Morgunblaðið - 17.09.2011, Blaðsíða 16
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Nú lítur út fyrir að hin gjöfula Laxá
á Ásum, þar sem veitt er á tvær
stangir, sé að skipta um hendur.
Lax-á hefur haft Ásana á leigu en á
dögunum var nokkrum aðilum boðið
að gera tilboð í ána og samkvæmt
fréttavefnum votnogveidi.is hefur
Veiðifélag Laxár á Ásum falið
stjórninni að ganga til samninga við
hæstbjóðendur, félag sem kallar sig
Salmon Tails. Félagið hefur haft
Mýrarkvísl á leigu síðan í fyrra.
Þá hefur verið ákveðið að nýtt
veiðihús verði reist við ána.
Veiði er annars lokið í Laxá á
Ásum og veiddust 439 laxar, heldur
færri en í fyrra er 763 voru bókaðir.
Tveir stórlaxar Björns
Birni K. Rúnarssyni gekk svo
sannarlega vel þegar hann veiddi í
Laxá í Aðaldal, á Nessvæðinu, í vik-
unni. Björn er vanur því að landa
stórlöxum, fékk 104 cm hæng í
Vatnsdalsá fyrr í sumar, en nú fékk
hann fyrst 101 cm lax við Knúts-
staðatún og var hann veginn í háfn-
um 22 pund. Síðan bætti Björn um
betur í hinum sögufræga Höfðahyl,
er hann landaði 106 cm löngum laxi
sem vó 27 pund. Var það kviðsíður
en leginn drjóli sem viðstaddir töldu
víst að hefði verið um 30 pund er
hann gekk í ána snemmsumars. Lík-
lega er þetta þyngsti lax sumarsins,
sem vitni eru að. Báðir laxarnir tóku
flugu er kallast Batakorva.
Að sögn Árna Péturs Hilmars-
sonar er veiðin í Nesi nú um 350 lax-
ar, sem er mun lélegra en í fyrra en
smálaxinn hefur vantað að mestu
leyti. Rúmlega 1000 laxar hafa alls
veiðst í Aðaldalnum og mikið á
Laxamýrarsvæðinu.
Hvað besta laxveiðin hefur ver-
ið í Austfjarðaánum og hún hefur
verið afar góð í Selá, þar sem veidd-
ust um 120 laxar í síðustu viku. Þeg-
ar kólnaði í fyrri hluta vikunnar dró
þó úr tökugleði laxins en veiðimaður
sem var þar á ferð sagði afar mikið
af laxi í ánni og fór hann að taka þeg-
ar hlýnaði á miðvikudag.
Silungaflugur fyrir laxinn
Oft er sagt að mikilvægt geti
verið að sýna fiskum eitthvað nýtt,
flugur sem þeir hafa ekki séð áður.
Sú var raunin í Vatnsdalsá í vikunni.
Menn sem veiddu í Hólakvörn og
Hnausastreng höfðu reynt ýmsar
laxaflugur, þegar þeir settu undir
fræga urriðaflugu, gulan Rektor.
Fjórir laxar tóku hana strax.
Morguninn eftir fór annar veiði-
maður að fordæmi þeirra og setti í
sannkallaðan höfðingja í Hnausa-
streng á Rektor, lax um 20 pund, en
sá sleit tauminn í löndun.
Þá ætlaði veiðimaður að ná sér í
bleikjur í Bleikjufljóti og kastaði sil-
ungaflugunni Mýslu andstreymis í
Bleikjufljóti. Hann fékk enga bleikju
en hinsvegar tvo laxa.
Sannkallaður höfð-
ingi úr Höfðahyl
Morgunblaðið/Einar Falur
Er þetta bleikjutrýni? Þegar Sölvi Ólafsson kastaði Mýslu andstreymis í Bleikjufljóti í Vatnsdalsá í vikunni ætl-
aði hann að setja í bleikju. Þegar fiskurinn rak upp trýnið reyndist hann 70 cm lax. Annar lax tók skömmu síðar.
Aflahæstu árnar
Veiðivatn (Stangafjöldi) Veiði
Staðan 14. september 2011
Heimild: www.angling.is
Á sama
tíma í fyrra
5.271
5.230
3.528
2.279
2.769
2.023
3.742
2.106
1.960
1.001
1.794
1.164
1.430
1.073
949
Veiðin
7. sept
3.853
3.696
2.066
2.106
1.970
1.820
1.795
1.750
1.460
1.115
1.100
1.127
961
848
803
Ytri-Rangá & Hólsá (24)
Eystri-Rangá (18)
Miðfjarðará (10)
Norðurá(15)
Blanda(16)
Selá í Vopnafirði (8)
Þverá - Kjarrá (14)
Langá (12)
Haffjarðará (6)
Breiðdalsá (8)
Grímsá og Tunguá (8)
Elliðaárnar (4)
Laxá í Aðaldal (18)
Laxá í Kjós (10)
Hofsá & Sunnudalsá (10)
* Veiði lokið
4.122
3.958
2.174
2.134
1.977
1.939
1.822*
1.798
1.505
1.266
1.153
1.150*
1.015
890
844
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2011
Einstakt tækifæri
Til sölu nýtt og glæsilegt 82 fm. heilsárshús á fallegum útsýnisstað
norðan megin við Skorradalsvatn. Húsið er byggt á staðnum á steyptum
undirstöðum 2011 og er hannað í dönskum stíl með þremur svefnher-
bergjum, baðherbergi, forstofu og stóru alrými þar sem eru eldhús,
borðstofa og stofa. Gert er ráð fyrir kamínu í útsýnisátt.
Húsið er klætt að utan með standandi bandsöguðum furupanil og á þaki
er svart stallað ál. Umhverfis húsið er 130 fm. verönd þar sem
gert er ráð fyrir heitum potti. Húsið skilast fullbúið að utan, einangrað og
plastað að innan ásamt því að allir milliveggir eru komnir upp.
Hægt er að fá húsið fullklárað sé óskað eftir því.
Opið hús laugardaginn 17. sept. og sunnudaginn 18. sept.
frá kl. 14 – 18, sjón er sögu ríkari.
Verð 21,9 milljónir.
Upplýsingar í síma: 866-0195
Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, vígir sr. Kristján
Val Ingólfsson til embættis vígslubiskups í Skálholts-
umdæmi. Vígslan fer fram í Skálholtsdómkirkju á morg-
un, sunnudaginn 18. september, kl. 14.
Sr. Egill Hallgrímsson, sóknarprestur í Skálholti, og
sr. Kristinn Ólason, rektor, þjóna fyrir altari, ásamt
biskupi Íslands og sr. Jóni A. Baldvinssyni, vígslubiskupi
Hólaumdæmis. Ritningarlestur annast Pétur Kr. Haf-
stein, forseti kirkjuþings, Þórey Dögg Jónsdóttir djákni
og Solveig Fiske, biskup í Noregi, og famuli (yngstir
vígðra þjóna), sr. Sigurvin Jónsson og Þórey Dögg Jóns-
dóttir djákni.
Sr. Halldóra Þorvarðardóttir, prófastur í Suðurprófastsdæmi, lýsir
vígslu. Vígsluþegi, sr. Kristján Valur Ingólfsson, prédikar.
Vígsluvottar eru sr. Ragnheiður Karítas Pétursdóttir, sóknarprestur í
Ólafsvíkur- og Ingjaldshólsprestakalli, sr. Jón Helgi Þórarinsson, sókn-
arprestur í Langholtsprestakalli, Jógvan Fríðriksson, Færeyjabiskup, Kar-
sten Nissen, biskup í Viborg, Danmörku, David Hamid, biskup í Gíbraltar,
fulltrúi erkibiskupsins í Kantaraborg, Ragnar Persenius, biskup í Upp-
sölum, Svíþjóð, Solveig Fiske, biskup í Hamri, Noregi, Matti Repo, biskup í
Tampere, Finnlandi, og sr. Hans Georg Oestreicher, fulltrúi EMB, Þýska-
landi.
Biskupsvígsla í Skálholti á sunnudag
Kristján Valur
Ingólfsson
Dagur kærleiksþjónustunnar í
þjóðkirkjunni er á morgun, sunnu-
daginn 18. september. Í ár er at-
hyglinni beint að starfi sjálf-
boðaliða sem fást við margvísleg
verkefni í kirkjunni.
Sjálfboðaliðar taka þátt í öllu
starfi kirkjunnar, s.s. í stjórnun,
fræðslu, boðun, tónlist og kærleiks-
þjónustu.
Í tilefni dagsins verður útvarps-
guðsþjónusta frá Bessastaðakirkju
kl. 11 með þátttöku sjálfboðaliða úr
sókninni.
Að henni lokinni verður boðið til
samveru í safnaðarheimilinu
Brekkuskógum, þar sem Bessa-
staðasókn verður afhent við-
urkenning í tilefni af Evrópuári
sjálfboðins starfs.
Morgunblaðið/Jón Sigurðarson
Vinátta Kærleikurinn er mikilvægur.
Dagur kærleikans í
kirkjum landsins
Örnefnasjá Landmælinga Íslands
var opnuð í gær í tilefni af Degi ís-
lenskrar náttúru.
Í sjánni er hægt að leita eftir ör-
nefnum og skoða þau á loftmyndum
í góðri upplausn sem er nýjung á Ís-
landi. Þar er nú að finna yfir 58 000
örnefni úr örnefnagrunni Land-
mælinga Íslands. Fer þeim sífellt
fjölgandi enda mikill áhugi almenn-
ings á varðveislu örnefna.
Örnefnasjáin er á slóðinni http://
atlas.lmi.is/ornefnasja/
Örnefni í máli og
myndum á netinu
Haustmarkaður Hlöðunnar í Vog-
um á Vatnsleysuströnd verður
haldinn í dag frá kl. 12-18. Íbúar
Voga og Vatnsleysustrandar bjóða
grönnum sínum að njóta haust-
uppskerunnar með sér.
Meðal þess sem verður á boð-
stólum er sultur, rúgbrauð og ný-
upptekið grænmeti. Einnig verða
til sölu húfur, treflar o.fl.
Keppt um bragðbestu sultuna.
Markaðurinn er haldinn í hlöðu
sem stendur við Egilsgötu 8 eða
bæinn Minni-Voga í Vogum á
Vatnsleysuströnd.
Matur Keppt verður um bestu sultuna.
Haustmarkaður
í Vogum
Í ágústmánuði flutti Iceland Express 48,5% farþega frá
Lundúnum til Keflavíkur, en sambærilegar tölur fyrir
maí voru 33,7 %, í júní var hlutfallið 41,26 % og í júlí-
mánuði flutti félagið 44,78 prósent allra farþega frá
Lundúnum til Keflavíkur. Þessar tölur eru frá bresku
flugmálastjórninni. Það sem af er ári er hlutdeild Ice-
land Express í farþegaflutningum frá Bretlandi al-
mennt til Keflavíkur 45 prósent.
Almennt séð er árið í ár metár í farþegaflutningum
hjá Iceland Express, segir í frétt frá félaginu.
Morgunblaðið/Ernir
Met í farþegaflutningum hjá IE
Félag áhugafólks um kvennaknattspyrnu (FÁK) var
stofnað þann 19. júní sl., á 96 ára afmæli kosninga- og
kjörgengisréttar kvenna á Íslandi. Í dag verður opnuð
heimasíða félagsins, kvennabolti.is, en þá leika bæði A-
landsliðið og U19-landslið kvenna í undankeppni Evr-
ópumótsins.
Megintilgangur félagsins er að standa vörð um hag
kvenna í knattspyrnu. Meðal helstu markmiða er að
auka aðsókn á kvennaleiki, auka umfjöllun og umræðu
um knattspyrnu kvenna og jafna hlut kvenna og karla á
öllum sviðum knattspyrnunnar.
Stofnendur eru: Ólafur Lúther Einarsson, Íris Björk
Eysteinsdóttir, Hallur Ólafur Agnarsson, Daði Rafnsson
og Ásgrímur H. Einarsson. Stjórn félagsins skipa: Ólafur
L. Einarsson, formaður, Daði Rafnsson, Ásgrímur H.
Einarsson, Hrönn Guðmundsdóttir og Þórir Óskarsson.
Hagsmunafélag áhugafólks um
kvennaknattspyrnu