Morgunblaðið - 05.09.2011, Blaðsíða 25
» Mikið fjör var í Íslensku óperunni þegar haust-dagskrá Skjás eins var kynnt. Háloftastemning
lá í loftinu enda sáu flugfreyjur og flugmenn um að
skenkja gestum fljótandi veitingar.
Haustdagskrá Skjás eins kynnt
Morgunblaðið/Eggert
Ungar konur í heiðbláum flugfreyjubúningum sáu um að slökkva þorsta gestanna.
Þorbjörg Marinósdóttir og Alfa Lára Guðmundsdóttir. Ágúst Kristmannsson og Sóley Kristjánsdóttir.Gestir fóru í gegnum skoðun.
MENNING 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2011
Zombíljóðin – frumsýnd á föstudag
Hvað ertu að hlusta á um þessar mundir?
Um þessar mundir er það Adele, GusGus, Eminem ásamt
því sem fer reglulega á fóninn; Billie Holliday, Fleetwood
Mac, Neil Young, Erla Þorsteins, Tom Waits, Blondie,
Dusty Springfield, Joni Mitchell, Stevie Wonder … ég get
ekki hætt …
Hvaða plata er sú besta sem nokkurn tíma hefur verið
gerð að þínu mati?
Rumours með Fleetwood Mac er að mínu mati besta plata
sem gerð hefur verið.
Hver var fyrsta platan sem þú keyptir og hvar keyptir
þú hana?
Fyrsta platan sem ég keypti held ég að hafi verið Á fullu,
safnplata með snillingum eins og Huey Lewis and the
News, Valli og Víkingarnir með „Úti alla nóttina“ og svo
Egó – „Stórir strákar fá raflost“. Annars man ég mun betur
þegar ég og vinkona mín fórum spes ferð í bæinn til að
kaupa Sykurmolana – Life’s too good, ég fékk bleika, hún
appelsínugula, keyptum þær í plötubúðinni í Austurstræti.
Hvaða íslensku plötu þykir þér vænst um?
Mér þykir mjög vænt um Spilverk þjóðanna, brúna um-
slagið. Svo þykir mér líka ótrúlega vænt um öll okkar gömlu
og fallegu dægurlög, Erla Þorsteins, Helena Eyjólfs og
Hallbjörg Bjarnadóttir eru þar í miklu uppáhaldi.
Hvaða tónlistarmaður værir þú mest til í að vera?
Hmm sjáum nú til, það gæti verið gaman að vera
Beyoncé, samt svakaleg vinna að vera hún. Eða vera Adele
svona ung og efnileg en best er held ég að vera Björk, hún
er að gera hluti sem um verður skrifað í sögubókunum.
Annars held ég að ég vilji helst vera áhorfandi og njóta
þess að hlusta.
Hvað syngur þú í sturtunni?
Ég syng „wheen the moon hits the sky like a grreat a
pizza pie dat’s aaamoree … dat’s amore“ (syngja bakradd-
irnar).
Hvað fær að hljóma villt og galið á föstudagskvöldum?
Á föstudagskvöldum er það „Strawberry letter 23“ með
Brothers Johnson, Dreams með Fleetwood Mac, Best of
Blondie, Reflections með Supremes, Marvin Gaye og Tammi
Terrell, Mannakorn, Sálin og Hljómar svo eitthvað sé nefnt.
En hvað yljar þér svo á sunnudagsmorgnum?
Svo á sunnudögum er það t.d. Django Reinhardt, Henry
Mancini Amarcord eða Breakfast at Tiffanys, Radio days og
Ólöf Arnalds sem ylja og gleðja.
Í mínum eyrum Edda Björg Eyjólfsdóttir
Þykir vænt um öll
gömlu dægurlögin
Morgunblaðið/Kristinn