Morgunblaðið - 17.09.2011, Side 36

Morgunblaðið - 17.09.2011, Side 36
36 MINNINGAR Messur á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 2011 ✝ Ingi Þór Ingi-marsson fæddist að Vatns- leysu í Fnjósk- árdal 23. desem- ber 1925. Hann lést að Kristnesi 9. september sl. Ingi var sonur hjónanna Bene- dikts Ingimars Kristjánssonar f. 28. nóvember 1879, d. 10. feb. 1930 og Þór- unnar Pálsdóttur f. 24. apríl 1892, d. 6. jan 1978. Ingi var yngsti sonur Þórunnar og eina barn Ingimars en fyrir átti Þórunn fjögur börn með Lúth- er Olgeirssyni en hann fórst með Öldunni 14. maí 1922. Hálfsystkini Inga eru Jón Geir f. 8. júní 1914, d. 7. maí 1997. Olgeir f. 26. október 1915, d. 22. júní 1996. Margrét f. 3. des 1917 og Lúlley Ester f. 24. feb 1922. Fimmta júní 1949 kvæntist Ingi, Kristjönu Ingi- björgu Halldórsdóttur frá Neðri-Dálksstöðum á Sval- barðsströnd, f. 11. nóvember 1930, d. 10. nóv. 1975 og áttu þau fimm börn. 1) Björn f. 24. október 1949, kvæntur Krist- ínu Helgu Harð- ardóttur. Börn þeirra eru Jakob, Ingibjörg og Ing- þór. 2) Ómar Þór f. 9 mars 1953, kvæntur Önnu Petru Her- mannsdóttur, Óm- ar á soninn Gunnar Inga með fyrrver- andi sambýliskonu sinni, Láru Hrafns- dóttur, og Anna Petra á tvær dætur frá fyrra hjónabandi, Dagbjörtu Beck og Heiðrúnu Beck. 3) Inga María f. 17. júní 1955, gift Eyjólfi Sigurðssyni, eiga þau soninn Ómar, einnig á Inga María Kristjönu Ingi- björgu með fyrrverandi sam- býlismanni sínum, Gunnari Tryggvasyni. 4) Hanna Dóra f. 26 maí 1960. Synir hennar eru Ingi Þór og Gunnar Björn sem hún á með fyrrverandi eig- inmanni sínum, Jóni Braga Gunnarssyni. 5) Hulda Hrönn f. 15 desember 1969, gift Pétri Má Guðjónssyni. Börn þeirra eru Birkir Örn og Fanney Lind. Árið 1977 kynntist Ingi eftirlifandi sambýliskonu sinni Sigurlaugu Jónasdóttur f. 18 september 1930. Ingi og Lauga bjuggu saman á Neðri- Dálksstöðum og síðar á Dálks- stöðum allt þar til Ingi fékk dvalarheimilispláss að Krist- nesi fyrr á þessu ári. Barna- barnabarnabörn Inga eru 6 talsins. Ingi var alla tíð mikill bóndi í sér og þekkti sínar ær og kýr, hann var mjög handlag- inn og eyddi miklum tíma í viðgerðir á tækjum og tólum og allskonar föndur. Skóla- ganga hans var ekki mikil, hann lærði að lesa, reikna og skrifa en allt annað sem hann kunni lærði hann í skóla lífs- ins. Söngur og tónlist var Inga í blóð borin, var hann raulandi frá morgni til kvölds og söng í kirkjukórnum í hart nær hálfa öld. Hann tók þátt í uppbygg- ingu í sveitinni, var mikill K.S.Þ.-maður og þótti sárt að sjá eftir því. Ingi hafði gaman af bílum og veiði og skrapp oft á færi eða skutlaði út neti ef vel viðraði. Eftir að hann hætti sem bóndi og heilsu- brestur fór að gera vart við sig tók hann því jafn ákveðnum tökum og svo mörgu öðru í lífinu og fór tvisvar í viku í æfingar. Barð- ist hann hetjulega við sjúkdóm sinn allt til endaloka. Jarðarför Inga verður gerð frá Svalbarðskirkju í dag, laugardaginn 17. september 2011, og hefst athöfnin kl. 14. Ég var svo heppin að geta verið mikið í sveitinni á Neðri- Dálksstöðum hjá afa og Laugu og kynnast því afa mjög vel, í fyrstu í heimsóknum með mömmu og pabba, svo þegar ég kom til sumardvalar og vinnu og enn síðar þegar ég fór að koma með fjölskyldu mína í heimsókn til afa og Laugu í Dálksstaði. Síðustu daga hafa komið upp margar minningar um duglegan, sterkan og handlaginn mann, myndir af afa í fjósinu með span- jóluna á höfðinu, afa að draga heyvagninn upp í fjós, afa að kenna mér að raka á litla trak- tornum, afa að athuga með netin, afa að gera við í Jóhönnuhúsinu, afa sitja í horninu sínu í eldhús- inu eða í græna stólnum sínum í stofunni með pípuna. Síðar eru myndir af afa þegar hann var fluttur í Dálksstaði og hættur búskap, en þá kom handlagni hans og útsjónarsemi enn betur í ljós og er ég ein af mörgum sem hafa notið aðstoðar hans t.d. með viðgerðir á bíl og afnot af heim- ilistækjum sem hann hefur gert upp. Síðustu æviárin voru veikindi farin að hafa mikil áhrif á heilsu hans og starfsorku en allt fram á síðasta dag fékk maður hjá hon- um koss og klapp á öxlina. Í síðustu heimsókn minni til afa fram í Kristnes fór ég með nýfæddan son minn með og á ég því ómetanlega mynd af þeim saman en nokkrum dögum síðar lést afi í faðmi fjölskyldunnar. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vinin sinn láta, sem sefur hér hinn síðasta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja í friðarskaut. (Valdimar Briem) Elsku afi, þó svo að þú sért ekki lengur hérna með okkur þá lifir þú í hjarta mínu og öllum góðu minningunum. Takk fyrir allt, afi minn. Ástarkveðja, þín Kristjana. Allt hefur sinn tíma undir sól- inni, bæði gleði og sorg. Í dag kveð ég Inga Þór á Dálksstöð- um. Það er alltaf erfitt að kveðja. Tómarúmið sem verður til þegar við missum ástvin er mikið og það erfitt að sætta sig við að sá sem hefur alltaf verið til staðar kemur aldrei aftur. Elsku Ingi, það var erfitt að horfa á þig berjast við veikindi þín síðustu ár, þó sérstaklega síðustu dagana. Nú er þessari baráttu lokið og þú kominn á betri stað. Þar er eflaust glatt á hjalla, því það var alltaf stutt í húmorinn hjá þér. Það eru margar minningar sem hafa rifjast upp undanfarið, allar stundirnar sem ég hef átt með þér og Laugu frænku í sveitinni. Þið voruð alltaf á „móti“ hvort öðru (þ.e. sátuð á móti hvort öðru við eldhúsborð- ið) og manstu, Ingi, þegar við vorum alltaf að smakka til klein- urnar hennar Laugu, smökkuð- um oft svo mikið að við kláruðum kleinupokann og hlógum oft svo mikið við eldhúsborðið, það var jú eitthvert bragð af kleinunum, var það ekki? Já og manstu, Ingi, sjóferðina miklu sem við fórum í og endaði í fjörunni rétt innan við Gauts- staði. Heimferðina á Grána gamla úr réttunum sem búið er að hlæja svo mikið að, tiltektirnar í hlöðunni þegar mýsnar hlupu um allt, þegar þú kenndir mér á traktorinn, já og að keyra bíl og ég kunni ekki að bremsa. Það var alltaf svo gott að koma til ykkar Laugu, sérstak- lega var yndislegt að fá að skíra litla drenginn minn, Kristján Inga, heima hjá ykkur á Dálks- stöðum. Svona get ég lengi talið upp en aðrar minningar geymum við hjá okkur. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Nú er komið að kveðjustund, elsku Ingi. Ég mun alltaf sakna þín, takk fyrir að vera sá sem þú varst mér og fyrir allt það góða sem þú gafst mér. Kveðja, Linda. Ingi Þór Ingimarsson AKUREYRARKIRKJA | Fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11. Umsjón hafa: sr. Hildur Eir Bolladóttir, Sunna Dóra Möller, Sigrún Magna Þórsteinsdóttir og Hjalti Jónsson. Á eftir verður kynn- ing á safnaðarstarfi kirkjunnar vet- urinn 2011-2012 í safnaðarheimilinu. Veitingar. Kántrýmessa kl. 20. Hjalti Jónsson og Lára Sóley Jóhannsdóttir leiða inn í suðurríkjastemmningu með fiðlu, gítar og söng. Prestur er sr. Hild- ur Eir Bolladóttir og Sunna Dóra Möller guðfræðingur, prédikar. ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Prestarnir þjóna fyrir altari. Sunnudagaskólinn í umsjá Ingunnar og Hlöðvers á sama tíma í safnaðar- heimilinu. Þáttur með Hafdísi og Klemma o.fl. Fundur með foreldrum/ forráðamönnum fermingarbarna um dagskrá fermingarstarfa í vetur. ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédik- ar og þjónar fyrir altari, organisti er Magnús Ragnarsson og forsöngvari er Anna Hafberg. Börnin taka þátt í upp- hafi messunnar en fara svo með Ás- dísi djákna í sunnudagaskóla í safn- aðarheimilinu. Kaffisopi og safi á eftir. Sjá www.askirkja.is. ÁSTJARNARKIRKJA | Gospel- messa kl. 11. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur tónlistarstjóra, prestur er sr. Kjartan Jónsson. Sunnu- dagaskóli á sama tíma. BESSASTAÐAKIRKJA | Guðsþjón- usta á degi kærleiksþjónustunnar kl. 11. Sr. Hans Guðberg Alfreðsson þjónar fyrir altari og sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir prédikar. Ennfremur þjóna Gréta Konráðsdóttir djákni, Ragnheiður Sverrisdóttir djákni, Magnús Halldórsson, Einar Karl Birg- isson, Kjartan Örn Sigurðsson og Jó- hanna Aradóttir. Álftaneskórinn syng- ur undir stjórn Bjarts Loga Guðna- sonar organista. Samvera í Brekkuskógum 1 á eftir. Bessastaðasókn Sunnudagaskóli kl. 11 í Brekkuskógum 1. Umsjón hafa Auður, Heiða Lind, Finnur, Agnes og Bergrós ásamt yngri leiðtogum. BOÐUNARKIRKJAN | Samkoma og biblíufræðsla kl. 11 í dag, laugardag. Hressing á eftir. BORGARNESKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 20. Organisti er Steinunn Árnadóttir og prestur Þorbjörn Hlynur Árnason. BREIÐHOLTSKIRKJA | Sunnudaga- skóli og messa kl. 11. Prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir, kór Breiðholts- kirkju syngur, organisti er Örn Magn- ússon. Kaffi á eftir. DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur er sr. Gunnar Sigurjónsson, organisti er Zbigniew Zuchowich og kór Digraneskirkju syngur. Sunnu- dagaskóli á sama tíma á neðri hæð. Sjá www.digraneskirkja.is DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Hjálmar Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Barn borið til skírnar. Dóm- kórinn syngur, organisti er Kári Þor- mar. Sunnudagaskólinn á kirkjuloftinu meðan á messu stendur. Æðruleys- ismessa kl. 20. Sr. Karl V. Matthías- son prédikar og sr. Hjálmar Jónsson leiðir stundina. Bræðrabandið sér um tónlistina. ELLIHEIMILIÐ Grund | Messa kl. 14 í hátíðarsal Grundar. Félag fyrrum þjónandi presta annast helgihaldið, sr. Sveinbjörn Bjarnason predikar og organisti er Kristín Waage. Grund- ardrengjakórinn leiðir sálmasöng. EMMANÚELS Baptistakirkjan | Guðþjónusta og sunnudagaskóli (Mass & Sundayschool) kl. 12 í Stærðfræðistofu V 202 í Fjölbrauta- skólanum í Garðabæ á Skólabraut 6. Veitingar á eftir. Prestur er sr. Robert Andrew Hansen. Guðþjónusta á ensku og íslensku (in English & Ice- landic). Þurfi að sækja má hringja í síma 847-0081. FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjón- usta kl. 11. Ólöf Margrét Snorradóttir guðfræðinemi prédikar og sr. Svavar Stefánsson og Ragnhildur Ásgeirs- dóttir djákni þjóna fyrir altari. Kór kirkj- unnar leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Guðnýjar Einarsdóttir org- anista. Sunnudagaskóli á sama tíma. Kirkjuvörður og meðhjálpari er Jó- hanna Freyja Björnsdóttir. Eftir guðs- þjónustuna verða tónleikar í kirkjunni. Guðný Einarsdóttir organisti kynnir og leikur Tokkötu og fúgu í d-moll eftir J.S. Bach. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnu- dagskóli kl. 11. Messa kl .13. Kór og hljómsveit kirkjunnar leiðir sönginn. FRÍKIRKJAN Kefas | sunnudaga- skóli kl. 11. Boðið upp á aldursskipta fræðslu og veitingar í lokin. Almenn samkoma kl. 13.30. Lofgjörð, ritning- arlestur, barnagæsla og fyrirbænir fyr- ir þá sem vilja. Kaffi á eftir. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Messa og barnastarf kl. 14. Sr. Bryndís Valbjarn- ardóttir þjónar fyrir altari og ferming- arbörn sjá um ritningarlestur. Anna Sigga og kór Fríkirkjunnar í Reykjavík leiða tónlistina ásamt Aðalheiði Þor- steinsdóttur, orgelleikara. GLERÁRKIRKJA | Messa og sunnu- dagaskóli kl. 11. Dagur kærleiksþjón- ustunnar. Starf kirkjunnar ásamt starfsfólki og sjálfboðaliðum, verður kynnt. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjón- ar, Pétur Björgvin Þorsteinsson, djákni, prédikar og kór kirkjunnar leiðir almennan söng. Sunnudagaskóli í safnaðarheimilinu, sameiginlegt upp- haf inni í kirkju. GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Guðrún Karlsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari, kór kirkjunnar syng- ur og organisti er Hákon Leifsson. Sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Sigurður Grétar Helgason. Umsjón hefur Gunn- ar Einar Steingrímsson djákni og und- irleikari er Stefán Birkisson. Borgarholtsskóli Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Lena Rós Matthíasdóttir pré- dikar og þjónar fyrir altari. Kammerkór Grafarvogskirkju syngur, organisti er Guðlaugur Viktorsson. Sunnudaga- skóli á sama tíma í umsjá Þóru Bjarg- ar Sigurðardóttur. GRENSÁSKIRKJA | Morgunmatur kl. 10 og bænastund kl. 10.15. Barna- starf kl. 11, umsjón hafa Nanda María og Helga Kolbeinsdóttir. Messa kl. 11. Altarisganga og samskot til Hjálp- arstarfs kirkjunnar. Messuhópur þjón- ar. Kirkjukór Grensáskirkju syngur, organisti Árni Arinbjarnarson, prestur er sr. Ólafur Jóhannsson. Molasopi á eftir. Hversdagsmessa með Þorvaldi Halldórssyni á fimmtudag kl. 18.10. GUÐRÍÐARKIRKJA Grafarholti | Léttmessa kl. 11. Prestur sr. Sigríður Guðmarsdóttir og tónlistarflutningur í umsjá Þorvaldar Halldórssonar. Með- hjálpari Aðalsteinn D. Októsson, kirkjuvörður Lovísa Guðmundsdóttir. Kaffisopi á eftir. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir þjónar og Barbörukórinn í Hafnarfirði leiðir sönginn undir stjórn Guðmundar Sigurðssonar kantors kirkjunnar. Sunnudagaskóli verður á sama tíma í safnaðarheimili. Morgunmessa mið- vikudag kl. 8.15, morgunverður á eftir. Tíðasöngur fimmtudaga kl. 10. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Magnea Sverris- dóttir djákni prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Jóni Dalbú Hróbjarts- syni og rev. Leonard F. Ashford. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mót- ettukór Hallgrímskirkju syngja, org- anisti er Hörður Áskelsson. Umsjón með barnastarfinu hefur Magnea Sverrisdóttir djákni. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðs- þjónusta kl. 11. Sr. Sigfús Krist- jánsson þjónar, félagar úr kór kirkj- unnar syngja og leiða safnaðarsöng, organisti er Jón Ólafur Sigurðsson. Sunnudagaskóli kl. 13. Sjá www.hjallakirkja.is. HJÁLPRÆÐISHERINN Akureyri | Bænastund kl. 16.30. Samkoma kl. 17. HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Samkoma kl. 8. Sigurður Ingimarsson talar. HVALSNESKIRKJA | Messa kl. 20. Dagur kærleiksþjónustunnar. Kirkju- kórinn leiðir söng undir stjórn Steinars Guðmundssonar organista, prestur sr. Sigurður Grétar Sigurðsson. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Samkoma og brauðsbrotning kl. 11. Helgi Guðnason prédikar, lofgjörð og fyrirbæn. Café center er opið á eftir. Alþjóðakirkjan verður með samkomu á ensku kl. 14. ÍSLENSKA KIRKJAN í Svíþjóð | Guðsþjónusta í V-Frölundakirkju í Gautaborg kl. 14. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur undir stjórn Kristins Jóhannessonar, orgelleik annast Tuula Jóhannesson. Gestir á leiðtoga- námskeiði barnastarfsins taka þátt í guðsþjónustunni og sr. Arna Grét- arsdóttir predikar. Barnastund með Birnu. Altarisganga. Fundur með ferm- ingarbörnum á eftir. Kaffi. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Sam- koma kl. 13.30. Barnastarf, lofgjörð og fyrirbænir. Einnig verður vitn- isburður og þrísöngur. Friðrik Schram predikar. Kaffi á eftir. KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11. Framlag aðstandenda sýningarinnar Með blik í auga verður afhent Velferðarsjóði Suðurnesja. Sungin verða lög úr sýningunni við at- höfnina. Dagurinn er helgaður kær- leiksþjónustu við kirkjur landsins. Messuþjónar lesa texta, kór Keflavík- urkirkju syngur undir stjórn Arnórs Vil- bergssonar organista og prestur er sr. Skúli S. Ólafsson. Veitingar á eftir. KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson hér- aðsprestur prédikar og þjónar fyrir alt- ari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová kantors kirkj- unnar. Sunnudagaskólinn hefst í kirkj- unni en fer síðan í safnaðarheimilið. Umsjónarmenn eru Þóra Marteins- dóttir og Sólveig Aradóttir. KVENNAKIRKJAN | Guðþjónusta í Árbæjarkirkju kl. 20. Sr. Auður Eir Vil- hjálmsdóttir prédikar, kór Kvennakirkj- unnar leiðir söng við undirleik Að- alheiðar Þorsteinsdóttur. Á eftir er kaffi. Sjá www.kvennakirkjan.is. LANGHOLTSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Hjörtur Pálsson messar, organisti er Jón Stefánsson. Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan fara börnin með Kristínu og Aroni í safnaðarheimilið. Kaffisopi. Ferming- arstarfið kl. 19.30. LAUGARNESKIRKJA | Guðsþjón- usta og sunnudagaskóli kl. 11. Sig- urbjörn Þorkelsson þjónar ásamt Erlu Björk Jónsdóttur æskulýðsfulltrúa og sunnudagaskólakennurum. Gunnar Gunnarsson leikur á orgelið, kór Laug- arneskirkju leiðir safnaðarsönginn, hópur messuþjóna annast móttöku. LÁGAFELLSKIRKJA | Dagur kær- leiksþjónustunnar - Taize-messa kl. 20. Kór Lágafellskirkju syngur og org- anisti er Arnhildur Valgarðsdóttir. Ingi- björg Elefsen spilar á þverflautu, Birgir Haraldsson, söngvari flytur U2 lög. Djákni er Fjóla Haraldsdóttir, prestur sr. Ragnheiður Jónsdóttir og með- hjálpari Arndís Linn. Sunnudagaskóli verður kl. 13. Umsjón hefur Hreiðar Örn og Arnhildur. LINDAKIRKJA Kópavogi | Sunnu- dagaskóli í Lindakirkju og Boðaþingi kl. 11. Messa kl. 14. Kór Lindakirkju leiðir safnaðarsönginn undir stjórn Óskars Einarssonar, sr. Guðmundur Karl Brynjarsson þjónar. NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr Háskólakórnum leiða safn- aðarsöng og organisti er Steingrímur Þórhallsson. Sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Messu- þjónar aðstoða. Umsjón með barna- starfi hafa: Sigurvin, Katrín og Ari. Veitingar á Torginu á eftir. SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 17 í safnaðarheimili Grensáskirkju. Ræðumaður er Haraldur Jóhannsson. SAUÐÁRKRÓKSKIRJA | Sunnu- dagaskóli kl. 11, í umsjón Guju og Fanneyjar. Messa kl. 14. Prestur er sr. Sigríður Gunnarsdóttir og kirkjukórinn leiðir söng. Kleinukaffi á eftir. SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson þjónar, organisti er Jörg Sondermann. Hádeg- isverður á eftir. Kvöldmessa kl. 20 með taizesálmum. Sr. Óskar þjónar fyrir altari. Sjá www.selfosskirkja.is SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Almenn guðsþjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar, kór Seljakirkju leiðir safnaðarsöng, org- anisti er Tómas Guðni Eggertsson. Fermingarbörn og foreldarar þeirra eru sérstaklega boðnir til guðsþjónust- unnar. Kvöldguðþjónusta kl. 20. Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar, Þorvaldur Halldórsson stýrir tónlistinni ásamt fé- lögum úr kirkjukórnum. SELTJARNARNESKIRKJA | guðs- þjónusta kl. 11. Dagur kærleiks- og líknarþjónustu. Nanna Guðrún Zoëga, djákni prédikar, sr. Bjarni Þór Bjarna- son þjónar fyrir altari, Hjördís Ólafs- dóttir og Sigurður Kristjánsson lesa ritningarlestra. Organisti er Fiðrik Vign- ir Stefánsson og félagar úr Kamm- erkór kirkjunnar syngja. Sunnudaga- skóli verður á sama tíma undir stjórn Pálínu Magnúsdóttur æskulýðsfull- trúa. Sultusmakk og kaffi á eftir. Fólk er beðið að koma með sýnishorn af sultu haustsins. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Bisk- upsvígsla kl. 14. Biskup Íslands Herra Karl Sigurbjörnsson, vígir sr. Kristján Val Ingólfsson til embættis vígslubisk- ups í Skálholti. Sr. Egill Hallgrímsson sóknarprestur og sr. Kristinn Ólason rektor, þjóna fyrir altari, ásamt biskupi Íslands og sr. Jóni A. Baldvinssyni, vígslubiskupi. Sr. Halldóra Þorvarð- ardóttir, prófastur lýsir vígslu. Sr. Kristján Valur Ingólfsson prédikar. Benedikt Kristjánsson syngur ein- söng, Skálholtskórinn syngur og org- anisti er Jón Bjarnason. VEGURINN kirkja fyrir þig | Fjöl- skyldusamkoma kl. 14. Barnastarf, lofgjörð, predikun og fyrirbæn. Högni Valsson predikar. VÍDALÍNSKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11 á degi kær- leiksþjónustunnar. Sr. Friðrik J. Hjartar prédikar. Félagar úr kór Vídalínskirkju leiða sönginn, organisti er Jóhann Baldvinsson. Margrét Rós og leiðtogar sunnudagaskólans annast börnin. Molasopi á eftir. VÍÐISTAÐAKIRKJA Hafnarfirði | Tónlistarguðsþjónusta kl. 11. Svavar Knútur flytur tónlist og prestur er sr. Bragi J. Ingibergsson. ÞORLÁKSKIRKJA | Vetrarstarfið hefst með sunnudagaskóla kl. 11. Heimatilbúið efni. Umsjón um sunnu- dagaskólanum hafa: Hafdís, Sigríður, Hannes og Baldur. ORÐ DAGSINS: Miskunnsami Sam- verjinn. (Lúk. 10) • Hlýlegt og gott viðmót á Grand hótel. • Fjölbreyttar veitingar lagaðar á staðnum. • Næg bílastæði og gott aðgengi. Grand erfidrykkjur Grand hótel Reykjavík, Sigtúni 38, sími 514 8000. erfidrykkjur@grand.is grand.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.