Morgunblaðið - 06.09.2011, Side 36
ÞRIÐJUDAGUR 6. SEPTEMBER 249. DAGUR ÁRSINS 2011
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Fór tvisvar í gegnum 110% leiðina
2. Andlát: Birgir Björnsson
3. Gunnar las yfir Guðjóni Þórðar
4. Alvarlegt slys í Kópavogi
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sænska leikkonan og leikstjórinn
Pernilla August verður viðstödd sýn-
ingu á kvikmynd sinni Svínastíunni í
Bíó Paradís á morgun en þá hefjast
sýningar á þeim fimm kvikmyndum
sem tilnefndar eru til Kvikmynda-
verðlauna Norðurlandaráðs í ár.
Pernilla August í
Bíó Paradís
Bókmenntahá-
tíðin í Reykjavík
verður sett í Nor-
ræna húsinu á
morgun kl. 15 og
mun Nóbelsverð-
launahafinn í bók-
menntum árið
2009, Herta Müll-
er, flytja ávarp við
opnunina en Müller er einn af gestum
hátíðarinnar. Setningin verður í
beinni útsendingu á Rás 1. Hátíðinni
lýkur 11. september.
Müller við opnun
Bókmenntahátíðar
Bandaríski grínistinn DeAnne
Smith verður með uppistand á Só-
dómu annað kvöld kl. 21. Smith mun
vera einn vinsælasti grín-
isti Montréal í Kanada
og hefur farið víða um
heim með uppistand
sitt. Auk Smith kemur
fram uppistandarinn
Rökkvi Vésteins-
son en þau
hafa komið
fram saman
áður.
DeAnne Smith með
uppistand á Sódómu
Á miðvikudag
Norðan 10-18 m/s, hvassast við NA- og A-ströndina. Þurrt á S- og
SV-landi, annars rigning. Hiti 4 til 14 stig, hlýjast S-lands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Fremur hæg austlæg átt, en norðlægari en í gær. Skúrir, einkum
síðdegis. Þokubakkar á annesjum N- og A-lands. Hiti 7 til 15 stig.
VEÐUR
Eiður Smári Guðjohnsen tók
við fyrirliðabandinu í lands-
liðinu í knattspyrnu á nýjan
leik í Ósló og leikur í kvöld
sinn 67. landsleik þegar Ís-
land mætir Kýpur á Laug-
ardalsvelli. Með sigri getur
Ísland lyft sér af botni rið-
ilsins og Eiður sagði við
Morgunblaðið að það gæfi
landsliðsmönnunum smá-
aukakraft í leiknum. Hann
sagði úrslitin á móti Noregi
vera mjög svekkjandi. »1
Vilja komast úr
botnsætinu
ÍÞRÓTTIR
Ylfa Kristín K. Árnadóttir
ylfa@mbl.is
Náttúrufræðitíminn var ekki með
hefðbundnu sniði hjá krökkunum í 7.
Gleym-mér-ei í Vatnsendaskóla í
gær. Þá heimsóttu bekkinn þau
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Há-
skóla Íslands, og Jón Torfi Jón-
asson, forseti menntavísindasviðs
háskólans, en heimsóknin markar
upphaf heimsókna kennara við
menntavísindasvið í skóla og stofn-
anir tengdar sviðinu í september.
Efni úr þara í súkkulaði
Kristín, sem er með doktorspróf í
lyfjafræði, sagði krökkunum frá því
hvað það væri sem nemendur í lyfja-
fræði lærðu, t.a.m. hvernig ætti að
búa til lyf og hvernig þau virkuðu á
líkamann. Því næst sýndi hún þeim
nokkrar gerðir af þörungum. Kristín
spurði hversu margir hefðu fengið ís
eða súkkulaði um helgina og hversu
margir hefðu burstað í sér tenn-
urnar um morguninn. „Það þýðir að
allir sem réttu upp hönd hafa fengið
í sig efni sem er unnið úr þara,“
sagði hún og urðu krakkarnir mjög
undrandi á svipinn. Kristín útskýrði
að efnið algínat, sem er unnið úr þör-
ungum, væri nýtt í ýmsa fram-
leiðslu. T.d. væri það notað í skepnu-
fóður og blómaáburð
og í ísgerðinni væri
það notað sem
bindiefni, til að fá
ólík efni til að bland-
ast saman. „Efnið er
líka notað í lyfjagerð,“
sagði hún krökkunum.
„Til þess að sum lyf
virki rétt verða þau
að leysast upp í
maganum og algínat er sett t.d. í
verkjatöflur til að tryggja að þegar
þær eru komnar ofan í magann
bólgni þær út og lyfið sem á að losa
okkur við verkinn kemst út í magann
og þaðan í blóðið.“
Skemmtilegt að
kenna grunnskólanemum
Kristín hefur mikla reynslu af því
að kenna háskólanemum og segir
hún það hafa verið mjög gaman að fá
að líta inn í kennslustund hjá grunn-
skólanemendum. „Ég hef aldrei
kennt í grunnskóla þannig að mér
fannst þetta mjög skemmtileg upp-
lifun. Sérstaklega fannst mér gaman
hvað krakkarnir voru móttækilegir
og hve mikill áhugi skein úr augum
þeirra.“
Í tilefni af aldarafmæli Háskóla Ís-
lands hefur hverju hinna fimm
fræðasviða skólans verið úthlutað
einum mánuði til að kynna starf-
semi sína út á við og er sept-
embermánuður menntavís-
indasviðsins. Heimsækja á skóla á
yngri skólastigum til að leggja
áherslu á hversu mikilvægt
það er fyrir háskólann
að vera í samskiptum
og samstarfi við þá.
„Það er stefnt að því að allir kenn-
arar sviðsins heimsæki leik-, grunn-
og framhaldsskóla, og svo erum við
með íþróttafræðinga, þroskaþjálfa
og tómstundafræðinga sem heim-
sækja sínar stofnanir,“ segir Jón
Torfi Jónasson, forseti mennta-
vísindasviðs HÍ. „Þá verðum við
með örnámskeið fyrir foreldra á
miðvikudagskvöldum í september,
þar sem fjallað verður um uppeldi
og heilsu.“
Heimsóknir og örnámskeið
HVERT SVIÐ FÆR EINN MÁNUÐ TIL AÐ KYNNA STARFSEMI SÍNA
Rektor kenndi grunnskóla-
nemendum náttúrufræði
Sýndi þeim þör-
unga og ræddi um
nytsemi þeirra
Morgunblaðið/Kristinn
Þörungur Kristín sýndi nokkrar gerðir þörunga og sagði krökkunum frá því að efnið alkínat, sem unnið er úr þeim,
væri m.a. notað í ísgerð. Það var mikið hlegið þegar Kristín sýndi þeim þann hluta þöngulsins sem kallast þöngulhaus.
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ,
sagði við Morgunblaðið í gærkvöldi
að menn væru opnir fyrir því að ráða
erlendan þjálfara fyrir íslenska lands-
liðið í knattspyrnu en Ólafur Jó-
hannsson lætur sem kunnugt er af
störfum í næsta mánuði. Margir hafa
sett sig í samband við KSÍ sem
hyggst ganga frá þjálfaramálunum á
næstu vikum. »1
Margir vilja stýra
íslenska landsliðinu
Íslenska karlalandsliðið í knatt-
spyrnu tekur á móti Kýpur á Laug-
ardalsvellinum í kvöld en um er að
ræða síðasta heimaleik liðsins í und-
ankeppni EM að þessu sinni. Óvíst er
um þátttöku þeirra Indriða Sigurðs-
sonar og Sölva Geirs Ottesens. Indr-
iði er með flensu og Sölvi glímir við
bakmeiðsli. »2
Síðasti heimaleikurinn
í undankeppni EM
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á