Morgunblaðið - 18.07.2011, Qupperneq 26
26 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 2011
» ASA Tríóið komfram á sumartón-
leikaröð veitingahússins
Jómfrúarinnar sl. laug-
ardag og fjölmennti fólk
til að sjá og heyra þá
Andrés Þór Gunnlaugs-
son á gítar, Agnar Má
Magnússon á Ham-
mond-orgel og Scott
McLemore á trommur.
Þeir stóðu undir vænt-
ingum.
ASA Tríóið lék undir heiðum himni á sumartónleikaröð Jómfrúarinnar
Morgunblaðið/Eggert
Kát Luice Moar, Þórunn Edda Sigurjónsdóttir og Kristín Lilja Björnsdóttir.
Sól og blíða Fólk naut þess að sitja úti á Jómfrúartorginu og hlusta.
Innlifun Andrés Þór Gunnlaugsson gítarleikari dró ekkert af sér í gítarspili og söng og uppskar lófatak.
ASA Tríó Þeir eru vel samstilltir félagarnir í tríóinu og vöktu lukku.
Hvað ertu að hlusta á um þessar
mundir?
Ég er að rifja upp plötuna EF
með Maríu Baldursdóttur þessa
dagana. Sú plata kom út árið 1992 og
er dáldið skemmtileg. Þar er að
finna gullmola eins og Eldhúsverkin
og Ein í húmi nætur – bráð-
skemmtileg plata. Síðan er það nýj-
asta plata Pauls Simon – So beauti-
ful or so what, fantagóð plata.
Fyrsta plata Jóns Jónssonar, Wait
for fate, fær líka að fljóta með … og
Bjartmar og Bergrisarnir. Ég get
ekki hætt að hlusta á þá plötu.
Hvaða plata er sú besta sem
nokkurn tíma hefur verið gerð að
þínu mati?
The Wall kemur strax upp í hug-
ann, áhrif hennar voru svo gríðarleg
og hún er einhvern veginn svo tíma-
laus og sönn. Joshua Tree með U2
kemur einnig fljótt upp í hugann. Ég
fór líka á tónleikana, í
St. Paul í Bandaríkj-
unum, í litlum íþrótta-
sal og stemningin var
engu lík. Björk – Debut
er samt best.
Hver var fyrsta plat-
an sem þú keyptir og
hvar keyptir þú hana?
Þetta man ég ekki!
En ég man hvaða plötu
pabbi keypti fyrst
handa mér. Það var
Eagles – Greatest Hits II, og þetta
var líklegast jólin 1976 – ég gleymi
því aldrei þegar hann var að reyna
að fela plötuumslagið fyrir mér þeg-
ar við stóðum við búðakassann í
Kaupfélagi Héraðsbúa á Egils-
stöðum. Ég skildi ekki pukrið fyrr
en ég opnaði pakkann á jólunum.
Reyndar man ég fleiri plötukaup
föður míns. Bridge over troubled
water vakti mikla lukku á heimilinu,
sem og The Muppet Show.
Ekki má heldur gleyma plötum
Deildarbungubræðra, sem pabbi
kom með heim eftir ball með fyrr-
nefndri hljómsveit á Vopnafirði! Ég
man að mamma var ekkert sér-
staklega ánægð með þau plötukaup,
en við vinkonurnar sungum hástöf-
um um Maríu tískudrós þetta sum-
arið.
Hvaða íslensku plötu þykir þér
vænst um?
Utangarðsmenn – 45 rpm – Hún
er töff, kom út í fáum eintökum og er
hálfgerður forngripur í dag. Og ég
hef þurft að fela hana – það er sleg-
ist um hana í fjölskylduboðunum.
Hvaða tónlistarmaður værir þú
mest til í að vera?
Einar Örn Benediktsson – því-
líkur kraftur og þvílík sköpunargáfa
– ég vil ekki
humar – humar eða frægð!
Hvað syngur þú í sturtunni?
Ekkert, ég kann voðalega
vel að meta þögnina og öll
örhljóðin sem henni
fylgja.
Hvað fær að
hljóma villt og galið
á föstudags-
kvöldum?
Undanfarin
föstudagskvöld:
Friðrik Dór –
lagið Hún er alveg
með þetta, aftur og
aftur!! Eina lagið
sem ég nenni að dilla
mér við þessa dagana.
Svo er alltaf gott að
vagga sér við hljómsveit-
ina Hjálma. Og við Bagga-
lút [innsk. Guðmundar Páls-
sonar, samstarfsmanns míns].
En hvað yljar þér svo á sunnu-
dagsmorgnum?
Íslensk tónlist, mjög einfalt.
Í mínum eyrum Erla Ragnarsdóttir
Friðrik Dór
Felur plötu Utangarðsmanna
í fjölskylduboðum