
helgina fékk annar skjólstæðingur Stefáns
sama dóm, og líkt og þá að tillögu Stefáns.
Maðurinn sem dæmdur var fyrir helgi er 38
ára og á langan sakarferil að baki, eða allt frá
árinu 1990. Hann hefur margsinnis verið
dæmdur fyrir auðgunarbrot, auk annarra
brota, og var til að mynda dæmdur í átta mán-
aða fangelsi fyrir þjófnað, fíkniefnalagabrot
og umferðarlagabrot í september 2008 og í
tólf mánaða fangelsi í desember sama ár fyrir
tilraun til ráns og brot gegn valdstjórninni. Í
umræddu máli var hann sakfelldur fyrir
þrettán þjófnaðarbrot og tilraun til þjófnaðar,
auk annarra brota. Oftar en ekki var um að
ræða matvörur, fatnað og áfengi úr Vínbúð-
inni.
Í dóminum yfir manninum segir að Pétur
Tyrfingsson sálfræðingur hafi unnið skýrslu
um manninn, að beiðni Stefáns og með sam-
þykki ákæruvaldsins. Í henni leggur Pétur til,
í ljósi sjúkdómssögu mannsins, að honum
verði gert að dvelja á hæli í tiltekinn tíma til
að venja hann af neyslu áfengis eða deyfilyfja.
Féllst Símon á það og skal hann hefja dvölina
innan viku frá uppkvaðningu dómsins.
Maðurinn slapp úr gæsluvarðhaldi eftir að
dómurinn var kveðinn upp, um miðja síðustu
viku, og ekki leið sólarhringur þar til hann var
kærður fyrir bílþjófnað. Hann var handtekinn
en færður á Landspítalann vegna kviðverkja,
þaðan sem hann hringdi í Stefán sem ók hon-
um á meðferðarstofnun.
Sjaldan notað á liðnum árum
Morgunblaðið fjallaði um umrætt úrræði í
byrjun árs en því hefur afar sjaldan verið
beitt á umliðnum árum. Brynjar Níelsson, for-
maður lögmannafélags Íslands, sagði við það
tækifæri, að refsingar væru of oft ofmetnar og
hægt væri að beita öðrum úrræðum í meira
mæli. „Að mínu mati eru mörg þessara mála
beinlínis heilbrigðismál, í þeim skilningi að
refsingar hafa enga þýðingu,“ sagði Brynjar
og benti einnig á að í þessum tilvikum
bryti fólkið ekki af sér ef það væri edrú.
Síðan þá hefur úrræðinu tvívegis verið
beitt og héraðsdómarinn Símon Sigvaldason
haft með bæði mál að gera. Stefán segist
ekki geta fullyrt með vissu hvort Símon hafi
litið til reynslunnar af fyrra málinu „en það
er ljóst og [Símon] sagði við bæði málin, að
þessir menn vörðuðu veginn fyrir þetta úr-
ræði“.
„Varða veginn fyrir þetta úrræði“
Síbrotamaður dæmdur til dvalar á „hæli“ í því skyni að komast yfir áfengis- og vímuefnafíkn
Annað skiptið á árinu sem úrræðinu er beitt en á umliðnum árum hefur nær aldrei verið gripið til þess
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Klefi Maðurinn þarf ekki að afplána 2 ára
fangelsisrefsingu sína gangi meðferðin vel.
[Þyki það ljóst af málavöxtum, eftir að
umsagnar læknis hefur verið leitað, að
sakborningur, sem framið hefur brot undir
áhrifum áfengis, geti ekki haft hemil á
drykkjufýsn sinni, má ákveða í dómi, að
hann skuli lagður inn á viðeigandi hæli til
lækningar.] 1) Skal dómur þá hljóða um
dvöl á hælinu allt að 18 mánuðum, eða, ef
ítrekun á sér stað, allt að 3 árum.
Dómsmálaráðherra
ákveður, eftir tillögum
stjórnar hælisins og hlutað-
eigandi læknis, hvort leysa
megi manninn af hælinu, áð-
ur en ofangreindur hámarks-
tími er liðinn, sökum þess að
ætla megi að hann hafi
læknast.
Ráðherrans að
taka ákvörðun
65. GREIN ALM. HEGNINGARLAGA
„Mótið var afskaplega glæsilegt.
Aðstaðan á Selfossi er eins og
best getur orðið og gestrisni frá-
bær. Og þarna sáum við líka
fjöldann allan af afskaplega góð-
um knöpum. Hestamennskan er í
góðum gír um þessar mundir,“
segir Einar Öder Magnússon. Hann
hefur við annan mann þann starfa
að velja fulltrúa Íslendinga til þátt-
töku í Heimsmeistaramóti ís-
lenska hestsins sem verður haldið
í Austurríki nú í ágúst. Var Íslands-
meistaramótið á Selfossi síðasti
áfanginn í vali keppenda fyrir það.
Þrír Íslendingar, sem áður hafa
unnið heimsmeistaratitla, hafa
þegar tryggt sér þátttökurétt í
Austurríki; þau
Jóhann Skúla-
son, Rúna Einars-
dóttir og Bergþór
Eggertsson,
hvert á sínum
klárnum. Það
hafa einnig gert
Viðar Ingólfsson,
Hulda Gústafs-
dóttir, Árni Björn
Pálsson, Eyjólfur Þorsteinsson og í
flokki ungmenna Teitur Árnason
og Hekla Katharína Kristinsdóttir.
Val þriggja fullorðinna og eins
ungmennis til viðbótar í lands-
liðhópinn verður kynnt á morgun,
þriðjudag.
Landsliðið kynnt á morgun
HESTAMENNSKAN ER Í GÓÐUM GÍR, SEGIR EINAR ÖDER
Einar Öder
Magnússon