Morgunblaðið - 17.09.2011, Síða 14

Morgunblaðið - 17.09.2011, Síða 14
ÚR BÆJARLÍFINU Andrés Skúlason Djúpivogur Íbúar á Djúpavogshreppi létu kalt og hráslagalegt veðurfar ekki slá sig út af laginu framan af sumri og mættu því ferðamönnum og öðrum gestum með brosi á vör eins og áður.    Ferðamannastraumurinn fór rólega af stað í byrjun sumars en svo rættist úr þegar leið á og eru ferða- þjónustuaðilar á svæðinu heilt yfir mjög ánægðir með afrakstur sumars- ins. Áberandi var hinsvegar hve Ís- lendingar voru minna á ferðinni en áður, ekki síst fjölskyldufólk, og má efalaust tengja það tíðarfarinu.    Framboð á handverki hefur aukist mjög á Djúpavogi á síðustu ár- um og það kunna ferðamenn vel að meta, en handverkið má m.a. finna í nýrri verslun sem ber nafnið Bakka- búð og er staðsett í miðju þorpsins.    Strandveiðarnar gengu vel í sumar en 16 bátar voru skráðir til strandveiða frá Djúpavogi og er þessi nýi útgerðarflokkur mjög kærkomin viðbót við þá báta sem voru til staðar. Mikið líf var því við Djúpavogshöfn og var veiðin með ágætum. Voru sjó- menn því heilt yfir mjög ánægðir með útkomuna á þessu veiðisvæði í lok sumars. Nú eru göngur og réttir fram- undan í Djúpavogshreppi og á næstu vikum munu bændur og búalið arka inn til dala og sækja fé af fjalli. Ekki hafa því borist upplýsingar hvernig fé kemur undan sumri en víða um Aust- urland eru dilkar undir meðallagi í þyngd vegna slæms tíðarfars framan af. Bændur binda hinsvegar vonir við að ástandið sé betra á suðaustursvæð- inu heldur en norðar þar sem hretið var verst.    Fyrirtækið Arfleifð sem er starf- rækt á Djúpavogi hefur þegar getið sér mjög gott orð fyrir framleiðslu á fatnaði og fylgihlutum úr íslensku hrá- efni, m.a. fiskroðum, skinnum o.fl. Í síðastliðinni viku var eigandi Afleifðar, Ágústa Arnardóttir, ein austfirskra kvenna úr hópi 50 annarra sem urðu þess heiðurs aðnjótandi að hljóta al- þjóðlega viðurkenningu frá EUWIIN (European Union Women Inventors and Innovators Network) og fór af- hendingin fram í Bláa lóninu. Ágústa er ekki bara eigandi fyrirtækisins heldur hannar hún og framleiðir allar vörurnar sjálf og er eftirspurn mikil. Morgunblaðið/Andrés Skúlason Í blóma Ferðamenn við Löngubúð á Djúpavogi. Ferðaþjónustuaðilar á Djúpavogi er ánægðir með ferðasumarið sem fór þó hægt af stað. Kuldatíð mætt með brosi á vör 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2011 Tourette samtökin 20 ára Í tilefni af 20 ára afmæli Tourette samtakanna á Íslandi bjóðum við til afmælishátíðar í Skemmtigarðinum við Gufunesveg í Grafarvogi, sunnudaginn 25. september á milli kl. 15 og 17.Þarna verður tækifæri fyrir krakka með Tourette, systkini, foreldra, ömmur og afa, vini og vandamenn að hittast og eiga skemmtilega stund saman. Boðið verður í minigolf og pylsur. Nýjasta bók Tourette samtakanna, Órólfur, verður auk þess kynnt sérstaklega. Hér er um að ræða skemmtilega og gagnlega bók fyrir kvíðna krakka og foreldra þeirra. Bókin mun kosta 1400 kr. en hægt verður að fá hana á afmælishátíðinni fyrir aðeins 1200 kr. Athugið að ekki verður tekið við kortagreiðslum, einungis peningum. Við viljum biðja áhugasama vinsamlegast að skrá sig á tourette@tourette.is. Lokadagur skráningar er 22. september. Með von um að sjá sem flesta, Stjórn Tourette samtakanna á Íslandi Aðeins 12% svarenda í könnun VR meðal félagsmanna segjast ekki stunda neina reglubundna hreyf- ingu. Þjálfun í líkamsræktarstöð og gönguferðir eru efst á lista þeirra sem hreyfa sig reglulega, 44% sinna líkamsrækt í líkamsræktar- stöð og 43% fara í styttri göngu- ferðir, skv. könnuninni. Fram kem- ur að sund er einnig vinsælt (21% merkti við þann möguleika) sem og fjallaferðir eða lengri gönguferðir (17%). Misjafnt er þó hvað kynin gera. 24% karla merktu við boltaíþróttir en einungis 2% kvenna, en göngu- ferðir höfða betur til þeirra. Fram kemur að golf virðist henta konum betur eftir því sem þær eldast, 3% kvenna á aldrinum 25-34 ára stunda golf en 10% kvenna á fimm- tugsaldri. Karlar stunda golf í mun meira mæli en konur á nær öllum aldri, um fimmti hver karl eldri en 25 ára er í golfi. Karlar stunda lítið dans, þolfimi eða jóga sér til heilsu- bótar, 2-4% karla eru í jóga sam- anborið við 11-16% kvenna. Nær 9 af hverjum 10 hreyfa sig reglulega  24% karla en 2% kvenna í boltaíþróttum Hreyfing Fimmti hver karl eldri en 25 ára stundar golf reglulega. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Stéttarfélagið VR hefur skorið upp herör gegn kynbundnum launamun á vinnumarkaði. Ný launakönnun meðal félagsmanna í VR leiðir í ljós að þessi munur hefur haldist í kringum 10% á seinustu þremur ár- um. Félagið ætlar að beita ýmsum ráðum til að vinna bug á þessum launamun. Eru fyrirtæki hvött til að lýsa stuðningi við átakið og kom VR í gær fram með þá hugmynd að fyr- irtæki veiti konum sérstakan 10% afslátt af vöru og þjónustu á tíma- bilinu 20.-26. september. „Með því að bæta konum á þennan táknræna hátt 10% launamuninn leggja fyr- irtækin sitt lóð á vogarskálarnar í þeirri vitundarvakningu sem nauð- synleg er til að útrýma launamis- réttinu,“ segir í frétt frá VR. 4,5% hækkun launa milli ára Í launakönnun VR kemur fram að heildarlaun félagsmanna hækkuðu um 4,5% frá janúar 2010 til janúar 2011 og grunnlaun hækkuðu um 4,2% á sama tíma. Hækkanir sem samið var um í kjarasamningunum í vor eru ekki inni í þessum tölum en launatölurnar miðast við janúar sl. Heildarlaun félagsmanna VR voru að meðaltali 441 þúsund kr. á mánuði í byrjun ársins. Launabreytingarnar á árinu 2010 voru þó mjög mismunandi eftir starfsgreinum og starfsstéttum. Ör- yggisverðir og starfsfólk í ræst- ingu hækkuðu mest einstakra starfsstétta í grunnlaunum eða um 18,3% á meðan heildarlaun þeirra hækkuðu um 10,3%. Laun sölu- og af- greiðslufólks hækkuðu hins vegar minnst. Almennt hækkuðu heildarlaun þessa hóps um 2,9% en almennt af- greiðslufólk sá laun sín yfirleitt lækka á milli ára. Eftir seinustu kjarasamninga má þó reikna með að þessir starfsmenn hafi eitthvað rétt hlut sinn því samið var um sérstaka launahækkun fyrir þennan hóp í kjarasamningum. Hærri laun með meiri menntun Miklu magni upplýsinga er safnað í launakönnuninni. Fram kemur t.a.m. að fjarvinna fer vaxandi. Í könnun sem birt var í fyrra kom fram að 40,4% félagsmanna VR unnu fjarvinnu en í ár er þetta hlut- fall komið í 41,8%. Háskólamenntun hefur aukist meðal félagsmanna VR síðustu ár, 30,4% svarenda í launakönnuninni hafa lokið háskólaprófi samanborið við 19,8% árið 2004. Menntun borg- ar sig í launum því þeir sem hafa lokið meistara- eða doktorsnámi hafa 64% hærri laun en þeir sem hafa grunnskólamenntun eða minna. Kynbundinn launa- munur helst óbreyttur  VR sker upp herör  Fyrirtæki veiti konum 10% afslátt Til að ná árangri gegn kynbundnum launamun er þörf á sameiginlegu átaki og viðhorfsbreytingu í samfélaginu, að mati Stefáns Einars Stef- ánssonar, formanns VR. Þó munurinn hafi minnkað til lengri tíma litið hef- ur hann haldist óbreyttur sl. þrjú ár. „Sú óþægilega spurning læðist að okkur núna hvort við séum komin á einhverja endastöð,“ segir hann. „Með þessari könnun og þeirri herferð sem við förum af stað með núna spyrjum við þeirrar spurningar hvort þetta séu álög í samfélaginu?“ segir hann. Stefán segist hvetja fyrirtæki til að lýsa yfir stuðningi við þetta átak. „Ég er alveg sannfærður um að við þurfum að gera þetta með samhentu átaki. Þetta er vandi sem verður ekki leystur með einhliða kröfugerðum, heldur með vitundarvakningu og að menn átti sig á að það verður ekki unað við þetta óréttlæti.“ Ekki unað við þetta óréttlæti STEFÁN EINAR STEFÁNSSON FORMAÐUR VR Stefán Einar Stefánsson Morgunblaðið/Ernir Óbreytt vinnuvika Félagsmenn VR í fullu starfi vinna að meðaltali 43,5 klukkustundir á viku og hefur vinnuvikan ekki breyst síðustu þrjú ár. Launakönnun VR 2011 500 400 300 200 100 0 Stjórnendur og sérfræðingar Sérhæft starfs- fólk og tæknar Skrifstofufólk Skrifstofufólk við afgreiðslu Sölu og af- greiðslufólk Gæslu-, lager- og framl. störf Alls Heildarlaun eftir starfsstétt í þúsundum króna K ar la r 48 7 K on ur 40 6 K ar la r 55 5 ko nu r 49 4 K ar la r 41 6 K on ur 36 9 K ar la r 40 3 K on ur 33 9 K ar la r 32 1 K on ur 31 2 K ar la r 39 5 K on ur 31 5 K ar la r 33 4 ko nu r 29 3 Launakönnun VR leiðir í ljós að sjö af hverjum tíu félagsmönnum fá einhver hlunnindi í vinnu og er það aukning frá árinu á undan. Hlut- fallið, 71%, er þó enn nokkru lægra en það var fyrir hrun, í janúar 2008 voru 77% félagsmanna með hlunn- indi, að því er segir í niðurstöð- unum. Fram kemur að meðal hlunninda eru símar sem starfsmenn fá frá vinnunni, greiðsla símakostnaðar, nettenging á heimili o.fl. Fleiri karlar en konur eru með hlunnindi skv. könnuninni eða 76% á móti 67%. Flestir sem fá hlunnindi eru með gsm-síma og styrk vegna líkamsræktar. Fram kemur að rúm- ur helmingur karla eða 52% er með farsíma (gsm) frá vinnunni en 28% kvennanna. Þá fær meira en helm- ingur félagsmanna aukagreiðslur af ýmsu tagi m.a. bílastyrk eða 27%. Karlar eru líklegri til að fá auka- greiðslur en konur og eru hlutföllin 69% karla á móti 52% kvenna. 71% nýtur hlunninda  52% karla eru með farsíma frá vinnunni en 28% kvenna innan VR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.