Morgunblaðið - 05.09.2011, Síða 24
24 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2011
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
VARAÐU
ÞIG
KISI!
FISKAR AF MÍNU KYNI ERU
EITRAÐIR OG GETA GERT ÞIG
ALVARLEGA VEIKANN
ÞAÐ
ER ÚTI
UM MIG
MAGAR AF MÍNU KYNI
GETA BORÐAÐ 12 BURRITOS Á
STÆRÐ VIÐ HAUSINN Á MÉR
ÉG ER
EKKERT MJÖG
SPENNTUR FYRIR
ÞVÍ AÐ BORÐA
HEIMA Í KVÖLD
KONAN
MÍN ÆTLAR
BARA AÐ HAFA
AFGANGA Í
MATINN
HVAÐ ERU
AFGANGAR?
SLEPPTU
HAUS-
KÚPUNNI
EÐA
ÉG...
EKKI!
ÞÚ SKEMMIR
HAUSKÚPUNA!
VERTU RÓLEGUR,
ÉG SKAL FARA VEL
MEÐ HANA...
Á
MEÐAN ÞIÐ
ÚTVEGIÐ
PENINGANA
FINNST
ÞÉR VANTA
RÓMANTÍK Í SAM-
BANDIÐ OKKAR?
JÁ, VIÐ ERUM SVO
UPPTEKIN AÐ VIÐ
GLEYMUM AÐ SINNA
HVORT ÖÐRU
HÉRNA ÁÐUR FYRR
GERÐUM VIÐ ÝMISLEGT TIL AÐ
TJÁ HVORT ÖÐRU ÁST OKKAR,
TIL DÆMIS SKILDIR ÞÚ
REGLULEGA EFTIR SÚKKULAÐI
Á KODDANUM MÍNUM
ÞANGAÐ TIL AÐ
VIÐ KOMUMST AÐ ÞVÍ
AÐ KÖTTURINN OKKAR
VAR AÐ BORÐ ÞAÐ OG
FÁ Í MAGANN
ÞAÐ
VAR SAMT
YNDISLEGT
HUNDA-
ATHVARF
ÞETTA ER Í
HUNDRAÐASTA
SKIPTI SEM ÞÚ
KEMUR TIL OKKAR
Í ALVÖRUNNI?
FÆ ÉG
EINHVERSKONAR
VERÐLAUN?
NEI, ÞAÐ
ÞÝÐIR AÐ ÞÚ
MISSIR
HUNDALEYFIÐ
ÞITT
MISSI?
ÞÚ
ÞARFT AÐ
SÆKJA AFTUR
UM LEYFIÐ OG
TAKA ÖLL
VERKLEGU
PRÓFIN AFTUR
HÉRNA ER
KENNSLUBÓKIN ÞÍN
„HVERNIG
Á AÐ LÆRA AÐ
VERÐA HUNDUR
AÐ NÝJU”
HLUSTAÐU Á
ÞETTA
HÉRNA STENDUR AÐ ÞAÐ SÉU
YFIR SEX HUNDRUÐ OG SJÖTÍU
ÞÚSUND MISMUNANDI
TEGUNDIR SKORDÝRA
VÁ!
ÞÚ ERT ÞÁ ALLAVEGANA EKKI
EINMANA, KALLINN MINN
Fjólur fjöl-
miðlamanna
Til gamans langar
mig að minnast á
tvennt sem ég fann í
blaðinu þegar ég kom
aftur heim eftir
nokkra fjarveru. Í
blaðinu 25. ágúst sl.
var fjallað um áhuga-
verða norðlenska
staði. Á bls. 19 er fyr-
irsögn á stuttri grein:
Afmælishátíð að
Reykjum í Hrútadal.
Með var mynd af að-
alhúsi Reykjaskóla.
En hvar er Hrútadal-
ur? Það örnefni er hvergi til á land-
inu, en það er til í Dalalífi Guðrúnar
frá Lundi. Líklega hefur slegið
svona ótrúlega saman hjá blaða-
manni eða þeim sem gerði fyr-
irsögnina, þetta hefur áreiðanlega
ekki átt að vera fyndni eða út-
úrsnúningur. Héraðsskólinn að
Reykjum í Hrútafirði átti hinsvegar
80 ára afmæli 28. ágúst sl. og hefur
sennilega verið átt við þann stað.
Vonandi hafa engir lent í vandræð-
um þegar stefnan var tekin á stað
sem hvergi er til. Annað var á bak-
síðu 27. ágúst þar sem sagt er frá að
landsliðið í brids sé á leið til heims-
meistaramóts, og segir: þar sem ís-
lenska landsliðið freistast til þess að
endurheimta Bermúdaskálina. Ég
hélt að freistast til væri að gera eitt-
hvað hálfnauðugur.
Ég freistaðist til að
kaupa þetta þegar ég
sá auglýsinguna. Vin-
ur minn talaði svo
mikið um samkomuna
að ég freistaðist til að
fara. Ég freistaðist til
að spila brids þegar ég
sá hvað það var gam-
an. En á heimsmeist-
aramót fer ég til að
freista þess að vinna.
Ég ætla að freista
þess að ná sambandi í
kvöld o.s.frv. Það er
svo algengt að sjá
rangt farið í fjöl-
miðlum með orða-
tiltæki eða málshætti eða algera
vanþekkingu á staðháttum að æra
mætti óstöðugan. En úr því að
Hrútafjörður kom til tals var í sum-
ar sagt frá bílslysi sem varð á
Hrútafjarðarhálsi á Holtavörðu-
heiði. Eru það mestu jarðvegstil-
færslur sem ég hef heyrt um í
seinni tíð. Þótt pressan geti verið
mikil er það ekki afsökun fyrir slæ-
legum vinnubrögðum. Það er jafn
fljótlegt að gera hlutina illa og vel.
Svo má benda á blogg Eiðs Guðna-
sonar þar sem hann tekur á fjólum
fjölmiðlamanna.
Guðmundur
Ást er…
… þegar einn plús einn
eru þrír.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, vatns-
leikf. kl. 10.50, útsk./myndmennt kl. 13.
Árskógar 4 | Handavinna/smíði/
útskurður kl. 9. Félagsvist kl. 13.30. Mynd-
list kl. 16.
Bólstaðarhlíð 43 | Bútasaumur, handa-
vinna, leikfimi kl. 12.45, sögustund kl.
13.30.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist FEBK er spiluð í Félagsheimilinu
Gullsmára á mán. kl. 20.30 og Félags-
heimilinu Gjábakka á mið. kl. 13 og fös. kl.
20.30.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrif-
stofa FEBK í Gullsmára 9, Kópavogi er op-
in mán. og mið. kl. 10-11.30 og í Gjábakka
á miðvikudögum kl. 15-16.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl.
13 í Stangarhyl 4.
Félagsheimilið Gjábakki | Handavinna,
leiðb. til hádegis, botsía kl. 9.30, gler og
postulín kl. 9.30/13, lomber kl. 13, canasta
kl. 13.15. Dagskrá Gjábakka liggur frammi.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postulín
kl. 9, ganga kl. 10, handavinna og brids kl.
13. Félagsvist kl. 20.30.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Kvennaleikfimi hefst í dag kl. 9.15 og 10 í
Sjálandi, kl. 11 í Ásgarði. Vatnsleikfimi
hefst í dag kl. 12.15 og 14.15, skilyrði fyrir
þátttöku er innritun og að vikomandi eigi
lögheimili í Garðabæ. Fræðslufundur FEBG
í Jónshúsi kl. 13, Eirberg kynnir hjálp-
artæki.
Félagsstarf eldri bæjarbúa Seltjarn-
arnesi | Leir á Skólabraut kl. 9. Kaffispjall í
krók kl. 10.30. Íþrottahús/hreyfing kl.
11.20. Handavinna á Skólabraut kl. 13.
Vatnsleikfimi kl. 18.30.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur kl.
9, handavinna og tréútskurður. Frá hádegi
er spilasalur opinn. Á morgun kl. 13 hefst
postulínsnámskeið, kennari Sigurbjörg
Sigurjónsd. Unnið er að gerð haust- og
vetrardagskrár, ábendingar óskast. S.
575-7720.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9, leik-
fimi kl. 9.15. Bænastund kl. 10.15. Mynd-
list kl. 13. Tímap. hjá Helgu fótafr. í s. 698-
4938, tímap. á hárgreiðslustofu í s. 894-
6856.
Hraunsel | Ganga frá Haukah. Ásv. kl. 10,
félagsvist kl. 13.30, kórinn æfir mán. kl.
10.30 og miðvikud. kl. 16. Æfingar byrja
12. sept., nýir félagar velkomnir.
Hvassaleiti 56-58 | Opnað kl. 8. Hádeg-
isverður kl. 11.30. Brids kl. 13.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Smáranum
kl. 13.30. Ný námskeið í zumba og pílates
að byrja. Uppl. í s. 554-2780.
Vesturgata 7 | Kór Félagsstarfs aldraðra í
Reykjavík, Söngfuglarnir, hóf vetrarstarfið
1. sept. kl. 13 undir stjórn Gróu Hreins-
dóttur. Getum bætt við okkur öllum rödd-
um. Upplýsingar og skráning í síma 535-
2740.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, bók-
band og postulínsmálun kl. 9, morg-
unstund kl. 9.30, botsía kl. 10, framhalds-
saga kl. 12.30, handavinnustofa kl. 13, spil
og stóladans kl. 13, hárgreiðslu- og fóta-
aðgerðarstofur opnar.
Sigrún Haraldsdóttir orti vísu á
Leirinn, póstlista hagyrðinga:
Sumarsins óðum skrælnar skraut
og skuggarnir læðast inn,
gatan er bæði grýtt og blaut
og götóttur skórinn minn.
Kristján Eiríksson var ekki seinn
til svars:
Þótt sumarið líði, sölni blóm,
og sæki að nóttin dimm,
og blákaldar tær í blautum skóm
bíti nú frostin grimm,
þá kemur aftur sælust sól,
með seiðandi björtum róm
svo tærnar sem fyrr í frosti kól
fagna í sumarskóm.
Hjálmar Freysteinsson bætti við í
léttum dúr:
Í fæturna er frúin rök
í frosti tærnar brunnar.
Ég hygg það ekki haustsins sök
heldur skótískunnar.
Ágúst Marinósson lagði orð í belg:
Þó sumar kveðji og kólni tíð
og kálbeð frjósi um nætur.
Má fótum stinga í stígvél víð
og standa þurr í fætur.
Sigrún sagði þetta rétt, maður
ætti ekki að fara í göngutúra á
hælaháum bandaskóm – það væri
endemis pjattrófuháttur. Og kerl-
ingin á Skólavörðuholti vorkenndi
Sigrúnu ekkert, heldur sjálfri sér og
orti:
Mér er illa kalt á klóm,
klökk og meidd á fæti,
einmana á skældum skóm
skakklappast um stræti.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af skuggum og skóm