Morgunblaðið - 17.09.2011, Síða 1
L A U G A R D A G U R 1 7. S E P T E M B E R 2 0 1 1
Stofnað 1913 218. tölublað 99. árgangur
LEIKSTJÓRINN
GLOVER MÆTIR
Í BÍÓ PARADÍS
MIKILVÆGI
EIGNARHALDS
Á FJÖLMIÐLUM
GUÐJÓN VALUR
HRELLIR DÖNSKU
VARNIRNAR
SUNNUDAGSMOGGINN NÝTUR AUGNABLIKSINS ÍÞRÓTTIRUPPREISNARMAÐURINN 42
Landslagið er tilkomumikið í Jökulgili við Landmannalaugar,
Ragnar Axelsson tók þess mynd í sumar en hann hlaut í gær
fjölmiðlaverðlaun umhverfisráðuneytisins. Í rökstuðningi
dómnefndar segir m.a. að listræn framsetning Ragnars hafi
skipað honum í fremstu röð ljósmyndara á heimsvísu, hann
hafi „sérstaklega beint sjónum að samspili manns og náttúru
á langri starfsævi“. Snjó tók víða seint upp í brekkunum í Jök-
ulgili, hann er litaður af ösku úr Eyjafjallajökli. Jökulgil ligg-
ur til suðausturs frá Landmannalaugum að Torfajökli. »4
Morgunblaðið/RAX
Öskugrár snjór í brennisteinslituðu Jökulgili
Sigrún Rósa Björnsdóttir
sigrunrosa@mbl.is
Lögreglumenn íhuga nú að boða til
félagafundar hinn 1. október næst-
komandi á sama tíma og setning Al-
þingis fer fram. Þetta staðfestir
Snorri Magnússon, formaður Lands-
sambands lögreglumanna.
Mikil mótmæli á síðasta ári
Mikil spenna myndaðist á Austur-
velli við setningu Alþingis á síðasta
ári, þegar hundruð mótmælenda
söfnuðust þar saman. Eggjum og
mjólkurvörum var kastað, eldar voru
kveiktir og var lögregla með mikinn
viðbúnað. Talið er að þá hafi nær eitt
hundrað lögreglumenn, þar með tal-
ið sérsveitarmenn, staðið vaktina.
Snorri segist ekki halda að félaga-
fundurinn muni hafa áhrif á gæsluna
á Austurvelli. „Lögreglumenn munu
sinna sínum störfum en hversu
margir verða tiltækir til vinnu veit
ég ekki, þetta er jú laugardagur sem
er frídagur margra lögreglumanna.“
Lögreglumenn bíða nú úrskurðar
gerðardóms sem von er á undir mán-
aðamótin en djúpstæður ágreiningur
er um launaliði að sögn Snorra. Lög-
reglumenn stefni að því að ná fram
leiðréttingu á launum sínum. Ekki sé
neinum viðmiðunarstéttum til að
dreifa, vegna einstaks eðlis lögreglu-
starfa. Þótt horft hafi verið til toll-
varða sé launamunurinn nú orðinn
umtalsverður í kjölfar gerðardóms
um kjarasamning tollvarða. Afleys-
ingamaður í tollgæslu hafi um 43.000
krónum hærri grunnlaun en afleys-
ingamaður hjá lögreglu.
Í dag og næstu daga birtir Lands-
samband lögreglumanna auglýsing-
ar sem er ætlað að vekja fólk til vit-
undar um störf lögreglumanna.
MFunda á sama tíma »8
Íhuga að funda við
setningu Alþingis
Lögreglumenn orðnir þreyttir á bið eftir lausn kjaradeilu
Morgunblaðið/Júlíus
Alþingi sett Mótmælt var í fyrra.
Þörf er á að bæta kælingu um
borð í strandveiðibátum enn frekar
til að fullnægja kröfum. Þetta er
meðal þess sem kemur fram í úttekt
á gæðum afla strandveiðibáta í ár.
Kælingin sé sá áhrifaþáttur sem
hafi hvað mest að segja um gæði
strandveiðiaflans og sé alvarlegt að
sjá að tiltölulega stór hluti aflans
komi í land meira en sex gráða heit-
ur. Þetta vandamál eigi þó ekki ein-
göngu við strandveiðiflotann. »26
Kæling verði bætt í
strandveiðibátum
Kirkjuráð mun ræða uppbygg-
ingu Þorláksbúðar í Skálholti en
framkvæmdin hefur verið gagn-
rýnd og m.a. sögð til óþurftar. Í að-
sendri grein í Morgunblaðinu í dag
segir séra Karl Sigurbjörnsson,
biskup Íslands, að stjórn Skálholts
hafi talið kirkjuráði trú um að upp-
bygging Þorláksbúðar nyti al-
menns stuðnings. „Ég vissi t.d. ekki
betur en handhafar höfundarréttar
Skálholtskirkju hefðu gefið leyfi
sitt,“ segir hann. »28
Kirkjuráð ræðir Þor-
láksbúð í Skálholti
Samkomulag náðist í gær milli
stjórnar og stjórnarandstöðu á Al-
þingi um breytingar á stjórnarráðs-
frumvarpi Jóhönnu Sigurðardóttur
forsætisráðherra og er gert ráð fyrir
þinglokum í dag.
Forsætisráðherra mun þurfa að
bera undir þingið breytingar á heit-
um og fjölda ráðuneyta en getur
ekki keyrt þær í gegn án aðkomu
þingsins. Samkomulagið merkir ekki
að stjórnarandstaðan muni greiða
atkvæði með frumvarpinu. Heimild-
armenn segja líklegt að frumvarpið
verði samþykkt með stuðningi
Hreyfingarinnar. »6
Morgunblaðið/Eggert
Kosið Frumvarpinu var breytt.
Líkur á þing-
lokum í dag