Morgunblaðið - 06.09.2011, Page 10
Morgunblaðið/Eggert
Hollusta Þórunn Steinsdóttir er áhugakona um matargerð og hollt líferni.
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Þórunn Steinsdóttir, meist-aranemi í lögfræði við Há-skólann í Reykjavík, ermikil áhugamanneskja um
matargerð, holla lifnaðarhætti og
forvarnir gegn krabbameini. Hún
heldur úti vefsíðunni matturmat-
arins.com þar sem hún miðlar af
þeirri þekkingu sem hún hefur viðað
að sér um tengsl matar og krabba-
meins.
„Ég hef alltaf haft áhuga á mat
og matargerð og hvaða áhrif mat-
urinn hefur á okkar andlegu og lík-
amlegu heilsu. Krabbamein er eitt-
hvað sem snertir okkur eiginlega öll
og allir sem þekkja einhvern sem
hefur greinst með krabbamein og
hafa upplifað þetta varnarleysi þeg-
ar það greinist. Ég þekki kannski
fleiri heldur en margir og þess
vegna hefur þetta efni verið mér sér-
staklega hugleikið,“ segir Þórunn.
Meðvituð um heilsuna
Fyrir tveimur árum flutti Þór-
unn til Vancouver með manninum
sínum sem var í meistaranámi. Á
meðan var hún heima í árslöngu
fæðingarorlofi og nýtti tímann vel til
að lesa sér til. Þórunn segir Vancou-
ver vera ótrúlega græna borg og
fólk sé mjög meðvitað um heilsu og
umhverfi og hafi mikinn áhuga á öllu
sem tengist því. Þannig fór hún
smám saman að velta mikið fyrir sér
hvaða efni væru í matnum og hvaða
áhrif þau hafa á okkur. Í kjölfarið las
hún bókina Bragð í baráttunni, mat-
ur sem vinnur gegn krabbameini.
En höfundur hennar er kanadíski
prófessorinn Richard Béliveau.
„Það var margt í þeirri bók sem
opnaði augu mín og mörg atriði sem
ég vissi ekki um og fannst spenn-
andi. Það varð til þess að ég fór að
lesa mér mjög mikið til um þetta. Í
Vancouver er mikið af bókabúðum
og ég hafði góðan aðgang að lesefni.
Eftir að hafa viðað að mér frekar
miklum upplýsingum langaði mig að
deila þeim með almenningi og setti
þá upp vefsíðuna,“ segir Þórunn.
Bólguhamlandi fitusýrur
Í slíkum fræðum er mikil um-
fjöllun um virk plöntuefni sem finn-
ast yfirleitt í litríkum ávöxtum og
grænmeti. Er fólk því hvatt til að
borða mikið af slíkum efnum. Þá er
einnig mælt með trefjaríkum fæðu-
tegundum og ýmsu kryddi. Eins er
mikilvægt að jafnvægi sé á milli
ómega-3 fitusýra og ómega-6 fitu-
sýra í líkamanum. En þær fyrr-
nefndu eru bólguhamlandi á meðan
hinar eru bólguhvetjandi. Ójafnvægi
á þessum tveimur fitusýrum veldur
því að bólgur myndast en nýjustu
Plöntuefni reynast
vel sem forvörn
Í litríku grænmeti og ávöxtum finnst mikið af virkum plöntuefnum sem draga úr
bólgum í líkamanum. Nýjustu rannsóknir sýna að krabbamein myndast mjög oft í
slíkum bólgum. Þórunn Steinsdóttir, áhugakona um matargerð og holla lifn-
aðarhætti, hefur kynnt sér slíkar rannsóknir.
10 DAGLEGT LÍFÚtivist og hreyfing
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 2011
Nauðsynlegt er að rækta bæði lík-
ama og sál. Mörgum þykir gott að
stunda hugleiðslu í erli dagsins og
slíkt má auðveldlega gera heima hjá
sér í ró og næði. Á vefsíðunni orku-
lind.is má finna undir krækjunni
hugleiðsla upptökur af hugleiðslum.
Tilvalið að spila þegar fólk kemur
útkeyrt heim úr vinnu eða skóla og
vantar hugarró.
Á vefsíðunni er einnig að finna
góð ráð um hugleiðslu og þar segir
að auðveldasta leiðin fyrir byrjendur
sé að stunda leidda hugleiðslu. En
þetta er t.d. gert með því að láta
einhvern lesa fyrir sig textann eða
lesa inn á spólu textann og nota
hann svo til að hugleiða eftir. Þá er
nauðsynlegt fyrir byrjendur að koma
í veg fyrir truflun og aðgæta að allt
sé hljótt í kringum mann og slökkt
á símum. Einnig er mikilvægt að
vera ekki í tímaþröng því það getur
komið í veg fyrir að þú náir fullkom-
inni ró. Til að hjálpa til við að koma
sér í hugleiðsluástand er gott að
brenna reykelsi, t.d. er sandalviður
mjög góður og/eða spila milda hug-
leiðslutónlist í bakgrunninum.
Vefsíðan www.orkulind.is
Morgunblaðið/Ómar
Slökun Þessi virðist nota tímann til að hugleiða í góða veðrinu.
Hugleiðsla fyrir byrjendur
Nú fara margir af stað út í
haustið með loforð um að
taka sig á og fara að hreyfa
sig meira. Zumba er sniðugur
kostur fyrir þá sem hafa gam-
an af því að læra einföld spor
og hreyfa sig við hressa tón-
list. Í zumba-tímum er notuð
suður-amerísk tónlist í bland
við ýmsilegt annað. En tónlist-
in fer dálítið eftir því sem
kennarinn velur hverju sinni.
Zumba er skemmtilegur suðu-
pottur af Salsa, Merenge,
Cumbia og Reggaeton og
ættu allir að fara dansandi
glaðir út í haustið. Fyrir þá
sem vilja kynna sér málið er
hægt að kíkja á youtube og sjá
þar myndbönd frá zumba-
námskeiðum víðs vegar um
heim. Á Íslandi eru zumba-
námskeið haldin víða á höf-
uðborgarsvæðinu og víðar.
Endilega …
… prófið að fara í zumba
Morgunblaðið/Ernir
Stuð Danssporin í zumba eru einföld.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Suðurlandsbraut 20, 108 Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Farðu alla leið með Eirvík
Hannað af alúð og framleitt af þýskri nákvæmni.
Ráðgjöf, hönnun og uppsetning allt á einum stað.
Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur.
Innréttingar
og eldhústæki