Morgunblaðið - 28.07.2011, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. JÚLÍ 2011
✝ Ása Krist-insdóttir fædd-
ist í Reykjavík 7.
janúar 1932. Hún
lést á Líknardeild
Landspítalans í
Kópavogi 11. júlí
s.l. Foreldrar Ásu
voru Ástríður Sig-
urðardóttir, f. á
Harastöðum í
Vestur-Húnavatns-
sýslu 14. mars
1899, d. 18. desember 1975, og
Kristinn J. Guðnason, f. á
Hlemmiskeiði á Skeiðum í Ár-
nessýslu 14. júlí 1895, d. 9.
ágúst 1978. Ása átti tvö systk-
ini, Helgu Ingunni, f. 1930, d.
2009, og Ólaf, f. 1934.
Þann 9. október 1954 gengu
Ása og Svavar Björnsson, f. 20.
mars 1932, í hjónaband. For-
eldrar Svavars voru Björn
Guðmundsson, f. á Eyri í
Flókadal í Borgarfirði 1894, d.
1972, og Bergný Magnúsdóttir,
f. að Saurbæ í Kolbeinsdal í
Skagafirði 1892, d. 1980. Börn
Ásu og Svavars eru: (1) Ásta, f.
1955, maki Tómas R. Ein-
arsson. Dætur þeirra: Kristín
Svava, f. 1985, Ástríður, f.
1989, d. 2010, og
Ása Bergný, f.
1997; (2) Sigrún, f.
1958; (3) Kristín, f.
1959, maki Sæ-
mundur Runólfs-
son. Fósturbörn
Kristínar: Inga
Rún Sæmunds-
dóttir, f. 1988, og
Runólfur Sæ-
mundsson, f. 1989;
(4) Björn Þór, f.
1962, maki Sigrún Jóna Andra-
dóttir. Dætur Sigrúnar og fóst-
urdætur Björns: Íris María
Mortensen, f. 1979, og Hjördís
Heiða Ásmundsdóttir, f. 1988.
Björn og Sigrún eiga 3 barna-
börn.
Ása útskrifaðist úr Kvenna-
skólanum árið 1950. Hún starf-
aði síðan við skrifstofustörf,
bæði í Kaupmannahöfn og í
Reykjavík þar til hún gifti sig
og stofnaði fjölskyldu. Ása og
Svavar settu á stofn bygginga-
vöruverslunina Húsið árið
1961 og ráku hana til ársins
1998.
Útför Ásu fer fram frá Dóm-
kirkjunni í dag 28. júlí 2011,
og hefst athöfnin kl. 15.
Ása Kristinsdóttir hafði um
langt árabil þurft að kljást við
illvígan sjúkdóm sem hún þó lét
ekki buga sig; eðlislæg bjart-
sýni og seigla voru hennar vopn
í þeirri baráttu. Ef maður vissi
ekki betur hefði maður lengi
geta haldið að það væri slæmt
kvef frekar en krabbamein sem
hún glímdi við, svo fjarri var
hún því að viðra erfitt heilsufar
sitt.
Okkar kynni hófust fyrir
þrjátíu og einu ári þegar við
Ásta dóttir hennar rugluðum
saman reytum. Það voru for-
réttindi fyrir matgírugan mann
að gerast tengdasonur Ásu.
Hún var jafn glöð að gefa mér
að borða og ég að borða hjá
henni matinn. Samskiptin urðu
svo til muna meiri þegar dætur
okkar Ástu fæddust, Kristín
Svava, Ástríður og Ása Bergný.
Þá kom í ljós að þessi glaðlynda
kona var einstaklega hjálpfús
hvenær sem við þurfti í óreglu-
legu starfi tónlistarmannsins
sem stundum gat verið heima á
daginn og stundum ekki.
Óvæntar æfingar og spila-
mennska gátu ruglað kerfinu og
þá gat hún hliðrað til og bjargað
málum. Alltaf brosandi og alltaf
eins og ég væri að gera henni
greiða þegar ég kom með dæt-
urnar. Gott hjartalag er trúlega
bæði meðfætt og ræktað af já-
kvæðum huga og hvort tveggja
gilti um lífsafstöðu og verk Ásu
Kristinsdóttur.
Hún var gift Svavari Björns-
syni í nær sex áratugi og þau
eignuðust fjögur börn, Ástu,
Sigrúnu, Kristínu og Björn Þór.
Ása og Svavar voru einstaklega
samhent í lífi og starfi og voru
saman flestum stundum eftir að
erilsömum verslunarrekstri
lauk fyrir rúmum áratug. Þau
áttu góðar stundir saman heima
og erlendis og ekki síst í bústað
sínum í Biskupstungum. Þau
áttu líka sameiginlegt æðruleys-
ið þegar veikindi Ásu ágerðust
og Svavar vakti yfir velferð
hennar. Missir hans er mikill.
En minningin lifir og það er
bjart yfir minningu Ásu Krist-
insdóttur. Hún lést aðfaranótt
11. júlí síðastliðinn en Ástríður
dóttir okkar Ástu lést af slys-
förum aðfaranótt 11. júlí á síð-
asta ári. Það var erfitt að kveðja
hana og það er erfitt að kveðja
Ásu en ég vil trúa því að þær
séu núna saman, rétt eins og
svo oft forðum.
Tómas R. Einarsson.
Elsku Ása mín! Þú reyndist
mér ekki bara frábær tengda-
mamma og dætrum mínum
besta amma, heldur urðum við
góðar vinkonur og áttum marg-
ar góðar stundir saman, bæði á
ferðalögum innanlands og utan,
í sumarbústaðnum í Úthlíð, að
ógleymdum fjölskylduboðunum
sem þú varst með um hver jól,
til að halda utan um hópinn
þinn. Af öllum ferðalögunum
sem við fórum í saman, þá
stendur uppúr ferðin, sem við
fórum í fyrir 11 árum, þegar þið
hjónin og við Björn ferðuðumst
saman í 3 vikur til Ítalíu,
Frakklands og Þýskalands. Við
vorum ekki bara heppin með
veður og gististaði, heldur
fannst mér þið bestu ferðafélag-
ar sem ég gat hugsað mér. Allt-
af vorum við sammála og sam-
stiga. Draumur minn var að
vera í Feneyjum á afmælisdag-
inn og það tókst. Þetta var með
skemmtilegustu afmælisdögum
sem ég hef átt. Ég gleymi held-
ur aldrei hvað þú ljómaðir í
framan þegar við sigldum til
ítölsku eyjarinnar Portofino,
sem þú hafðir áður komið til
sem ung stúlka.
Þegar ég fletti í gegnum
myndaalbúmin, sé ég svo marg-
ar yndislegar minningar með
ykkur Svavari; m.a. skíðaferðir í
Bláfjöll, golfferðirnar til Costa
Ballena og þegar þið heimsóttuð
okkur til Spánar þegar við vor-
um nýflutt þangað og þið hjálp-
uðuð okkur að koma okkur fyrir
og einnig frá því að þið heim-
sóttuð okkur til Noregs.
Þið byggðuð húsið á Greni-
melnum saman, þið Svavar og
foreldrar þínir. Þau bjuggu á
efri hæðinni en þið á neðri hæð-
inni. Eftir andlát foreldra þinna
flutti systir þín og fjölskylda
síðan í húsið.
Þú varst svo spennt þegar við
fluttum síðan á efri hæðina fyrir
rúmum tveimur mánuðum. Þú
sagðir að loksins yrði líf aftur á
efri hæðinni, en íbúðin hafði
staðið auð frá því að elskuleg
systir þín og vinkona lést fyrir
tveimur árum. Það var mikill
söknuður hjá þér. En mikið
hefði ég viljað óskað þess að við
hefðum átt lengri tíma saman
hérna í húsinu.
Þú varst svo vel gefin og
minnug, þú fylgdist vel með
þjóðfélagsmálunum og last mik-
ið, ekki bara á íslensku, heldur
líka á ensku, dönsku og þýsku.
Þú hafðir gaman af að rökræða,
en gast stundum orðið æst þeg-
ar stjórnmálin voru rædd og við
ekki alltaf sammála, en aldrei
rifumst við um nokkurn hlut og
aldrei heyrði ég þig tala illa um
nokkurn mann. Þú gast orðið
hneyksluð og lést skoðanir þín-
ar í ljós, þú varst svo hrein og
bein.
Það er svo mikill tómleiki
sem þú skilur eftir. Þú hélst svo
vel utan um fjölskylduna. Það
var svo yndislegt að sjá hvað
það var mikil ást og gagnkvæm
virðing á milli ykkar hjóna. Þið
voruð svo samhent og samstiga
í öllu.
Hjartans þakkir fyrir allar
samverustundirnar, elsku Ása
mín.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(Valdimar Briem)
Ég vil að lokum senda öllum
ástvinum Ásu samúðarkveðju.
Blessuð sé minning þín og hvíl í
friði.
Þín,
Sigrún Jóna.
Vinátta í 68 ár. Það var góð
vinátta.
Við kynntumst í Æfingadeild
Kennaraskólans og sátum þar
saman í 2 vetur. Þar höfðum við
sem aðalkennara Hallgrím Jón-
asson og minntumst við Ása
hans sem okkar besta kennara.
Við áttum heima skammt hvor
frá annarri og vorum mikið
saman. Við lékum okkur eins og
börn gerðu á þeim tíma, með
dúkkur og dúkkulísur, söfnuð-
um leikaramyndum og fórum
oft í bíó, lærðum saman og þá
var ekki verra að hafa Ásu sem
var duglegri en ég í flestu en
var svo hæversk að aldrei mátti
minnast á það. Útileikir voru
stundaðir af miklum krafti, kíló,
hornabolti og stórfiskaleikur og
að vetri til rennt sér á skíða-
sleða niður Grettisgötu alveg að
Hringbraut (Snorrabraut). Ég
fékk að fara með í gamla bílnum
hans Kristins bæði á skíði og í
berjamó. Þegar þetta dugði
ekki fórum við að dansa hjá
Rigmor Hanson og síðan í hand-
bolta hjá ÍR og eyddum mörg-
um góðum stundum í braggan-
um á Hálogalandi. Náðum því
að verða Reykjavíkurmeistarar
en svo leystist liðið upp, ekki
var svo mjög til siðs að halda
áfram handbolta, giftar frúr
með börn!
Ása fór í Kvennaskólann og
þá skildi leiðir í skóla en vin-
áttan hélst alla tíð. Ása stóð sig
með prýði í skóla og hefði getað
stundað margs konar háskóla-
nám en sneri sér að búskap og
barnauppeldi þegar Svavar
hafði heillað hana upp úr skón-
um. Það var ekki slegið slöku
við, börnin urðu 4 og síðan unn-
ið með sínum manni í fyrirtæki
þeirra, versluninni Húsinu.
Samskipti okkar voru mikil
þegar fyrstu börnin fæddust um
svipað leyti, auðvitað merkileg-
ustu börn í heimi.
Ása og Svavar, alltaf nefnd
saman. Þau fengu margt og
mikið út úr lífinu, byggðu sum-
arbústaðinn í Úthlíð, stunduðu
skíði af kappi, seinna golfið og
óteljandi ferðir utanlands og
innan. Ása var félagslynd og
ræktaði vel samband við vini
sína sem margir höfðu verið í
Farfuglum á fyrri árum.
Vágesturinn mikli, krabba-
meinið, lét snemma á sér kræla
en var rekinn burt með harðri
hendi og æðruleysi aftur og aft-
ur þar til baráttunni lauk.
Ása vinkona mín var traust,
hæversk, látlaus en alltaf hress
og kát og hafði unun af að hitta
fólk og spjalla. Framkoma
hennar var eins við alla, glaðleg
og þægileg. Ekki var hún þó
skaplaus og hafði vissulega sín-
ar skoðanir og gat verið mjög
einörð og gaf sig ekki þótt oft
væri hún á annarri skoðun en
ég.
Það skemmtilega við að eiga
„gamla“ vini er að það er hægt
að tala um hversdagslega at-
burði sem gerðust fyrir meira
en 60 árum eins og þeir hefðu
gerst í gær. Það gefur ótrúlega
lífsfyllingu en getur orðið næsta
spaugilegt í eyrum annarra.
Ég þakka Ásu vinkonu minni
alla samfylgdina og sendi Svav-
ari, börnum og barnabörnum
mínar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Hvíl í friði.
Erla Emilsdóttir.
Þá er kær vinkona mín hún
Ása látin. Okkur fannst hún
heyja ansi langt stríð við þenn-
an illræmda sjúkdóm, sem vann
að lokum en satt að segja virtist
í öll þessi ár að hún myndi snúa
á hann með bjartsýni og léttu
skapi. Alltaf sagðist hún hafa
það gott þegar maður spurði
hana og fór hún allra sinna
ferða. Við vorum ábyggilega í
einum elsta saumaklúbbi í bæn-
um. Ungar vorum við allar í
Farfuglafélagi Reykjavíkur,
ferðuðumst saman, fórum í
Heiðarból og Valaból og það var
mikið sungið og hlegið. Allar
stofnuðum við heimili um tví-
tugt og upp úr því byrjuðum við
í saumaklúbb. Hún var drif-
fjöðrin í honum. Á hverju hausti
hringdi hún og kallaði okkur
saman á fyrsta fundinn, alltaf
biðum við og treystum á Ásu.
Nú erum við bara tvær eftir svo
fundunum fer eitthvað fækk-
andi. Og þrátt fyrir allt hélt hún
okkar síðasta saumaklúbb í vor.
Nú verður Ása ekki til að
hringja til okkar í haust. Við
kveðjum hana með söknuði, því
hún var alltaf glöð og hress og
vorkenndi sjálfri sér aldrei og
létti okkur öllum lundina.
Við samhryggjumst Svavari
innilega, hann hefur alltaf verið
eins og klettur við hlið hennar
ásamt börnunum, tengdabörn-
um og barnabörnum.
Guð blessi ykkur,
Anna.
Þegar sól er hæst á lofti og
Biskupstungurnar skarta sínu
fegursta þá stöndum við frammi
fyrir þeirri staðreynd að lífið er
ekki óendanlegt.
Við komum í þennan heim og
kveðjum hann. Á þessum tíma-
mótum rifjast upp minningar
liðinna ára með okkar vinahjón-
um Ásu og Svavari, en sú vin-
átta byrjaði þegar við byggðum
okkur sumarhús hlið við hlið við
Skyggnisgötu í landi Úthlíðar
fyrir þrjátíu og þremur árum og
áttum þar góðar samverustund-
ir óslitið til þessa dags.
Þegar haustaði og vetur gekk
í garð ferðuðumst við saman til
fjarlægðra staða, t.d. Mósel- og
Rínardals, Egyptalands, Karab-
askahafsins og Bandaríkjanna.
Að ógleymdum árvissum skíða-
ferðum til Austurríkis og Ítalíu.
Þessar ferðir sitja í minning-
unni en Ása undirbjó ferðalög
okkar mjög skipulega með að-
stoð dönsku ferðahandbókarinn-
ar og var allt fullkomið og út-
hugsað enda þau hjón frábærir
ferðafélagar. Á síðari árum voru
golf og golfferðir erlendis eft-
irminnilegur þáttur í tilveru
okkar sem við minnumst með
miklu þakklæti. Ásu var gefinn
ótrúlegur lífskraftur í veikind-
um sínum, voru þau mál ekki til
umræðu, hún var ávallt hress
og dugleg til hins síðasta.
Blessuð sé minning hennar.
Sigurður R. og
Rebekka.
Við vorum 27 stúlkur sem
hófum nám í sömu bekkjardeild
við Kvennaskólann í Reykjavík
haustið 1946. Í hópnum var Ása
Kristinsdóttir sem lést 11. júlí
síðastliðinn eftir baráttu við erf-
iðan sjúkdóm.
Ég var samferða Ásu í skól-
ann á morgnana ásamt nokkr-
um bekkjarsystrum og var þá
gengið greitt og gert að gamni
sínu og hlegið dátt. Ása gegndi
trúnaðarstörfum fyrir skólann
og eitt árið var hún hringjari
skólans. Einu sinni var hún
fengin til þess að kenna stúlkum
í 1. bekk í forföllum kennara.
Fór henni það starf vel úr hendi
og náði hún góðum tökum á
kennslunni. Við Ása vorum í liði
Kvennaskólans sem sigraði í
kvennaflokki í keppni fram-
haldsskólanna í handbolta árið
1949. Við Ása vorum einnig
saman í ferðafélaginu Farfugl-
um. Þar voru einnig Svavar
maður Ásu, Helga systir hennar
og fleiri vinir.
Við skólasysturnar höfum
hist nokkrum sinnum á ári og
borðað saman í hádeginu. Þá
höfum við Ása átt samleið þar
sem skammt er á milli heimila
okkar. Mér fannst mikið vanta
ef Ása gat ekki komið. Í einni
slíkri ferð sagði hún við mig:
„Ef aðstæður í veikindum verða
erfiðar verður maður að taka
því.“ Ég samþykkti það.
Ég kveð hana með miklum
söknuði og votta fjölskyldu
hennar og vinum samúð á þess-
ari erfiðu stund. Guð gefi okkur
öllum styrk í sorg okkar.
Ásta Ólafsdóttir.
Ása Kristinsdóttir
✝ Sigurður Jóns-son fæddist í
Vestmannaeyjum
24. júlí 1940. Hann
andaðist á Heil-
brigðisstofnun
Vestmannaeyja 25.
júlí 2011.
Foreldrar hans
voru Karólína Sig-
urðardóttir, f. í
Vallarhjáleigu í
Hvolshreppi 1899,
og Jón Sigurðsson, f. í Mikla-
holti í Miklaholtshreppi á Snæ-
fellsnesi árið 1900, d. í Vest-
mannaeyjum 24. janúar 1980.
Foreldrar Karólínu voru Sig-
Sigurður brenndist mjög al-
varlega á þjóðhátíð 1956 og
markaði það líf hans. Hann hóf
sjómennsku 1959 og var á mörg-
um bátum, flestum frá Eyjum,
þar á meðal Gæfunni, Gullborg-
inni með Binna í Gröf, Árna í
Görðum og Sjöstjörnunni. Hann
tók próf við Stýrimannaskólann
í Vestmannaeyjum 1987 og var
stýrimaður á nokkrum bátum
eftir það, m.a. á m/b Þóri og
m/b Illuga. Sjómennskuna
stundaði hann af kröftum í 40 ár
þrátt fyrir nokkur alvarleg slys
um ævina og var heiðraður af
Sjómannadagsráði og Sjó-
mannafélaginu Jötni á sjó-
mannadag 2002.
Útför Sigurðar fer fram frá
Landakirkju í dag, 28. júlí 2011,
og hefst athöfnin kl. 14.
urður Unason og
Geirlaug Guð-
mundsdóttir. For-
eldrar Jóns voru
Sigurður Jónsson í
Syðstu-Mörk og
Margrét Gísladóttir
frá Saurum í
Helgafellssveit.
Tvær elstu systur
Sigurðar voru
Geirlaug og Krist-
ín, en þriðja er
Margrét, sem býr í Vest-
mannaeyjum. Sigurður bjó á
æskuheimili sínu, Vest-
mannabraut 73, sem foreldrar
hans byggðu.
Sagnaþulur, sjómaður af Guðs
náð, bóndi, vinur og sérstæður
persónuleiki sem færði samferða-
mönnum sínum stanslaust tón
sem skipti máli og vakti hugsun
hins vonglaða.
En þetta var ekki auðvelt mál,
því menn búa við mismunandi
skilyrði til að nema lóðningar
sem gefa það sem skiptir máli.
Diddi var einstaklega traustur
vinur vina sinna, en hann gat á
augabragði brugðist við eins og
brimhnefi ef það pusaði ósann-
girni eða óréttlæti. Og þar gilti
ekkert ha eða uss. Diddi hafði
blátært brjóstvit með mikla
reynslu og mikið verkvit, allt sem
skiptir máli í dagsins önn til sjós
og lands.
Lífsbaráttan var enginn leik-
ur, barátta, barátta, vinna og aft-
ur vinna. Í Þjóðhátíðarslysi við
brennuna á Fjósakletti fyrir
mörgum árum slasaðist Diddi
mjög alvarlega og þótt hann væri
harðjaxl af rótsterkustu gerð
náði hann sér aldrei eftir það slys
og það sem sárast var, trygginga-
kerfið hunsaði hann oft á tíðum,
þyngdi róðurinn í stað þess að
létta hann.
Sigurður Jónsson var skotklár
til allra verka sem hann vildi, víð-
lesinn og víðmenntaður með vak-
andi auga sínu á lífsins melódí,
mönnum og málefnum úr ótrú-
legustu áttum. Hann var hispurs-
laus, skemmtilegur og hnyttinn
og að lenda með Didda þegar
hann var í sögustuði var eins og
að lenda í leikhúsi sem mátti
standa til eilífðar. Hann kunni
raddir og takta margra sam-
ferðamanna sinna og spann þá
þráðinn af slíkri snilld að með
ólíkindum var. Þá lifnuðu raddir
Stebba pól, Einars í Betel og
Óskars bróður hans, Sigurgeirs
löggu og fleiri snillinga sem
gerðu garðinn frægan.
Didda er sárt saknað, hann
hafði svo mikið að gefa en tróð
fólki ekki um tær hvorki í þeim
efnum né öðru. Það hefðu hins
vegar svo margir haft bæði gott
og gaman af að njóta yndisáru
hans í sínu besta pússi. Hann var
aldrei gloppóttur í gáfum sínum
því þar var úr býsnum að spila en
gloppótt var samfylgd hans með
Bakkusi, því miður, því það var
Diddi sem tapaði á því en ekki
Bakkus.
Diddi var ljúfmenni með lífs-
sýn vinnandi fólks, fólks sem
þekkir ekki silfurbakka né söfn-
unarreikninga í bönkum. Diddi
var eins og fólk flest, frábær fé-
lagi, dugnaðarforkur, trygglynd-
ur og sanngjarn. Gamalkunnar
raddir vina lífsleiðarinnar munu
ugglaust standa á bryggjunni
þegar Diddi bregður á keng í
höfn himnarannsins sagnaþulur,
sjómaður og vinur af Guðs náð.
Árni Johnsen.
Sigurður Jónsson