Morgunblaðið - 05.09.2011, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2011
Ljósanótt var haldin um helgina í
Reykjanesbæ en hún hófst á
fimmtudaginn þegar um 2.000
gasblöðrum var sleppt til himins
framan við Myllubakkaskóla í
Reykjanesbæ.
Á laugardaginn var farið í svo-
kallaða Árgangagöngu en þá rað-
aði fólk sér upp á Hafnargötunni
við það húsnúmer sem samsvaraði
aldri þess og gekk síðan fylktu
liði niður að aðalsvæði hátíð-
arinnar. Síðar sama dag var tón-
leikasyrpa í Duushúsum og uppúr
tíu um kvöldið var síðan flug-
eldasýning.
Lokadagurinn var í gær, sunnu-
dag, en þá var haldið golfmót um
morguninn og Gospelkrakkar
héldu fjölskyldutónleika í Kefla-
víkurkirkju. Um kvöldið lauk
þessu síðan með hátíðartón-
leikum. Mörg þúsund manns sóttu
hátíðina í ár. borkur@mbl.is
Mörg þús-
und manns
á Ljósanótt
Gott veður var yfir
hátíðina um helgina
Morgunblaðið/Jim Smart
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Viðræður Hafnarfjarðarbæjar við
innlenda lífeyrissjóði, innlendar
fjármálastofnanir og lánasjóð
sveitarfélaga vegna endurfjár-
mögnunar á ríflega 13-14 milljörð-
um sem teknar voru að láni hjá
Depfa-bankanum eru á lokametr-
unum, að sögn Guðmundar Rúnars
Árnasonar, bæjarstjóra. Hann
býst við að þeim ljúki í þessum
mánuði.
Upphaflega var það áætlun bæj-
arins að semja við Depfa-bankann
um að framlengja lánin en bankinn
var ekki tilbúinn til þess. Því var
leitað á innlend mið eftir endur-
fjármögnun.
Árshlutareikningur Hafnarfjarð-
ar var lagður fram í vikunni og þar
kemur fram að tap á A- og B-
hluta bæjarsjóðs nam 751 milljón
króna, þ.e.a.s. eftir fjármagnsliði.
Guðmundur Rúnar segir að ástæð-
an sé óhagstæð gengis- og verð-
lagsþróun á fyrri hluta ársins.
Rekstrarniðurstaða A- og B-
hluta fyrir fjármagnsliði var já-
kvæð um 886 milljónir og Guð-
mundur Rúnar bendir á að það sé
viðsnúningur upp á um 800 millj-
ónir.
Aðspurður segir hann að ekki
þurfi að skera niður í rekstri bæj-
arins vegna tapsins. Þetta séu
reiknaðar stærðir og komi ekki til
útgjalda á þessu ári. Hærri erlend-
ar skuldir vegna slakari stöðu
krónunnar muni vissulega hækka
greiðslubyrði bæjarfélagsins til
langs tíma.
Það sem skipti máli gagnvart
rekstri bæjarins séu þættir eins og
veltufé frá rekstri og framlegð en í
A- og B- hluta stefni veltufé frá
rekstri í að verða um tveir millj-
arðar á þessu ári. Það fé megi
nýta til að greiða af skuldum og
muni það nýtast í viðræðum um
endurfjármögnun. „Uppgjörið sýn-
ir getu okkar til að standa undir
þessu til framtíðar,“ segir hann.
Á hinn bóginn þurfi að endur-
skoða fjárhagsáætlun bæjarins
vegna kjarasamninga en samning-
ar auki bæði útgjöld og tekjur.
Tekjur af útsvari hafi raunar verið
hærri en ráð var fyrir gert.
Viðræðum um endurfjármögnun að ljúka
Morgunblaðið/Eggert
Hafnarfjörður Ekki þarf að skera
niður í rekstri vegna tapsins.
Starfsemi ljós-
myndafélagsins
og viðburðir
vetrarins verða
kynntir á opnum
kynningarfundi
sem Fókus, fé-
lag áhuga-
ljósmyndara,
býður til annað
kvöld, þriðjudag.
Fundurinn verð-
ur í húsnæði Skákfélags Reykja-
víkur að Faxafeni 12 og hefst
klukkan 20.
Fókus heldur félags- og
fræðslufundi hálfsmánaðarlega yf-
ir vetrartímann. Félagsmenn sýna
myndir og fagmenn og félagsmenn
halda fræðslufyrirlestra. Félagið
heldur ljósmyndasýningar og ljós-
myndakeppnir, efnir til ljós-
myndaferða og heldur úti upplýs-
inga- og fræðsluvef.
Fókus með
opinn
félagsfund
Úr ljósmyndaferð
við Jökulsárlón.