Morgunblaðið - 18.07.2011, Síða 11

Morgunblaðið - 18.07.2011, Síða 11
DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 2011 Silfurristar neglur minna á sporð hafmeyj- unnar eða glóandi fjár- sjóð. Það er því varla tilviljun að nýjasta vörulína naglalakks- framleiðandans OPI sé tileinkuð sjóræningjum Karíbahafsins, úr sam- nefndum kvikmyndum. Í tengslum við frum- sýningu fjórðu mynd- arinnar um Jack Spar- row og félaga kom línan á markað, en hún samanstendur af sex nýjum litum auk töfra- lakksins Silver Shatter. OPI-naglalakkið er borið á neglurnar eins og venjulega og látið þorna alveg. Þá er ein væn umferð af Silver Shatter-lakkinu borin á og árangurinn kemur í ljós skömmu síðar. Neglurnar verða silfurslegnar með fallegri áferð. Lökkin sex heita svo að sjálfsögðu afar sjóræningjalegum nöfnum, eitt kallast Skull & Glassbones, annað Planks a Lot og það þriðja Sparrow me the Drama. birta@mbl.is Naglalakk Morgunblaðið/Ómar Silfurristar Hér sést lokaútgáfan þegar búið er að nota naglalökkin saman. Silfur og sjóræningjar Fyrsta umferð Neglurnar eru lakkaðar grænar. legt en sumum þykir óþægilegt að láta nudda vissan stað líkamans eins og andlitið eða hendurnar. „Maður getur alveg lesið úr viðbrögðunum hvort barninu líkar nuddið eða ekki. Eins þarf maður ekki að hafa áhyggjur af því að vera of harðhentur þar sem maður hefur strokurnar ómeðvitað léttari. Síðar meir þegar börnin eru farin að þyngjast getur maður farið að nudda dýpra. Mér finnst gott að nota þetta áfram á börnin eftir því sem þau stækka. Mín börn hafa beðið um nuddið og þá verið akk- úrat með verki í fótunum. Þau segja manni ekki endilega að þau séu með verki en biðja um nudd á tilteknum stað. Þannig verða börnin meðvit- aðri um almenna líðan sína í gegn- um nuddið og læra betur að þekkja hvað er kvilli. Ég hef líka kennt börnunum mínum að nudda hvert annað sem er skemmtilegt og svo fær maður stundum nudd sjálfur sem er ósköp notalegt,“ segir Elsa Lára. Bókin er skemmtilega mynd- skreytt með myndum af börnum Elsu Láru. Sú yngsta er aðeins fimm mánaða á fyrstu myndunum sem teknar voru árið 2006. Segir Elsa Lára að ljósmyndarinn hafi ekki átt orð yfir það hversu dugleg börnin voru í myndatökunni og hafði konan hans á orði að það væri allt nuddinu að þakka. Músa- og tölvukvilli Almennt séð um nudd segir Elsa Lára að meiri vakning sé um það í dag að drífa sig í nudd og láta ekki alla vöðva fara í nudd. „Fólk er farið að hugsa um sjálft sig og sér að það getur ekki haldið áfram í þessu samfélagi nema það setji sjálft sig í forgang. Það halda marg- ir að maður eigi ekkert að koma þegar manni líður vel en það er náttúrlega mjög gott að koma þá. Nudd er fyrirbyggjandi og þá getur maður unnið dýpra og sigrast á meininu. Helsti nútímavandinn sem ég glími við núna er músa- og töl- vukvilli, ef svo má kalla,“ segir Elsa Lára. Notalegt Elsa Lára hefur kennt börnunum sínum að nudda hvert annað. koma í einn tíma til að læra hvað hann geti gert til að hjálpa konunni sinni í fæðingunni. Þannig færir hún sína þekkingu yfir á pabbann. „Sumir vita ekki alveg hvað þeir eiga að gera og þetta veitir þeim aukið öryggi um hvernig þeir geta orðið að gagni. Konur koma í slíkt nudd bæði ef ekkert er að en líka ef þær eru með grindargliðnun. Þá nota ég heita og kalda steina í með- ferðinni. Þeir hjálpa mjög vel fyrir grindina en ég bætti við mig stein- anuddi fyrir tveimur árum og hef notað þá í og með nuddinu,“ segir Elsa Lára. Léttari strokur Elsa Lára lætur sér ekki nægja að nudda mæðurnar til að auðvelda börnunum þeirra að koma í heiminn heldur fer hún líka í heimahús og kennir foreldrum að nudda barn- ið sitt. Bókin Nudd fyrir barnið þitt er samansafn af reynslu Elsu Láru af ungbarnanuddi í bland við heimildir af námskeiðum í Kanada og svo hefur hún bætt við strokum sem henni hafa fundist góð- ar á börnin sín. Ung- barnanudd getur unnið á magakveisum og hjálpað börnunum að ná betri svefni auk þess sem nuddið eyk- ur líkamsmeðvitund og tengsl á milli for- eldra og barna. Flestum börn- um finnst nuddið nota- „Maður getur alveg les- ið úr viðbrögðunum hvort barninu líkar nuddið eða ekki.“ Babl og tal lýsir ánægju LEIÐBEININGAR Í bókinni Nudd fyrir barnið þitt er að finna allar helstu leiðbein- ingar um það hvernig nudda eigi barnið og hvað hafa þarf í huga. Það er meðal annars þetta. Veljið tíma þegar ykkur líður vel. Veljið ykkur stað þar sem ykkur líður vel. Gefið ykkur góðan tíma í nuddið, þá fáið þið mest út úr því. Sitjið í þægilegri stellingu, breytið um stellingu ef þið þreytist. Auðvelt er að sjá á við- brögðum barnsins hvort því líkar nuddið eð- ur ei. Viðbrögð barns sem vill ekki nudd eru meðal annars þau að barnið snýr höfðinu undan eða fettir sig aftur. Barn sem líkar nudd færir meðal annars hendur að munni, bablar og talar og horfir framan í þig. Gaman er að smakka og prófa nýjan mat. Þó er ekki ólíklegt að nokkuð margir myndu fúlsa við þessari dýr- indis súpu sem veitingamaður í Seoul í Suður-Kóreu er að bera á borð. Súp- an kallast þar „Bosintang“ og er í henni hundakjöt. Eins og gefur að skilja eru dýraverndunarsinnar mjög á móti slíku áti og vafalaust margir sem deila skoðun þeirra á því að grimmúðlegt sé að borða „gæludýr“. Í Suður-Kóreu og víðar í Asíu er hundakjöt þó enn vinsælt lostæti og hundar ræktaðir sérstaklega til átu. Sinn er siður í hverju landi og líkleg- ast einhverjum sem þætti jafn ólyst- ugt að borða súrmatinn okkar. Matargerð Óvenjuleg súpa vinsæl í Seoul Reuters Lostæti Rjúkandi hundakjötssúpa. fyrst og fremst ódýr ÓDÝRT Í ÚTILE GUNA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.