Morgunblaðið - 18.07.2011, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 18.07.2011, Qupperneq 27
MENNING 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ 2011 TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Frændur vorir Finnar eiga meira sameiginlegt með okkur en drykkjusiðina. Tónlistarsköpun þar í landi er og með eindæmu m skemmtileg, er iðulega á skakk og skjön við þau varlegheit sem tíðkast of oft hjá Dönum, Nors- urum og Svíum. Þessar jaðar- þjóðir Norðurlanda standa oft og iðulega utan við þá skandinavísku samstarfshringiðu sem hin löndin þrjú eru aftur á móti á bólakafi í. Þessi einvera hefur í gegnum árin hrundið af stað misskilningi um það hvernig beri að haga sér þeg- ar kemur að framreiðslu ærlegs popps og rokks en á því utan- gáttaviðhorfi höfum við tónlistar- unnendur hins vegar grætt á ríku- lega. Ótrúlegur háttur Um það leyti sem Sykurmolar- nir voru að brugga sinn einstæða poppseyð voru þrír finnskir lands- byggðarmenn að gera sinn kláran. Bræðurnir P-K og Asko Keränen og Espe Haverinen komu frá Ut- ajärvi, litlu þorpi norðarlega í Flippaðir Finnar … ó já  Hin undursamlega finnska sveit, 22 Pistepirkko, snaraði út nýrri plötu í vor  Lime Green Delorean er poppuð, draumkennd, skrítin …finnsk! Ævintýramenn P-K Keränen, Espe Haverinen og Asko Keränen mynda hina merku sveit 22 Pistepirkko. Finnlandi og áttu, líkt og Sykur- molarnir, rætur að rekja til finnskra pönksveita. Fyrsta plata sveitarinnar, Piano, Rumpu & Kukka, kom út 1984, minimalískt og nokk tilraunakennt verk. Sveitin fluttist svo til höfuðborg- arinnar, Helsinki, árið 1985 og þá fór boltinn að rúlla fyrir alvöru. Plötur eins og The Kings Of Hong Kong (1987) og Bare Bone Nest (1989) vöktu athygli á sveit- inni út fyrir Finnland, einstök tækling sveitarinnar á Bo Didd- ley skotnum ameríkublús hitti neðanjarðarrottur í hjartastað. Söngrödd Asko gerði mikið fyrir tónlistina; hátt uppi og hvell og enskuframburðurinn setti enn frekari sérkenni á framvinduna. Auk þess var (og er enn) einhver handanheimsbragur yfir öllu saman, einhver furðulegheit sem virka eins og undirleikur við eina af myndum Kaurismäki. Upp úr 1990 kom í ljós að sveitar- meðlimir voru svo sannarlega al- vöru listamenn. Þeir voru nefni- lega orðnir eirðarlausir, óviljugir til að hjakka áfram í formúlu sem þó hafði gefið góða raun. Því var ákveðið að snúa skútunni harka- lega við og stefna rakleitt á ný og opin mið. Hipp hopp og raftónlist var far- in að heilla og öll þau tæki og tól til að framkalla slíkt voru óðar dregin inn í hljóðverið. Næstu plötu báru merki þessa, en á ein- hvern ótrúlegan hátt tókst bræðr- unum og Espe að vefja þessum þáttum í kringum Pistepirkko- hljóminn á fullkomlega eðlilegan hátt. Samband þeirra bræðra Árið 2002 héldu meðlimir dramatískan fund þar sem það var alvarlega rætt hvort halda ætti áfram eða ekki. Slíkar bolla- leggingar voru sem betur fer slegnar út af borðinu og bandið er hressara en nokkru sinni svo klisjunum sé svipt upp. Endur- útgáfa á eldra efni á vínyl er í fullum gangi (í gegnum Bone Vo- yage, merki sveitarinnar) og tón- leikar víða um heim hafa verið bókaðir. Áhugasamir geta enn- fremur hlaðið niður heilli bók á ensku í gegnum opinbert vefsvæði sveitarinnar, sér að kostnaðar- lausu, sem pdf-skrá. Heimildar- myndin Sleep Good Rock Well (2005) gefur líka mjög skemmti- legt innsæi í samstarf sveitar- innar, einkum samband þeirra bræðra. Bone Voyage Recording Comp- any heitir það fullu nafni, út- gáfufyrirtæki 22 Pistepirkko sem var sett á stofn um miðjan síðasta áratug. Markmiðið er að halda utan um úitgáfur sveitar- innar en einnig eru plötur ann- arra gefnar út. M.a. er þar að finna plötur The Others – sem er 22 Pistepirkko í dulargervi, rúllandi sér í gegnum þekkta og óþekkta ósungna rokk- gimsteina frá sjötta og sjöunda áratugnum. Sjá um þetta sjálfir EIGIN HERRAR Gæðasveitin R.E.M. stendur um þessar mundir í endurútgáfu mik- illi. Tvær plötur, því brenndar, komu út fyrir stuttu. Í dag, mánudag, kemur út platan Songs For A Green World sem inniheld- ur tónleika frá apríl, 1989, en upptökur fóru fram í Orlando Arena, Flórída. Þá hefur plata sveitarinnar frá 1986, Lifes Rich Pageant, verið endurútgefin á tvöföldum diski með gommu af prufuupptökum og öðru góðgæti. Lifes … er fyrsta platan þar sem ýjað var að þeim heimsyfirráðum sem sveitin átti eftir að ná á næstu árum. R.E.M veður um í fortíðinni Endurútgáfa Rem á fullri ferð, 1989. Morrissey mun gefa út ævisögu sína á næsta ári. Hann sparar ekki stóru orðin frekar en vanalega og segir bókina „tilfinningalegan há- punkt síðustu 30 ára“. Morrissey segir ágætt að það sé rúmlega eitt og hálft ár í bókina. „Það gefur mér ráðrúm til að pakka dótinu mínu niður í tösku og hverfa inn í myrk- viðu Brasilíu. Hinum saklausu er ekki hlíft í bókinni en þeir seku sleppa.“ Það verður því forvitnilegt að lesa um fyrrverandi félaga hans í Smiths og aðra en tunga Morr- issey getur verið beittari en vel brýndur hnífur. Ævisaga Morrissey í desember 2012 Morrissey Vefst ekki tunga um tönn . SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ BORGARBÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.IS NÁNAR Á MIÐI.IS GLERAUGU SELD SÉR - T.M - THE HOLLYWOOD REPORTER - L.S - ENTERTAINMENT WEEKLY NÁNARI UPPLÝSINGAR OG MIÐASALA Á T.V. - KVIKMYNDIR.IS/SÉÐ & HEYRT STÆRSTA MYND ÁRSINS ! SJÁÐU LOKAKAFLAN Í 3DBARÁTTAN UM HOGWARTS ER HAFIN. ZOOKEEPER KL. 6 - 8 L BRIDESMAIDS KL. 5.50 - 8 - 10.10 12 ATTACK THE BLOCK KL. 10 16 HARRY POTTER 3D KL. 5.20 - 7 - 8 - 10 - 10.40 12 ZOOKEEPER KL. 5.45 - 8 - 10.15 L BAD TEACHER KL. 5.50 - 8 - 10.10 14 ATTACK THE BLOCK KL. 8 - 10 16 ZOOKEEPER KL. 3.30 - 5.45 - 8 L TRANSFORMERS 3 KL. 5 - 10.15 12 TRANSFORMERS 3 3D Í LÚXUS KL. 5 - 8 12 BAD TEACHER KL. 5.50 - 8 - 10.10 14 MR. POPPER´S PENGUINS KL. 3.40 - 5.50 L BRIDESMAIDS KL. 8 - 10.40 12 KUNG FU PANDA 2 ÍSL TAL 3D KL. 3.40 L 5% LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum HARRY POTTER - PART 2-3D Sýnd kl. 5 - 7:30 og 10 (Power) ZOOKEEPER Sýnd kl. 4, 6 og 8 BRIDESMAIDS Sýnd kl. 4, 6:30, 9 og 10 Stórskemmtileg grínmynd fyrir alla fjölskylduna frá leikstjóra The Wedding Singer. Cher, Nick Nolte, Adam Sandler, Sylvester Stallone og fleiri stórstjörnur ljá dýrunum rödd sína og fara á kostum. BARÁTTAN UM HOGWARTS ER HAFIN STÆRSTA MYND ÁRSINS! POWE RSÝN ING KL. 10 HHHHH - T.M - THE HOLLYWOOD REPORTER HHHHH - L.S - ENTERTAINMENT WEEKLY HHHHH - R.C - TIME Gagnrýnendur eru allir á einu máli. Stórkostlegur endir á stærstu kvikmyndaseríu allra tíma SJÁÐU LOKAKAFLANN Í 3D HHHH - H.O - EMPIRE HHHH „KRAFTMIKILL LOKAHNYKKUR“ - HSS – MBL HHHH NÁNAST FULLKOMINN LOKASPRETTUR! - TV – KVIKMYNDIR.IS HHHH „MÖGNUÐ ENDALOK“ - K.A. - FBL HHH “Besta gamanmyndin sem ég hef hingað til séð á árinu... Fyndin, trúverðug og vandræðaleg á besta hátt. Strákar munu fíla hana, konur munu elska hana!” T.V. - Kvikmyndir.is/Séð & Heyrt „BETRI EN THE HANGOVER” cosmopolitan FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR SUPERBAD, KNOCKED UP, OG THE 40-YEAR-OLD VIRGIN -bara lúxus sími 553 2075 Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.