Morgunblaðið - 18.07.2011, Blaðsíða 25
MENNING 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 2011
hún er í fremstu röð í dag en sett
þeirra var óaðfinnanlegt; liðsmenn
stóðu á sviðinu eins og stríðsmenn
og hreinlega völtuðu yfir áhorfendur
með byljandi þéttu rokki sínu. Okk-
ar eini og sanni Mugison lék þá á
fimmtudaginn, Jón Atli Helgason og
Gísli Galdur spiluðu saman á hátíð-
inni sem Humanwoman (og Jón Atli
tróð líka upp sem Sexy Lazer).
Skálmöld stóð sig með eindæmum
vel á laugardeginum og á eftir að
rúlla Wacken-hátíðinni upp í sumar,
svo og hausttúrnum sínum. Það er
mikill og góður andi í þessu bandi.
Þá eru ótalin öll þau færeysku atriði
sem boðið er upp á, hvort sem það
eru gamlar og gegnar þjóðlaga/
djasssveitir eins og Spælimenninir,
nýtt blóð á borð við Guðriði Hans-
dóttur, Benjamin og Hamferð eða þá
sigldari listamenn eins og ORKU
eða Týr sem luku laugardagskvöld-
inu.
Pannukakuhúsið
Á svona hátíð er tónlistin þó ekki
endilega aðalatriðið, þó hún sé vissu-
lega mikilvæg. Heildarstemningin
er málið. Að labba í Pannukakuhúsið
og fá sér að borða, skella sér í sjóinn
og svo í heita trépotta sem eru á
ströndinni, rölta um göturnar og
heilsa upp á liðið sem fylgist með há-
tíðinni út um gluggann hjá sér (en
hátíðin er bókstaflega í miðju þorp-
inu, líkt og þegar Formúla 1 fer fram
í Mónakó).
En látum heimamann um að slíta
þessari grein:
„G! hátíðin hefur verið mjög mik-
ilvæg fyrir færeyskt tónlistarlíf,“
tjáði Sunneva Eysturstein blaða-
manni en hún er einn af starfs-
mönnum hátíðarinnar og hefur og
verið að reka skemmtistaðinn Sirkus
í Þórshöfn. „Tilkoma hennar kom
mörgum hlutum á hreyfingu hérna í
eyjunum, hún hefur bæði verið
hvatning fyrir tónlistarfólkið okkar
og um leið hefur hún opnað augu og
eyru alþjóðasamfélagsins fyrir því
að það er ýmislegt á seyði hérna hjá
okkur.“
Stjarna Hin danska Fallulah lék á fimmtudaginn. Hún er rísandi stjarna þar í landi. Okkar Mugison, okkar maður í Færeyjum, lét gítarinn - og ýmislegt annað - væla.
Hin guðdómlega Gata
Tónlistarhátíðin G! Festival fór fram í Götu, Færeyjum, í tíunda sinn nú um helgina Einstök há-
tíð sem hefur reynst færeysku tónlistarlífi mikil lyftistöng Samfélagið snýst skemmtilega á hvolf
Ljósmyndir/G! Festival
Ungstirni Benjamin, einn efnilegasti tónlistarmaður Færeyja , kemur frá Götu.
G! Gestir vanda sig gjarnan við að
merkja sig hátíðinni.
Fjaran Þúsundir manna hópast saman í fjörunni góðu í Götu.
Fjör Gleðin á það til verða hamslaus í fjörunni.
www.gfestival.com
Olsen Gamall og góður Íslandvinur,
sjálfur James Olsen, fór mikinn á
hátíðarsviðinu.
Hopp og hí Gleðin er mikil hjá
þessum brosmildu hnátum.
G! FESTIVAL
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Það rigndi og rigndi – og rigndi –
þegar við Morgunblaðsmenn lentum
á flugvellinum í Vágum hér í Fær-
eyjum í föstudagshádeginu. Og
þannig á það líka að vera þegar mað-
ur er kominn til Færeyja. Vætusemi
er eitt náttúrueinkenna þessa yndis-
lega lands og samfélags sem tók sér
bólstað djúpt í hjarta greinarhöf-
undar fyrir átta árum eða svo og hef-
ur setið þar sem fastast allar götur
síðan.
Ég og Sighvatur, samverkamaður
minn í Tónlistarstundinni (sem sýnd
er á mbl.is), vorum hingað komnir til
að safna vefinnslögum, sem var
dúndrað inn um þessa helgi (sjá
mbl.is) og voru lítil vandkvæði með
það, enda eltu ævintýrin okkur á
röndum svo gott sem.
Vinklar
Þegar rætt er um G! Festival sem
einstaka hátíð er ekki um holt orð-
skrúð að ræða. Staðsetning hennar,
dagskráruppbygging og sérlegur
færeyskur „vinkill“ gera það að
verkum að hátíðin þykir með for-
vitnilegustu tónlistarhátíðum Evr-
ópu. Hátíðin keppir eðilega ekki við
risahátíðir eins og Hróarskeldu eða
Glastonbury en að sama skapi eiga
þær ekki séns í G! þegar kemur að
sjarma og alúð hins smáa og nálæga,
þegar maður sér að það var amma
tónlistarhátíðarhaldarans sem bak-
aði súkkulaðikökuna sem blaðamenn
og tónlistarmenn gæddu sér á bak-
sviðs.
Gata er þrískipt byggðarlag,
stærsti byggðakjarninn er Nyrðri
Gata, svo er það Syðri Gata þar sem
hátíðin fer fram en þar á milli er síð-
an Götugjógv. Syðri Gata er fallegt
þorp, það liggur við fjöru og hlykkj-
ast svo upp í hæð og einkennandi
eru þröngar, litlar götur. Það er nett
portúgölsk stemning hérna mætti
segja. Íbúar í Götuþorpunum þrem-
ur eru ekki nema þúsund og því
snýst samfélagið skemmtilega á
hvolf þegar brestur á með 10.000
manna tónlistarhátíð.
Fjölskrúðug
Eitt af skemmtilegri einkennum
G! er efnisskráin sem er æði fjöl-
skrúðug. Það eru líkast til fáar hátíð-
ir sem bjóða upp á skosku slag-
arapopparana í Travis og sænsku
tæknitröllin í Meshuggah sama
kvöldið. Meshuggah er eitt helsta
þungarokksband samtímans og stór-
kostlegt – og eiginlega furðulegt –
að berja þá augum í Götufjörunni.
Sveitin sýndi og sannaði af hverju