Morgunblaðið - 06.09.2011, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2011
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson,
vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Marta María Jónasdóttir fréttastjóri dægurmála martamaria@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Maður slasaðist í umferðarslysi sem varð í Kópa-
vogi í gærkvöldi. Ökumaður var einn í bílnum.
Að sögn lögreglu er talið að ökumaðurinn hafi
verið í kappakstri við annan og hafi í kjölfarið
misst vald á bílnum. Bíllinn lenti á ljósastaur og
valt. Slysið varð á Hafnarfjarðarvegi við Kópa-
vogslæk, í norðurátt, og þurfti að loka Fífu-
hvammsvegi um tíma vegna slyssins. Að sögn
læknis á bráðadeild Landspítala bendir flest til
að áverkar hans séu minniháttar.
Guðbrandur Sigurðsson, varðstjóri í lögregl-
unni, segir alvarlegt þegar ökumenn missi stjórn
á bílum sínum í kappakstri. Sem betur fer séu
þessi mál ekki algeng og hann segir að þessum
málum sé heldur að fækka. egol@mbl.is
Ökumaður slasaður eftir umferðarslys í Kópavogi
Morgunblaðið/Eggert
Grunur um að kappakstur hafi valdið slysinu
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Áður en viðræður Íslands og Evr-
ópusambandsins um landbúnað-
armál geta hafist þurfa íslensk
stjórnvöld að leggja fram áætlun
um hvenær þau ætla að gera
breytingar á lögum og stofnunum
sem snerta landbúnað. Landbún-
aðarráðherra telur að það þurfi að
liggja ljósar fyrir að sú áætlunar-
gerð sem ESB krefst feli ekki í
sér aðlögun né breytingar á lög-
um eða regluverki, áður en aðild
hefur verið samþykkt.
Jan Tombinski, fastafulltrúi
Pólverja, sendi í gær bréf til ís-
lenskra stjórnvalda þar sem fram
kemur að Ísland sé ekki nægilega
búið undir samninga um landbún-
aðarmál í aðildarviðræðum við
Evrópusambandið. Össur Skarp-
héðinsson utanríkisráðherra hafði
fyrr á þessu ári sagt að hann vildi
að í samningaviðræðum við ESB
um aðild að sambandinu yrði
strax farið að ræða erfiðustu mál-
in, þ.e. sjávarútvegs- og landbún-
aðarmál.
Þurfa að breyta löggjöf
Í skýrslunni kemur fram að
skipulag landbúnaðarmála á Ís-
landi, stofnanakerfi og eftirlit sé
talsvert frábrugðið sameiginlegri
landbúnaðarstefnu ESB. Gangi
Ísland í ESB skuldbindi landið sig
til að framfylgja þeim lögum sem
gilda um landbúnaðar- og
byggðamál. Þetta snerti einkum
kerfi beingreiðslna til bænda og
sameiginlegs innri markaðar. Til
að þetta sé hægt verði að gera
breytingar á löggjöf og stofnun-
um sem sinna landbúnaðarmál-
um.
Í skýrslunni segir að Ísland
hafi ekki gefið neinar vísbending-
ar um hvenær þessar breytingar á
lögum og stofnunum verði gerðar
eða hvernig verði staðið að und-
irbúningi þeirra. „Slíkar áætlanir
eru hins vegar ómissandi grunnur
að viðræðum um þennan kafla,“
segir í skýrslunni, sérstaklega í
ljósi þess að Ísland ætli sér ekki
að gera breytingar á stefnu sinni
eða löggjöf fyrr en aðildarsamn-
ingur hafi verið samþykktur í
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Jón Bjarnason sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra vildi ekki tjá
sig um málið þegar eftir því var
leitað en í yfirlýsingu sem hann
sendi frá sér í gær segir að í rýni-
skýrslunni setji ESB skilyrði fyrir
því að farið sé í samningaviðræður
við Ísland um landbúnaðarmál.
„Af þeim sökum telur sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra
nauðsynlegt að fulltrúar ESB
skýri með fullnægjandi og
tæmandi hætti hvað átt
er við með þeim skilyrð-
um sem fram koma í
erindi ESB.
Ráðherra sjávarút-
vegs- og landbúnaðar-
mála mun hér eftir
sem hingað til leggja
áherslu á að fylgja
samþykkt alþingis um
aðildarviðræður.“
Vill fá tímaáætlun frá Íslandi
Evrópusambandið telur að Ísland sé ekki nægilega búið undir samninga um landbúnaðarmál
Landbúnaðarráðherra vill ekki gera breytingar fyrr en afstaða hefur verið tekin til aðildar
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Kínverski auðkýfingurinn Huang
Nobu hyggst meðal annars koma
upp golfvelli á Grímsstöðum á Fjöll-
um ef hann fær leyfi til að kaupa
jörðina. Nóg er landrýmið á jörðinni
en ljóst er að aðstæður munu að
sumu leyti verða erfiðar til golfiðk-
unar.
Á veturna getur gert mikil óveður
sem standa dögum saman og ekki er
hundi út sigandi. Þarna hefur líka
mælst einhver mesti kuldi á Íslandi,
mínus 38 stig á Selsíus. Ársmeð-
alhitinn er á bilinu 0 til 1,5 stig.
Stór golfvöllur kostar hundruð
milljóna króna. Hæð yfir sjávarmál
á Grímsstöðum er um 380 metrar og
veðurfar er með því þurrasta sem
þekkist á landinu. Talsverður gróður
mun vera fyrir á svæðinu, að sögn
heimildarmanna, ýmis mýrargróður
en einnig snarrótarpuntur sem golf-
urum þykir reyndar erfiður á flöt-
unum vegna þess hve þétta og
sterka kolla hann getur myndað.
Kúlurnar skjótast þá í ýmsar áttir
þegar þær lenda.
Trausti Jónsson veðurfræðingur
segir sumrin styttri þarna en víðast
hvar á láglendi í byggð en ekki sé
þar sérlega snjóþungt. Hins vegar
geti snjór legið yfir í marga mánuði.
Þurrt og kalt en ekki snjóþungt
„Það snjóar þarna oftast eitthvað í
september og sömuleiðis á vorin
eitthvað fram á mánaðamótin maí/
júní, stundum eitthvað lengur,“ seg-
ir Trausti. Aðalvandinn á golfvöll-
unum sé oft frostlyftingurinn á flöt-
unum. Þá þarf að losna við vatnið
sem frýs og þiðnar á víxl og raskar
landslaginu. Menn verði því að
leggja drenlagnir sem geti verið rán-
dýrar en það sé vafalaust hægt líka á
Grímsstöðum ef menn „eigi nóg af
peningum,“ segir Trausti.
Völlur Golfklúbbs Akureyrar er
um 100 metra fyrir ofan sjávarmál.
Þar hefur stundum borið á smávegis
kali en tjónið aldrei verið meira en
eftir sl. vetur, segir Halla Sif Svav-
arsdóttir, framkvæmdastjóri
klúbbsins. „Elstu menn muna ekki
annað eins, þetta var líka mjög sér-
stakur vetur. Það voru flatir og teig-
ar sem skemmdust en brautirnar
náðu sér mjög fljótt.“ Hún sagði að
ekki væri búið að meta heildarkostn-
aðinn af kalskemmdunum.
Golfið á Grímsstöðum gæti orðið dýrt
Hæð yfir sjávarmál nær 400 metrar og sumrin eru stutt en veturnir kaldir og byljóttir
Svæðið er hins vegar með þeim þurrustu á Íslandi en veita yrði vatni af mýrlendi með dreni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Grafarholt Ekki er ljóst hve stór
völlur á að vera á Grímsstöðum.
Umferðin á
hringveginum
dregst stöðugt
saman, að sögn
Vegagerð-
arinnar. Sé tekið
mið af 16 lyk-
ilteljurum þá
dregst umferðin
í ágúst saman um
3,2 prósent frá
sama mánuði í
fyrra. Það sem af er ári mælist upp-
safnaður samdráttur 5,7 prósent og
hefur ekki verið meiri síðan að
minnsta kosti árið 1975.
Nú stefnir í að samdrátturinn
verði milli fimm og sex prósent á
árinu. kjon@mbl.is
Bílaumferðin á
hringveginum
minnkar enn
Hægt Teppur eru
þó ekki úr sögunni.
Lögreglan í Kópavogi fékk í gær
tilkynningu um að tveir menn
hefðu reynt að lokka dreng upp í bíl
með því að bjóða honum sælgæti.
Drengurinn þáði ekki sælgætið
heldur hljóp í burtu.
Málið er nú til rannsóknar hjá
lögreglu en nokkuð hefur verið um
sams konar tilkynningar á höf-
uðborgarsvæðinu þar sem tveir
menn reyna ýmsar leiðir til að
lokka börn upp í bíl hjá sér. Málin
eru enn til rannsóknar hjá lögreglu
en enginn hefur verið handtekinn
enn sem komið er.
Reyndi að tæla
dreng upp í bíl
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks í utanrík-
ismálanefnd og sjávarútvegs- og landbún-
aðarnefnd hafa óskað eftir sameiginlegum
fundi þingnefndanna með utanrík-
isráðherra og sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra til að ræða skýrslu ESB um
landbúnaðarmál.
Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæð-
isflokksins, segir ljóst að ESB geri
verulegar kröfur til Íslands áður en
eiginlegar samningaviðræður hefj-
ast. Þetta þurfi að ræða, m.a. með
vísan til svars sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðuneytisins.
Vilja fund í
þingnefndunum
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
Ólöf
Nordal
Jón
Bjarnason
Össur
Skarphéðinsson