Morgunblaðið - 17.09.2011, Side 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2011
✝ Jóna JóhannaÞórðardóttir,
húsmóðir, fæddist í
Haga á Barðaströnd
þann 4. janúar 1920.
Hún lést á Heilbrigð-
isstofnuninni á Pat-
reksfirði, föstudag-
inn 9. september
síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Þórður Ólafs-
son, f. 24. ágúst
1887, d. 10. apríl 1984, og Stein-
unn Björg Júlíusardóttir, f. 20.
mars 1895, d. 13. febrúar 1984.
Jóhanna var þriðja elst í níu
systkina hópi. Þau eru: Jónasína
Björg, f. 1916, d. 1998, Ólafur
Kristinn, f. 1918, d. 2010, Júlíus
Óskar, f. 1921, d. 2010, Björgvin,
f. 1922, d. 1997, Karl, f. 1923, d.
1991, Kristján Pétur, f. 1925,
Steinþór, f. 1926, d. 1995 og
Sveinn Jóhann, f. 1927.
Jóhanna giftist Árna Jóhann-
esi Bæringssyni, bílstjóra, f. 26.
janúar 1913, d. 21. maí 1986,
þann 20. nóvember 1943. Jó-
hanna og Árni eignuðust átta
börn. Þau eru: 1) Hilmar, f. 1940,
1994. c) Guðmundur Pétur, f.
1997. 4) Þórður Steinar, f. 1953,
maki Áslaug, f. 1958. Börn: Þór-
arinn, f. 1982, maki Steinunn, f.
1985. Barn: Natalía Kristín. 5)
Hugrún, f. 1955, maki Stefán, f.
1955. Börn: a) Hrafnhildur, f.
1975. b) Sif, f. 1994. c) Björgvin, f.
1994. d) Stefnir, f. 1994. 6) Gísli
Jón, f. 1956, maki Fríður, f. 1965.
Börn: a) Hinrik, f. 1979. Börn:
Hrafnhildur Elín, f. 2001, Guð-
björg Saga, f. 2006, Stefanía
Ruth, f. 2008. b) Magnús Valgeir,
f. 1986, maki Björg, f. 1987. c)
Andrea, f. 1992. d) Bryndís f.
2004. 7) Helena Rakel, f. 1959,
maki Pálmi, f. 1956. Börn: Jóhann
Bæring, f. 1980, maki Arna Ýr, f.
1982. Börn: Bergdís Lilja, f. 2006,
Kristinn Þórir, f. 2009. b) Sara, f.
1985. c) Ísak, f. 1991. 8) Berglind,
f. 1961, maki Stefán Hagalín, f.
1964. Börn: a) Sandra Dís, f. 1982,
maki Örnólfur Þórir. Barn: Ragú-
el, f. 2011. b) Birkir Örn, f. 1994.
c) Elvar Ari, f. 1996.
Jarðsett verður frá Patreks-
fjarðarkirkju, laugardaginn 17.
september 2011, og hefst athöfn-
in kl. 14.
maki Guðlaug Rósa,
f. 1945. Börn: a)
Heimir, f. 1966,
maki Inga Helga, f.
1975. Börn: Helena
Rós, f. 1993, Emelía,
f. 1997, Benjamín, f.
2001. b) Kristjana
Magnea, f. 1968.
Barn: Ragnar Borg-
þór, f. 1992. c)
Sylvía, f. 1973, maki
Sigurjón Grétar f.
1978. Börn: Hilmar, f. 1994,
Soffía, f. 1997. 2) Jóhanna Bær-
ings, f. 1944, d. 1980. Börn: a)
Guðfinna, f. 1962. Börn: Bjarni, f.
1990, Anika Maí, f. 1992, Camilla
Ósk, f. 2003. b) Árni Jóhannes, f.
1964, maki Anna, f. 1968. Börn:
Dagur, f. 1992, Róbert Elís, f.
1998, Tómas Ingi, f. 2000, Einar,
f. 2008. c) Brynjar, f. 1965. Börn:
Jóhanna, f. 1992, Elena, f. 1998,
Andri, f. 2000, Unnur, f. 2002. 3)
Halldór, f. 1951, maki María, f.
1957. Börn: a) Óskar Kristinn, f.
1983, maki Elfa Dís, f. 1982.
Börn: Jóhann Sigurður, f. 2003,
Hákon Hugi, f. 2006, Katrín
María, f.2011. b) Árni Bæring, f.
Elsku mamma okkar er dáin,
sátt við guð og menn eftir langt og
farsælt ævistarf. Síðasta minning-
in um hana er þegar hún grípur
brosandi um handlegg nýjasta af-
komandans og reynir að taka hann
til sín til að kyssa hann.
Mamma var mikil búkona sem
aldrei féll verk úr hendi. Hún
prjónaði, saumaði og föndraði úr
öllu mögulegu. Hún var bæði heið-
ursfélagi í Kvenfélaginu og í Slysa-
varnafélaginu á Patreksfirði.
Minningar hrannast upp. Ein af
þeim er um mömmu að taka slátur
og þau pabba að svíða lappir og
hausa við bílskúrinn heima. Í
minningunni er sunnudagsbíltúr-
inn inn á Barðaströnd alveg ljóslif-
andi. Einnig stóru ferðalögin sem
foreldrar okkar fóru með krakka-
hópinn og mamma búin að útbúa
allt nestið. Meðferðis var hangi-
kjöt, svið, rúgkökur og hveitikökur
og auðvitað harðfiskur. Skódinn
stútfullur, mamma og pabbi í
framsætinu ásamt einu barninu,
fjórir í aftursætinu og örverpið
sitjandi á farangrinum í skottinu
með fæturna niður á aftursætið.
Tvö elstu börnin þá farin að heim-
an og búin að stofna eigin fjöl-
skyldu.
Mamma hafði mikla ánægju af
því að spila, hvort sem það var á
spil eða í happdrætti. Hún mundi
eftir öllum afmælum, brúðkaupum
og öðru sem gaf tilefni til að gefa
gjöf, allir í fjölskyldunni fengu
gjöf. Hún gaukaði líka peningum
að yngstu afkomendum sínum
þegar þeir komu í heimsókn. Einn-
ig fengu Patreksfjarðarkirkja,
sjúkrahúsið og bæjarfélagið að
njóta gjafmildi hennar.
Mömmu vettvangur var eldhús-
ið, því að hvern einasta dag var
heitur hádegis- og kvöldmatur og
alltaf var grautur í eftirmat. Ef
hún fékk lausa stund, þá var hún
farin út í garð, út í náttúruna, í
berjaferð eða að ganga sér til
heilsubótar enda mikil útivistar-
manneskja. Oft og tíðum fylltist
heimilið á Bjarkargötu 6 af óvænt-
um gestum og alltaf var til nóg af
mat eða kaffibrauði. Henni fannst
líka gaman að halda fínar veislur.
Mamma var trúuð kona og ekki
lét hún sig vanta í athafnir kirkj-
unnar. Jólin hjá henni voru tími
mikils undirbúnings, hefða og
skreytinga. Eftir að barnauppeldi
lauk tók við vinna við þrif og
barnapössun. Barnabörnin fengu
líka nokkur að njóta þess að alast
upp hjá henni.
Seinni árin var mamma mikið
fyrir að vera vel tilhöfð og spókaði
sig oft í fínni dragt og pelsinum
sínum, hún sparaði heldur ekki að
nota upphlutinn sinn við fínustu
tækifærin. Hún var löngu farin að
missa heyrn en eitthvað þótti
henni lengi framan af ekki fínt að
vera með heyrnartækin sín eða
bar því við að þau væru fyrir gam-
alt fólk en hafði þau samt sam-
viskusamlega í veskinu.
Mamma bað okkur um hjálp við
að útvega sér pláss á Hrafnistu í
Reykjavík og flutti þangað árið
2003. Hún átti síðan ánægjulegan
tíma í Jökulgrunni 6. Hún seldi
stóra húsið sitt og minnka þurfti
búslóðina sem hún tæki með sér.
Það var vandalaust fyrir okkur
systkinin að tæma húsið, því hún
hafði merkt flesta hluti og skipt
þeim niður á afkomendur sína og
tryggt hvert aðrir munir færu eftir
hennar dag. Hún var mjög sátt og
ánægð.
Hafðu þökk fyrir allt og hvíl í
friði. Þínar dætur,
Hugrún, Helena Rakel
og Berglind.
Elsku amma á Patró hefur
kvatt okkur. Nú að leiðarlokum sé
ég þig fyrir mér með svuntuna þar
sem þú stendur í dyragættinni á
Bjarkargötunni og veifar okkur
með bros á vör. Við fjölskyldan
með fullan maga af pönnukökum,
höldum af stað, ljómandi af gleði
eftir góða dvöl hjá þér. Mér fannst
kveðjustundin leiðinleg og gerði
allt til að tefja hana. Ætli það sé
ekki þess vegna sem hún kemur
upp í hugann núna.
Við gerðum margt saman,
amma, og ófáa hlutina gerði ég í
fyrsta skiptið á ævinni með þér. Þú
varst sannkallað náttúrubarn. Við
tíndum saman ber, fundum skelj-
ar, gengum um höfnina, gáfum
fuglunum, fórum í sund, tókum
upp kartöflur og rabbabara og
gengum inn í kirkjugarð og gróð-
ursettum blóm á leiðunum hjá afa
og Baddý.
Þú varst mikið jólabarn og jólin
hjá þér voru einstök. Fyrir mér
voru jól annars staðar en á Bjark-
argötunni ekki jól. Mér fannst
skrýtið að þú keyrðir ekki bíl og
spurði þig eitt sinn hvers vegna þú
hefðir misst prófið. Áttaði mig
auðvitað ekki á því að konur af
þinni kynslóð tóku oft ekki bílpróf.
Þú varst alla tíð mjög trúuð, sóttir
sunnudagsmessur, sagðir mér
biblíusögur og kenndir mér Faðir
vorið og fleiri bænir sem við fórum
með saman á hverju kvöldi. Um 7
ára aldurinn kom „nýr maður“ að
sækja mömmu, ég varð hrædd og
hélt að hann væri að taka hana frá
mér. En svo eftirminnilega faðm-
aðir þú mig og huggaðir. Ég man
að ég hugsaði að ef allt færi á
versta veg þá hefði ég allavega
bestu ömmu í heimi.
Þegar ég hringdi í þig fyrir
rúmu ári síðan og sagði þér að ég
ætti von á mínu fyrsta barni,
varstu svo stolt og ánægð. Sagðir
svo að þig hefði dreymt fyrir þessu
og að þetta væri strákur. Auðvitað
kom það á daginn. Þrátt fyrir að
vera orðin veik sýndir þú Ragúel
mikinn áhuga og hringdir marg-
sinnis til að fá fréttir. Þú varst svo
stolt af öllum afkomendum þínum.
Þegar ég kom í heimsókn þuldir
þú upp afrekin sem frændfólk mitt
hafði unnið. Þú fylgdist náið og af
miklum áhuga með hverjum ein-
asta afkomanda. Það var svo gam-
an að segja þér frá því sem á daga
mína hafði drifið. Þú varst svo
stolt af mér og sýndir það svo
skemmtilega. Ekkert yfirborðs-
legt smjaður eða öfgafull hróp,
heldur bros sem hafði að geyma
stolt, það sagði svo miklu meira en
orð. Ég þekkti brosið svo vel enda
sparaðir þú það ekki, alveg sama
hversu agnarsmátt afrek mitt var
og svo leitaðir þú eftir að fá ljós-
mynd sem minningu.
September gekk í garð og tími
sumarblómanna á enda. Fljótlega
kom í ljós að það átti einnig við um
blómabarnið þig. Rétt áður en þú
kvaddir stytti skyndilega upp, sól-
in braust fram úr skýjunum og
skein svo skært inn um gluggann
hjá þér. Patreksfjörður skartaði
sínu fegursta enda var bærinn að
kveðja merka manneskju. Við
Ragúel og mamma gengum gegn-
um bæinn í blíðunni og komum við
á Bjarkargötu 6 þar sem við tók-
um myndir af húsinu þínu, höll
minninganna. Ég er ekki frá því
að þú hafir staðið í gættinni og
veifað okkur. Ég á eftir að sakna
þín óendanlega mikið, amma mín,
er svo þakklát og stolt ömmu-
stelpa. Minning þín er ljós í lífi
mínu.
Sandra Dís.
Elsku amma, nú ertu farin frá
okkur. Það er erfitt að setjast nið-
ur og skrifa þessi orð til þín. Við
munum aldrei gleyma stundunum
sem við áttum saman. Það var allt-
af svo gaman að koma á Bjark-
argötuna og fá að leika þar. Það
voru ekki allir svona heppnir eins
og við ömmubörnin að komast í
gullkistuna á háaloftinu. Þar
geymdir þú öll Æskublöðin frá því
í gamla daga og margt annað dót
sem var skemmtilegt fyrir for-
vitna krakka að skoða.
Við munum aldrei gleyma hin-
um ófáu ferðum yfir heiðarnar til
að koma í heimsókn til þín. Eftir
að hafa hossast um í bílnum á leið-
inni frá Ísafirði var ekkert betra
en að koma heim á Bjarkargöt-
una. Þar biðu oftar en ekki nýbak-
aðir kleinuhringir eða staflarnir af
heitum pönnukökum sem við
máttum svo svolgra í okkur með
kaldri mjólk.
Þú varst alltaf svo dugleg að
fylgjast með því hvað barnabörnin
voru að gera. Spurðir ósjaldan
hvernig Bæring hefði það og hafð-
ir svo oft áhyggjur af því hvað
Ísak var að vinna mikið. Alltaf
fylgdistu með körfuboltanum hjá
Söru og klipptir út allar fréttir af
Haukastelpunum og safnaðir
saman í sér úrklippubók.
Sama hvert þú fórst, alltaf hafð-
ir þú myndavélina með. Og í hvert
skipti sem filman kláraðist sagðir
þú að næsta filman væri síðasta
filman sem þú myndir kaupa, en
bættir svo alltaf við: „Getur þú
ekki farið út í búð og keypt nýjan
pakka af filmum fyrir mig, svona
með þrem í pakka?“
Amma, núna ertu komin á betri
stað með afa og Baddý frænku.
Takk fyrir allt, elsku amma. Guð
geymi þig.
Þín ömmubörn,
Jóhann Bæring, Sara og Ísak.
Hún Amma á Bjarkargötunni
hefur kvatt okkur. Í hjörtum okk-
ar er stórt tómarúm.
Þú varst svo einstök mann-
eskja, hafðir sérstakan sagnar-
anda og vissir alltaf ef eitthvað var
að hjá einhverjum í fjölskyldunni.
Þegar Júlíus bróðir þinn kvaddi
fyrir einu og hálfu ári síðan
fannstu það á þér áður en hann dó.
Þú tókst Maríu tengdadóttur
þinni svo vel þegar hún flutti vest-
ur, þannig að henni fannst hún
strax velkomin í samfélaginu.
Maríu þótti svo gaman að hlusta á
gömlu vestfirskuna hjá þér og
skrifaði upp mikið af gamla mál-
farinu, sem hún hafði ekki þekkt
áður. Einnig fékk hún hjá þér
uppskriftir, t.d. að þínum marg-
rómuðu hveitikökum.
Halldór var lengst heima af
systkinunum og aðstoðaði þig eftir
að pabbi hans, hann Árni þinn,
hvarf á braut.
Árni Bæring og Guðmundur
Pétur hændust mjög að þér. Þú
varst alltaf eins og jafningi þeirra,
svo stækkuðu þeir og Árni fór að
ráða meiru. Þegar þú komst aftur
vestur til okkar vildi hann endi-
lega lána þér sitt herbergi, því það
var stærra en það sem þú áttir að
vera í. Einnig var gaman að fylgj-
ast með hvernig hann leiddi þig
um. „Jæja, Amma, taktu nú stór
skref, þá gengur þetta betur“, og
eftir að þú fórst á sjúkrahúsið, þá
fóru þeir oft til þín, beint úr skól-
anum og tóku jafnvel skólafélag-
ana með. Það þótti þér vænt um.
Þú varst alltaf svo kirkjurækin
og mættir alltaf í sjómannadags-
messuna utan tvö skipti í þessi 70
ár, sem dagurinn hefur verið hald-
inn hátíðlegur hér á Patreksfrði.
Þú lést þig ekki vanta í messuna
þetta árið frekar en venjulega,
þótt þú værir orðin 91 árs. Þú
fylgdist með og tókst virkan þátt í
fermingarundirbúningnum hjá
Guðmundi í vetur og hristir bara
höfuðið yfir hversu létt hann
kæmist frá þeim fræðum. Þú hefð-
ir þurft að læra 8 sálma!
Við óskum þér ánægjulegra
endurfunda við Árna þinn, Baddý
dóttur þína, systkini þín og aðra
ástvini, sem farnir eru á undan
þér.
Blessuð sértu Barðaströnd
bröttu hlíðar, háu tindar.
Við þig tengdi tryggðarbönd
traust í æsku lítil hönd.
Þér sé heiður, virðing vönd,
vermi sól og hlýir vindar.
Allt það best er ann mín önd
er í þínum faðmi myndað.
Barðaströnd mín blíða sveit
bú þú lengi í huga mínum.
Engan fegri á ég reit
elskulega fagra sveit.
Það er mér ljúft og það ég veit
að þú ferð seint úr huga mínum.
Barðaströnd mín blíða sveit
ber þú mig í faðmi þínum.
Víst eru fögur fjöllin þín
við fjörðinn liggja gulir sandar,
leikur báran ljóðin sín
ljúfan semur óð til mín.
Alltaf mun ég minnast þín
er mildur blær um kinnar andar.
Fegurð þín í fjarlægð skín
fögru hlíðar Barðastrandar.
(Steinþór Þórðarson.)
Innilegar kveðjur.
Fjölskyldan Mýrum 8,
Patreksfirði, Barðaströnd,
María Óskarsdóttir
og Halldór Árnason.
Jóna Jóhanna Þórðardóttir
Guðríðarkirkja
auglýsir sal til leigu:
Fyrir erfidrykkjur, brúðkaup, fermingar, fundarsalur.
Uppl. S. 577 7770 og 663 7143 eða
kirkjuvördur@grafarholt.
www.gudridarkirkja.is
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra fjölmörgu sem sýndu samúð, hjálp,
hlýju og vinarhug við andlát og útför okkar elskuðu
HÖNNU LILJU VALSDÓTTUR
og
VALGERÐAR LILJU GÍSLADÓTTUR,
Sogavegi 22.
Guð blessi ykkur öll.
Gísli Kr. Björnsson,
Þorkell Valur Gíslason, Guðrún Filippía Gísladóttir,
Sigríður Hanna Gísladóttir,
Valur Steinn Þorvaldsson, Guðrún Sigurðardóttir,
Sigríður Þóra Valsdóttir, Ingólfur Kristján Guðmundsson,
Sigurður Már Valsson, Dröfn Helgadóttir,
Anna Filippía Sigurðardóttir, Björn Ottó Halldórsson,
Kristbjörn Helgi Björnsson, Steinunn Dögg Steinsen,
Katrín Ellý Björnsdóttir, Kristinn Halldórsson,
Björn Ragnar Björnsson, Guðrún Magnea Árnadóttir,
Birgir Magnús Björnsson, Unnur Hlíðberg Hauksdóttir,
Fanney Ósk Þórisdóttir,
Gísli Guðbrandsson,
Ellý Ingólfsson.
✝
Þökkum af alhug þeim sem sýndu okkur
hlýhug og samúð við fráfall og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÖNNU BIERING,
Fossvogsbletti 2.
Við þökkum sérstaklega starfsfólki á
hjúkrunarheimilinu Eir sem annaðist hana
af umhyggju og alúð.
Moritz Wilhelm Sigurðsson, Margrét Dóra Guðmundsdóttir,
Guðmundur Sigurðsson, Anna Sigríður Zoëga,
Auður Sigurðardóttir, Ólafur Halldórsson,
Sigurður Þórir Sigurðsson, Ásta Björk Sveinbjörnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Alúðarþakkir til allra þeirra sem sýndu á svo
margan hátt samúð, hlýju og vinarhug vegna
andláts okkar ástkæra
GUNNARS J. FRIÐRIKSSONAR,
Skúlagötu 10,
Reykjavík.
Elín M. Kaaber,
Friðrik Gunnar Gunnarsson, María Helgadóttir,
Einar Lúðvík Gunnarsson, Kristín Sigurðsson,
Ragnar Jóhannes Gunnarsson, María Ingibergsdóttir,
Haukur Jón Gunnarsson,
Oddný María Gunnarsdóttir,
Gunnar Pétur Gunnarsson, Isabella Frank,
Eiríkur Knútur Gunnarsson, Inger S. Steinsson.
✝
Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð
okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför elskulegrar dóttur okkar og systur,
EVU LYNN FOGG,
sem lést af slysförum miðvikudaginn
3. ágúst.
Guðrún Olga Gústafsdóttir,
Keith Warren Fogg,
Aron Már Ólafsson.